Dagur - 22.06.1949, Blaðsíða 1

Dagur - 22.06.1949, Blaðsíða 1
F orustugreinin: „Þjóðlegir“ kommúnistar og hin tegundin. Dagur FRAMSOKNARMENN! Munið héraðsfundinn um helgina. XXXII. árg. Akureyri, miðvikudaginn 22. júní 1949 25. tbl. Framsóknarmannna heist hér á laugardaginn Hermann Jónasson, formaður flokks- r ins, og Bjarni Asgeirsson atvinnumála- ráðherra mæta á fendinum Rætt verður um viðliorfið til stjórnarsam- starfsins og fleira Hinn áður boðaði héraðsfundur eða fjórðungsfundur Framsókn- armanna hefst í Samkomuhúsi bæjarins kl. 4 e. h. næstkomandi laugardag og mun standa yfir fram á sunnudaginn. Á fundinum mæta þeir Hermann Jónasson formaður flokksins og Bjarni Ásgeirs- son atvinnumálaráðherra og hafa þeir framsögu. Óviðunandi | ástandívegamál-) | um héraðsins | 1 Þegar þetta er ritað, hinn 21. I i júní, má enn heita ófært öllum j j farartækjum landlciðina héð- j i an austur í Þingeyjarsýslu. — I i Vaðlaheiði hefir að mestu ver- i j ið ófær bifreiðum síðan i j snemma í vetur og er umferð j i um hana nú bönnuð mcð öllu i j og óvíst hversu það bann kann j i að standa lcngi. Reynt hefir i j verið að fara austur í Þingeyj- j j arsýslu um veginn um Dals- i j mynni, en sá vegur er mjög i \ illur yfirferðar, enda lítt við i j haldið hin seinni ár og áðeins i i sumarvegur. Stöðvun allra j Iandsamgangna milli þessa i i héraðs og Þingcyjarsýslu og j það Iangt fram á sumar, veld- i ur margs konar crfiðleikum j og tjóni. Þingeyingar eiga erf- i itt um aðdrætti vegna hins j ófullkomna vegakerfis og fyr- | ir Akureyri, sem verzlunar- § stað og ferðamannabæ, er j samgöngustöðvunin svo Iangt i fram á sumar, til mikils tjóns. j Þeir, sem máluin eru kunnug- i ir, tclja að vegamálastjórnin j hafi ekki lagt kapp á það sem i skyldi, að gera Vaðlaheiðarveg j akfæran og líði svo hver dag- i urinn af öðrum að lítið sem j ekkcrt sé gert til þess að koma j vcginum í lag. Það hlýtur að j vera krafa Eyfirðinga og Þing- | eyinga, að hið mesta kapp sé j lagt á það að koma akvegar- i sambandi í milli héraðanna i j lag án tafar. — Jafnframt er i Ijóst, að nauðsyn er að koma j veginum um Dalsmynni og i Fnjóskadal hið fyrsta í gott j lag tíl þess að fyrirbyggja að j Iangvinn samgöngustöðvun jj milli héraðanna geti komið i fyrir í framtíðinni jafnvel þótt i snjóalög verði meiri á næstu i árum en verið hefir nú um z nokkur ár. Stal bíl - braut hús Á þriðja tímanum í fyrrinótt var farþegabíl Flugfélags íslands stolið þar sem hann stóð á Torfu- nefsuppfyllingu. Á leiðinni upp í bæinn var honum ekið á við- bygginguna við verzlunarhús Gudmans Efterfl. og laskaðist húið talsvert. Bíllinn skemmdist lítið sem ekkert. Lögreglan hafði þegar upp á manninum, sem bíl- inn tók og reyndist hann vera 18 ára piltur, aðkomumaður hér í bænum, og var hann mikið drukkinn. Jónsmessuhátíð um helgina Kvenfélagið Framtíðin gengst fyrir Jónsmessuhátíð að vanda nú um helgina með líku sniði og undanfarin ár. Fara hátíðahöldin fram á túnunum sunnan við sundlaugina