Dagur - 21.11.1951, Page 7

Dagur - 21.11.1951, Page 7
Miðvikudaginn 21. nóv. 1951 D A G U R 7 JON ST. MELSTAÐ sjötugur Þegar við, sem komin erum á efri ár, lítum til baka yfir farna leið og skyggnumst eftir þeim áhrifum, sem kynningin við sam- ferðamennina og ýmiss konar málefni hefur haft á okkur, fer naumast hjá því, að þau verði nokkuð á ýmsa vegu. Skapgerð samferðamannanna, og eðli hinna ýmsu málefna, ásamt okkar eigin innræti, valda allmiklu um það, hvern dóm við leggjum á sam- tíðina og þá menn, sem við höf- um átt samskipti við og starfað með bæði í sáTfTstöðu um mál- efni og ekki síður„þegar um and- stöðu er að ræða. Vinsældir manna og áhrif fara ekki ætíð eftir því, hvort menn taka virkan þátt í hinum stærri málefnum, sem ofarlega eru á baugi meðal alþjóðar, heldur engu síður því viðhorfi, er menn hafa hver til annars og því hug- arfari, er mótar framkomu okkar í samskiptum og félagsstarfi. Góðvild og hjálpfýsi eru ekki síður vænleg til vinsemdar en jafnvel hin skeleggasta barátta. Hreinskilni og drengskapur eru kostir, sem allir viðurkenna. En þó sitja þeir ekki ætíð á friðstóli, eða eiga loftungur annarra, sem segja meiningu síria hispurslaust og skorinort og dekra aldrei við hálfyrði eða meiningarlaust skjall. Sannleikurinn er stund- um beiskui-j en þó kunna sumir þá list, • að segja hann á þann veg ,að ekki veldur sárindum né sundurþykkju. ■ Það er gott að eiga samleið með slíkum mönnum, og sam- skipti við þá eru oftast ánægju- leg. Slíkir mfinn eiga skilið heið- ur og þöklc, þótt það gleymist oft í önnum og erli líðandi stundar, nema á vissúm tímamótum í ævi þeirra. Nýlega hefur einn af þekkt- ustu bændum við Eyjafjörð átt slík tímamót. Það er hinn síglaði dugnaðarbóndi Jón St. Melstað á Hallgilsstöðum í Hörgárdal, er varð 70 ára hinn 29. okt. sl. Jón er Húnvetningur að ætt og uppalinn þar vestra til full- orðinsára. Ekki hlaut hann fjár- muni í veganesti út í lífið. En hann hlaut þor og þrek, bjartsýni og kjark í vöggugjöf og þeir eig- inleikar hafa reynzt honum tryggir förunautar á'*langri ævi. Tæplega tvítugur að aldri sigldi Jón til Noregs. Dvaldi hann þar nokkur ár og vann þar á bú- görðum jafnframt því, sem hann stundaði nám. Mun þessi för og dvölin ytra, hafa orðið honum lærdómsrík, og vafalaust glætt stórhug hans til atorku og um- bóta í búskapnum síðar. Fyrst eftir heimkomuna fékkst Jón við ýmiss konar störf, en stuttu eftir aldamótin staðfesti hann ráð sitt og gekk að eiga unga eyfirzka heimasætu, Albínu Pétursdóttur frá Svertingsstöðum í Kaupangs- sveit. Byrjuðu ungu hjónin þar búskap, en árið 1912 keyptu þau Hallgilsstaði í Hörgárdal og hafa á næsta vori búið þar samfleytt í 40 ár, vj|S> sívaxandi umbætur og bættan efnahag. Þegar Jón kom að Hallgilsstöð- um voru bæjarhús léleg. Hins vegar var jörðin fremur hæg, landið grasgefið, en víðast mjög þýft. Hófst Jón þegar handa um stórfelldar jarðabætur, bæði með því að slétta túnið, sem að mikl- um hluta var þýft, og þó einkum með nýræktun. Var hann einn með þeim fyrstu, er lét „þúfna- banann“ svokallaða tæta sundur hluta af enginu og breytti því í tún. Er