Dagur - 01.11.1950, Blaðsíða 1
Greiðið blaðið skilvíslega!
Póstkröfur fyrir árgjaldi blaðs
ins hafa verið sendar til ým-
issa póststöðva. Munið að
vitja þeirra!
Akureyri, miðvikudaginn 1. nóvember 1950
47. tbl.
Frá heimsókn fjárveitinganefndar og Fjárhagsráðs: Gestimir skoða
dráttarbrautirnar á Oddeyri. Steinn Steinsen bæjarstjóm skýrir
mannvirkin fyrir formanni fjárveitinganefndar, Gísia Jónssyni alþm.
T. h.: Helgi Jónasson alþm., í miðju, dr. Kr. Guðmundss. bæjarfulltr.
Fjárveitinganefnd og FjárhagsréS
skoduðu ýmsar framkvæmdir hér
Frá heimsókninni síðastliðinn miðvikudag
XXXIII. jrg.
Merkur þj óðhöfðingi látimi
Gústaf V. Svíalconungur lczt í Drottning-
holmhöll í Stokkhólmi sl. sunnudagsmorg-
ún, 92 ára að aldri. Gústaf konungur kom til
ríkis árið 1907 og hann lifði, sem konungur,
viðburðaríkasta tímabil mannkynssögunn-
ar. Hann ræddi við stjórnmálamenn frá
Disraeli til Hitlers, stýrði landi sínu hlut-
iausu gegnum tvær heimsstyrjaldir, og beitti
áhrifum sínum tii aukinnar mannúðar
styrjaldaraðila. Gústaf konungur var mót-
faiiinn ströngum hirðsiðum, og vildi gcra
samband konungs og þjóðar sem nánast.
Hann bar aldrei kórónu Svíarílcis, cn iét hana jafnan liggja
við iiíið sér, er hann framkvæmdi stjórnaratliafnir. Sænska
þjóðin öil harmar nú látinn konung og vinsælan þjóðhöfðingja.
Samúðarskeyti hafa borizt frá þjóðhöfðingjum og ríkissíjórn-
um flestra menningarlanda. Konungur verður jarðsunginn á
morgun. Við ríki hcfur tckið sonur hans, Gústaf VI. Adolf.
Var hann fulltrúi Svía á Alþingishátíðinni á Þingvöllum J93Ö.
rkunerhús KEÁ á Oddeyrs
fekið til starfa
fíægt að breiða 50 skpd. til jmrrkimar í einu
Nýlega er tekið til starfa fisk-
þurrkunarhús KEA á Oddeyrar-
tanga og er unnið að því þessa
dagana að fuliþurrka þar fisk,
aðallega frá Hrísey og Dalvík.
Hægt er að breiða 50 skippund
til þerris í senn, og þarf tvær
breiðslur til þess að fullþurrka
fiskinn. Fiskurinn er breiddur á
grindur, en heitu lofti er blásið
inn í fiskþurrkunarklefann. —
Tækin eru smíðuð af Héðni h.f.
í Reykjavík og hafa reynst vel.
Fiskþurrkunarhús Útgerðar-
félagsins í smíðum.
Utgerðarfélag Akureyringa á
fiskþurrkunarhús og fiskverkun-
arstöð í smíðum á Gleráreyrum
og miðar því verki allvel áfram.
Þá starfrækir Guðmundur Jör-
undsson útgerðarmaður fisk-
þuiTkunarklefa og er unnið þar
að þurrkun saltfisks úr ,'Jörundi‘.
Allmikil atvinnubót er að
þessum framkvæmdúm öllum
fyrir þæjarfélagið.
„Jörundur44 enn á
karfaveiðum
Togarinn Jörundur kom til
Krossaness í gærmorgun með
um 230 lestir af karfa. Hefur afli
verið tregari en áður síðustu
daga, og að auki ógæftir á mið-
unum. Báðir togarar Utgerðarfé-
lags Akureyringa eru nú í Rvík
til eftirlits og viðgerðar, en Jör-
undur heldur áfram karfaveið-
unum.
Togaraverkfallið
heldur áfram
Togarasjómenn í Reykjavík,
Hafnarfirði, ísafirði og Siglu-
firði felldu miðlunartillögu
sáttanefndarinnar í togaradeil-
unni í sl .viku, en tillagan var
samþykkt í Keflavík og Vest-
mannacyjum. — Akumesingar
höfðu áður samið. Atkvæða-
greiðslu varð ekki lokið í Nes-
kaupstað og Akureyri, með því
að togarar voru á veiðum. —
Togarinn Jörundur kom inn í
gær, og mun því mega vænta
fregna af úrslitum hér bráð-
lega. Togaraverkfallið licidur
því áfram í stærstu útgerðar-
bæjunum, til ósegjanlegs tjóns
fyrir þjóðina í heild.
Aflasöiur í Bretlandi
Nokkrir bátar hafa að undan-
förnu selt afla í Bretlandi, aðal-
lega frá Austfjörðum, og hafa
aflasölur verið allgóðar. í sl.
viku seldi m.s. Stjarnan frá Ak-
ureyri um 80 tonn fyrir 2290
sterlingspund, og er það fremur
léleg sala. M.s. Sæfinnur er á
leið til Bretlands með fisk og m.s.
Snæfell hleður nú fisk til út-
flutnings.
Tvær ferðir á viku
á Reykjavíkur-Akur-
eyrarleiðinni
í dag verður sú breyting á
ferðunum landveginn milli
Reykjavíkur og Akureyrar, að
daglegar ferðir falla niður, en í
stað þess koma ferðir tvisvar í
viku. Frá Rvík þriðjudaga og
föstudaga, en frá Akureyri mið-
vikudaga og laugardaga. Norð-
urleið h.f. annast ferðirnar, af-
gceiðsla er sem áður í Ferða-
skrifstofunni.
