Dagur - 15.11.1950, Blaðsíða 2

Dagur - 15.11.1950, Blaðsíða 2
2 D A G U R Miðvikudaginn 15. nóv. 1950 HKHKHKHKHKHKBKBKHKHKBKBKHKHKHKHKHKHKBKBKHKHKHKHKKHÍBKHKHKHKBKHKHKHKHKHKBK I UNG4 FÓLKIÐ Á þessari síðu ræða ungir Framsóknarmenn stjórnmála- viðhorfið og bcejarmálin t%O|0T0f0|*Ví|0|l>^MM>ti MWHOt'VVVVlrVVVlr* Hlutdeild ungra Framsóknar- Samband ungra Framsóknar- manna telur nú mikinn fjölda meðlima. í flest öllum sýslum og kaupstöðum landsins eru starf- andi félög ungra Framsóknar- manna. Næstu daga hefst í Reykjavík flokksþing Framsóknarflokksins. Verður það sennilega fjölmenn- asta fulltrúasamkoma, sem fjall- að hefur um stjórnmál hér á landi. Þingið ákveður stefnuskrá Fiamsóknarflokksins, kýs mið- stjórn hans og hefur yfirleitt æðsta vald í öllurn málefnum hans. Félög ungra Framsóknarmanna eiga rétt á að senda fulltrúa á þingið. Héðan úr Eyjaf. verða t. d. 12 fulltrúar. Þar sem einfaldur meiri hluta ræður úrslitum mála á áflokksþingimi Aðalfundur Félags ungra Fram- sóknarmanna á Akureyri 'var haldinn fimmtudaginn 9. nóv. sl. Formaður, Valdimar Jónsson, setti fundinn og stjórnaði hon- um. Flutti hann skýrslu félags- stjórnarinnar. Kosningar í trúnaðarstöður: Valdimar Jónsson, formaður. Jón Kristinsson, ritari. Lárus Haraldsson, gjaldkeri. Meðstjórnendur: Valdimar Baldvinsson, vara- formaður., Þórir Einarsson, Níels Halldórsson. Endurskoðendur: Ásgeir Halldórsson og Halldór Helgason. Umræður urðu fjörugar um ýms félagsmál og stjórnmál. Fulltrúar ungra F ramsóknarmanna á flokksþinginu Frá Akureyri: Valdimar Jónsson, Níels Hall- dórsson, Ásgeir Halldórsson, Brynjar Valdimarsson. Úr Eyjafjarðarsýslu. Stefán Valgeirsson, Auðbrekku, Ingimar Brynjólfsson, Ásláks- stöðum, Sigurður Óli Brynjólfs- son, Krossanesi, Halldór Jónsson, Þverá, Óttar Björnsson, Lauga- landi, Þorsteinn Valgeirsson, Auðbrekku, Steingrímur Bern- harðsson, Dalvík, Stefán Hall- dórsson frá Hlöðum. á þinginu, hafa ungir Framsókn- armenn einmilt tækifæri til að hafa áhrif á gang mála þar. Þeir eiga og fulltrúa í miðstjórn flokksins. A flokksþinginu verður tekin afstaða til allra þýðingarmestu málaflokka stjórnmálanna. Meginstefna Framsóknar- flokksins næsta tímabil verður og ákveðin. Ungir Framsóknarmenn eru stoltir af því að fá tækifæri til að eiga þar hlut að máli. Þeir munu styðja þá frjáls- lyndu umbótastefnu, sem flokk- urinn hefur beitt sér fyrir frá öndverðu, og leggja sig fram til að móta þá stefnu samhliða nýj- um viðhorfum. Lýðveldið unga á íslandi er aðeins á bernskuskeiði. Það eru vonandi íyrstu sporin, sem það hefur stigið. Því ber ekki að neita, að misstig hafa átt sér stað. Þess vegna erp nú erfiðleikar framundan. En þeim mun þjóðin mæta með djörfung og festu. Hún mun feta sig áfram, minnug bar- áttu horfinna en ógleymdra kyn- slóða fyrir frelsi og fullveldi. Það er trúin á þióðina og land- ið, sem hvetur unga Framsóknar- menn til aukinnar starfsemi og hluttöku í stárfi dg stefnu Fram- sóknarflokksins. Ungir Framsóknarmenn líta björtum augum fram á veginn. Þeir minnast sigra flokks síns á seinasta hausti. Þá vann hann í fyrsta sinni þingfulltrúa í Reykja vík. Einnig