hann því brautryðjandi í sinni sveit um vélanotkun til jarðræktar. Hefur hann nú að mestu lokið við að breyta öllu engi jarðar sinnar í rennslétt tún, þar sem vélknúin tæki vinna verkin, sem mannshöndin ein varð áður að framkvæma. Gamla túnið er fyrir löngu allt orðið véltækt og móar og holt, er voru í grennd við það, nú sléttur töðu- völlur. Mun nú heyfengur af ræktuðu landi vera orðinn sjö- faldur við það sem var, er Jón hóf búskap á Hallgilsstöðum. Stuttu eftir að þau hjón fluttu að Hallgilsstöðum, hófst Jón handa um byggingu bæjarhúsa. Byggði hann upp bæinn eins og þá var siður, áður en steinbygg- ingar tíðkuðust. En nokkrum ár- um seinna varð Jón fyrir því óhappi að bærinn brann til kaldra kola. Misstu þau hjón þar búslóð sína alla. Þétta var mikið ófall fyri refnalítinn bónda, eins og Jón var þá. En hann hikaði ekki, heldur hóf nú byggingu myndarlegs steinhúss. Var þessi húsakostur miðaður við þarfir eins og þær þá voru orðnar, en þeim hjónum höfðu þá fæðzt 7 börn, 5 synir og 2 dætur, öll hin mannvænlegustu. — Peningshús hefur Jón flest reist að nýju úr steinsteypu ásamt hlöðum fyrir þurrhey og vothey. Þá hefur hann reist rafstöð fyrir heimilið, þá fyrstu og einu, að eg ætla, í sinni sveit. Ævistarf hans hefur líka verið það, að græða og rækta; láta tvö strá vaxa þar, sem áður óx eitt. Fyrir ræktunarffamkvæmdir hefur hann líka hlotið opinbera viðurkenningu, því að sæmdur var hann heiðursverðlaunum úr sjóði Kristjáns konungs 9. fyrir jarðrækt. í almennum félagsmálum hef- ur Jón ekki legið á liði sínu. Samvinnumaður er hann af lífi og sál, og engan öruggari talsmann mun samvinnustefnan eiga en Jón á Hallgilsstöðum. Hefur hann um langt árabil verið fé- lagsráðsmaður Kaupfélags Ey- firðinga fyrir Arnarnesdeild, og setið mun hann hafa fleiri aðal- fundi kaupfélagsins en flestir, ef ekki allir núverandi félagsmenn. Þegar Framsóknarflokkurinn var stofnaður, skipaði Jón sér þegar undir merki hans. Á flokk- urinn þar hinn traustasta stuðn- ingsmann. Fulltrúaþing flokksins hefur hann oft sótt og tekið sig upp frá búi sínu norður í Hörg- árdal endurgjaldslaust. Ymsum trúnaðarstörfum hef- ur Jón gegnt fyrir sveit sína, þó ekki hafi hann þar skipað hin æðstu sæti. Mun þar hafa mestu valdið stórhugur hans og bjart- sýni. Fannst sumum alloft kapp hans og stórhugur til fram- kvæmda naumast við hæfi þess tíma og ástæðna, er fyrir hendi voru. Jón er enginn kyrrstöðu- maður. Áræði hans og kjarkur er óbilandi. Úrtölur og vol eru hon- um víðsfjarri. Hispursleysi hans og hreinskilni, ásamt hinni djörfu, karlmannlegu og hressi- legu framkomu ,hafa aflað hon- um vinsælda, ásamt greiðvikni hans og hjálpsemi í hvívetna. Hann hefur kunnað þá list að segja mönnum sannleikann án þess að það væri særandi. Glögg merki vinsælda hans sá- ust á sjötugsafmæli hans, er fjöldi vina og kunningja heimsóttu hann til þess að árna honum heilla á þessum tímamótum. Bár- ust honum góðar gjafir og fjöldi heillaóska víðs vegar að. Nutu menn þar hinnar glæsilegustu gestrisni, gleði og alúðar. Var af- mælisdagurinn hinn mesti gleði- dagur, því að þar gifti sig einn af