Dagur - 06.02.1952, Blaðsíða 8
Bagujr
lYliðvikudagínn 6. febrúar 1952
Mikið eignatjón í tveimur elds-
voðum í síðastliðinni viku
Húsið Hafnarstraeti 66 - fyrnim leikhús og
pósthús bæjarins - brann til kaldra kola
í s. 1. viku urðu tveir meiri-
háttar eldsvoðar í bæ og héraði.
A.m.k. 16 manns misstu heimili
sín og eignatjón varð verulegt.
hafa margir orðið liart úti.
Eldsvoðinn á
Melgerðisflugvelli.
Eins og lauslega var greint frá
í síðasta blaði brunnu afgreiðslu-
og íbúðarskálarnir á Melgerðis-
flugvelli fyrra þriðjudagskvöld.
Varð engu bjargað er þeir
brunnu nema talstöð flugvallar-
Bruninn í Hafnarstræti
Um hádegið s. 1. fimmtudag
kviknaði í húsinu Hafnarstræti
66. Var þá austan stormur og
flýtti veðrið mjög bruna hússins
og lá við borð að kviknaði í nær-
liggjandi húsum. í Hafnarstræti
66 voru 3 íbúðir. Bjó þar Pétur
H. Lárusson kaupmaður, kona
hans og dóttir, Tryggvi Haralds-
son verzlunarmaður, kona hans,
3 börn, aldraður faðir og að auki
skólapiltur, er leigði herbergi.
Loks Svanberg Einarsson og
Bifreiðastyrkir
lækkaðir
Á fundi bæjarráðs nýlega var-
rætt um bifreiðastyrki þá, er
bærinn hefur greitt sumum
starfsmönnum sínum. Var sam-
þykkt nokkur lækkun á þeim. —
Verða þeir framvegis: Bæjar-
verkfræðingur og bæjarverk-
stjóri 6000 'kr. hvor. Bygginga-
fulltrúi kr. 2000, enda taki hann
að sér viðbótarstörf eftir fyrir-
mælum bæjarráðs. Vatnsveitu-
stjóri kr. 6000 meðan, núv. vatns-
veitustjóri gegnir störfum og ek-
ur bíl í þágu vatnsveitunnar.
Truxa kemur
til bæjarins
Töframaðurinn Truxa o. fl.
skemmtikraftar á vegum Sjó-
mannadagsráðs Rvíkur, er vænt-
anlegur hingað til bæjarins að
sýna listir sínar. Fyrstu sýningar
verða að forfallalausu í Sam-
komuhúsi bæjarins í dag kl. 7 e.
h. og 9.30. — Aðgöngumiðasala á
sama stað frá kl. 2 e. h. — Truxa
er væntalegur með flugvél í dag
og verður skemmtunin því aðeins
að flogið verði.
Gainla pósthúsið í ljósum loga sl. fimmtudag. (Ljósm.: Har. Sigurg.).
ins, lítt skemmdri. Þarna misstu
hjónin Erika og Höjer Jóhannes-
son búslóð sína alla og hlutu auk
þess brunasár í viðureign við
eldinn, einkum Höjer. Hann er
þó ekki þungt haldinn og mun
væntanlega ná sér fljótlega. En
eignatjón hjónanna er mikið.
Þessi hjón nutu vinsælda fólks, er
fór um Melgerðisflugvöll vegna
hjálpsemi þeirra og góðvilja og
mættu menn gjarnan minnast
þeirra samskipta nú, er þau eiga
um sárt að binda og skortir alla
hluti til þess að koma upp heimili
aftur og greiðasölu á flugvell-
inum. Auk eigna hjónanna
brann þarna ýmis varningur til-
heyrandi flugmálastjórninni og
Flugfélagi íslands og mun hafa
verið nokkra tug þúsund króna
virði. Mun þessi varningur eitt-
hvað hafa verið vátryggður, svo
og skálarnir sjálfir.
