Dagur - 19.07.1950, Page 6
6
OAGUR
Miðvikudaginn 19. júlí 1950
Viðburðarríkur dagur
Sagcc eftir Helen Ho.we,
2. DAGUR.
(Fraraljald).
af kassanum og gat opnað hann.
Hlln hélt niðri í sér andanum, en
hrópaði svo upp yfir sig af hi-ifn-
ingu, þegar hún sá, hvað var í
honum.
Hún vafði hréfið hægt utan af
pakkanum og hélt innan stundar
á undur fagurri skel í hendinni.
Hún sneri sér að dótturinni og
manninum sitt á hvað, alveg eins
og hún tryði ekki sínum eigin
augura- Loksins fékk hún málið:
„Erie', Þetta er ótrúlegt! Eg hélt
að ekki væru nema þrjár til fjór-
ar af þessari tegund til í veröld-
inni. Þetta er raunverulega
Thatcheria mirabilis?“
Hann brosti og kinkaði kolli.
En nú gat Fay litla ekki hamið
fingur sína lengur. Hún varð að
fá að snerta á þessum kjörgrip.
„Lánaðu mér hana, mamma.
Eg vil líka heyra, hvað úthafsöld-
urnar hafa að segja,“ sagði hún
með ákafa.
Það var orðinn garaall leikur í
fjölskyldunni að lofa Fay að bera
skeljarnar úr safni móðurinnar
upp að eyra sér til þess að heyra,
hvað öldurnar væru að segja. Fay
kunni að meðhöndla skeljarnar.
Hún fór ofur varlega með þær,
Hún hélt nýja leikfanginu upp að
eyranu á sér og andlit hennar
Ijómaði af eftirvæntingu og
ánægju.
Marta birtíst allt í einu í borð-
stofudyrunum og hún minntí þau
á, hvað tímanum leið.
Faith hrökk upp til raunveru-
leikans aftur. „Jæja, þessi af-
mælishátíð er nú orðin nógu
löng,“ sagði hún. „Nú sezt þú,
Fay, og borðar grautinn þinn. Og
Eric, góði drekktu kaffið þitt, áð-
irr en það verður kalt. Svona nú.“
Faith leit í kringum sig ura leið
og fjölskyldan var aftur komin í
fjötra vanans og hversdagslífsins.
Hjónin horfðu hvort á annað. Það
var ást og skilningur í augnaráði
beggja.
„Þú manst eftir leikhúsinu í
kvöld?“ sagði Eric.
„Auðvitað man eg eftir því. —
Heldurðu að eg hafi ekki hlakkað
til? Það er svo gaman að hafa
alltaf eitthvað til þess að hlakka
til. Og þetta er einmitt regluleg-
ur tilhlökkunardagur.“
,,Eg hef samt miklu meira að
gera í dag, en eg get með nokkru
móti komizt yfir,“ hélt Faith
áfram. „Eg lofaði frú van Eyck
að eg skyldi koma í hádegisverð-'
arboðið, sem klúbburinn heldur
til heiðurs Sedlmark. Og eg gerði
það nauðug, því að það þýðir að,
eg get ekki borðað með Klöru,
eins og eg ætlaði. Það er allt of
lítill tími að vera með henni einn
klukkutíma, á milli járnbrautar-
lesta. Eg hlakka rajög mikið til að
sjá hana aftur. Eg er samt mjög
hrædd um að Sonny sé alvarlega
lasinn.“
„Hvað gengur að honum,
mamma?" spurði Fay.
„Eg veit það ekki, góða mín.
Klara frænka þín sendi mér sím-
skeyti um að hú nværi að fara
með hann til Boston, á spítala, og
vildi að eg hefði tal af sér á jám-
brautarstöðinni. Hún þarf að bíða
þar hvort eð er.“
„Eg vildi að hann gæti heimsótt
okkur, þegar hann er kominn til
Boston.“
„Og hvað er fleira á dagskránni
en samtalið við Klöru?“ spurði
Erie.
