Dagur - 11.04.1951, Side 8
12
Baguk
Miðvikudaginn 11. apríl 1951
Stóraukin munaðarvöruneyzla
íslendinga
Þeir neyta meiri sykurs en flestar aðrar
Norðurlandaþjóðir
Munaðarvöruneyzla íslendinga
óx til stórra muna á stríðsárun-
uni og náði hámarki fyrstu árin
eftir stríðið.
Þannig nær tvöfaldaðist kaffi-
neyzlan árið 1947 miðað við
meðalneyzlu, tóbaksneyzlan óx
um þriðjung, ölframleiðslan
meira en þrefaldaðist 1948 miðað
við árin fyrir stríð og áfengis-
neyzlan óx ár frá ári öll stríðsár-
in þar til hún nær hámarki 1947.
Sykurneyzla íslendinga hefur
verið yfir 49 kg. á mann að með-
altali síðustu áratugina og er það
yfirleitt meiri sykurneyzla en í
flestum löndum Norðurálfunnar,
að því er segir í nýútkomnum
Verzlunarskýrslum.
Þó neyta Svíar og Bretar meiri
sykurs en íslendingar, og 1948
nam t. d. sykurneyzlan í Svíþjóð
49 kg .á mann, en 48 kg. í Bret-
landi.
Enda þótt íslendingar neyti til
jafnaðar 40 kg. af sykri á mann
nam sykurskammturinn á sl. ári
ekki nema rétt rúmlega 20 kg. á
mann. Hitt mun fara til iðnaðar, í
kaffi- og veitingahús o. fl.
Neyzla íslendinga á kaffi og
kaffibæti var um mörg ár fyrir
stríðið um 6V2 kg. á mann, að
meðaltali. Á stríðsárunum og
næstu árin á eftir var hún að
jafnaði töluvert meiri en áður og
komst jafnvel upp í 11 % kg. árið
1947, en það er það langmesta sem
hún hefur orðið.
Innflutningur á kaffibæti er nú
orðinn óverulegur, en innlend
framleiðsla komin í staðinn. Þá
hefur og innlend kaffibrennsla
næstum tekið fyrir innflutning á
brenndu kaffi.
Tóbaksneyzla landsbúa hefur
löngum verið rúmlega 1 kg. á
mann og oftast staðið í stað þar
til eftir stríðið að hún hefur auk-
izt upp í rösklega 1% kg. á mann.
Um þetta eru þó einungis til töl-
ur fram til ársloka 1948, en búast
má við að dregið hafi nokkuð úr
tóbaksneyzlunni aftur síðan.
Ölið.
Innflutningur á öli er fyrir
löngu horfinn með öllu og inn-
lend framleiðsla komin í staðinn.
Síðustu árin fyrir stríðið mun
framleiðslan hafa verið um 3000
h]. á ári, en óx svo gífurlega á
stríðsárunum, eða upp í 16—17
þús. hl., sem að miklu leyti mun
hafa stafað af veru hersins. Strax
við brottför setuliðsins lækkaði
framleiðslan til muna og var
komin niður í 10500 hl. árið 1948.
Áfengisneyzlan eykst mjög á
árunum 1944—48 frá því sem
verið hafði árin næstu á undan og
einkum var innflutningur sterkra
drykkja og vínanda miklu meiri
en innflutningur léttra vína óx
ekki að sama skapi. Á árunum
1941—45 nam innflutningur
sterkra drykkja og vínanda
tæpum 2000 hl. og röskum 1000
hþ léttra vína. Hámarki nær svo
innflutningur áfengis 1947. Þá
voru sterkir drykkir fluttir inn að
magni 3280 hl. og 'rúml. 1600 hl.
léttra vína, en hefur dregið úr
innflutningnum síðan.
— Framsóknarfélögin
(Framhald af 1. síðu).
ina út úr ógöngunum og þá mundi
skapast hér traustara efnahagslíf
en ríkt hefði um sinn. Að þessu
leiddi frk. Rannveig mörg og
sterk rök og mæltist henni vel og
skörulega og var máli hennar
ágætlega tekið af áheyrendum.
Síðar í umræðunum áréttaði hún
skoðanir sínar um þessi efni með
ágætri ræðu.
Framsóknarmenn í broddi
fylkingar.
