Dagur - 11.05.1949, Blaðsíða 1
F orustugreinin:
Alþýðuflokkurinn og
verzlunarmálin.
Dagu
2. síða:
Grein Hermanns Jónas-
sonar um stjórnmálaviS-
horfið.
XXXU. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 11. maí 1949
20. tbl„
Ánægjulegir nem-
endahljómleikar
Tónlistarskólans
Fyrstu nemendalónleikar Tónlistar-
skóla Akureyrar voru haldnir í
Menntaskólanum s. 1. sitnnudag. Léku
nemendur þar einieik og samleik á
pínaó og fiðlu, undir umsjón kcnn-
ara. Nemendur vorti hVort tveggja,
börn og fullorðið fólk. Tónleikar þess-
ir báru þess vott, að skólinn hefur
þegar unnið ágætt starf með því að
kenna ungu fólki hijóðfæraleik. Siun-
ir þcirra ncmenda. er þarna kotnu
fram, lcku smekkvíst og af furðulega
mikilli lcikni. Afá þar til nefna píanó-
leik Mána Sigurjónssonar og Bryndís-
ar Jakobsdóttur og fiðluleik Gígju Jó-
liannsdóttur. Aðrir nemendur, sem
komu fram þarna, voru: Lena M.
Riickert, píanó, Nana Jakobsdóttir,
fiðla, Svanhildur Árnadóttir, píanó,
Margrct Jóliannsdóttir, píanó, Stefán
Tryggvason, fiðla, og Björgvin Jörg-
ensson, fiðla.
Margt manna sótli hijómleikana.
Fóðurvörur fluttar
loftleiðis til Möðrudals
Mikil harðindi hafa verið á
Hólsfjöllum í vetur, svo sem
víðast annars staðar á landinu og
eru bændur þar orðnir heylitlir
og fóðurvörubirgðir þeirra á
þrotum. — í sl. viku sendu bænd-
ur fyrirspurn til skrifstofu Flug-
félagsins hér um kostnað við að
flytja fóðurvörur loftleiðis aust-
ur. — Flugfélagið sendi Grumm-
an-bát austur á land á laugar-
daginn og hafði hann meðferðis
fóðurvörusendingu til Möðru-
dalsbænda. Var henni varpað
niður skammt frá Möðrudal og
segja bændur hana hafa komið
óskemmda til jarðar. Nú eru
komnar leysingar þar eystra og
óvíst hvort þörf verður á frekari
aðgerðum í þessu efni.
Sigurður skáld á Arnarvatni
Dagur birti fyrir nokkru minningargrein um Sigurð Jónsson skáld á
Arnarvatni. Átti þessi mynd að fylgja greininni, en varð of síðbúin
úr prentmyndagerðinni. Þetta mun vera síðasta myndin, sem tekin
var af Sigurði. Guðni Þórðarson blaðamaður heimsótti Sigurð á
heimili hans að Arnarvatni á sl. sumri og tók þá þessa mynd af
honum. — Sigurður situr þar við slvrifborð sitt.
Háspennuíína frá Ákureyri fii
Hjalteyrar verður lögð í sumar
Er ætlað að ná til 70 sveitabæja innan
tveggja ára
Rafmagnsveitur ríkisins hafa tilkynnt rafveitustjóm Akureyrar að
ákveðið sé að leggja háspennulínu frá Akureyri til Hjalteyrar í sum-
ar. Sé línu þessari ætlað að ná til 70 sveitabæjar á þessari Ieið, en
ekki gert ráð fyrir að þeir komizt í samb. við línuna fyrr en 1950-’51.
Iðnskólanum verður
slitið annað kvöld
Prófum er nýlokið í Iðnskólan-
um, og var sýning á teikningum
nemenda opin almenningi í skóla-
húsinu sl. sunnudag. Fjöldi fólks
sótti sýninguna, enda var þar
margar vel gerðar og myndarleg-
ar teikningar sýndar, bæði frí-
hendisteiningar, stærðfræðilegar
teikningar (flatar- og rúmteikn-
ingar) og loks iðnteikningar úr
fjölda iðngreina. Einkunnir nem-
enda verða birtar í kvöld og á
morgun, þannig ,að byrjað verður
að lesa einkunnir 1. bekkinga kl.