„Nú, það er hárgreiðsla hjá
Frances Dorr og Mona verðar
þar og eg lofaði að fai’a með henni
inn í bæ og heimsækja ömmu.“
„Mamma, hefur þú enga gjöf
handa pabba?“
„Jú, auðvitað hef eg það, Fay,
en hún er enn í búðinni. Er það
ekki leiðinlegt? Það er ekki búið
áð grafa á hana.“ Hún sneri sér
að manni sínum. „Þú verður að
fyrirgefa, en eg ætlaði mér að
taka gjöfina þína í dag.“'
„Þú átt ekki að gefa mér neitt.
Eg vil ekkert, sem eg á ekki þeg-
ar,“ svaraði hann.
„Hamingjunnar barn.“
„Já, og heldurðu að eg viti það
ekki?“
„En það gerir helmingi érfiðara
að kaupa gjöf handa þér en
npkkrum öðrum.“-
„S.egðu mér hvað það er,
mamma? Hvíslaðu því að mér.“'
Fay leit bónaraugum á móður
sína.
„Nei, ekki núna. Þú færð að sjá
það í kvöld. Og það er ekki mikið
að sjá.“
„Þú ert bráðlætisdrós, Fay,“
sagði faðir hennar, kímilega, en
hún hljóp upp um hálsinn á hon-
um.
Faith horfði á föður og dóttur
og endurtók með sjálfri sér það,
sem hún hafði þúsund sinnum
áður hugsað, hversu fyrirmyndar
faðir Eric væri. Hann hafði rétt í
þessu sagt, að hann kærði sig
ekki um neitt, sem hann ætti ekki
þegar. Vissulega hafði hann hlot-
ið ríkuleg laun erfiðis síns á síð-
ustu mánuðum. Nú var hann orð-
inn aðalforstjóri stærsta tónlist-
arfyrii'tækis landsins, eftir
raargra ára erfiði á neðri þrepura
fyrirtækisins. Og hann var enn
ekki nema 36 ára, en hafði af eig-
in ramleik brotizt áfram alla
þessa leið. Nú var hann á tindin-
um og lífið brostj sannarlega við
honum. Með haustinu ætluðu þau
'að flytja í nýtt hús. En þrátt fyr-
ir þetta allt, vissi Faith vel með
sjálfri sér, að undir niðri bjuggu
samt sár vonbrigði hjá honum.
Hún vissi að hann vonaði enn, að
eitthvert kraftaverk gæti gerzt,
sem gæfi honum soninn, sem
hann þráði að eignast, son, sem
gæti borið nafn afa síns. (Frh.).
Ritstjóri: TÓMAS Á,RNASON.
HÉRAÐSMÓT U. M. S. E.
var haldið að Hrafnagili dagana
1.—2. júlí sl. Hófst það á laugar-
daginn með undanrósum í frjáls-
um íþróttum og sundkeppni, en á
sunnudaginn með guðsþjónustu, er
séra Jakob Jónsson úr Reykjavík
flutti. Karlakórinn Heimir úr
Skagafirði skemmti af og til um
daginn með söng, undir stjórn Jóns
Björnssonar. Þá fóru fram loka-
keppnir í frjálsum íþróttum, og
urðu úrslit sem hér segir:
100 m. hlaup.
1. Trausti Ólason, U. M. F. Reynir,
hljóp á 11,8 sek.
2. Vilhjálmur Þórsson, Umf. Þorst.
Svörf., hljóp á 11,9 sek.
3. Jóhannes Kristjánsson, Umf.
Reynir, hljóp á 12,1 sek.
200 m. lilaup. ,
1. Trausti Ólason, Umf. Reynir,
hljóp á 24,3 sek.
2. Reynald Þorvaldsson, Umf.
Reynir, hljóp á 24,5 sek.
3. Jóhannes Kristjánsson, Umf.
Reynir, hljóp á 24,5 (sjóoairn.).