Bernharð Stefánsson alþm. var
næsti ræðumaður og dvaldi hann
einkum við stefnu flokkanna —
ekki eins og hún er prentuð í
kosningapésum, heldur eins og
hún hefur reynzt í framkvæmd á
Jiðnum árum. Gerði hann glögga
grein fyrir því, að Framsóknar-
flokkurinn hefur verið í fylking-
arbrjósti í öllum meiriháttar um-
bótamálum þjóðarinnar frá því að
flokkurinn komst til áhrifa á
þjóðmálin og rakti Bernharð þá
sögu ýtarlega í mjög fróðlegu og
skemmtilegu erindi. Síðastur
frummælenda talaði dr. Kristinn
Guðmundsson og ræddi einkum
um atvinnu- og kaupgjaldsmálin
og ráðstafanir ríkisstjórnarinhar
í þeim og skýi'ði viðhorf Fram-
sóknarflokksins til þessara mála,
svo ög þátt samvinnustefnunnar
í þjóðarbúskapnum. — Var
máli þessara ágætu ræðu-
manna vel tekið.
Osammála um stjórnarskrár-
málið.
í umræðunum, sem fram fóru
að framsöguræðunum loknum,
var rætt um málefni þau, er
frummælendur höfðu einkum
drepið á, og auk þess nokkuð um
stjórnarskrármálið og urðu menn
þar ekki sammála. En vegna þess
hve áliðið. var orðið kvölds, var
ekki unnt að hald? fundinum
lengur áfram og var honum slitið
á 8. tímanum, hafði staðið frá
kl. 4.
Formaður Framsóknarfélags
Akureyrar, Jóhann Frímann
skólastjóri, setti fundinn og
ávarpaði fundarmenn nokkrum
orðum í fundarbyrjun, en fund-
arstjóri var Þorst. M. Jónsson
skólastjóri og stýrði hann fund-
inum af skörungsskap, auk þess
Frá stjórnmálanámskeiði ungra Framsóknarmanna í s. 1. viku
Myndin var tekin þegar stjómmálanámskeiði FUF á Akureyri (nánari frásögn annars staðar í blað-
inu) var slitið sl. laugardagskvöld. Á myndinni cru, fremri röð, talið frá vinstri: Ríkharð Þórólfsson,
Ak., Valdimar Jónsson, formaður FUF, Haukur Snorrason ritstj., dr. Kristinn Guðmundsson, frk.
Rannveig Þorsteinsdóttir alþm., Bernharð Stefánsson alþm., Svala Einarsdóttir, Siglufirði, Tómas
Árnason lögfr., stjórnandi námskeiðsins, Lárus B. Haraldsson, Ak. — Aftari röð: Kristján Jónsson,
Ak., Ingvi Júlíusson, Ak., Birgir Þórhallsson, Ak., Aðalsteinn Va’dimarsson, Ak., Páll Halldórsson,
Ak., Haraldur Magnússon, Siglufirði, Jón Gíslason, Ak., Jóliann Jónasson, Ak., Kjartan Einarsson,
Siglufirði, Pétur Gunnlaugss., Ak., Guðjón Styrkárs., Dalas., Þórður Snæ., Ak., og Valg. Frímann, Ak.
í siðastliðinni viku
Umræðiíímidir halda áfram næsíu viku
Félag ungra Framsóknarmanna
á Akureyri gekkst fyrir stjóm-
málanámskeiði hér í bænum í
seinustu viku.
Hófst það sunnudaginn 1. apríl
s. 1. og var haldið öll kvöld vik-
unnar. Skráðir þátttakendur
námskeiðsins voru 23. Erindi
voru flutt á námskeiðinu af þess-
um mönnum: Bernharð Stefáns-
son, alþm., talaði um sögu og
stefnu Framsóknarflokksins.
Birgir Þói-hallsson um samvinnu-
stefnuna, dr. Kristinn Guð-
mundsson um fjármál. Tómas
Árnason um undirstöðuatriði
stjórnskipunar landsins.
Búið að gera samninga
um leign samkomu
hússins
Búið er að ganga frá samning-
um um leigu Samkomuhússins
fyrir bíó, en áður höfðu templar-
ar og Leikfélag Akureyrar samið
innbyi'ðis um afnoi hússins. Fær
Leikfélagið umi'áð yfir húsinu
allt að 70 kvöld á ári, til leiksýn-
inga og æfinga, fyrir sanngjai'nt
gjald, auk þess útvega templarar
félaginu húsnæði fyrir æfingar.
