Dagur - 21.09.1950, Síða 7
Fiinmtutlaginn 21. septemtrer 1950
DAGUR
1
MÓÐIR, KONA, MEYJA.
(Framhald af 4. síðu).
nægilegt magn af því efni, sem
mannslíkaminn þarfnast daglega.
Steinseljan getur verið í garðin-
um lengi og þolir nokkuð fróst.
Grænkálið þolir frost og hörk-
ur, svo að ástæðulaust er að
hreyfa það úr gárðinum. Ef snjó-
þyngsli eru mikil- kann það að
brotna, svo að ráðlegt er að
moka ofan af því snjóinn jöfnum
höndum, en láta aldrei verða á
því stóran skafl.
Þetta eru algengustu tegund-
irnar í görðum okkar, og vonandi
koma þessar leiðbeiningar ein-
hverjum að notum.
Puella.
- Fokdreifar
(Framhald af 4. síðu).
dæmi Eyrarvegsbúa og notuðu
lítinn hluta af sínum frístundum
til að lagfæra umhverfi heimila
sinna. Það er ótrúlegt hvað sam-
stilltur áhugi getur verkað vel á
unga sem gamla, þegar fórnfýsi
og gleði er með í verki, en pen-
ingarnir ekki aðal atriðið.
Að vísu vantar mikið á að svæði
þetta sé komið í það lag, sem það
á að komast í, en eg er viss um
að það mun líta vel út á næsta
'sumri, því að þetta fólk lætur
ekki sitja við orðin tóm, því að
nokkrum kvöldum síðar fóru
sjálfboðaliðar á tveimur vörubíl-
um austur í Mývatnssveit og
sóttu hraun, sem setja á með
vegunum, einlivern næsta dag.
En það eru vinsamleg tilmæli
mín og Eyrarvegsbúa, að menn
virði þennan stáð, á þann hátt að
troða hraun ekki að óþörfu, né
skemma á annan hátt.
Baesskemmtun
verður haldin í þinghúsi
Glæsibæjarhrepps, laug-
ardaginn 23. sept. kl. 10
e. h. — Góð músik. —
Veitingar.
U ngmennafélagið
Herbergi
til leigu. — Upplýsingar
í síma 17 7 2
Herhergi til leigu
fyrir karlmann, einnig
húsnæði íyrir skóla-
stúlku.
Afgr. vísar á.
Herbergi
til leigu fyrir stúlku. Fæði
á sama stað.
Afgr. vísar á.
Ráðskona
óskast á lítið heimili í
Reykjavk. Stórt sérher-
bergi. — Gott kaup.
Upplýsingar í Hafnarstrœti
101, nppi.
ÚR BÆ OG BYGGÐ
Barnakerra
og unglingahjól til sölu.
Afgr. vísar á
Gul rennilástaska
tapaðist af bíl í Hafnar-
stræti. — Skilist á afgr.
Dags.
Kýr til sölu
Haraldur Daviðsson
Stóru-Hám.st.
Lítið lierbergi
með innbyggðum skáp
óskast strax eða 1. okt.
Tilboðum sé skilað á
afgr. blaðsins fyrir n. k.
laugardag
Herbergi,
til leigu gegn húshjálp
hálfan daginn. — Kaup
eftir samkomulagi.
Afgr. v. d
Peningaveski
tapaðist í þinghúsi Glæsi-
bæjarhrepps, laugardaginn
9. sept. — Finnandi vin-
samlega skili því á afgr.
Dags gegn fundarlaunum.
Tvær stúlkur
óska eftir
h e r b e r g i
Tómar flöskur
Kaupunr þriggja pela flösk-
ur á 0.75 kr. stykkið.
STJÖRNU-APÓTEK.
Uppboð
Miðvikudaginn 27. þ. m.
kl. 11 árdegis verður fjórði
hluti geymsluhúss (bragga),
við Oddeyrartanga, sunn-
an við Odda, eign db.
Hjartar Lárussonar, seldur
á opinberu uppboði ef við-
unanlegt boð fæst. Greiðsla
við hamarshögg.
