Dagur - 19.07.1950, Blaðsíða 1

Dagur - 19.07.1950, Blaðsíða 1
GJALDDAGI BLAÐSINS VAR 1. JÚLÍ. BÁGUK Forustugreinin: Kredduvísindi kommún- ista og friðurinn. XXXIII. árg. Akureyri, miðvikudaginn 19. júlí 1950 32. tbl. Churchill segir ástandið minna sig á sumarið 1940 Stríðshættan er yfirvofandi fyrir Kóreustríðið og var það þegar Winston Churchill, fyrrv. forsætisráðherra Breta, flutti ræðu í Plymouth sl. laugar- dag og ræddi þar m. a. um atburðina í Kóreu ogástandiðí veröldinni í dag. Churchill sagði m. a. að hann teldi að stríðið á Kóreu hefði ekki aukið verulega hættuna á heimsstyrjöld með því að hættan hefði verið til staðar áður. En Kóreustríðið hefði fært hana nær og gert hana augsýnilegri fyrir þjóðirnar. Væri þess því að vænta, að þjóðir heims yrðu raunsærri og gerðu sér betur ljóst en áður, hvar þær stæðu. — Kommúnistar þrengja sér inn alls staðar, sagði hann, og fylgismenn kommúnismans sýna engan trúnað neinu föðurlandi. Hugur þeirra allur og þegnskap- ur er austur í Moskvu. Kommún- isminn er trúarþrögð, ekki aðeins trúarbrögð án guðs, heldur gagn- stæð guði. í nafni materíalismans á að skipuleggja veröldina, sam- kvæmt sovét-sósíalískum kreddu kenningum, alveg eins og Hitler ætlaði að skipuleggja heiminn samkvæmt nasjónal-sósíalískum forskriftum. Mesta herveldi veraldar. Churchill sagði að kjarnorku- sprengjan væri eini áþreifanlegi skjöldurinn gegn hinu ógnarlega hervaldi Rússlands. Þess vegna vilja kommúnistar láta banna þetta vopn. Kommúnistar pré- dika afvopnun, en þeir hafa fleiri þjálfaða hei-menn undir vopnum en öll lönd jarðarinnar til sam- ans. Rússar reka hótana- og þvingunarpólitík hvar vetna við hin löngu landamæri ríkisins. — Truman forseti hefur, með sam? þykki Sameinuðu þjóðanna, og Togararnir munu reyna fyrir sér á Halanum Akureyrartogararnir komu all- ir inn með karfafarma um helg- ina og eru nú aftur farnir á vcið- ar. Togararnir munu nú leita fyr- ir sér á Halamiðum. Hafa borizt fregnir um allgóða þorsk- og karfaveiði Þjóðverja þar að und- anförnu. Höfðu togararnir með sér salt til þess að unnt sé að salta þorskinn. Karfi sá er veiðist á Ha.lanum er stærri og feitari en karfinn, sem togarrrnir hafa sótt vestur fyrir land að undanförnu. Halamiðakarfinn er allt að 7% feitm-. stuðningi mikils meiri hluta am- erísku þjóðarinnar og þjóða brezka samveldisins, hafizt handa gegn árásarmönnunum á Kóreu. Eg vil hér, sagði Churchill, láta í ljósi aðdáun mína á því hugrekki og þreki, sem hinar fámennu amerísku hersveitir hafa sýnt á Kóreu, gegn gífurlegu ofurefli. Kórea aðeins liluti ógnanna. Atburðirnir í Kóreu eru aðeins lítið brot af þeim ógnum, sem frjálsar menningarþjóðir heims, verða að þola, og sem við verðum að horfast í augu við, ef við eig- um ekki að farast. Engin þjóð getur státað af því, að hún sé ekki í hættu stödd. Eg vil segja yður, af mikilli alvöru, að eg ber kvíða í brjósi ekki aðeins fyrir framtíð hins frjálsa heims, heldur fyrir framtíð okkar eigin heimila og þessi kvíði minnir mig oft á sumarið 1940, fyrir 10 örlaga- þrungnum árum. Eg tel ekki