Vai'ð að lokum ágætt samkomu-
lag milli félaganna um málið. —
Ekki er búizt við að bíósýningar
í húsinu geti hafizt fyrr en seint í
maí eða júníbyrjun.
sem hann lagði orð í belg í um-
ræðunum og flutti ágæta x-æðu.
Að öllu samanlögðu varð þessi
fundur til upplyftingar fyrir
flokksstai'fið hér og til að auka
samheldni manna. Allmargir
nýjir félagsmemx bættust Fram-
sóknarfélögunum hér á fundin-
um.
Stjói-nandi og leiðbeinandi
námskeiðsins var Tómas Árna-
son, lögfr. Voru veittar leiðbein-
ingar um x-æðumennsku og fund-
arreglur. En samhliða var settur
fundur, skipaðir venjulegir
starfsmenn fundar og gætt fund-
arreglna, þannig að meðlimir
námskeiðsins fengu raunhæfar
æfingar í ræðuhöldum og fundar-
störfum. Á laugai'dag kl. 5 var
námskeiðinu slitið með sameigin-
legri kaffidrykkju að Hótel KEA.
Þar mæltu auk flestra þátttak-
enda, þeir sem höfðu flutt erindi
á námskeiðinu, svo og Rannveig
Þorsteinsdóttir, alþm., og Haukur
Snori'as., ritstj., og fluttu ræður.
Þar var ákveðið að halda ein-
(kl. 11 f. h. P. S.). — Þessi börn
verða fermd:
Drengir:
Grétar Ingvarsson, Norðurg. 19.
Gunnar Þorsteinsson, Aðalstr. 24.
Haukur Einarsson, Laxagötu 1.
Jón Guðbjöi'n Tómasson, Lækjar-
götu 6.
Kai’l Óskar Tómasson, Holtag. 11.
Stefán Baldvin Árnason, Strand-
götu 23.
Svanbjörn Sigurðsson, Brekku-
götu 39.
Vignir Einai’sson, Eyrax'veg 35.
Vilhelm Ágúst Ágústsson, Há-
teigi.
Stúlkur:
Ásta Björg Þoi'steinsdóttir, Norð-
urgötu 44.
Edda Líney Valdimarsdóttir,
Munkaþverárstræti 30.
Gauja Ellertsdóttir, Hafnarstr. 84.
Guðbjörg Ásta Jónsdóttir, Norð-
í’rgötu 31.
hvei-ja umræðufundi einu sinni
í viku hverri á næstunni.
Þátttakendur vox-u mjög á-
nægðir með námskeioið og toldu
sig hafa haft af því mikið gagn.
Kviknar í timbui'húsi
KEA
Um kl. 9 á fimmtudagskvöldið
varð þess vart, að kviknað var í
skúr, sem er áfastur við timbur-
hús KEA. Slökkviliðið kom fljót-
lega á vettvang og slökkti eldinn.
Nokkui't tjón vai'ð á vörum, sem
geymdar vox'u í grennd við skúr-
inn, inni í húsinu, en þó ekki til-
finnanlegt. Þama hefði getað
orðið stói'bruni ef ekki hefði orð-
ið vart við eldinn í tíma. Ókunn-
ugt er um eldsupptökin. Raf-
magnsstraumur er jafnan tekinn
af húsinu, er vinnu lýkur.
Guðný Þórunn Ögmundsdótlir,
Helga-Magrasti-æti 48.
Helga Jónsdóttir, Holtagötu 2.
Helga Steinunn Ólafsdóttir,
Naustum.
Hólmfríður Elsa Guðmundsdóttir,
Ránargötu 20.
Jóna Ágústa Guðjónsdóttir, Rán-
argötu 21.
Jónína Guðbjörg Sigurgeirsdótt-
ir, Iiríseyjargötu 21.
Margrét Jóhannsdóttir, Hafnar-
stræti 81.
Ragnhildur Sigfríð Gunnax-sdótt-
ir, Ásabyggð 2.
Rannveig Helga Karlsdóttir,
Strandgötu 49
Regína Jónsdóttir, Strandg. 35B.
Sigurjóna Jónsdóttir, Lundarg. 1.
Sigríður Guðmundsdóttir, Aðal-
stræti 76.
Steinunn Axelma Guðmunds-
dóttir, Hlíðargötu 6.
Svanfríður Jónasdóttir, Hríseyj-
argötu 21.
Svanhildur Árný Ásgeirsdóttir,
Spítalavegi 9.
Ferming í Akureyrarkirkju
n. k. sunnudag