Dagur - 10.08.1950, Síða 6

Dagur - 10.08.1950, Síða 6
6 JAGB'R Finuntudagimi lö. ágúst 1950 Viðburðarríkur dagur Saga eftír Helen Howe. 4. DAGUR. (Framhald). Og jafnvel þótt Gherry hefði komið aftur til Bandaríkjanna frá Bretlandi, á síðasta vetri, eftirtólf ára fjarveru, hafði það ekki haft nein óþægindi í för með sér. Tím- inn breytti öllum viðhorfum. Nu var líka eiginmaður Cherry — Anton Schober — kominn í spil- ið. Og þau höfðu tekið barn í fóstur í Bretlandi á stríðsárunum — munaðarleysingja úr loftstyrj- öldinni og Cherry virtist nú loksins komin í höfn. Og ef nokkr ar efasemdir hefðu leynst í brjósti Faith, höfðu þær vissu- lega rokið út í veður og vind þeg- ar Eric kom til hennar og sagði: „Chen-y Slate er- væntanleg heim og hefur í hyggju að halda nokkra hljómleika hér. Hún vill að eg sjái um þá. Eg hef engu svarað enn og mun ekki taka þetta að mér, ef þér þykir það’ á nokkurn hátt verra:“ En Faith hafði getað svarað á frjálsmannlegan og einarðlegan hátt, að henni þætti það ekkert verra og þess vegna skyldi hann hafa það eins og honum bezt þætti. Og hún hafði sagt sitt. — Auðvitað varð ekki komizt hjá því að Eric talaði við Cherry ann- að slagið um ýmislegt varðandi hljómleikana, þar sem hann var forstjóri fyrirtækisins, sem sá’ um þá. Og vissulega hefði ekki litið vel út, að þetta þekkta firma hefði neitað að taka að sér hljóm- leikahald fyrir eina þekktustu söngstjörnu veraldar. En Eric sagði henni ævinlega frá því, er hann hafði hitt1 Cherry. Þau höfðu venjulegíi rætt málin.heima hjá henni þar í borginnij og mað- ur hennar hafði að sjálfsögðu jafnan verið viðstaddur. Faith’ gekk inn í einkaherbergi Erics til þess að ná í brúnu fÖtin hans, sem senda átti í viðgerð. Hún brá hendinni í vasana til þess að ganga úr skugga um að ekkert væri þar. Hún fann eld- spýtustokk, áætlun jórnbraut- anna, augsýnilega fengna með það fyri raugum að sjá hvenær hentugar ferðir féllu til sumar- bústáðarins fyrirhugaða á Kisco- fjalli, og loks lítið blað, með við- vaningslega gerðri teikningu, eins og bám hefði verið að verki. Eric hafði krotáð eitthvað neðst á blaðið. Faith yppti öxlum, þetta hlaut að vera teikning eftir Fay, hugsaði hún, en þó hefði mátt búast við því að’ Fay teiknaði betúr en þetta, þar sem hún var orðin átta ára. Faith lagði blaðið í skúffu í borði Erics og var í þann veginn að ganga út úr herberginu þegar síminn hringdi. Hún svaraði þeg- ar. „Faith? Er þetta þú, elskan. Komdu blessuð, þetta er Dusty.“ Bezt að tala varlega, hugsaði Faith. Dusty de Chambord var málug og ekki alltaf góðgjörn eða umtalsgóð um náungann. „Sæl og blessuð, Dusty,“ svar- aði Faith. „Það er langt síðan maður hefur heyrt í þér.“ Faith vonaði að kveðjan væri vingjarn- leg án þess þó að vera það um of. „Já, það er óttalegt, hvernig tíminn líður í þessari borg. Já, það’ er langt síðan eg ætlaði að hitta þig, við sjáumst svo sjaldan nú orðið.“ Hún þagnaði andar- tak ,en hélt svo áfram: „Þú hlýt- ur að vera stolt af þv, að Eric skuli nú vera orðinn aðalfor- stjóri. Hvað þýðir það fyrir ykk- ur?