Dagur - 10.08.1950, Page 2
2
D A G U R
Fimmtudaginn 10. ágúst 1950
TÍTOISMINN
Endurbætur a samgönguskilyrðum
í Skíðadal
Vormaður leggur liönd á plóginn
Deila Stalins og Titos.
Fátt hefui' vakið meiri athygli-
á sviði alþjóða stjórnmála en
deilumál Júgóslavíu og Rúss-
lands. Deila þessi er sprottin af
því, að Stalin vildi láta komm-
únistaflokka allra landa fyrst og
fremst þjóna Rússum og hugsa
meira um hagsmuni þeirra en
síns eigin lands. Tito, æðsti
maður í Júgóslavíu, vildi láta
hagsmuni hennar sitja í öndvegi.
Þessi stefna hins júgóslavneska
þjóðhöfðingja er almennt nefnd
Titoismi.
Svik við hugsjón kommúnismans.
En Tito og fylgjendur hans
gera sig ekki ánægða með að
halda sjálfstæðir sínar götur.
Heldur ásaka þeir Stalin um svik
við hugsjónir kommúnismans.
Hann er ekki lengur túlkandi
kenninga þeirra Marx og Len-
ins. Því síður reynir hann að
íiamkvæma þessar kenningar í
þjóðlífi Rússlands. Þetta er
mjög athyglisverð ódeila og virð-
ist leiða nokkrar líkur að því,
bvernig framkvæmd pappírs-
bugsjóna kommúnismans fer á
tiltölulega fáum árum.
Ræða Djilas.
18. marz sl. hélt Djilas herfor-
ingi gagnmerka kosningaræðu,
sem flutt var á vegum háskólans
í Belgrad. Hann hélt því fi'am,
að tvær hættur stefndu ávallt að
alþýðubyltingum og ríki þeirra.
Gnnur væri tilraun hinna sigr-
uðu kapítalista til að komast
aftur til valda með gagnbyltingu;
hin væri vaxandi ríkisbákn og
embættismannaklíka. Rússland
hefur orðið seinni hættunni að
bráð, segir Djilas.
Það má segja, að gagnrýni
Titoistanna sé sú eina, sem berst
yfir járntjaldið. Rússar hafa af-
numið málfrelsi og ritfrelsi og
auk þess lokað landi sínu fyrir
öðrum þjóðum.
Er þetta styrkleikamerki hins
rússneska sósíalisma? Nei! vissu-
lega ekki. Rússar hræðast sannar
frásagnir af landi sínu, hræðast
gagnrýni frjálsra þjóða og ein-
staklinga innan síns eigin lands.
: Heimsveldisstefna Rússa.
Einn áhrifamesti liðurinn í
þennslustefnu Rússa er einmitt
Stalinisminn. Að láta kommún-
istaflokkana halda uppi látlaus-
um áróðri fyrir Rússa í einu og
öllu. Með því móti veikist and-
staðan og auðveldara verður
fyrir Rússa að ná sterkum ítök-
um á landi og þjóð. Kommún-
isminn ,er ekki síður hættulegur
frelsi þjóðanna en Hitlersstefn-
an, vegna þess að hann kemur
fram í sama gerfi. Hann er not-
aður til framdráttar Rússlandi á
sama hátt sem nationalsósíalism-
inn var til framdráttar Þýzka-
landi á sínum tíma.
Það þarf ekki rökstyðja þá
staðhæfingu, að Rússar. reki
heimsveldisstefnu. Það kemur
berlega í ljós á hverjum þeim
vettvangi, sem þeir láta til sín
taka. Þeir beita ofbeldi og neit-
unarvaldi innan Sameinuðu
þjóðanna til þess að styrkja ein-
hliða málstað sinn. Þeir leggja
undir veldi sitt hverja þjóðina af
annarri o. s. frv.
Eru Titoistar á íslandi?