Fólk í nærliggjandi bæjum
kom til hjálpar á flugvöllinn, svo
fljótt sem verða mátti. Var vask-
lega unnið að því að forða því að
eldurinn næði til benzíngeymis
skammt frá skálunum, er geymdi
8000 lítra af flugvélabenzíni. Með
snjóburði og öðrum ráðstöfunum
tókst björgun þess giftusamlega.
Bruni skálanna á flugvellinum er
til mikils baga fyrir fólksflutn-
inga um Melgerðisflugvöll og
er brýn nauðsyn að koma þar
aftur upp sæmilegri aðstöðu fyrir
farþega. Mun í ráði að nota flug-
skýlið nyrzt á vellinum til þess í
bráðina.
dóttir hans og ráðskona. Alls 13
manns. Eldurinn kom upp í norð-
urenda 'hússins og mun hafa ver-
ið um rafmagnsíkviknun að ræða.
Magnaðist eldurinn mjög skjótt
svo að litlu varð bjargað úr norð-
urenda hússins. Aftur á móti
tókst að bjarga flestum húsmun-
um úr aðalhæð í íbúð Péturs
Lárussonar. Gengu skólapiltar
vasklega fram við þá björgun.
Húsið varð brátt alelda. Slökkvi-
liðið sneri sér einkum að því að
verja nærliggjandi hús, svonefnt
Boga-hús og „Sjónal'hæð“ uppi í
brekkunni. Voru bæði þessi hús
í hættu, einkum „Sjónarhæð“
vegna þess hve vindur var aust-
anstæður. Tókst að verja bæði
húsin, en skemmdir urðu á þeim
báðum, svo og á húsmunum, af
vatni og reyk. í Hafnarstræti 66
munu búslóðir yfirleitt hafa verið
lágt vátryggðar og er tjón eig-
endanna því tilfinnanlegt auk
þess sem þrjár fjölskyldur hafa
orðið húsnæðislausar.
Gamalt hús — merk saga.
Húsið Hafnarstræti 66«á sér all-
merka sögu. Það var byggt árið
1896. Hinn 28. apríl þ. á. mældi
bæjarstjórn Gleðileikafélaginu
Goodtemplarafélaginu, bindind-
isfélaginu „Björgin" og söngfé-
laginu Gígjan (er Magnús Ein
arsson stofnaði og stjórnaði) út
ókeypis lóð á Barðsnefi undir
fundarhús. Frarri til ársins 1906
var því hús þetta leik- og funda
hús bæjarins. Þegar Samkomu-
húsið, sem nú er kallað svo, var
Pósthúsið í Reykjavík
sveikst um að senda
póst norður
Á sunnudagskvöld sl. var áríð-
andi bréf til blaðsins póstlagt í
pósthúsinu í Reykjavík. — Á
mánudag um hádegi kom hér
flugvél. Með henni kom enginn
póstur. Bréf þetta kom loks hing-
að til bæjarins síðdegis í
gær. — Þannig torveldar hin
slælega póstþjónusta viðskipta-
og atvinnulíf landsbúa. í þessu
tilfelli kostaði sleifarlagið margra
viðtalsbila símtal við höfuðstað-
inn. Kannske símastjórinn hafi
samvinnu við póststjórnina um
lélegar póstgöngur? Það eru hæg
heimatökin.
ræddi landbúnaðarmál, verzl-
unarmál og fleira
Frá aðalfundinum um síðastliðin mánaðamót
Aðalfundúr Búnaðarsámbands
Eyjafjarðar var haldinn á Akur-
eyri 30.—31. jan. sl. að Ilótel
KEA. Á fundinum mættu full-
trúar frá 11 búnaðarfélögum á
sambandssvæðinu. — Formaður
sambandsins, Ólafur Jónsson,
setti fundinn og stjórnaði honum.
Helztu störf fundarins voru:
Lagðir fram endurskoðaðir
reikningar sambandsins fyrlr ár-
ið 1951. Skýrði formaður þá, og
voru þeir að því loknu samþykkt-
ir í einu hljóði. — Samin fjár-
hagsáætlun fyrir árið 1952.