að styrjöld sé alveg yfirvofandi, en það væri blekking að halda, að tíminn væri okkur hagstæð- ur og ynni með frjálsu þjóðun- um. Klíka sú, sem stjómar alþjóða- hreyfingu kommúnista, Hefur fengið leyndarmál kjamorkunnar í sínar hendur með svikum. Eftir því, sem eg veit bezt hafa þeir ekki umráð yfir nema fáeinum atómsprengj um enn sem komið er. En á einu til tveimur árum munu þeir koma sér upp miklum birgðum, og það verður ekki til þess að gera viðfangsefnin léttari, né til þess að minnka hættu þá, sem vofir yfir okkur. Það þarf að byggja brú yfir gjána. í lok ræðu sinnar hvatti Churc- hill til þess að reynt yrði að nálg- (Framhald á 8. síðu). liiiiiiiiiiiini Héraðshátíð Framsóknarmanna verður 30. júlí Að öllu forfallalausu verður j héraðshátið Framsóknar- j manna á Akureyri og í Eyja- i fjarðarsýslu haldin að Hrafna- i gili sunnudaginn 30. júlí n.k. ; Er þess vænst, að flokksmenn j fjölmenni á hátíðina og ráð- i stafi þcssum degi ekki til ann- j ars. Fyrirkomulag hátíðarinn- i ar verður auglýst í útvarpi og í Degi síðar. li ll11111111111111111111111111111111111 Sovét-blað ræðst á herstjórn Svía Rauðar stjarnan, blað Rauða hersins, réðist sl. föstudag á her- stjórn Svía og einkum yfirhers- höfðingjann, Jung. Sakar það Svía um að vera handbendi amerískra heimsvaldasinna" og miða herbúnað og víggirðingar landsins við árás á Sovétríkin. í greininni segir svo m. a.: „Sænska þjóðin berst fyrir friði í dag og gegn hervæðingu Sví- þjóðar, sem er stefnumál ráðandi klíku í Svíþjóð, sem er að reyna að koma sér í mjúkinn hjá amer- ískum heimsvaldasinnum." — Allir Vesturlandabúar vita hver fjarstæða þessi ummæli eru, en líklegt er, að fólkið fyrir austan járntjald, sem ekki má vita, hvað er að gerast í heiminum, leggi trúnað á þessa frásögn um bar- áttu sænsku þjóðarinnar gegn valdhöfum sínum! Steindór Steindórsson hlaut styrk úr Nansens-sjóði Menntamálaráðuneytið hefur ákveðið að mæla með því að Steindóri Steindórssyni frá Hlöð- um verði veittur styrkur sá, sem Nansens-sjóður í Noregi hyggst veita íslenzkum vísindamanni til vísindaiðkana í Noregi. Styrkur- inn er 3000 norskar krónur. Ferðir til hátíðarinnar við Borgarvirki Næstk. sunnudag verður efnt til hátíðahalda við Borgarvirki hið forna í Húnavatnssýslu í til- efni af því að viðgerð virkisins er lokið. Ferðaskrifstofan hér efnir til ferða vestur, og þurfa menn að hafa tilkynnt þátttöku fyrir föstudagskvöld. á fogurunum hér verður væntanlega aflýst Samningarnir um karfaveiðarnar gilda að minnsta kosti til 1. september Fyrir nokkru tilkynnti Sjó- mannafélag Akureyrár togaraút- gerðmni hér, að samúðarverkfall á togurunum hér mundi hefjast 19. þ. m., vegna verkfalls togara- sjómanna í Reykjavík og Hafn- arfirði. Mun Sjómannafélag Reykjavík- ur hafa farið fram á, að samúð- arverkfall yrði hafið hér og var það samþykkt af togarasjómönn- unum. Hins vegar mun Reykja- víkurfélagið ekki hafa farið fram á sams konar samúðarverkfall við togarasjómenn í Neskaupstað og í Seyðisfirði. Heimild til að aflýsa verkfallinu. Akureyrartogararnir komu all- ir