Dagur - 15.11.1950, Page 4

Dagur - 15.11.1950, Page 4
4 D A G U R Miðvikudaginn 15. nóv. 1950 DAGUR Ritstjóri: Haukur Snorrason. Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta: Erlingur Davíðsson Skrifstofa i Hafnarstræti 87 — Sími 1166 Blaðið kemur út á hverjum miðvikudegi. Árgangurinn kostar kr. 25.00 Gjalddagi er 1. júlí. PRENTVERK ODDS BJÖRNSSONAR H.F. Sparnaðarráðstafanir og flokksfylgi NÝLEGA HAFA farið fram athyglisverðar um- ræður um starfsmannahald og sparnaðarráðstaf- anir, sem almenningur ætti að gefa gaum. Þessi mál mun oft eiga eftir að bera á góma á næstu ár- um, ef á annað borð má takast að rétta við fjárhag ríkis og bæja og koma rekstri atvinnuveganna á skynsamlegri grundvöll. Tilefni þessara umræðna er viðleitni bæjarstjórnar Siglufjarðarkaupstaðar til þess að spara bænum útgjöld og létta einhverju af launagreiðsluþunganum af bæjarsjóði. Alkunn- ugt er að Siglufjarðarbær er illa stæður fjárhags- lega og ríkissjóður hefur að undanförnu orðið að munu þær eiga að mæta and- stöðu og jafnvel fullum fjandskap Alþýðuflokksbroddanna, því að í fylkingu embættismanna hefur flokkurinn vissulega meiri hags- muna að gæta en innan erfiðis- mannastéttanna. Vel má vera að Dað hafi verið tilviljun ein að svo margir Alþýðuflokksmenn reynd- ust vera í stöðum þeim í Siglu- firði, sem sjálfsagt þótti að leggja niður, er horfið var að því ráði, að gera rekstur bæjarfélagsins ó- dýrari en áður, en hitt er engin tilviljun, að Alþýðuflokksmenn verði einna fyrst fyrir barðinu á almennum sparnaðarráðstöfun- um hjá ríki og ríkisfyrirtækjum því að alkunna er, að flokkurinn hefur lagt á það megináherzlu að koma gæðingum sínum fyrir inn- an þessara stofnana og hefur þá stundum lítt gætt hófs og mætti nefna þess ýmis dæmi. Það er og glögg vísbending um afstöðu flokksins, að þingmenn hans eru allir hálaunaðir embættismenn ríkisins og rílvisstofnana. VIÐBRAGÐ Alþýðuflokksins gagnvart hinum hófsamlegu ráð- stöfunum Siglufjarðarbæjar eru nokkur lærdómur fyrir þjóðina um afstöðu þessa flokks til hags- muna skattþegnanna og þeirra ráðstafana, sem þeir krefjast nú og gerðir séu á ríkisrekstrinum. En forvígismönnum embættis- mannaflokksins skjátlast ef þeir halda, að þjóðin sjái aumur á þeim þótt nokkrir gæðingar þeirra verði að hrökklast úr ó- þörfum nefndum og embættum. Hróp blaðs þeirra um pólitískar ofsóknir gera þá ekki að píslar- vottum, heldur sanna þjóðinni á- þreifanlega á hverju siðferðisstigi sú flokksforusta stendur, sem enn kennir sig við alþýðu manna, en hefur fyrir löngu slitnað úr sam- bandi við hana og dagað uppi innan um fína titla og hálaunuð embætti við kjötkatlana í höfuð- staðnum. FOKDREIF AR Gæzla Reykjavíkuvsjónar- miðanna. er auðvelt að bæta úr þeim. standa straum af lánum bæjarfyrirtækja eins og Skeiðsfossvirkjunarinnar. Þegar málum kaup- staðarins er svo komið, eru sparnaðarráðstafanir bæjarstjórnarinnar ekki aðeins skiljanlegar, held- ur má segja, að forráðamönnum kaupstaðarins beri brýn skylda til að gæta ýtrustu