Það er alkunna, að innsti
hringur Sameiningarflokks al-
þýðu, Sósíalistaflokksins, er ein-
hliða á bandi Stalins. Þjóðviljinn
og önnur blöð flokksins hér á
landi boða boðskap Rússa í einu
og öllu. Það kemur aldrei fyrir
eitt augnablik, að þau missi lín-
una. Nægir þar að minna á af-
stöðuna til Finnsk-Rússneska
stríðsins, ótökin innan samtaka
Sameinuðu þjóðanna og nú sein-
ast Kóreustyrjöldin. Þá kom
línumennskan mjög berlega í ljós
gagnvart afstöðu flokksins til
Þýzkalands meðan griðasáttmál-
inn ríkti milli Stalins og Hitlers
og svo síðar eftir rof hans. Sjólfir
segja sósíalistar hér, að stríðið
hafi bréytt um „eðli“ með þótt-
töku Rússlánds. Þó munu vera
harðar deilur innan Sósíalista-
flokksins um það, hvort fylgja
beri Stalin eða leggja megin-
áherzluna á framkvæmd sósíal-
ismans hér innanlands. Það er
enginn efi á því, að Titosinnar
eru alveg ofurliði bornir. Nægir
þar að minna á afdrif þeirra Jón-
asar Haralz ,og Hermanns Guð-
mundssonar.- §á 'fyrrnefndi var
einn efnilegasti stjórnmálamaður
sósíalista hér og tengdu þeir við
hann miklar von'y. Hinn var for-
seti Alþýðusambands íslands og
ör.uggur sósíalisti innan flokks-
ins. Þessir menn báðir voru Tito-
sinnar og ui'ðu þess vegna að
beygja af.
Það verður því að svara
spurningunni hiklaust neitandi.
Sameiningarflokkur alþýðu, Sós-
íalistaflokkurinn fylgir Stalin en
ekki Titostefnunni. Hann túlkar
hér málstað Rússa og metur
hagsmuni þeirra meirá en hags-
muni íslands.
Réttlát þjóðfélagsskipan eyðir
kommúnistum.
Kommúnistar (Sameiningar-
flokkur alþýðu, Sósíalistafl.) gera
mikið tjón hér á landi. Þeir valda
því, að íhaldið vex meira en
æskilegt er. Fólk hræðist yfir-
gang kommúnista og skipar sér
því undir merki íhaldsins, sér-
staklega í Reykjavík. En íhaldið
eflir einnig kommúnista. Þeim
mun meiri áhrif, sem það hefui'
í þjóðlífinu, þeim mun frekar og
meira gætir sérhagsmunastefn-
unnar. Einstakir smákóngar á
sviði iðnaðar, verzlunar og ann-
arrar framleiðslu tróna yfir
hagsmunum og velferð almenn-
ings. Þeir skapa misrétti og rang-
láta tekjuskiptingu. Þessu svarar
almenningur gjarnan með því að
skipa sér undir merki kommún-
ista. Þannig efla þessar tvær
stefnur hvor aðra.
í STUTTU MÁLI
FYRRA LAUGARDAG varð
það óliapp á MelgerðisHugvclli
hér í Eyjafirði, að síldarleitar-
flugvélin eyðilagðist í lend-
ingu. Flugmennina sakaði
ekki. Vél þessi var af Hudson-
gerð og átti brezki flugherinn
hana á stríðsárunum, en nú
var hún í eigu Steindórs
Hjaltalíns útgerðarmanns. —
Sviptivindur á flugvellinum er
talinn hafa valdið þessu
óhappi.
-K
BISKUPINN yfir íslandi,
herra Sigurgeir Sigurðsson,
varð sextugur 3, þ. m.
-K
FYRRA LAUGARDAG varð
13 ára drengur fyrir vörubif-
reið hér í bænum og meiddist
nokkuð, en ekki alvarlega. —
Slysið varð með þeim liætti,
að drengurinn, sem var á reið-
hjóli, ætlaði að létta sér för
upp brekku með því að hanga
aftan í bifreiðinni. Ætti þetta
atvik að verða til viðvörunar
öðrurn drengjum, að leika ekki
þann hættulega leik.
-K
ELÍSABET EIRÍKSDÓTTIR
bæjarfulltrúi hefur fært dag-
heimilinu Pálmholti að
gjöf Montessori-tæki, sem
ætluð eru fyrir smábarn-
kcnnslu og leikskóla.
-K
EFTIBFANDI auglýsing
birftist nýlega í brezka stór-
blaðinu Time: „Verðandi
brúðgumi vill gjarnan fá góðar
hugmyndir um efni brúð-
kaupsræðu. Skrifið til Box V.
1189, Tlie Time, London E.
