Dagur - 28.01.1950, Page 2
2
D A G U R
Laugardaginn 28. janúar 1950
Um þessi mál snúast bæjarstjornarkosningarnar næstk. sunnudag:
(Framhald af 1. síðu).
þessu orði sé viðhaldið, og traust-
ir og reyndir menn fari með mál-
efni bæjarfélagsins. Fulltrúar
Framsóknarflokksins eru í þess-
um efnum tvímælalaust reynd-
ustu og trúverðugustu mennirnir,
sem völ er á í bæjarstjórninni. —
Hin nýja Laxárvirkjun á því
mikið undir því, að B-LISTINN
fái sem flnsta menn kjörna á
sunnudaginn.
Sjúkrahússmálið
Dagur hefur gert grein fyrir
sjúkrahússmálinu, hvernig það
stendur í dag og hver verkefni
bíða nýju bæjarstjórnarinnar. —
Samkvæmt upplýsingum þeirra
manna, sem kunnugastir eru, er
ekki hægt að vænta þess að spí-
talinn verði tekinn í notkun fyrr
en í árslok 1951 eða snemma árs
1952. Búnaður erlendis frá verð-
ur ekki kominn og uppsettur fyrr.
Unnið er af kappi við bygging-
una, og geta naumast nokkur ó-
fyrirsjáanleg atvik hamlað því,
að húsið sjálft verði fullbúið á
fyrrgreindum tíma.
Verkefni nýju bæjarstjóm-
arinnar. „
Verkefni nýju bæjarstjórnar-
innar í sambandi við þetta mál,
verða einkum þau, að ganga eftir
því, að ríkið greiði sín framlög,
lögum samkvæmt, en ríkissjóður
er nú orðinn á eftir um framlög,
að bærinn veiti fé að sínum hluta
til byggingarinnar, en aðalverk-
efnið
verður þó það, að tryggja
rekstur spitalans. Er það
óleyst vandamál, svo sem
greint hefur verið frá hér í
blaðinu. Enginn hinna flokk-
anna hefur rætt það mál nú.
Hins vegar er augljóst, að hér
er stórmál fyrir bæjarfélag-
að, sem nauðsyn er að leysa
á hagkvæman hátt.
Bærinn hefur ekki bolmagn til
þess að reka sjúkrahúsið með
milljóna halla. Hér þurfa að
koma til samningar við almanna-
valdið. Veltur á miklu, að bær-
inn hafi á að skipa mönnum til
þeirra samninga, sem traust og
álits njóta.
Hafnarmálin
Aðkallandi er að ljúka viðgerð
Torfunefsbryggjunnar, sem dreg-
ist hefur alltof lengi. Þegar því
verki er lokið, liggur næst fyrír
að bæta aðstöðu togaranna, hinna
þýðingarmiklu atvinnu tækja. —
Framsóknarmenn leggja til að
nota afgangsefni frá Torfunefs-
bryggju til þess að gera togara-
bryggju við Glerárósa og útbúa
þafy framtíðaraðstöðu fyrir tog-
araútgerðina, m. a. með tilliti til
saltfiskverkunar. 2/3 Sjálfstæðis-
flokksins eru á móti þessu. 1/3
mælir með því, óg það er sá hlut-
inn, sem gleggstan skilning hefur
á útgerðarmálum, en er samt
undir í flokknum. Öruggasta ráð-
ið til þess að tryggja þessu máli
framgang, er að kjósa B-LIST-
ANN. Framsóknarflokkurinn bar
málið fram og hcfur margoft lýst
fullum sutðningi við það.