jók hann mjög fylgi sitt á Akureyri og þokaðist nær markinu. Þessir sigrar byggjast hvað mest á því, að flokkurinn er ís- lenzkur flokkur, sem vill auka frelsi og jafnrétti landsmanna. Hann tekur og fyllsta tillit til viðhorfa yngri kynslóðarinnar í stefnu og starfi. Þess vegna fjölg- aí nú stöðugt félögum ungra Framsóknarmanna um land allt. HKHKHKHKHKHKHKHKHKHKKHKHKH málinu, stjórnarskrármálinu o. fl. Kosningar í trúnaðarstöður: Stefán Valgeirsson írá Auð- brekku formaður. Meðstjórnend- ur: Óttar Bjömsson, Þórir Val- geirsson, Steingrímur Bernharðs- son, Halldór Jónsson. Varamenn: Jóhannes Kristjánsson. . Balduv Halldórsson. Endurskoðendur: Baldur Halldórsson, Hjalti Finns- Fjörugar umræður urðu á fundinum og voru íundarmenn samhuga um að auka starf og áhrif félagsins í sýslunni Aðalfundur FUFE Stefán Valgeirssop frá Auð- brekku kosinn formaður. Aðalfundur Félags ungra Framsóknarmanna í Eyjafjarðar- sýslu var haldinn að Hótel Kea sunnud. 5. nóv. s. 1. Steingrímur Bemharðsson, formaður félagsins, stjórnaði fundi. Fundinn sátu allmargir félaga.- enda þótt félagssvæðið, öll Eyja- fjarðarsýsla, sé mjög víðáttumik- ið. Ýmsar ályktanir voru gerðar á fundinum, m. a. í togaradeilu- r Alyktanir aðal- fundar FUFE Stjórnarskrármálið. Aðalfundur F. U. F. E, hald- inn á Akureyri 5. nóv. 1950, tel- ur það ekki vanzalaust fyrir for- ystumenn þjóðarinnar, að við skulum ekki ennþá hafa eignast heilsteypta stjórnarskrá, eftir sex og hálft ár frá stofnun lýðveldis- ins. Fundurinn lítur svo á, að Framsóknarflokkurinn ætti að taka forystuna í málinu. Fundurinn lýsir sig fylgjandi tillögum þeim, sem komið hafa fram í málinu, um sérstakt stjórnlagaþing, sem ó eingöngu að ráða þessu máli til lykta. Fundurinn er því ennfremur fylgjandi, að löggjafarvaldið og framkvæmdarvaldið verði skilið að, landinu skipt í fimmtunga, þar sem hver fimmtungur fari með sín sérmál, að svo miklu leyti sem hægt er, og þess vapd- lega gætt, að hlutur fólksins ut- an Reykjavíkur verði ekki fyrir borð borinn. Lánveitingar til landbúnaðarins. Aðalfundur F. U. F. E. telur það frumskilyrði fyrir nauð- synlegum byggingarfram- kvæmdum í sveitum landsins, að lán þau, sem Búnaðarbanka íslands er ætlað að lána til þeirra, séu stórhækkuð frá því sem nú er, a. m. k. í hlutfalli við aukinn kostnað vegna gengisbreytingarinnar. Togaradeilan. Fundurinn Iýsir yfir undrun sinni og gremju á framkomu lieggja deiluaðila í togaraverk- fallinu. Munið BS A Sími 1909 ll•l•l•llllllll•ll•l iiiiiiiiiiiiiiiiii N í r æ ð u r PÁLL H. JÓNSSON, Stóruvöllum 13. okt. síðastlioinn v.arð Páll H. Jónsson hreppstjóri að Stóru- völlum í Bárðardal níræður. Þann dag sóttu hann heim all- margir sveitungar og vinir og áttu meo honum glaðan dag. Snjór var á jörð svo mikill, að það hefti saingönguleiðir og hindraði marga, bæði fjær og nær, frá \fví að sækja heim hinn aldna hreppstjóra á þessum merkisdegi í ævi hans. Þó kom um 70 manns saman að Stóru- völlum og fengu þar hinar hlýj- ustu viðtökur og ríkmannlegar veitingar. Hinn níræði bóndi og hrepp- stjóri var glaður og reifur að vanda og ræddi bæði um gamalt og nýtt við gesti sína. Þrátt