C. 4.“
-K
.nmnhiii . . ..„r,,i:,.iiiminiiii:iinmii<iiiiii:imii<*
FINNSKA ríkisstjórnin
ákvað nú um mánaðamótin, að
banna verðhækkanir á fjöl-
mörgum nauðsynjavörum, þar
á mcðal öllum helztu matvör-
um.
-K
UM FYRRI HELGI var tog-
arinn Jörundur tekinn upp í
" dráttarbrautina hér á Glerár-
eyrum. Var skipið botnhreins-
að. Jörundur er stærsta skip,
sem tékið hefur verið upp í
dráttarbraut á Norðurlandi.
-K
í SUNNANBLÖÐUNUM er
sagt frá því, að námsmenn hafi
hlotið styrki til þess að nema
þýzku í Noregi og grísku í
Danmörku. Hvenær les maður
fregnir um, að ungir menn fái
styrki til þess að verða sér-
fræðingar í hraðfrystingu, t.
d., eða annarri verklegri kunn
áttu, sem þjóðina skortir nú
mjög, sbr. skýrslu Cooly-
nefndarinnar um fúskið í
meðíerð fiskafurða?
Frjálslyndir umbótamenn taki
höndum saman.
Eina lausnin hlýtur að vera sú,
að aðrir en kommúnistar og
íhaldsmenn taki höndum saman
og efli samtök sín. Það er alveg
sama, hvort þeir heita Fram-
sóknarmenn, Alþýðuflokksmenn
eða aðrir andstæðingar íhalds og
kommúnisma. Það bíður því
mikið hlutverk frjálslyndra
manna hér á landi. Þeir verða að
læra að greina milli aðalatrið-
anna og þeirra smærri, sem litla
þýðingu hafa. Leggja niður smá-
krit og þýðingarlausan orðaleik
og hefja samvinnu.
Um alllangan tíma hefur það
.verið ofarlega á dagskvá meðal
margra Skíðdælinga, að byggð
yrði brú á Skíðadalsá framan við
Þverá í Skíðadal.
Á sl. vetri hófust bændur
handa um fjársöfnun innan dals-
ins til væntanlegrar bi úarbygg-
ingar og söfnuðust þá 6 þúsund
ikr. Oft áður hafa Skíðdælingar.
lagt fram bæði fé og gjafavinnu
til vegamála í dalnum og má
segja að máttur samtaka þeirra
hafi að mestu leyti áorkað því,
sem nú er í vegamálum þeirra.
Einnig hafa Skíðdælingar nú
iþegar hafizt handa um það, að
fá síma fram ,í dalinn, ef ekki
reyndist mögulegt í bili að fá
síma á hvern bæ, þá ætluðu þeir
að gera sig ánægða með það
ihlutskipti að fá síma á yzta bæ
dalsins að vestanverðu, og fóru
fram á það við símamálastjórn-
ina, að það yrði framkvæmt nú í
sumar. En svarið var neikvætt.
Þessi grein átti ekki að vera um
baráttu Skíðdælinga fyrir bætt-
um lífsþægindum, þ. e. vegamál-
um og símamálum, heldur um
væntanlega brúarbyggingu yfir
Skíðadalsá, mun sá, er þetta rit-
ar, skrifa síðar, ef tilefni gefst til,
um að t. d. yfirstjórn vega- og
brúarmála í sýslunni sýnir kulda
og tómlæti gegn þessu hugsjóna-
máli okkar Skíðdælinga.
—o—
Fyrir stutu síðan barst okkur
Skíðdælingur nýr liðsmaður, sem
sér og skilur hinar erfiðu að-
stæður þeirra, sem við slæm
vegasambönd og símaleysi eiga
við að búa. Það var eins og hlýr
straumur færi um hugi margra
Skíðdælinga og gæfi lifsanda loft,
er endurvekti og treysti þá trú,
að við eigum ekki að gefast upp
í baráttunni til að ná auknum
þægindum inn í dalinn, heldur
treysta samtök og einingu okkar
sjálfra og hefja fram til sigurs
þau málefni, sem miða til aukins
hagnaðar og þæginda.