5, en 2. bekkinga kl. 6 síðdegis í
kvöld, en einkunnir 3. bekkinga
kl. 4 og 4. bekkinga kl. á síðdegis
á morgun.
Iðnskólanum verður slitið og
brottskráðum nemendum afhent
prófskírteini sín kl. 6 annað
kvöld.
Af þessu tilefni fara Rafmagns-
veitur ríkisins fram á að fá
keypta orku frá Laxárvirkjun-
inni, allt að 50 kw. síðari hluta
þessa árs, allt að 100 kw. 1950 og
allt að 150 kw. úr því þar til afl
kerfisins hefir verið aukið með
viðbótarvirkjun við Laxá eða á
annan hátt. Umrædd lína verður
því aðeins lögð, að samningar
takist við rafveituna hér um að
leggja fram þessa orku.
Aflvélar Hjalteyrarverksmiðj-
Unnar toppstöð hér.
í sambandi við þetta erindi
samþykkti rafveitustjórnin hér
eftirfarandi á fundi sínum 4. þ. m.
„í trausti þess að hæstvirt rík-
isstjórn veiti Akureyrarbæ þá
aðstoð, sem um hefir verið
beðið til þess að hraða fram-
kvæmdum við virkjun Laxár,
og mcð tilliti til þess að vænt-
anlega verður hægt að fá nokk-
urt rafmagn, allt að ca. 400 kw.
frá Hjalteyrarverksmiðjunni til
bæjarins á vetrum, ef umrædd
Iína verður lögð, leggur raf-
veitustjórnin til að bæjarstjóm
heimili henni að verða við of-
anritaðri beiðni Rafmagnsveitu
ríkisins, og að semja við Raf-
magnsveiturnar og eigendur
Hjalteyrarverksmiðjunnar um
verð og önnur atriði viðvíkj
andi rafmagnsviðskiptum þess
ara aðila.“
Dicselvarastöð kostar 3 millj. kr.
Samkvæmt beiðni rafveitunnar
hér, hefir raforkumálaskrifstofa
ríkisins gert kostnaðaráætlun um
uppsetningu dieselvarastöðvar
hér samkv, vélatilboðum þeim,
sem bænum bárust fyrir nokkru
frá Gísla Halldórssyni verkfræð-
ingi. Samkvæmt áliti raforku
málastjórnarinnar, mundi kostn-
aður við uppsetningu stöðvarinn-
ar um 2% millj. króna, og er þá
ekki-reiknað með kostnaði við að
tengja stöðina við rafmagnskerfi
bæjarins. Reksturskostnaður pr.
kw.stund er áætlaður 20—50 aur
ar eftir mismunandi notkun
stöðvarinnar. í sambandi við
þessar niðurstöður var eftirfar
and samþykkt á fundi rafveitu-
stjórnar 4. maí:
Þar sem rafveitustjórnin lítur
svo á, að aðaláherzlu þurfi að
leggja á að koma upp viðbótar-
virkjun við Laxá, sér hún sér
ekki fært að leggja til að jafn
framt verði sett upp vararaf
stöð í bænum, þótt hún hins
vegar viðurkenni þess fulla
þörf
Aðalfundur Kaupfélags Þingeyinga:
Sala aðkeyptra vara minnkaði um
rösklega hálfa milljón króna
Félagið endurgreiðir félagsmönnum fimm af
hundraði af viðskiptum síðastliðins árs
Dagana 29. og 30. apríl sl. var 68. aðalfundur Kaupfélags Þingey-
inga haldinn í Húsavík. Mættir voru á fundinum 82 fulltrúar, auk
framkvæmdarstjóra, félagsstjórnar og endurskoðenda. — Fundar-
stjóri var kjörinn Karl Kristjánsson félagsstjórnarformaður. — Áður
en gengið var til dagskrár, bauð hann alla fundarmenn velkomna, en
sérstaklega beindi hann máli sínu til Björns Sigtryggssonar á Brún,
sem hefði endurheimt heilsu sína svo, að liann hefði séð sér það fært
að koma og sitja með þeini fund. Að því búnu vék hann máli sínu að
öðrum kaupfélagsmanni, sem setið Jiefði á fundum félagsstjórnar í
fleiri áratugi og lcngst af verið í stjórn þess og forniaður félags-
stjórnar í mörg ár, Sigurði Jónssyni skáldi á Arnarvatni. En Sigurð-
ur lézt 24. febr. sl. og var jarðsunginn að Skútustöðum 12. marz. —
Fór útför hans fram á kostnað
Kaupfélags Þingeyinga og Sam-
bands ísl. samvinnufélaga. — Að
lokinni ræðu fundarstjóra risu
fundarmenn úr sætum sínum og
ríkti algjör þögn um stund, að
henni lokinni sungu fundarmenn,
undir stjórn Jónasar Helgasonar
á Grænavatni, „Blessuð sértu
sveitin mín“.