400 m. hlaup.
1. Trausti Ólason, Umf. Reynir,
hljóp á. 56,8 sek.
2. Reynald Þorvaldsson, Uraf.
Reynir,, hljóp á 58,2 sek.
3,. Sigurður Jósefsson, Bf., Dalbúr
inp, hljóp. á 61,0 sek.
3000 m. hlaup.
1. Halldór Pálsson, Blf. Dalbúinn,
hljóp á 9:4,1,0 (nýtt Eyjafj.met).
2. Þorvaldur- Guðmannsson, Umf.
Atli, hljóp á 10:12,0.
3. Halldór Jónsson, Umf. Þorst.
Sv., hljóp á 11:38,0.
80 m. hlaup kvenna.
1. Helga Þórisdóttir, Umf. Þorst.
Sv., hljóp á 11,3 sek.
2. Helga Arnadóttir, Umf. Arroð-
inn, hljóp á 11,5 sek.
3. Sigríður Árnadóttir, Umf. Ár-
roðinn, hljóp á 11,5 sek. (sjón-
armunur).
Langstökk.
1. Árni Magnússon, Bf. Dalbúinn,
stökk 5,65 mtr.
2. Jón Árnason, Umf. Árroðinn,
stökk 5,50 mtr.
3. Trausti Ólason, Umf- Reynir,.
stökk 5,42 mtr.
Þrístökk.
l.Árni Magnússon, Bf. Dalbúinn,
stökk 12,82 mtr.
2- Alfreð Kopráðsson, Unif. Reyn-
ir, stökk 12,0.9 rntr.
3. Jón Árnason, Umf. Árroðinn,
stökk 12,08 mtr.
Hástökk.
1. Jón Árnason, Umf. Árroðinn,
stökk 1,59 mtr.
2. Árni Magnússon, Bf. Dalbúinn,
stökk 1,56 mtr.
3. Hörður Jóhannsson, Umf. Ár-
roðinn, stökk 1,48 mtr.
Langsiökk kvenna.
1. Helga Þórsdóttir, Umf. Þorst.
Sv., stökk 3,94 mtr.
2. Helga Árnadótir, Umf. Árroðinn,
stökk 3,84 mtr.
3. Kristín Gestsdóttir, Umf. Þorst.
Sv., stökk 3,27 mtr.
Kúluvarp.
1. Hjörleifur Guðmundsson, Umf.
Þorst. Sv., kastaði 12,94 mtr.
(nýtt Eyjafjarðarmet).
2. Alfreð Konráðsson, Umf. Reyn-
ir, kastaði 11,13 mtr.
3. Eggert Jónsson, Umf. Möðruv.-
sóknar, kastaði 10,66 ixltr..'
Kringlukast.
1. Gestur Guðmundsson, Umf. Þor-
st. Sv., kastaði 34,20 mtr.
2. Hjörleifur Guðmundsson, Umf.
Þorst. Sv., kastaði 33,95, mtr.
3. Ragnar Guðmundsson, Umf.
Þorst. Sv., kastaði 31,47 mtr.
Spjótkast.
L Ragnar Guðmundsson, Umf.
Þorst, Sv., kastaði 39,17 mtr.
2. Hjörleifur Guðmundsson, Umf.
Þprst. Sv., kastaði 39,16 mtr.
3. Rósmundur Stefánsson, Umf.
Þorst. Sv., kastaði 35,69 mtr.
4x100 m. boðhlaup.
1. Umf. Reynir, hljóp á 48,5 sek.
2. Umf. Þorst. Sv. (A-sveit), hljóp
á 49,1 sek.
3. Umf. Þorst. Sv. (B-sveit), hljóp
á 50,4 sek
100 m. sund karla, frjáls aðferð.
1. Hjörleifur Guðmundsson, Umf.
Þorst. Sv., synti á 1:26,5 mín.
2. Gestur Guðmundsson, Umf. Þor-
st. Sv., synti á 1:28,2 mín.