af karfaveiðum nú um helgina og á mánudagskvöldið var fundur í sjómannafélaginu um verkfalls- mál þetta. Var þar samþykkt, að veita stjórn félagsins og trúnað- armannaráði heimild til að aflýsa verkfallinu. Engin ákvörðun var þar tekin um það, hvort samn- ingunum um kjör á karfaveiðun- um verður sagt upp 1. ágúst n.k., en það virtist álit meiri hluta sjó- manna, að ekki bæri að segja samningunum upp. Samningur- inn er í gildi til 1. september, en segja má honum upp með mán- aðar fyrirvara. Verði honum ekki sagt upp 1. ágúst næstk. fram- lengist hann af sjálfu sér frá 1. sept. Búizt við að verkfallinu verði aflýst. Blaðið spurðist fyrir um það hjá Tryggva Helgasyni, formanni Sjómannafélagsins, í gær, hvort stjórn og trúnaðarmannaráð hefði ákveðið að nota heimild þá til að aflýsa verkfallinu, sem fundur togarasjómanna veitti þeim í fyrrakvöld. Hann sagði ákvörðun ekki hafa verið tekna, en taldi líklegt að heimildin mundi verða notuð að afloknum viðræðum við forustumenn tog- araútgerðarinnar hér. Er þess því að vænta, að til þessa samúðar- verkfalls komi ekki og togararnir haldi áfram karfaveiðunum. Hafa þær gefið góða raun það sem af er, sjómennirnir hafa haft meira upp úr þeim en öðrum veiðum, sem togarar hafa stundað upp á síðkastið, og fyrir bæinn hefur áframhald veiðanna mikla þýð- ingu. Atvinna fylgir þeim, og Krossanesverksmiðjan, sem er eign bæjarins, hefur nú ærinn starfa, enda þótt síldveiði hafi verið lítil fram að þessu. Togaraverkfallið í Reykjavík heldur áfram. Togaraverkfallið í Reykjavík heldur áfram og mun lítið hafa miðað í samkomulagsátt. Flestir togarar landsmanna, nema Akur- eyrartogararnir, Norðfjarðartog- ararnir og togari Seyðisfjarðar, liggja nú bundnir í höfnum. — Norðfjarðartogararnir munu um það bil að hefja karfaveiðar og Seyðisfjarðartogarinn er á karfa- veiðum. Síldveiðin að glæðast Fregnir frá síldarmiðunum við Langanes í gær hermdu, að í gærmorgun hafi veiðiveður verið betra en undanfarna daga og vindur hægari, þótt þoka hamli ennmjögsíldarleit.Greint var frá því, að talsverðrar síld- ar hafi orðið vart í gær og nokkur skip hafi fengið allgóð köst. Nákvæmar fregnir af þessari veiði eru ekki fyrir hendi. Sjómenn telja líkur til að síldvciðin muni glæðast verulega strax og veiðiveður batnar, en langvarandi austan bræla og þoka hafa mjög tor- veldað veiðarnar. Megin hluti síldveiðiflotans er nú á austur- hluta veiðisvæðisins. Sunnlenzkir iðnrek- endur skoða iðnfyrir- tæki hér Um sl. helgi dvöldu hér í bæn- um 20 meðlimir úr Félagi ísl. iðnrekenda og kynntu sér iðn- rekstur hér um slóðir. Skoðuðu þeir ýmis fyrirtæki og ræddu við forstöðumenn iðngreina. Ferð þessi var farin til þess að auka kynni og samvinnu meðal ein- stakra iðnrekenda innan félags- Nýja framhaldssagan Nýja framhaldssagan, sem hófst i síðasta tbl., og nefnist „Viðburðarríkur dagur“, er •*- eftir amerísku skáldkonuna Helen Howe. Saga þessi vek- ur mikla athygli í Bandaríkj- unum um þessar mundir og er mctsöluhók — best seller — þar í landi.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.