Framkvæmdir sam-
vinnufélagana
Hér í bíaðinu hafa verið leidd
rök að því, að framkvæmdir sam-
vinnufélaganna eru stórkostleg
lyftistöng fyrir atvinnumál bæj-
arfélagsins og meginástæða þess,
að bærinn hefur vaxið ,en ekki
hrörnað. Á sama tíma og hinn
sósíalíski Hafnarfjörður hefur
vaxið um 33% hefur Akureyri
tvöfaldað íbúatölu sína. Vegna
þess gð fólkið í bæ og héraði hef-
ur borið gæfu til þess að standa
saman um sín hagsmunamál inn-
an samvinnufélaganna, hafa stór-
felldar framkvæmdir verið mögu
legar og undirstaða þeirra er
sameiginlegt fé samvinnumanna,
sem hefði ella flutzt burtu með
erfingjum gróðamannanna eða
lífsþreyttum kaupmönnum. Ak-
ureyri er samvinnubær og sú
staðreynd er orsök þess, að Sam-
band ísl. samvinnufélaga, allir ís-
lenzkir samvinnumenn, hafa val-
ið bæinn fyrir aðalsetur iðnaðar-
fi'amkvæmda sinna og hafa hér
nú með höndum stórfelldustu at-
vinnunýjungar, sem um getur í
sögu _ bæjarins.íhaldsmálgögn
jafnáðai'man’ná og'SjálfstaSðis-
manna hafa reynt að þegja þess-
ar framkvæmdir í hel með því að
þau vita, að þær vitna í móti
rógsherferð þeirra á hendur sam-
vinnufélögunum. En bæjarmenn
skilja þýðingu þessara atburða og
þjappa sér fastar saman um sín
hagsmunamál og þá fulltrúa, sem
flytja þau af einurð og festu, án
tillits til gróðasjónarmiða kaup-
mangara og braskaralýðs.
Verkefni nýju bæjarstjórnar-
innar.
Verkefni nýju bæjarstjói'nar-
innar — og borgaranna —r- í sam-
bandi við framkvæmdir sam-
vinnufélaganna, er, að útiloka
þann hugsunarhátt, sem vill gera
atvinnurekstur samvinnumanna
bæjarrækan og þar með stefna til
hrömunar öf jafnvel landauðnar
hér. Hvernig væri umhorfs í
þessum bæ, ef Bi'agi Sigurjóns-
son, Helgi Pálsson og Elísabet Ei-
ríksdóttir hefðu átt að leiða öll
atvinnumál bæjarfélagsins af
andagift sinni eða sósíalískum
kenningum? Framkvæmdir sam-
vinnufélaganna ki'efjast ekki
fjái’útláta úr bæjax'sjóði né út-
svarsálaga á borgarana, en þær
krefjast þess, að þessum stór-
merku hagsmunaaðgerðum al-
mennings sé ekki sýndur fullui'
fjandskapur af peninga- og póli-
tískum braskaralýð, og fram-
kvæmdirnar gerðar bæjai'i'ækar
eins og virðist vex-a tilætlun Al-
þýðumannsins og íslendings.
Bæjarmenn þurfa að svara
þessum árásum á þeirra eig-
in hagsmuni með því að
þjappa sér um lista sam-
vinnumanna, B-LISTANN.
Þannig tryggja þeir áfram-
hald framsýnnar umbóta-
stefnu, og kveða niður fjand-
skap íhaldsins gegn þeim
samtökum, scm staðið hafa
undir þróun og vexti bæjar-
ins og enn lcggja í stórfelldar
framkvæmdir, sem eru bæj-
arfélaginu ómctanleg stoð.
Þess verður að vænta, að
bæjarmenn skilji, hvað að
þeim og hagsmunum þjóðar-
hcildarinnar snýr, og vísi
einarðlega á bug nátttrölls-
sjónanniðum afturhaldsklík-
unnar, sem vill innleiða hér
athafnamennsku Odds Thor-
arensen, Sigvalda í París,
Sverris Ragnars, Valgarðs
Stefánssonar, Braga Sigur-
jónssonar og annarra ríkis-
embættismanna. Mundi bær-
inn frelsast á þeirra framtáki
eða skattamálakenningum
Karls vegaverkstjóra og Egg-
erts á Aki'i? Starfsmenn sam
vinnufélaganna og almenn-
ingur í bænum hugleiða þau
efni nú fyrir kosningarnar.
