Dagur - 14.03.1951, Side 12
12
MiSvikudaginn 14. marz 1951
Hver á a!S bera kostnaðinn við
a§ halda opnum veginum
á Melgerðisfiugvöil \
Flugmálasíjórnin sendir Caierpillar-ýíu til
bæjarins, en vegamálastjórnin segir oí dýrt
að opna veginn með henni!
Undanfarna daga hefur Eyja-
fjarðarbraut verið ófær bifreið-
um vegna snjóa og þar af leið- j
andi hafa loftsamgöngur við
Reykjavík um flugvöllinn á Mel-
gerðismelutn ekki verið mögu-
legar, enda þótt flugvöllurinn
sjálfur hafi verið hreinsaður af
snjó og sé vel fser til lendingar.
Fyrirfarandi hefur gengið erfið-
lega að hreinsa veginn vegna þess
að skortur hefur verið á hent-
ugum verkfærum til þess. Til þess
að bæta úr þessu sendi flugmála-
stjórnin stóra Caterpiller-ýtu,
15—20 tonna, hingað með Goða-
fossi. En ýtan liggur hér enn og
er ekki notuð. Er deilt um það,
hvor á að borga kostnaðinn við
að opna veginn, flugmálastjórnin
eða vegamálastjórnin. Almenn-
ingur mun telja það aukaatriði
út af fyrir sig, því að endanlega
verður það ríkið, sem greiðir
reikninginn, en hitt aftur á móti
aðalatriði, að vegarspotti þessi —
um röskir 20 km. — sé fær í
öllum sæmilegum veðrum. og
unnt sé að halda uppi flugsam-
göngum við héraðið, auk þess
sem opnun vegarins stórauðveld-
ar mjólkurflutninga úr Eyjafirði,
sem nú kostar bæði mikið erfiði
og fé, með ýtum' og sleðum.
Of dýrt, segir vegamálastjórnin
Umboðsmaður vegamálastjórn-
arinnar hér, Karl Friðriksson,
sagði blaðinu í gær, að það mundi
kosta a. m. k. 10 þús. krónur að
opna veginn, og óvíst að það verk
kæmi að notum nema við eitt
flugtak af vellinum. Ekkert fé
væri á fjárlögum ætlað til snjó-
moksturs sem þessa, og yrði að
taka féð af viðhaldsfé veganna,
sem kæmi aftur fram í lakara
viðhaldi að sumrinu. En í þessu
sambandi er rétt að minna á, að í
nágrenni Reykjavíkur eru ýtur
til taks hvenær sem snjóar ,og eru
starfræktar af vegamálastjórn-
inni. Hafa þær verið notaðar til
þess að halda opnum bílvegum
Snjóbíllinn sendur á
Fljótsdalshérað
Snjóbíllinn, sem Orka h.f. fékk
nýlega til landsins, mun nú verða
sendur austur á Fljótsdalshérað,
til þess að greiða úr samgöngu-
vandræðunum þar. Snjóalög þar
eystra eru gífurleg. Nokkurt um-
tal hefur orðið um að senda einn
af gömlu snjóbílunum hingað til
Eyjafjarðar, en óráðið hvort úr
því verður.
fyrir skíðafólk úr Reykjavík til
þess að það kæmist í hentugar
i brekkur, auk þess sem aðalflutn-
| ingaleiðum til höfuðstaðarins og
þorpanna á suðurnesjum, er
haldið opnum. Vafalaust tekur
vegamálastjórnin fé til reksturs
þessara verkfæra af viðhaldsfé
veganna, og verður ekki séð að
nein önnur regla eigi að gilda
hér nyrðra, svo að réttlát megi
kallast.
, Flugvöllurinn er nauðsynleg
samgöngubót
#
Fyrir karp ríkisstofnanna er á-
standið hér nú eins og enginn
flugvöllur væri hér til með því
að leiðir til hans og frá honum
eru lokaðar. Með þessu móti er
héraðinu hrundið aftur á bak í
þróun samgöngumálanna um
langt árabil. Það nægir ekki í
þessu sambandi að benda á að
skipaferðir séu alltíðar. Til lítils
væri barist fyrir framförum í
samgöngumálum, ef það væri
talið viðunandi ástand, að flug-
völlur í nágrepni bæjarins sé
lokaður mikinn hluta vetrar. Það
er augljóst, að grejðar póstsam-
göngur og fjugsamgöngur við
höfuðstaðinn eru hiri mesta nauð-
gyn fyrir allt viðskipta- og at-
vinnulíf bæjarins. Verður að
telja áð opnun Eyjafjarðarbraut-
ar’nú óg viðhald vegarins í vetur
sé nauðsynleg framkvæmd enda
þótt, hún kosti nokkurt fé, og síst
rriinni riauðsyn en sum þau verk,
sem vegamálastjórnin hefur látið
vinna á Suðurlandi á þessum
vetri. Er þess að vænta, að vegur-
inn verði opnaður hið allra fyrsta
og honum haldið opnum með ýtu
þeirri, sem hingað hefur verið
send í því augnamiði. Það mun
almenningur telja aðalatriðið, en
ekki það, hvernig flugmálastjórn-
in og vegamálastjórnin skipta
með. sér kostnaðinum.