sonum þeirra hjóna og skírð voru þar tvö barnabörn þeirra. Það hefur ætíð verið gaman að koma að Hallgilsstöðum. Þar hefur gestrisni og alúð átt virðu- legan sess. Og sjálfur hefur hús- bóndinn verið, og er enn, hrókur alls fagnaðar heima og að heiman. Og nú getur Jón á Hallgils- stöðum litið yfir farinn veg glað- ur í huga, því að honum hefur tekizt að ná því marki, er hann setti sér: að vinna sig upp frá þröngum efnahag til þess að verða vel efnum búinn, og einnig að gera jörð sína að einu mesta myndarbýli sinnar sveitar. En hér hefur Jón þó ekki verið einn að verki. Við hlið honum hefur staðið góð kona, fórnfús og at- orkusöm, sem borið hefur byrð- arnar að sínum hluta og hvergi hlíft sjálfri sér í starfi og stríði hin mörgu hjúskaparár. Jón St. Melstað er ekki lengur ungur að árum. En bjartsýni hans, kjarkur og góðvild hefur ekki elzt með honum. Þá eigin- leika á hann enn heila og óskerta. Og auðnist honum heilsa enn um sinn, mun hann varla láta staðar numið um umbætur á jörð sinni, eða láta þögn ríkja um þau mál- efni, sem til framfara horfa. Jón hefur verið ræktunarmaður í þess orðs beztu merkingu. Á þessum tímamótum í ævi hans vil eg óska honum þess, að jafn- framt því, sem hann finnur ilm þeirra grasa, er hann hefur sáð til f lendur sínar, megi hann einnig finna angan þess gróðurs, er hann hefur rótfest í hugum og hjörtum samferðamanna sinna. Á. B. Skemmtiklúbburinn ALLIR EITT Dansleikur að Hótel Ngrð- ur land surinudaginn 25. þ. m., kl. 9 e. h. Borð ekki tekin frá. STJÓRNIN. Nýkomið: Emel. vaskaföt Emel. kaffilcönnur Emel. balar Emel. bakkar Emel. föt Emel. mjólkurfötur 10 títra Emél. könnur Emel. fötur m. loki 3 lítra N iðursuðuglös, 34 og 1 ltr. Búrvigtar Hraðsuðupottar Rafmagns-katlar Olíuvélar Gler- og stálstrokkar Hitamælar Stálull Sigti Trektar með síu Pundarar . ... 121/,. og 25 kgr. Skeiðahnífar Börðhnífar, hvítskeptir; og stálskeptir Barnasett Eggjaskerar Trésleifar Plastic-bollapör Plastic-diskar Plastic-glasabakkar Plastic-egg j abikarar Plastic-tesíur og margt fleira. Nýjar vörur næstum daglega! Sendmn gegn póstkröfu hvert á land sem er. Verzl. Eyjafjörður h.f. Bændur! Kaupið nú þegar mjólkurflutninga- föturnar 20, 25 og 30 lítra. Fréstið ekki kaup- um fram á vetur- inn, þar sem hugs ánlegt er, að föturn ar yrðu þá seldar burtu. Verzl. Eyjafjörður li.f. Skæri Sníðaskæri Naglaskæri, bein og bogin Heimilisskæri fleiri stærðir Verzl. Eyjafjörður h.f. ,3íll til sölu Chrysler 1942. sem alltaf hefur verið í einkaeign og nýyfirfarinn. Keyrður um 30 þús. mílur. Tilboð ósk- ast send afgreiðslu blaðsins lyrir nk. þriðjudag. Aferkt 40. Loftskermar Ljósakrónur Borðlampar Vegglampar Lampaskermar Gólflampar Járn- og glervörudeildin Jólatrésseríur 16 ljósa. Járn- og glervörudeild. Barnanáttföt Barnaföt - hvít Bleyju-buxur ÁSBYRGI h.f. Brauð og kökur Seljum út allskonar brauð og kökur í fjölbreyttu úr- vali. Einnig smurt brauð og snittur eftir pöntunum. Opið alla daga frá 9 f. h. til 11.30 e. h. Didda-Bar. Sínri 1473. Yeggfóður nýkomið. Hallgr. Kristjánsson, Brekkugötu 13.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.