Samvinna kaupstaðanna
Dagur hefur bent á það, einn
alli'a bæjarblaðanna,'að mikils-
vert hagsmunamál fyrir bæinn
er að endui-vekja þá samstai'fs-
tih-aun kaupstaðanna, sem upp
hófst með kaupstaðai'áðstefnunni
1948. 'Þar stóðu saman fulltrúar
allra stjórnmálaflokkanna og
heimtuðu aukið réttlæti í verzl-
unói'málum. Þeir stóðu saman
sem fulltrúar kaupstaðanna, en
ekki sem fulltrúar stjórnmála-
flokkanna. Tillögur ráðstefnunn-
ar hefðu gerbreytt verzlunar-
ástandinu, endui'heimt rétt bæj-
arfélaganna að leggja útsvör á
innflutningsverzlunina — en
Reykjavík hefur nú einkarétt á
því, og boi-gái'stjórinn í Reykja-
vík hældi Sjálfstæðisflokknum
fyrir það framtak í útvai-psum-
ræðum á dögunum. Framkvæmd
tillagnanna mundi hafa gert
vei-zlun landsmanna miklu hag-
kvæmari en hún nú er. Fi-am-
sóknax'menn fylktu sér einhuga
um tillögurnar. Miðstjórnarfundur
flokksins lýsti fullum stuðningi
við þær. Blöð flokksins tóku þær
upp. En er á hólminn kom, í rík-
isstjórn og Fjárhagsráði, sviku
foi-ustumenn Alþýðuflokksins og
Sjálfstæðisflokksins, og felldu
tillögui-nar. Kaupmangai'ar og
Reykjavíkurbær uppskáru ávöxt
inn. Bæir og sveitarfélög úti um
land og allur almenningur þar
hlaut tjónið og ei-fiðleikana. —
Þetta er sá skerfur til verzlunar-
málanna, sem almenningur úti
um land má lengi muna þessum
flokkum.
Verkefni nýju bæjarstjómar-
innar.
Fi'amsóknai-menn vilja beita
sér fyrir því, að samstai'f kaup-
staðanna vei'ði endurvakið. Verzl
unarmálin þui'fa þess með. Það er
nauðsyn að breyta skattalögun-
um frá 1942, sem rænt hafa bæj-
arfélögin möguleikum til rétt-
látrar tekjuöflunar með útsvör-
um. Sífellt er heimtað af bæjar-
félögunum að þau leggi fram
meira og meira fé vegna opin-
berra ráðstafana, en jafnfi-amt
eru tekjuöflunarmöguleikai'
þeirra minnkaðir. Kaupstaðir
landsins hafa mörg mál að sækja
sameiginlega í hendur ríkis- og
Reykjavíkurvalds. Það er hlut-
verk bæjarstjói'narinnar hér að
hafa foi'göngu um að endurvekja
samstarfið frá 1948.
Brunamál og
vátryggingar
Framsóknarmenn hafa síðan
1946 reynt að fá viðurkenndan
jafnréttisaðstöðu Akureyrar við
Reykjavík og leyfi Alþingis til
þess að brunati-yggingar í kaup-
staðnum verði boðnar út. Þetta
hefur ekki fengist fram, en mál-
inu er haldið vakandi. Þetta er
stói'fellt hagsmunamál fyrir bæ-
inn. Bi’unatryggingar hér eru
meira en helmingi dýrari á þús-
und en í Reykjavík.
Verkefni bæjarstjórnarinnar.
Bæjarstjórnin nýja þarf að
halda áfi-am að krefjast réttlætis
til handa bænum í þessum mál-
um. En nú þegar þarf að vinda
bráðan bug að því að ljúka
slökkvistö^vanbyggingxlnni og
koma upþ fastri bruriavörzlu’. —
Mundi sú fi-amkvæmd þegar
lækka vátryggingagjöld bæjar-
manna um a. m. k. 30%. Fram-
sóknai-menn leggja áherzlu á, að
þessum framkvæmdum verði
hraðað og brunatryggingamálum
bæjai'ins komið á nýjan grund-
völl.
F ramkvæmdast jórn
bæjarins
Fiamsóknarmenn hafa lagt til
að bi-eyting verði gei'ð á fram-
kvæmdastjórn bæjarins og nýr,
ötull maður ráðinn til að gegna
bæj arst jórastarf inu. J afnf ramt
verði reynt að fá hingað ötulan og
áhugasaman bæjarverkfræðing.