Látlausar hríðar síðan
í stórhríðinni fyrra
mánudag
Segja má, að látlausar hrí'ðar
hafi gerigið yfif þetta hérað síðan
stórviðrið brast á fyrra mánudag.
Þegar því veðri slotaði á þriðju-
daginn, liélzt ofanhríð, og síðan
hefur gengið á með þéttum éljum
og hefm: drjúgum bætzt á snjó-
inn, sem íyrir var, og þótti þó
mikill. Enn vaf sama veður í gær,
éljagangur með nokkuri snjó-
komu.
STi
AGUM
Hinn nýi utanríkis
ráðherra
Myndin er af Herbert Morrison,
utanríkisráðherra Breta. Morri-
son tók við embætti af Bevin, seni
fékk lausn á 70 ára afmæli sínu,
vegna heilsubrests. Bevin er samt
enn í stjórninni. Morrison er eimi
kunnasti leiðtogi Verkamanna-
flokksins og hefur verið stað-
gengill Attlees forsætisráðherra.
Ætlaði ríðandi inn í
Menntaskólann!
Aðfaranótt sl. sunnudags var
hringt til lögreglunnar úr
Menntaskólanum og sagt að mað-
ur á hestbaki væri kominn upp á
útidyratröppur skólans og virtist
ætla að ríða inn í húsið! Lögregl-
an brá þegar við og sótti manninn.
Er mál hans nú í rannsókn. —
Skólameistari mun sjálfur hafa
tekið á móti riddaranum í and-
dyrinu.
Góð aflasala hjá
„Jörundi"
Akureyrartogarinn Jörundur
seldi afla sinn í Grimsby síðastl.
mánudag, 3142 kit, fyrir 10.210
sterlingspund og er það góð sala.
Markaðurinn er nú aftur orðinn
góður. Siglufjarðartogarinn Ell-
iði seldi á laugardaginn fyrir hátt
á 14. þús. sterlingspund.
Ollum samningum um
kaup og kjör í vega- og
brúargerð sagt upp
Stjórn Alþýðusambands íslands
hefur tilkynnt vegagerð ríkisins
uppsögn á öllum samningum um
kaup og kjör við vega- og brúa-
gerð með það fyrir augum, að inn
í samningana komi ákvæði um
fulla vísitöluuppbót mánaðarlega,
þar sem það ákvæði á við. Samn-
ingarnir ganga úr gildi frá og með
1. maí.
Ennfremur hefur sambandið
óskað eftir að fá samninga um
kaup og kjör bílstjóra vegagerð-
arinnar, svo og þeirra manna, er
vinna hjá vegagerðinni á jarðýt-
um, vegheflum og öðrum stór-
virkum tækjum. Hingað til hafa
engir heiidarsamning'ar verið til
um kjör þessara manna, og kaup
þeirra því eitthvað misjafnt eftir
því, hvar þeir vinna á landinu.
FerS fil MiSjarSarhafsins og heim
affur fyrir góða smásögu I
SÁMVINNAN efnir til smásagna-samkeppni
Frestur til 1. maí
Tímaritið Samvinnan tilkynnir
það í nýútkomnu hefti, að ritið
efni til smásagnasamkeppni, og
eru fyrstu verðlaun í samkeppn-
inni ferð til Miðjarðarhafsland-
anna með „Arnarfelli“ eða
„Hvassafelli“.
Munu þrenn verðlaun verða
veitt fyrir beztu frumsamdar smá-
sögur, 1000 til 4000 orð, sem ber-
ast Samvinnunni fyrir 1. maí n.k.,
og er öllum íslenzkum borgurum
heimilt að taka átt í samkeppninni,
hvort sem þeir hafa áður birt eftir
sig smásögur eða ekki.
Þriggja manna dómnefnd mun
velja verðlaúansögurnar og skipa
hana þeir Arni Kristjánsson, ma-
gister, Andrés Björnsson, magister
og ritstjóri Samvinnunnar. Skal
senda handritin og nafn höfundar
með þeim í lokuðu umslagi, en
hvort tveggja merkt eins. Sá, sem
hlýtur fyrstu verðlaun, getur samið
um það við Samvinnuna, hvenær
hann fer verðlaunaferðina á tíma-
bilinu ágúst 1951 til maí 1952, og
hlýtur hann ókeypis ferð fram og
aftur í sömu ferð skipsins. Onnur
verðlaun verða 500 króunr, en
þriðju verðlaun 250 krónur. Úrslit
samkeppninnar verða væntanlega
birt í júníhefti Samvinnunnar.