og jafnframt verður kaffisala í Gagnfræðaskólahús- inu. Alls konar veitingar fást einnig á hátíðasvæðinu. Margvísleg skemmtiatriði verða á boðstólum. Á laugardaginn verður aðgang- ur að skemmtisvæðinu seldur á 5 kr. fyiir fullorðna, en ókeypis fyrir börn. Á sunnudaginn verða seld merki, sem gilda að öllum skemmtunum dagsins. Akureyringar hafa jafnan kunnað að meta hið óeigingjarna starf Framtíðarkvenna er þær hafa safnað fé til mannúðarstarfa, og mun svo enn reynast, að fólk fjölmenni á hátíðina. Þar að auki eru Jónsmessuhátíðirnar orðinn einn vinsælasti þátturinn í skemmtanalífi bæjarbúa að sumrinu. Hinn 16. þ. m. hófst verkfall hjá j verkamannafélaginu Dagsbrún í Reykjavík og hinn 18. þ. m. verk- fall hér hjá Verkamannafélagi Akureyrarkaupstaðar. Dagsbrún gerði kröfu um hækkun á tíma- kaupi úr kr. 2.80 í almennri vinnu í kr. 3.25 og tilsvarandi hækkun- ar á öðrum liðum taxtans. Sömu kröfur voru gerðar hér og af Þrótti á Siglufirði. Eftir stöðuga fundi með deilu- aðilum og fyrir milligöngu sátta- semjara ríkisins varð samkomu- lag á sunnudagsmorguninn um lausn deilunnar í Reykjavík og hækkar kaupið í almennri vinnu urn 10% eða í kr. 3.08, en nokkuð minni hækkun er á öðrum liðum taxtans. Héraðssáttasem j ari, Þorsteinn M. Jónsson, hafði deiluna hér til meðferðar og á mánudag sl. varð samkomulag hér um sama kaup og í Reykjavík fyrir almenna vinnu, og svipuð kjör á öðrum liðum taxtans. Þessir samningar hafa síðan verið formlega samþykktir af báðum deiluaðilum og eru verk- föllin leyst. Hér hófst vinna aftur á þriðjudagsmorgun. Búizt er við því að deilan í Siglufirði leysist nú á sama hátt. Héraðsfundur --------------• Þeir halda heim Bevin utanríkisráðherra Bret- lands, Vishinsky utanríkisráð- herra Sovét-Rússlands og Ache- son utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, eru nú horfnir heim af ráð- herrafundinuin í París, sem þeir sátu ásamt Schuman, utanríkis- ráðherra Frakklands. Bevin hefir látið svo ummælt, að nokkur ár- angur hafi orðið af fundinum, m. a. í Þýzkalands- og Austurríkis- málunum, og fyrir hans tilverkn- að muni stríðsóttinn nú minnka. Myndirnar eru áf Bevin og Vishinsky. Samningarnir gilda til 15. des. næstkomandi. Yms stéttarfélög hafa sagt upp samningum sínum og krefjast verulegra kauphækkana. Mun langt í land að allar þær deilur leysist, vafalaust má þó telja, að kaup í landinu hækki yfirleitt um 5—10% og þaðan af meira nú í sumar og að sjálfsögðu mun dýr- tíðin taka stökk upp á við í svip- uðum mæli. Það er sorgleg staðreynd fyrir launastéttir landsins og þjóðfé- lagið í heild, að þrátt fyrir marg- ar gi-unnkaupshækkanir á liðn- um árum gengur enginn þess dul- inn lengur, að dýrtíðin er búin að gleypa þær allar og launamenn berjast enn í bökkum. Samtök launamanna virðast þó enn ekki vilja beita samtakamættinum til þess að knýja stjórnarvöld og stjórnmálaflokka til virkra að- gerða í dýrtíðarmálinu, þ. e. að auka kaupmátt krónunnar, í stað þess að minnka hann, svo sem