sparsemi og hagsýni í rekstri bæjarins. Undir forustu hins öt- ula bæjarstjóra kaupstaðarins, var þessi viðleitni hafin fyrir nokkru. Starfsmannahald bæjarins var endurskipulagt. Óþörf embætti lögð niður og sameinuð öðrum. Með þessum aðgerðum sparaði bæjarstjórnin útgjöld sem nema á annað hundrað þúsund krónum. Líklega hefði þessi viðleitni.bæj- arstjórnarinnar ekki vakið þá athygli, sem hún þó verðskuldar, ef aðalmálgagn Alþýðuflokksins á Islandi hefði ekki vakið athygli á henni og það með nokkuð sérstökum hætti. Samkvæmt frásögn blaðsins voru það yfirleitt Alþýðuflokksmenn, sem sátu í hinum óþörfu störfum í Siglufirði. Þessi staðreynd varð til þess, að aðalblað flokksins leit ekki fyrst á nauðsyn kaupstaðarins að spara útgjöld til hins ýtrasta, heldur á pólitískan litar- hátt starfsmanna þeirra, sem þarna áttu hlut að máli, og með því að hann var nákominn blaðinu, voru ráðstafanir bæjarstjórnarinnar úthrópaðar í blaðinu sem pólitísk ofsókn og til þess eins gerðar að bola Alþýðuflokksmönnum úr störfum. í ýtar- legri greinargerð, sem bæjarstjórinn í Siglufirði hefur birt í Tímanum, eru ásakanir Alþýðublaðs- ins hraktar lið fyrir lið. Endurskipulagning starfs- mannahalds kaupstaðarins var vissulega ekki gerð til þess að bola burtu einstökum persónum, heldur er hún liður í viðleitni bæjaryfirvaldanna til þess að rétta við fjárhag bæjarins og koma rekstri bæj- arkerfisins á einfaldari og ódýrari grundvöll. ÞETTA SIGLUFJARÐARMÁL er naumast stór- mál í sjálfu sér. Hitt er athyglisverðara og lær- dómsríkara, hvernig Alþýðuflokkurinn íslenzki hefur þarna snúist við sparnaðarráðstöfunum. Það virðist vera stefna flokksstjórnarir.nar að spyma sem fastast gegn aðgerðum til þess að gera rekst- ur bæjarfélaga og ríkissjóðs einfaldari og ódýrari og um leið hagkvæmari fyrir skattþegnana, ef þessar aðgerðir koma á einhvern hátt við kaun Alþýðuflokksmanna. Þannig er það ekki nauðsyn ráðstafananna eða réttmæti þeirra, sem markar afstöðu flokksins, heldur einkahagsmunir hans og þeirra manna, sem hann telur sér nokkurt hald í. Það er alveg vafalaust, að ef þær yfirlýs. stjórn- arvaldanna, að unnið verði mai'kvisst að því í framtíðinni að gera rekstur ríkisbáknsins ódýrari og einfaldari en nú er, verða meira en orðin tóm, NÝLEGA HEFUR verið gerð breyting á skipulagi verðlagseft- irlitsins, í þeim tilgangi, að koma því í nánara samband við al- menning í landinu og veita neyt- endum betra tækifæri en áður til þess að vera á verði í verðlags- málum og koma sjónarmiður sín- um á framfæri. Heitir embættis- maður sá, er þessum máium stýr- ir, verðgæzlustjóri. Flutti emb- ættismaður þessi erindi í útvarp fyrir nokkru og gerði grein fyrir starfi sínu og skoraði á almenn- ing að hafa samvinnu við skrif- stofu síria til þess að fyrirbyggja vérðlagsbrot eða upplýsa þau og koma á auknu öryggi í þessum málum. Er ekkert nema gott um allt þetta að segja. Sunnanblöðin birtu og frásagnir af þessu nýja starfi og upplýsingar embættis- mannsins um það. Nú síðustu dagana hafa