3. Eggert Jónsson, Umf. Möðruv.-
sóknar, synti á 1:32,4 mín.
50 m. sund kvenna, frjáls aðferð.
1. Marzelína Jónasdóttir, Umf. Ár-.
sól, synti á 48,1 sek.
2. Ragna Björnsdóttir, Umf. Ársól,
synti á 48,2 sek.
3. Freyja Guðmundsdótitr, Umf.
Þorst. Sv., synti á 50,0 sek.
REA-bikarinn, sem er farand-
gripur, vann Umf. Þorsteinn Svörf-
uður, er hlaut 34 stig. Umf. Reynir
hlaut 23 stig. Umf. Árroðinn og
Bindindisfélagið Dalbúinn hlutu
hvort um sig 5 stig, Umf. Ársól
hlaut 5 stig, Umf. Atli og Umf.
Möðruvallasóknar hlutu hvort um
sig 2 stig og Umf. Æskan hlaut 0
stig.
Afreksbikar UMSE, sem er veitt-
ur fyrir bezta afrek mptsins, hlaut
Hjörlpifur Guðmundsson, Umf. Þ.
Sv., fyrir að varpa kúlunni 12,94,
mtr., en það gefur 710 stig, samkv.;
finnsku stigatöflunni. Er þetta í
annað sinn. er Hjörleifur vinnur
þennan bikar.
Stigahæstu einstaklingar móts-
ins voru: Hjörleifur Guðmundsson
og Trausti Ólason, er hvor um sig
hlaut 10 stig og Arni Magnússon
er hlaut 8 stig.
Alls tóku þátt í mótinu rúmlega
40 manns, frá 8 félögum.
Ekki er tsekifæri til að ræða hér
um einstaka keppendur eða afrek
þeirra, en í þessum hópi voru bæði
ga.malreyndir menn frá fyrri mót-
um, eins og t, d. Jón Árnasonj
Trausti Ólason og Hjörleifur og
Gestur Guðmund.ssynir, sera alltaf
virðast vissir um að gera sitt-, svo
og einnig yngri menn og óreynd-
ari, sem margir hverjir lofa ákveð-
ið góðu um framtiðina. Má þar sér
staklega nefna Árna Magnússon,
sem enn er á drengjaaldri. Er þar
áreiðanlega á ferðinni eitt álitleg-
asta íþróttamapnsefni, sem sést
hefur á móti hér um slóðir. Fjöl-
hæfur og prúðmannlegur í kepppi,
eins og sannur íþróttamaður á að
vera. Sömuleiðis raá nefna Ragnar
Guðmundsson, sem var yngstur
þeirra karla, er í keppninni voru.
Allmikið söknuðu menn ný
ýmsra þeirra, er mikið hefur kveð-
ið að á. undanförnum árureii t. d.
Kristján Jóhannssonar, sem var
fjarverandi vegna milliríkjakeppn-
innar við Dani, er hann var valinn
þátttakandi í, undír merki UMSE,
og Pálma Pálmasonar, sera nú
mun ætla sér að keppa með félagi
á Akureyri,
Mótinu stjórnaði héraðsstjór-
inn, Hjalti Haraldsson, en íþrótt-
unum stjórnaði starfsmaður sam-
bandsins og kennari, Haraldur Sig-
urðsson, og forst báðum prýðilega
úr hendi.
Sambandið mun nú hafa ýmis-
legt fleira í huga á: sviði íþrótt-
anna, og er óskand.i að það megi
allt takast jafn vel og þetta mót.
i
DRENGJAMÓT AKUREYRAR
í frjálsum íþróttum
fór fi-am á Þórsvellinum 1., 2.
og 3. júlí sl'. Tvö félög tóku þátt í
'mótinu, Þór og K. A. — K. A.
sigraði með miklum yfirburðum.
Hlaut 115 stig, en Þór aðeins 16
stig.
t A
Úrslit í einstökum greinum:
(Framhald á 7. síðu).