“ Faith óttaðist að verið væri að leggja gildru fyrir sig og hugsaði sér að vera vel á verði. „Eg hugsa að það þýði ekkert sérstakt fyrir okkur. Ástæðan er, að gamli Mr. Woife dó, eins og þú veizt. Eg géri-ekki ráð fyrir, að útnefning- in hafi neina verulega breytingu í för með sér'í starfi Erics.“ „Eg vöna að það sé svoleiðis. Það væri svo leiðinlegt, ef Eric ætti eftir að verða bara hátsettur forstjóri án þess að láta sig per- sónulega skipta málefni lista- mannanna, sem hann vinnur fyr- ir. Máður heyrir alls staðar, hve ;listamennimir eru ánægðir að skipta við hann.“ Nú kemur það, hugsaði Faith, og það stóð held- ur ekki- á því. „Eg hitti Schober-hjónin hér um kvöldið og eg spurði þau, jhvernig þeim líkaðii að skipta við Eric, og þau voru bæði mjög :ánægð.“ ; Faith var nú varari um sig en 'áður, en' orðaflaumurinn í sím- anum hélt áfram, í sama vin- 'gjarnléga og ísmeygiléga tónin- *um: „En hvað er eg að rausa, eg: •gleymdi ástæðunni til þess að eg lu’ingdi til þín. Miglángar til þess 'að þið Eric borðið kvöldverð hjá mér annan miðvikudag. Eg þarf að taka á móti dönskum manni, sem er hér í einhverjum opin 'bei-um erindágerðum, og þá flaug að mér, að Eríe væri einmitt til valinn maður fyrir hann að kynn- ast. En það var annars skrítið at vik, sem varð til þess að mér datt' þetta í hug. Það var hér á dögun- um, við hornið á Gramercy-garði, að eg sá mann, sem var svo líkur honum, að eg hefði getað svarið að þar væri Eric, en auðvitað vissi eg að skrifstofan hans var hvergi nærri og eg sagði því við sjálfa mig, að þetta gæti ómögu- lega verið hann, á þessum tíma dágsins." Faith hefði getað svarað henni þannig: Það hefur verið hann, því að hann fór þangað til þess að •hitta Anton Schober og Gherry Slate, en þau eiga heima þar í nágrenninu. Þau- voru að ræða ÍÞRÓTTIR Og ÚTILÍF DREN G J AMEIST AR AMÓT ÍSLANDS. Þrefaldur sigur Akureyringa í 1500 m. og 3000 m. hlaupi. Mótið fór fram í Vestmanna- eyjum um sl. mánaðamót. 12þátt- takendur .voru frá Akureyri og nokkrir frá Ungmennasambandi Eyjafjarðar. Hvoru tveggja stóðu sig með ágætum. Knattspyrnufélag Akureyrar hlaut þrjá meistara: Óðinn Árna- son í 1500 m. og 3000 m., og Her- mann Sigtryggsson í 400 m. Mesta athygli vakti þrefaldur sigur Akureyrar bæði í 1500 m. og 3000 m. hlaupi. 1500 m. 1. Órðinn Árnason, K. A„ 4 mín. 29.4 sek. 2. Hreiðar Jónsson, K. A., 4 mín. 30.8 sek. 3. Einar Gunnlaugsson, Þór, 4 mín. 32.4 sek. 3000 m. 1. Óðinn Árnason, K. A., 10 mín. 01.6 sek. 2. Einar Gunnlaugsson, Þór, 10 mín. 11.4 sek. ,3. Kristinn Bergsson, Þór, 10 mín. 14,0 sek. Hermann Sigtryggsson, K. A., vann 400 m, hlaupið á 55.2 sek. um' næstu hljómleika Cherry. En hún sagði ekkert heldur ihlustaði. „Þéttá var annars mjög. skrít- lið;“ hélt Dusty áfram. „Við Pollý 'Prine vorum í leigubíl og- bíllinn' 'stöðvaðist vegna umferðarljóss. Allt1 í; einu segir Póllý: Þama eru sannarlega faðir og sonur, sjáðu hvað þeir em líkir. Og á gang •stéttinni var maður, sem leiddi ungan dreng, svona fimm til sex ára, og þeir voru sannarlega líkir. Barnið var lifandi eftirmynd mannsins. Og nú kemur það