Laust fyrir hádegi á niiðviku-
daginn var bar hér að garði f jár-
veitinganefnd Alþingis, Fjár-
liagsráð og nokkra meðiimi Flug-
ráðs. Dvöldu nefndirnar hér
fram í rökkurbyrjun, og kynntu
sér ýmsar framkvæmdir, sem
unnið er að hér í bænum og rík-
isstyrks njóta, en flugráðsmenn-
imir athuguðu sérstaklega flug-
vallarmálin.
Bæjarstjórnin hafði hádegis-
verðarboð fyrir gestina að Hótel
KEA og stýrði hófinu Steinn
Steinsen bæjarstjóri. Að því
loknu var farið um bæinn í bif-
reiðum og ýmis mannvirki skoð-
uð.
Frá „nýhöfn“ til spítalans.
Fy rst voru skoðuð hafnar-
mannvirki bæjarins á Torfunefi
og lýsti bæjarstjóri fyrirhuguðum
endurbótum á þeim. Þá var ekið
að nýju dráttarbrautinni við
Glerárósa og síðan meðfram
íþróttasvæðinu nýja, að sund-
stæðinu. Þá var gagnfræðaskóla-
búsið skoðað, undir leiðsögu
Þorsteins M. Jónssonar, skóla-
stjóra, forseta bæjarstjórnarinn-
ar, en síðan ekið að nýja spítal-
anum. Sýndi Guðmundur Karl
Pétursson yfirlæknir gestunum
húsið og skýrði fyrirkomulag
byggingarinnar. Síðan var ekið
að heimavistarhúsi Menntaskól-
ails og sýndi Þórarinn Björnsson
skólameistari gestunum húsið, en
síðan var gengið til kaffidrykkju
í boði skólameistarahjónanna. —
Var þá degi tekið að halla og litlu
síðar héldu gestirnir suður á
Melgerðisflugvöll, þar sem flúg-
vél beið þeirra.
Báðir formennimir í förinni.
í förinni voru báðir formenn
nefnda þesasra, þeir Gísli Jóns-
son, alþm., formaður fjárvetinga-
nefndar og Magnús Jónsson, for-
maður Fjárhagsráðs. Veður var
einkar hagstætt þennan dag og
gafst því gott ráðrúm til þess að
athuga hinar ýmsu framkvæmd-
ir. Munu nefndarmenn hafa betri
aðstöðu nú en áður til þess að
vita um þöi'f þeirra bygginga-
framkvæmda, sem hér hefur ver-
ið ráðist í, og nauðsyn þess að
ljúka þeim hið bráðasta og láta
milljónirnar ekki liggja mörg ár
enn í hálfgerðum húsum og
mannvirkjum, án þess að gera
nokkurt verulegt gagn.
Fundur í Framsóknar-
félaginu á mánudags-
kvöld
Framsóknaríélag Akureyrar
hefur almennan félagsfimd að
Hótel KEA næstk. mánudags-
kvöld, kl. 9. Fer þar fram kjör
fulltrúa á 9. flokksþing Fram-
sóknarmamia. Þá verður rætt
um stjórnarskrármálið o. fl. —
Skorað er á félagsmenn að fjöl-
menna á þennan fund.
Aðalfundw FUF í Eyjaljarðarsýslu
n. k. sunnudag
200.ooo krónur útgjöld
bæjarins vegna óskil-
getinna barna
Á síðasta fundi bæjarráðs var
til umræðu skýrsla frá fátækra-
fulltrúa, og er þar skýrt frá erf-
iðleikum við innheimtu meðlaga
óskilgetinna barna, jafnframt því
sem meðlagskröfur á bæinn stói'-
aukast. Taldi fátækrafulltrúinn
að útgjöld bæjarins í ár af þess-
um sökum mundu verða um 200
þús. kr., eða tvöfalt hærri en fyr-
ir þremur árum. Bæjarráð veitti
fulltrúanum umboð til þess að fá
yfirvaldsúrskurð um það ,að ein-
hleypir menn vinni af sér van-
goldin meðlög á Litla-Hrauni,
fáist meðlögin ekki greidd með
öðrum hætti.
Aðalfundur Félags ungra Fram-
sóknarinanna í Eyjafiarðarsýslu
verður haldinn sunnudaginn 5.
nóvember að Hótel KEA, Akur-
eyri.
Fundurinn hefst kl. 2 e. h. Dag-
skrá fundarins verður venjuleg
aðalfundarstörf, kosning fulltrúa
á 9. flokksþing Framsóknar-
flokksins og önnur mál...
Ungum Framsóknarmönnum
á Akureyri er boðið að sitja
fundinn.
Það er því sérstök ástæða til að
sækja þennan fund vel, til þess að
h'Yggja þátttöku ungra Fram-
sóknarmanna úr Eyjafirði á
flokksþinginu.
Kvöldskemmtun.
Um kvöldið efna ungir Fram-
sóknarmenn til skemmtunar að
Hótel KEA. Tómas Árnason,
lögfræðingur, flytur ávarp, þá
verður spiluð hin vinsæla Fram-
sóknarwhist og að lokum dansað
við undirleik hljómsveitar frá
Akureyri. Sérstök verðlaun verða
veitt fyrir góða og léleg'a frammi-
stöðu við spilaborðin.
Fólki er bent á, að aðgöngu-
miðar að skemmtuninni verða
seldir á skrifstofu Framsóknarfl.
á Akureyri, Hafnarstræti 93
(sími 1443), kl. 4—7 á sunnudag-
inn og við innganginn.