Þórhallur Sigtryggsson fram-
kvæmdarstjöri gaf fundinum
glögga og göða skýrslu yfir rekst-
ur og hag félagsins á árinu, sem
þökkuð var með almennu lófa-
taki.
Sala aðkcyptra vara minnkaði.
Sala félagsins í innlendum og
erlendum vörum nam rúmlega 9
milljónum króna, og hafði aukizt
á árinu um 1 milljón og 658 þús.
Var aukning sú eingöngu vörur
Mjólkursamlagsins og Brauð-
gerðarinnar. Sala aðkeyptra vara
lækkaði um 540 þúsuncl og kom
sú lækkun eingöngu niður á inn-
anþúðarvarningi.
Sjóðeignir félagsmanna eru nú
1 milljón 688 þúsund kr„ og höfðu
þær aukizt á árinu um 246 þús.
kr. Af fé því, sem rekstur félag's-
ins þarfnast, er 62V2% eigið fé.
Skuldir félagsmanna^voru engar,
enda fyrir nokkrum árum tekin
upp staðgreiðsla.
Hinn 1. júní sl. hóf Kaupfélagið
brauðgerðarstarfsemi í félagi við
bakarameistara Sigtrygg Pétui's-
son, sem á 1/4 í fyrirtækinu. —
Starfsemin gekk mjög vel, og
nam sala brauðgei'ðarinnar þessa
7 mánuði 331 þús. krónur.
Fundurinn samþykkti að end-
urgreiða félagsmönnum 5% af
endurgreiðsluskyldri úttekt
þeirra á árinu 1948, og nam sú
upphæð 73800 krónur, og var öll
sú upphæð lögð í Stofnsjóð fé
lagsmanna.
Ur Menningarsjóði félagsins
voru veittar þessar upphæðir:
Til Skógræktarfélags S.-Þing
eyinga kr. 1000.00.
Til kaupa á kvikmyndavél kr.
4000.00.
Til vélritunai’ á héraðslýsingu
Þingeyjarsýslu kr. 100.00.
Til Bókasafns S.-Þingeyinga
kr. 1000.00.
Endurkosnir í stjórn félagsins
þeir Baldur Baldvinsson bóndi á
Ofeigsstöðum og Bjartmar Guð-
mundsson bóndi á Sandi. Sömu-
leiðis endurkosnir í varastjórn
þeir Steingrímur Baldvinsson
bóndi í Nesi og Tryggvi Sig-
tryggsson bóndi á Laugabóli.
F ramkvæmdir.
Á árinu var haldið áfram
byggingu hins nýja verzlunar-
húss og steypt önnur hæð, unnið
við að leggja vatns-, skólp- og
hitalagnir. í ár er fengið fjárfest-
ingarleyfi til að steypa þriðju
hæðina og ganga frá húsinu að
utan. Einnig verður unnið við
innréttingu ef efrti fæst.
Rætt um minjasafn. —
Skemmtanir.
Stjórn félagsins hafði á árinu
rætt um stofnun minjasafns og
(Framhald á 8. síðu).
Þiíigeyskir samvinnu-
menn styðja stjórnar-
skrártillögurnar
Eftirfarandi tillaga hlaut
EINRÓMA fylgi á aðalfundi
Kaupfélags Þingeyinga 29.
apríl síðastliðinn:
„Aðalfundur Kaupfélags
Þingeyinga 1949, telur núgild-
andi stjórnarskrá íslenzka
lýðvcldisins algerlega óviðun-
andi og lýsir cindregnu fyigi
við stefnu þá, sem kemur
fram í tillögum þeim til stjórn-
arskrárbreytingar, er Fjórð-
ungsþingin á Norðurlandi og
Austurlandi hafa saraþykkt og
gefið út.“