Frá þessari samkeppni er skýrt
í febrúarhefti Samvinnunnar, en
efni þess er meðal annars: Höfum
það heldur, < r sannara reynist,
ritstjórnargrein, Leikmannsþankar
um Alþingi, Má bjóða yður ost?,
Viðtal við vngstu kynslóðina,
Tvær stuttar greinar eftir enska
sálfræðinginn fil. dr. Alf Ahlberg,
Breytt skipan Samvinnuskólans,
Mikill álmgi fyrir
togarakaupum
í Ólafsfirði
Mikill áhugi er fyrir togara-
kaupamálinu í Olafsfirði. Vinna
Dalvíkingar og Ólafsfirðingar
sameiginlega að því að reyna að
fá einn togara, en enn stendur á
endanlegu svari frá ríkisstjóm-
inni, hvort skipið sé fáanlegt.
Um sl. lielgi var leitað hlutafjár-
loforða í Ólafsfirði og fengust lof-
orð fyrir um 200 þús. kr. á tveim-
ur dögum. Sýnir þetta hverja
áherzlu fólk leggur á málið, því
að afkoma manna liefur verið
erfið og fæstir aflögufærir.
Varla er hægt að segja að gefið
hafi á sjó frá Olafsfirði nú um
langa hríð. Fyrir helgina reri
einn bátur, hafði 30 stokka en
fékk aðeins 600 pund og er það
sáralítill afli. En þetta var vænn
gotufiskur, og þykir það spá
heldur góðu. Bátar eru nú til-
búnir til róðra, strax og gefur á
sjó. Snjór er mikill í Ólasfirði, en
ekki stórum meiri en venja er.
Siglingar samvinnuskipanna, Heils-
ast og kveðjast — það er lífsins
saga, Grein um Mao Tse-tung,
Kvennaþáttur og margt fleira.
Jón Bæring minnist
góðrar samfylgdar á
85 ára afmælinu
Jón Bæring Rögnvaldsson
ökumaður — góðkunningi allra
eldri Akureyringa — varð 85 ára
í gær. Dagur hitti gamla mann-
inn snöggvast að máli á heimili
hans í Gránufélagsgötu 1 og
spjallaði við hann dálitla stund.
Þrátt fyrir háan aldur og heilsu-
brest hin síðari. ár, er hann all-
hress í máli og hefur ferilvist.
Hann kvað góða samfylgd sam-
borgaranna verða sér minnis-
stæðasta nú, er hann liti yfir far-
inn veg á þessum tímamótum. —
Hér í bæ hefur hann dvalið í
meira en 40 ár — er fæddur og
uppalinn á Klængshóli í Skíða-
dal — og eignast hér marga
ágæta vini. Margir þeirra eru
horfnir burt, en minningin um þá
yljar gamla manninum enn í dag
og marga hlýja vinarhönd segist
hann enn eiga hér í bæ. Jón Bær-
ing Rögnvaldsson ólst upp við
vinnu frá barnæsku, heima í
sveitinni og í útræði frá Dalvík —
komst síðan í Hólaskóla og var
þar tvo vetur í tíð Jósefs Bjöms-
sonar. Þann mann dáir hann
mjög. Nokkru eftir aldamótin
flutti hann hingað til bæjarins og
stundaði hér ökumennsku um
langa hríð, eða þangað til bíl-
arnir gerðu hestvagninn útlægan
að mestu. — Bæring hafði hljótt
um sig á afmælinu í gær. En þótt
bæjarbúa hafi ekki getað tekið í
hönd hans, senda þeir honum al-
úðarkveðjur og þakka ánægju-
legar samverustundir.
Slysavarnardeild
kvenna vill eftirlit við
tiöfnina og eftirlits-
mann með snjóplóg-
uninn
Á aðalfundi Slysavarnadeildar
kvenna hér í bæ í sl. viku, var
samþykkt að beina því til bæjar-
yfirvaldanna, að reynt yrði að
hafa eftirlit með ferðum barna út
á ís á Pollinum. Ennfremur var
skorað á bæjaryfirvöldin að hafa
jafnan' eftirlitsmann með snjó-
plóg bæjarins, er hann er á ferð-
inni um göturnar. Sækja börn
mjög að plógnum, en erfitt fyrir
manninn, sem stjórnar honum, að
fylgjast með ferðum barnanna úr
sæti sínu. Stafar af þessu slysa-
hætta, sem forðast mætti með því
að hafa eftirlit með plógnum.