þau og flutt auglýs- ingar frá honum til leiðbeiningar fyrir almenning. ÞAÐ ER ÁSTÆÐA til þess að kynna sér það, sem þarna er ver- ið að gera, og leggja hönd að verki að uppræta svartamarkaðs- brask og annað ólöglegt athæfi í verzlunarmálum og mun af nógu að taka. En hitt er jafn augljóst, að til þess að þessi starfsemi nái tilgangi sínum, verður embættis- maður þessi að hafa samstarf við almenning um land allt, en ekki aðeins í Reykjavík. Svo hefur nú brugðið við að blöðin úti á landi hafa engar greinargerðir fengið frá embætti þessu, né heldur hafa þau verið beðin fyrir auglýsing- ar, sem varða allan almenning og eiga að vera til leiðbeiningar fyr- ir alla landsmenn. Það er illt til þess að vita, að hinn nýi embætt- ismaður skuli þannig í upphafi láta líta svo út, sem starf hans eigi eingöngu að snerta höfuð- staðarbúa'. Þau vinnubrögð verðlagsstj óraskrifstofunnar fyrri að auglýsa verðlagsákvarðanir, sem snerta alla landsmenn, ein- göngu í sunnanblöðunum, eru ekki til fyrirmyndar. Til þess að starfsemi verðlagsstjóra og verð- gæzlustjóra komi að fullum not- um, þurfa þessir heiðursmenn að eiga gott samstarf við fólkið á öllu landinu. Til þesseruembætti þeirra raunar stofnuð,. Vonandi er hér aðeins um byrjunarmistök að ræða hjá hinu nýja embætti og Eigum við að drekka vatn úr Glerá? EG SÉ í fundargerð bæjarráðs frá 2. þ .m., að bæjarverkfræð- ingur hefur fengið heimild til þess að dæla vatni úr Glerá inn á vatnsveitukerfi bæjarins. Sá var- nagli er þó á hafður, að samþykki heilbrigðisnefndar þarf að koma til áður en þessi nýstárlega aukn- ing á neyzluvatninu verður að veruleika. Um þetta vildi eg að- eins segja það, að mér þykir lík- legt að bæjarbúar almennt vilji fá nánari skýringar á þessu trak- tementi áður en það verður að veruleika. Hér er mál, sem snert- ir hvert einasta mannsbarn í bænum. Mér sýnist bæjaryfir- völdunum bera skylda til að út- skýra málið fyrir bæjarbúum og leiða fullgild rök að því, að þessi vatnsveita sé. þannig umbúin, að fullkomlega öruggt sé að í rörin komi ekkert annað en hreint og ómengað vatn. Er þess þá líka að minnast, að enn er ókomin frá bæjaryfirvöldunum greinargerð um ástand í vatnsveitumálum bæjarins og þá möguleika, sem fyrir hendi eru til þess að forða hinum hvimleiða vatnsskorti, sem plágað hefur sum bæjarhverfi á vetri hverjum. Sportbolir Kvennærföt Barnabolir Bleyjubuxur Skóbuxur I Brauns verzlunj Páll Sigurgeirsson. [ •t'MMMMMMMMMMMMIMIMMMIIMMinHIMMMMMMMMMMi Hjálpræðisherinn (Strandgötu 19B). — Föstudag kl. 5: Æsku- lýðssýning fyrir börn. — Laugar- dag kl. 8.30 e. h.: Æskulýðssýning fyi'ir almenning. — Sunnudag kl. II f. h.: Helgunarsamkoma. Kl. 2 e. h.: Sunnudagaskóli. Kl. 8.30 e. h.: Hjálpræðissamkoma. — Söng- ur og hljóðfærasláttur. — Allir velkomnir. Jólapóstur í nóvember Það euu ekki nema rúmar fimm vikur til jóla. Dagarnir styttast óðum og líða fljótt, og áður en við höfum áttað okkur á því, er jóla-annríkið skollið á. Hvað getum við gert til að létta svolítið á síðustu vikunum? Ýmislegt