Bæjarfógetinn á Akureyri,
15. sept. 1950.
Friðjón Skarphéðinsson
llppboð
Sanrkvæmt ákv. skiptafund-
ar í dánarbúi Jóns Bald-
vinssonar, fer fram opin-
bert uppboð að Lundar-
götu 4, nriðvikudaginn 27.
þ. m., kl. 1 síðd., og verða
þar seldir ýmsir lausafjár-
nrunir dánarbúsins svo senr
húsmunir og fatnaður.
Greiðsla við hamarshögg.
Bæjarfógetinn á Ákureyri,
15. sept. 1950.
Friðjón Skárphéðinsson
I. O. O. F. — 1329228V2 — I I
Kirkjan. Messað í Glerárþorpi I
kl. 2 og á Akureyri kl. 5 næstk.
sunnudag. — F. J. R.
Hjúskapur. 14. september voru
gefin saman í hjónaband Kristín
Benediktsdóttir fiá Vöglum og
Árni Friðgeirsson ráðsmaður
Menntaskóla Akureyrar. Heimili
reirra er í Menntaskólanum. —
16. sept. voru gefin saman í hjóna
band í Akureyrarkirkju Anna
Þórey Sveinsdóttir og Hreinn
Hreinsson Pálssonar forstjóra.
Heimili þeirra er að Laugargötu 3
hér í bæ. — 17. sept. voru gefin
saman í hjónaband í Akureyrar-
kirkju Margrét Hólmfríður
Randversdóttir og Benjamín Jós-
epsson húsgagnasmiður. Heimili
þeirra er í Hafnarstræti 47.
Hjúskapur. Nýlega voru gefin
saman í hjónaband af séra Þorv.
G. Þormar, Laufási, ungfrú María
Ásgrímsdóttir frá Hálsi í Öxna-
dal og Baldvin Olafsson deildar-
stjóri hjá KEA á Akureyri.
Sunmídagínn 27. ágúst komu
prestar úr S.-Þingeyjarprófasts-
dæmi og konur þeirra saman á
Grenjaðarstað eftir að aðkomu-
prestar höfðu flutt messu í öllum
kirkjum prestakallsins. Nutu þeir
alúðar og rausnarlegra veitinga
prestshjónanna á Grenjaðarstað,
og sátu við samræður, sér til
ánægju og uppbyggingar, fram á
nótt. Munu þessir prestshjóna-
fundir ekki tíðkást nema í Suður-
Þingeyjarprófastsdæmi, e'n þessi
fundur var annar í röðinni, og eru
prestshjónin einhuga um að
halda þeim áfram.
Um helgina vann fjöldi manna
við kartöfluupptekt hér í ná-
grenni bæjarins. Spretta er hvar-
vetna góð og horfur á mikilli
uppskeru. Geymsluvandræði eru
fyrirsjáanleg. Bæjarmenn fýsir
að heyra, hvað líður innréttingu
brunastöðvarkjallarans.
Frá kristRÍkojshú ::z:i Zícr . —
Almenn samkrma á sunnudags-
kvöldið kl. 8.30. Séra Friðrik
Friðriksson talar. — Aliir vel-
komnir.
Húsniæðraskólafél. Akureyrar
heldur hlutaveltu að Hótél Norð-
urland næstk. sunnudag kl. 4 e.
h. Margir eigulegir hlutir.
Verið er að byggja nýjan veg í
Höfðahverfi. Er unnið með
jarðýtu að vegargerðinni í ná-
grenni Grýtubakka. Nýr vcgur
þarna er mikil nauðsyn, en
meðan á vegargerðinni stendur
ætti að auglýsi að leiðin til
Grenivíkur sé ófær á þessum
kafla fyrir allar venjulegar bif-
reiðir. Það er skemmd á nýja
veginum og bifrreiðunum, að
hleypa þeim út á þessa ófæru.
Til nýja sjúkrahússins. Gefið
til minningar um Margréti Sign-
ýju Sæmundsdóttur, f. að Grana-
stöðum 3. ágúst 1865, d. 25. nóv.