fyrir háan aldur var þó augljóst, að „Elli gamla“ hafði enn sneitt hjá garði hans, enda ekki boðið heim svo gestrisinn sem húsbóndinn þó er. Oddviti Bárðdælahrepps, Sig- urður Baldursson, færði Páli H. Jónssyni skrautritað skjal frá hreppsnefnd sveitarinnar, þar sem hún þakkaði honum, fyrir sveitarinnar hönd, vel unnin störf borin uppi af þreki og bjartsýnni trú á lífsmöguleika hennar og framtíðarskilyrði og gerði hann jafnframt heiðursborgara sveit- arinnar. Auk oddvita tóku ýmsir til máls og þess á milli var almenn- ur söngur. Páli H. Jónssyni barst fjöldi heillaóskaskeyta víðs vegar að af landinu. Og Kári Tryggvason skáld að Víðikeri sendi honunr kvæði það, sem hér fer á eftir: „Tíminn líður hratt — svo hratt — hugurinn reikar víða. — Einu er heilsað, annað kvatt, iðan holar gljúfrið bratt, út í sæinn orkustraumar líða. Þú hefur, vinur, hugarhlýr hlýtt á tímans strauma. Þipn Pr himinn heiður og skýr, hedl í þinni veröld býr, níræður átt þú æskuþrek og drauma. Þig hefur sveitin gjöful glatt, gullnu skrúði vafin. Meðan stundir hurfu hratt heyrðir þú er grasið spratt. Yrkjumaður önnum dagsins vafinn. Þú hefur stjórnað þinni sveit, þétt á taumum haldið. Á þig sjaldan angur beit, æ var lund þín glöð og teit, því hefur fjör og félagshyggja valdið. Það hefur löngum ljómað skært ljós á vegum þínum. Þú hefur elskað óðal kært, ungu lífi þroska fært. Auðnan hlær við óskabörnum Horfin er í himinninn húss þíns liljan bjarta. Hennar leitar hugur þinn. — Heill þér, gamli vinur minn. Blessi þig Guð og gleðji þitt aldna hjarta.“ í STUTTU MALI Nýja ríkisstjórnln í Dan- mörk boðar miklar, nýjar skattaálögur. Meðal þeirra skatta, sem mesta athygli vek- ur, er piparsveinaskattur, sem áætlað er að gefi ríkinu 35 milljónir króna. Alls nema liinir nýju skattar 700—800 millj. króna. Stjórnin hyggst skera ríkisútgjöld niður um 100 millj. með ýmsum sparn- aðarráðsíöfunum. Ensk húsmóðir vann nýlcga 4 millj. króna í fótboltahapp- drættinu enska. Þetta er stærsti vinningur, sem þetta happdrætti hefur nokkru sinni greitt. Vestur-Þýzkaland stöðvaði 8. nóv. iunflutning allra mat- væla frá löndum, sem eru inn- an greiðslubandalags Evrópu. T. d. var stöðvaður innflutn- ingur fisks frá Danmörk. Ekki er ljóst, hvemig þessi ákvörð- un kemur við innflutning fisks frá íslandi, en af frásögnum danskra blaða 8. þ. m. virðist sem nýjir erfiðleikar séu í uppsiglingu við að selja ís- fisk héðau til Þýzkalands. Blaðapappír hækkar stöðugt í verði. Þar að auki er skortur á blaðapappír á heimsmarkað- inum. Sænsku blöðin fá minni pappír frá næstk. áramótum en áður og þau verða að greiða 28% hærra verð fyrir pappír- inn eítir þann tíma. Rússncska stjórnin hélt upp á 33 ára afmæli byltingarinnar með stærstu hersýningu, sem haldin hcfur verið í Moskva í mörg ár. f fimm ldukkustund- ir streymdu hermenn og víg- vélar fram hjá palli, þar sem leiðtogar kommúnista stóðu. I ræðurn ásökuðu þessir stríðs- lierrar forráðamenn lýðræðis- þjóðanna um stríðsundirbún- ing! Stofuskápur til sölu mej5 tækifæri*- verði. Húsgagnavinnustofa ÞórÖar Jóhannssonar

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.