und- arlega. Eg hefði getað svarið, að •maðurinn væri Eric Millet, og eg sagði það við Pölly. En hún sagði að hver svo sem hann væri, þá ætti hann óvenjulega fallegan dreng. En vitaskuld vissi eg, að þetta hlaut, gat ekki verið, því að hvað ætti Eric að vera að gera með ókunnan dreng hjá Gramer- cy-garði? Þó gat maður varla talað um ókunnan dreng, því að bamið yar svo líkt honum, en þar sem Eric á engan son, þá gat það samt alls ekki verið hann. En svona var það nú, sem mér kom Eric í hug, og mér fannst þetta ákaflega skrítið atvik. — Hvað segirðu svo um kvöldverð- inn annan miðvikudag?“ (Framhald)i Ritstjóri: TÓMAS ÁRNASON. Jón Steinbergsson, K. A., varð 4. í stangarslökki. Leifur Tómasson, K. A., varð 3. í hástökki, 1.65 m. Tryggvi Georgsson, Þór, varð 3. í spjótkasti, 51.80 m. Er full ástæða til að vekja at- hygli á góðum árangri drengj- anna, vegna þess að skilyrði voru mjög slæm, rok og rigning, og önnur aðstaða óhagstæð. Árni Magnússon, U. M. S. E., vann þrístökkið og stökk 13.23 m., sem er mjög góður árangur. Þá varð Árni 2. í langstökki með 6.20 m. Fyrsti maður átti 6.21 m. Gestur Guðmundsson, U. M. S. E. kastaði kringlunni 42.77 m. og hlaut annað sæti. Fyrsti maður átti 43.32 m. Þá varpaði Gestur kúlunni 15.01 m. og varð þriðji. Fyrsti 15.35 og annar 15.34 m. Er Gestur augljóslega bráðefnilegur kastari og Árni stökkmaður góð- ur. Drengirnir fóru með flugvél til Vestmannaeyja og komu einnig flugleiðis til baka. Láta þeir hið bezta af ferðinni. Sjálfboðaliðar við íþróttasvæðið. Fyrir nokkru var auglýst eftir sjálfboðaliðum við byggingu nýja íþróttasvæðisinns. Ennþá hafa engir gefið sig fram. Sumir íþróttamenn tala um það, að vall- argerðinni miði lítið áfram. Þeir hinir sömu ættu að sýna viljann í vei-ki og leggja fram sjálfboða- vinnu við völlinn. Sjálfboðaliðar geta mætt við völlinn annað hvort kl. 5 eða 8. Knattspyma. III. flokkur frá Siglufirði var nýlega á ferð hér á Akureyri. — Þeir voru að koma frá íslands- móti III. fl. í Reykjavík. Samein- að lið úr Þór og K. A. keppti við þá og tapaði með 0 : 2 mörkum, Æfingaleikir. Á hverjum miðvikudegi kl. 8 fara fram æfingaleikir milli K. A. og Þórs í meistaraflokki. Er það æfing fyrir Nörðurlandsmót- ið, sem að öllu mlíkindum fer fram á Akureyri um miðjan sept. (Framhald á 7. síðu). Þórunn S. Jóhannsdöttir í Samkomuhúsinu, fimmtudaginn 10. ágúst, klukkan 9 e. h. Aðgöngumiðar seldir í Hljóðfærahúsinu. ^s. immimmiimimmimimiiimimmiimimimiiiimiiimmiiimmmmmmmmmm1^ Flóru-konfekt í pokuin og kössum Víkings-konfekt í pokum og kössum Brjóstsykur, 4 tegundir Kanpfélag Eyfirðinga Nýlenduvörudeild og útibú. *'(iimiiiiiimmiiimiiimmiiimiiiiimiiiiiiiiiiiiiiimMiiiiiiiiimiMiMiiimiiiiMiiimiiiiiimiiiiiiiimmiimimiiimmmiiimiiimmíi* ‘MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMIMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMll1' Ediksýra nýkomin Kaupfélag Eyfirðiitga Nýlenduvörudeild og útibú. IIIIMIIIMIIMIMIMIIIIIIIMMIIMIMMMMMIIMIIIIIIIIIMIIMIMIMIIIIMIIMIIIMMIMMIMMIMIIMMIIMIIIMMIIMMMIMIMMIMIIi

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.