Slgurður Kristjánsson frá
Brautarhóli í Svarfaðardal! Án
þess að nokkur Skíðdælingui né
neinn annar leitaði aðstoðar hans,
þá reynir hann að leysa þá þraut
að við Skíðdælingar fáum síma
fram í dalinn. Hann finnur ráð,
sem vel mun duga, ef aðrir aðilar,
sem um þau mál fjalla, sýna næg-
an skilning á þessu hagsmuna- og
menningarmáli okkar Skíðdæl-
inga.
En Sigurður gerir meira. Hann
afhendir okkur Skíðdælingum kr.
1000 að gjöf til væntanlegrar brú-
arbyggingar yfir Skíðadalsá.
Þessa aðstoð Sigurðar Kristjáns-
sonar ber okkui', Skíðdælingur,
að þakka, og við þökkum þér,
Sigurður Kristjánsson fyrir þann
skilning, seni þú sýnir málefnum
okkar.
Hjálp þín, Sigurður, veitir okk-
ur bjartari trú á framtíðina,
kveikir eld nýrra hugsjóna, eykur
þrek og þol í baráttunni að því
takmarki að þessi nauðsvnlegu
framfaramál komizt í fram-
kvæmd. Þú sýndir þann vinar-
hug og fallegu lífsskoðun hins
sanna vormanns, að Skíðadals-
jarðir búa yfir mikilli, ónotaðri
frjógnótt — frjógnótt, sem vekur
„beiskju“ í huga þeirra, sem geta
ekki leist hana úr læðingi. En
vegna aðstöðu í vegamálum
liggur nú meira en skildi af auð-
æfum sumra jarða í Skíðadal
ónotað, falið í móurn og mýrum,
sem bíða þess að breytast í iðja-
græn tún. Það . er trú þess, sem
þessar línur ritar að víðsýni vor-
mannsins og trúin á landiö ásamt
ást til sveitarinnar í heild hafi
verið undirrót þessa eftirbreytn-
isverða framtaks af hálfu Sig-
urðar Kristjánssonar. Þarna var
vormaður að verki með víðan
sjónhring hugans, sem náði
lengra en út fyrir takmarkaðan
reit — vormaður, sem vill og
leggur fram lið sitt til hjálpar
þeim, sem ekki vilja flýja af
hólmi, þótt erfiðlega gangi stund-
um — vilja ekki sýna þá ómenn-
ingu að flýja jqrðirnar í leit að
betri lífsþægindum, en vilja og
eiga kröfu til þess að fá aukin
lífsþægindi þar, sem þeir nú búa.
Eg endurtek: Við þökkum Sig-
urði Kristjánssyni. Við munum
ekki gleyma þeim víðsýna og
eftirbreytnisverða hug, er þú
sýndir þeim málum, sem til fram-
fara og heilla horfa íbúum Skíða-
dals.
Við munum geyma í vitund
okkar, en elcki gleyma, að þú hef-
ur lagt fram mikilsverðan skerf
til hagsbóta fyrir Skíðadal. Við
munum bera víðsýni þína og trú
á mátt samtaka, saman við þröng
sýni og sérhyggju, sem stundum
skýtur upp kollinum í þjóðfélagi
voru.
Og Skíðdælingar! Nú er það
okkar, hvar sem við búum í daln-
um, að standa saman og bera
fram til sigurs lagningu símans
inn í dalinn og byggingu brúar
vfir Skíðadalsá. Við skulum allir
hafa jafn víðan sjóndeildarhring
og Sigurður Kristjánsson. Sýnum
að svo skuli vera. Allir fram til
sameiginlegra átaka.
Skíðdælingur.
Nýkomið!
KAFFI óbrent
HEILBAUNIR
HÁLFBAUNIR
Kaupfélag Eyfirðinga
Ný len d uvörv verzlun
og útibú
Stálka
óskast til hejmilisstarfa á
reglusamt heimili í
Re.ykjavík. — Mjög hátt
kaup.
Upplýsingar gefur
María Hallgrímsdóttir
Síini 1145.
BEZTA GJÖFIN til
vina og kunningja er-
lendis er fögur mynda-
bók. HF.KLU-GOSIN
1947 til 1948 er tví-
mælalaust ein glæsi-
legasta myndabók, er
út hefur verið gefin
hér á landi og því til-
valin tækifærisgjöf.
Verð í bandi aðeins kr. 50.00.
Bókaverzl. Björns Árnasonar,
Gránufélagsgötu 4, Akureyri.