er áreiðanlega hægt að gera og koma frá tímanlega og má þar t. d. nefna jólapóst- inn. Það er góður siður og mjög til þæginda fyrir hvern, er í hlut á, að hafa í lítilli bók skrifuð nöfn og heimilisföng allra þeirra, sem á að skrifa jólabréf eða senda kveðju. Nöfnin eru flokkuð niður í innbæjar, utanbæjar, utanlands. Að jólapóstinum er auðveldlega hægt að vinna í nóvembermánuði, og það er meira að segja miklu betra, heldur en að þurfa að gera það, þegar tími er orðinn naumur og ótal vei'k, sem ekki verður kom- izt hjá að vinna, bíða. Oþarfi er að dagsetja jóla- bréf eða kort öðruvísi en t. d. jólin, 1950, svo að ekki þarf það að vera til fyrirstöðu. Þegar búið er að skrifa bréfin og ganga frá þeim að öllu leyti, er hægt að fá öll bréf, sem eru sams konar, vegin í pósthúsinu og frímerkja þau síðan. Þannig er hægt að geyma bréfin, sé enn ekki tíma- bært að senda þau af stað og setja þau síðan í póst- kassann, fyrst þau, sem lengst eiga að fara o. s. frv. Með því að hafa þannig reglu á jólapóstinum og vera snemma á ferðinni með hann, spörum við okk- ur miklar áhyggjur og hlaup og léttum á síðustu vikunum fyrir jólin, og ekki mun af veita. BLÓMSTRAR JÓLAKAKTUSINN? Það var nærri farið illa fyrir mér í sumar. Jóla- kaktusinn hengdi blöðin og var svo ritjulegur, að engum datt annað í hug, en hann ætti skammt eftir ólifað. Margsinnis var komið að mér að fleygja hon- um, en þegar á átti að herða, brast mig kjarkinn. Eg ætiaði að sjá til. Þegar tók að hausta fór plant- an að reisa sig við, blöðin að grænka og stífna og hinn fallegi glansi, sem áður hafði verið á þeim, kom aftur. Það leið ekki á löngu áður en fór að sjást í knúppa, og nú þakka eg hamingjunni fyrir að áform mín í sumar skyldu aldrei verða annað en áform ein. Síðan hefur vís kona sagt mér, að hvíld- artími sumra kaktusategunda sé að sumrinu, og að ekkert m'un hafa gengið að mínum — hann hafi bara verið að hvíla sig. Síðan hef eg einnig lært það, að eftir að fer að sjást í knúppana eigi að snúa plönt- unni reglulega þannig, að birtan komi sem jafnast á hana. En það má ekki snúa henni oftar en einu sinni eða þar um bil. Sé henni snúið oftar en einu knúpparnir af og lítið vei'ður úr blóma-dýrðinni, sem við hlökkum til að fá. Þetta stafar af því, að knúpparnir leita alltaf í ljósið, hversu öfugt sem þeim snúa, og ef potturinn er færður of oft, verður of tíð hreyfing á knúppunum og stundum fer hún í eina áttina í dag og aðra á morgun. Við þetta losna knúpparnir og detta af eins og fyrr segir. Þetta er sagt til viðvörunar ungum og óreyndum húsfreyjum, sem kannske eiga kaktus með knúpp- um. Vonandi hefur engin orðið fyrir því óláni að fleygja sínum á meðan hann svaf. NYLONSOKKARNIR OG ÍSLENDINGUR. íslendingur auglýsti eftir nylonsokkum til að geyma lauk í, í síðasta tölubl. Vonandi er, að kon- ur hafi notfært sér tilboð blaðsins og fengið ein- hverja smá-aura fyrir gömlu sokkana sína. Ekki mun af veita svona rétt fyrir jólin.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.