1949, kr. 1500.00 frá Unni Björns-
dóttur, Ingimar Davíðssyni,
Snorra Arinbjarnarsyni. — Gjöf
frá S. G. kr. 100.00. — Með þökk-
um móttekið. G. Karl Pétursson.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína ungfrú
Magnea Magnúsdóttir, Sólvangi,
Skagaströnd, og Friðrik Baldur
Halldórsson, bifreiðastjóri, Hleið-
argarði.
Hjónaband. 6. þ. m. voru gefin
saman í hjónaband Ingibjörg
Lára Ágústsdót'tir, miðill, og
Steingrímur Sigurjónsson, bif-
reiðastjóri. Séra Sveinn Víkingur
gaf brúðhjónin saman.
Fimmtugsafmæli átti sl. föstu-
dag Jóhann G. Sigurðsson bók-
sali á Dalvík. Hann er velmetinn
og vinsæll borgari, enda heim-
sótti fjöldi manna — eða um 100
alls —hann í tilefni afmælisins,
færðu honum góðar gjafir og
minntust hans í ræðum og með
heillaskeytum.
næstu mánaðarmót
Upplýsingar i Kjötbúð KEA
Stúlka
'vön heimilisverkum ósk-
ast á sveitaheimili, mjög-
nálægt Akureyri.
G O T T Iv A U P
Afgr. v. á
Vil selja
liænimnffa
íu
Jóhann Sigvaldason,
Ytri-Reistará
i
Reiðhestsefni
3ja vetra foli til sölu.
Afgr. v. á
Tapazt hefur
barnavettlingur (blár, með
bleikum röndum) : leið
Verzl. Eyjafjörður — Hótel
Goðafoss. — Finnandi vin
samlega skili honum á af-
greiðslu Dags.
Eftir kröfu Björns Hall-
dórssonar, lögfr., vegna út
gerðar m/b Stíganda, verð-
ur snurpunót (grunnnót),
eign h. f. Stjörnur, Dalvík,
seld á opinberu uppboði,
' sem fer frant í nótastöð
Netjamanna h. f., Dalvík,
fimmtudaginn 28. sept. n.
k. kl. 2.30 síðdegis. Greiðsla
við Iianrarshögg.
Skrifst. Eyjafjarðars.,
15. sept. 1950.
Friðjón Skarphéðinsson.
Kenni byrjendum
á píonó. Er til viðtals kl
6—7 e. h. daglega.
Kristin Sigurðard.
Oddeyrargötu 5.
Vil kaupa
snenunbæra K Ú. — Á
herzla lögð á góða rnjólk,
Svanberg Sigurgeirss.
Þórunnarstræti, Ak.
Vantar barnakerru
Upplýsingar í síma 1919.
Unglingsstúlka
óskast í létta vist hálfan
daoinn.
o
Afgr. vísar á.
1 eða 2 herbergi,
eldhús og geymsla óskast til
leigu sem fyrst.
Afgr. vísar á.
M Hjartans pakkir til ykkar allra, sem heimsóttu mig $
S °S giöddu á annan liált á sj'ötugsáfmœli minu.
I 1 KRISTÍN EINARSDÓTTIR, §
g Hrisey. S
ÓÍHKHKHKHKHKHKBKHKHS<HKHKHKHKH3<HKHKHKHKHKHKHKHKH>S
Karföf lugeymsla
bæjarins í Grófargili verður opin daglega frá
þriðjudaginn 26. september til 3. október n. k.
Verður þar tekið á móti kartöflum til vetrar-
geymslu, og hefir geymslugjald verið ákveðið
kr. 20.00 fyrir hvern kassa. Þeir, sem geymt hafa
katröflur í geymslunni undanfarið, verða látnir
sitja fyrir plássi.
Þá skal athygli vakin á því, að þeir, sem vildu
tryggja sér geymslupláss í nýju kartöflugeymsl-
unni við Geislagötu, sem verið er að ganga frá,
sktdu snúa sér til garðyrkjuráðunauts bæjarins
með pantanir sínar.
Bæjarstjóri.