nú er gert. Vafalaust gætu laun- þegasamtökin komið miklu til leiSar til raunhæfra dýrtíðarað- gerða, ef unnið væri að því af sama kappi og að fjölga krónun- um fyrir hverja vinnustund. Auk þeirra eru væntanlegir hingað nokkrir menn úr mið- stjórn flokksins og þingmenn. Að loknum framsöguræðum verða almennar umræður. Aðalmál fundarins er dýrtíðar- málið og viðhorf flokksins til stjórnarsamstarfsins. Búizt við mikilli fundarsókn. Búizt er við miklli fundarsókn úr mörgum héruðum hér norðan- lands, allt frá Húnavatnssýslum til Þingeyjarsýslna. Sérstaklega er þess vænzt að flokksmenn úr Eyjaf. og Ak. fjölmenni á fund- inn. Eru flokksmenn hér með hvattir til þess að ráðstafa ekki síðari hluta laugardagsins og fyrri hluta sunnudagsins til ann- ars og þess eindregið vænzt, að menn úr öllum hreppum sýslunn- ar komi á fundinn, svo og flokks- menn héðan úr bænum. Aðalfundur Útgerðarfélags Ak- ureyringa h.f. var lialdinn í Sam- komuhúsi bæjarins í gærkveldi. Fjallaði fundurinn um reikninga félagsins 1948, en það er fyrsta heila starfsár félagsins, og uin önnur venjuleg aðalfundarstörf. Fundi var ekki svo langt komið í gærkveldi, er blaðið fór í press- una, að unnt reynist að greina hér frá öllum niðurstöðum. En aðal- atriðin munu vera þessi: Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði 4% arður til hluthafa af arði ársins, eða sama og var 1947 ,cr Kaldbakur var rekimi aðeins 7 mánuði. — Skipið nær nú ekki fullri lög- Fjölmennur Þingvallafundur. Um sl. helgi var haldinn slíkur fundur fyrir Suðurland á Þing- völlum og komu þar hátt á þriðja hundrað manns úr flestum byggðarlögum. Rætt var um dýr- tíðarmálið og stjórnarsamstarfið, stjórnarskrármálið og aukið byggðajafnvægi. Gerðar voru ályktanir í þessum málum öllum. Fi'amsóknarflokkurinn efnir nú til slíkra funda í öllum fjórðung- um til þess að ræða stjórnarsam- starfið og dýrtíðarmálin. Eftir þingslitin og þau tíðindi, sem nú eru að gerast í dýrtíðarmálunum, telur flokkurinn óhjákvæmilegt að Alþingi og ríkisstjórn taki öðrum tökum á þeim málum en verið hefir og það þegar í haust, en ella fái þjóðin tækifæri til þess að segja álit sitt á stefnum flokk- anna með kosningum. lieimilaðri afskrift, og nemur afskriftin á árinu á fjórða hundrað þús. kr. Á árinu 1947 var skipið afskrifað eins og lög- heimilað er niiðað við 7 mánaða starfrækslu. Útkoman hjá fé- laginu á árinu 1948 er því mun lakari en var 1947. Stafar þetta ekki af því að rekstur skipsins hafi gcngið verr, þ. e. að afli hafi verið Iakari eða sölur verri, heldur af hinu, að til- kostnaður allur fer sívaxandi, sérstaklega hér hcima. Á orði hefir verið að útgerð Kaldbaks hafi gengið sérlega vel yfirleitt. Má því renna grun í að ekki sé (Framhald á 8. síðu). Grunnkauk verkamanna hækkar um 10 prócent Verkföllin leyst upp úr helgimii Úfgerðariélag Akureyringa greiðir 4% arð Mun lakari útkoma 1943 en var 1947, vegna aukins tilkostnaðar á flestum sviðiitn

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.