Sjálfstæðisflokkurinn er þessum
breytingum mjög andvígur,
kommúnistar eru andvígir því,
að bi'eytt sé til í bæjarverkfræð-
ingsstarfinu. Alþýðuflokkurinn
hefur gefið í skyn, að hann muni
ekki ófáanlegur til þess að fylgja
Fi-amsóknarmönnum að málum í
þessu efni. Þá hafa Framsóknar-
menn lagt til að vei'uleg útgjöld
verði ói’lega spöruð með því að
fela væntanlegum bæjarstjóra og
ski'ifstofu hans að annast ski'if-
stofuhald, sem bærinn hefur nú
í leiguhúsnæði úti um bæ undir
yfirumsjón sérstakra starfs-
manna, svo sem skömmtunar-
seðlaúthlutun, vinnumiðlun og
fátækrafulltrúástarf. Ekki virðist
nxikill áhugi fyrir þcssu hjá and-
stöðuflokkum Framsóknarm.
fþróttamálin
Byggingu hins glæsilega
íþróttaleikvangs á Oddeyri er
nú svo langt komið, að henni
vei'ður fyrii-sjáanlega lokið í ná-
inni framtíð. Svæðið er allt skipu
lagt og samþykki fengið fyrir því,
undirbúningsvinnu hefur miðað
verulega áfram og liggur nú fyrir
að fullgera knattspyrnuvöll og
hlaupabi'aut. En síðan að halda
áfram við manvii'kið, samkvæmt
teikningum, koma upp æfinga-
knattspyrnuvelli, fi-j álsíþrótta-
völlum, aðstöðu til stökks, hand-
knattleiksvelli, tennisvelli o. s.
frv., og ganga frá áhoi-fendasvæð
um og koma upp búningsher-
bei-gjum, böðum o. s. frv. Nokkuð
langt er í land að öllum þessum
framkvæmdum verði lokið, en
stefna ber að því að það verði
eins fljótt og kostur er.
Vcrkefni bæjarstjórnarinnar.
A ðalvei'kefni bæjai’stj ómarinn-
ar nýju í sambandi við leikvang-
inn, er að veita fé til hans, eftir
því sem unnt er, og gánga eftir
því að ríkið leggi fram þau tillög,
sem því bei'. Að undanföi'nu hef-
ur bærinn lagt 50 þús. kr. á ári til
leikvangsins og vei'ður að halda
áfram að liggja þá upphæð fram
og helzt meira, ef unnt reynist.
Simdlaugin nýja
Hér í blaðinu var það rakið á
dögunum, hvei'nig horfir með
viðgei'ð gömlu sundlaugarinnar
og byggingu nýrrar, yfirbyggðar
sundlaugar, ásamt búningsklefum
og böðum. Er nú í'áðgert að þess-
um framkvæmdxxm, sem hafnar
voru sl. haust, vei’ði að fullu lok-
ið snemma árs 1951.
Verkefni bæjarstjórnarinnar.
Hlutverk bæjarstjórnarinnar í
sarnbandi við þetta mál, er, að
sjá til þess að það strandi ekki á
féskorti. Til þessa hefur bærinn
Iagt líflega til verksins, en mun
þó þurfa meira að gera. Þá ber
að ganga ríkt eftir því að ríkið
gi eiði sitt tillag. Loks þarf bæj-
arstjórnin að láta endurbæta alla
heitavatnsleiðsluna úr Glerárdal,
sem er mjög úr sér gengin.
Flugvallarmálið
Allt frá áx-inu 1945 hefur Dagur
bent á að flugvöllux'inn á Melgerð
ismelum væi'i ekki fi-amtíðarflug-
völlur fyi-ir bæinn, enda væri
honum illa viðhaldið. Snemma
ái's 1946 lýsti þóv. flugmálastjóri
því yfir, að mál þetta mundi tekið
til rannsóknar og ákvörðunar.
Ekkei't vai-ð úr efndum á því lof-
orði fyrr en skipt hafði verið um
forustu x' flugmálunum og flug-
í'áð tók til stai-fa. Nú hafa sér-
fi-æðingar flugmálastjórnarinnar
lagt til að nýr flugvöllur verði
gei-ður í Eyjafjai'ðarái'hólmum.
Bæjax-stjói-nin hefur þegar sam-
þykkt að láta af hendi land til
flugvallarins og heitið annarri
fyrirgreiðslu. Hins vegar er ekk-
ert byi-jað á framkvæmdum. Flug
völlur í nágrenni bæjarins hefur
mikla þýðingu fyi'ir verzlun, iðn-
að og annan atvinnurekstur bæj-
(Framhald á 7. síðu).