Tekju- og gj aldaupphæð kr.
80600.00. Helztu tekjupóstarnir
eru: Búnaðarsjóðsgjald, styrkh-
vegna ráðunauts og styrkui' frá
Búnaðarfélagi íslands. Helztu
gjaldapóstar: Laun ráðunauts kr.
42800.00, til búfjárræktar kr.
16000.00 og til ræktunarfélaga kr.
5500.00.
Tillögur og kosningar.
Margar tillögur og ályktanir
voru gerðar á fundinum og fjöll-
uðu þær um: Endurbætur á
grasfræblöndum, endurbætur á
verzlunarháttum með smit fyrir
belgjurtafræ, búnaðarfræðslu á
sambandssvæðinu, greinargerð
um Búnaðarmálasjóð, fríðindi
félagsbundinna kaupþega, sem
vinna utan heimasveitar sinnar,
Edvard Sigurgeirsson, ljós-
myndari, sýndi á fundinu mýms-
ar kvikmyndir, er hann hefur
tekið og þóttu þær bæði fróðlegar
og hin bezta skemmtun.
Verðlækkun hjá
Gef jun 10-20%
Um sl. mánaðamót lækkuðu
allar Gefjunarvörur í verði um
10—26%.
- Veruleg aukning
verzlunar . . .
(Framhald af 5. síðu).
fiskimjöl og 8,7 tonn síldarmjöl.
Saltað var í 937 tunnur síldar á
vegum félagsins.
Verklegar framkvæmdir.
Verklegar framkvæmdir urðu
litlar sökum takmarkaðs fjár
íestingarleyfa og takmarkaðs fjár
hjá félaginu til bindingar í fast-
eignum og vélum. Bryggja félags
ins á Oddeyrai'tanga, sem eyði-
lagðist í fárviðri sl. vetur, var
endurbyggð og er nú traust og öll
bílgeng. Lokið var við endur-
byggingu sápuverksmiðjunnar og
nýjum vélum komið fyrir. Lokið
, i' „ | var við gufulögn frá nýju upp-
og verzlun með matiurtir. Enn- , ., , , ,
lutunarstoðmm í verzlunarhus
félagsins við Kaupvangstorg og
Gyðingar ofsóttir
í Tékkóslóvakíu
Enn hefur háttsettir tékknesk-
ur stjórnmálamaður orðið fyrir
barðinu á „hreinsun“ kommún-
istaflokksins, og er það Rudolf
Margolin, ráðherra utanríkisvið-
skipta. Erlend blöð vekja athygli
á því, að Margolin er af Gyðinga-
ættum eins og Rudolf Slansky
ráðherra, er settur var af nýlega.
Ennfremur hefur athugun leitt í
ljós, að nær allir háttsettir emb-
ættismenn og ráðherrar, sem
settir hafa verið af og sakaðir um
landráð, eru Gyðingar.
Blöðin í Prag hafa byrjað árás-
ir á hina „alþjóðlega sinnuðu,
borgaralegu Gyðinga", sem séu
of valdamiklir í landinu.
fremur var rætt um rafveitumál
sveitanna, en engin ályktun gerð.
Kosningar. Ur stjórninni átti að
ganga Björn Jóhannsson, Lauga- um' Vélasalur frystihússins á
Ðalvík vai- stækkaður og verið
landi, og var hann endurkosinn
með öllum atkvæðum. Sömuleið-
is endurskoðendur sambands-
reikninganna, þeir Ketill S. Guð-
jónsson, Finnastöðum, og Ár-
mann Dalmannsson, Akureyri.
byggt, fluttist leikstarfsemi og
fundahöld þangað og var húsinu
þá breytt í pósthús og var það
pósthús bæjarins til ársins 1920.
Síðan voru skrifstofur bæjar-
stjóra þar um stund, en eftir það
hefur það eingöngu verið notað
til íbúðar. Fyrir mörgum árum
skemmdist húsið verulega af eldi,
en var gert við það og endurbætt.
Ekki er gert ráð fyrir að þarna
verði byggt aftur samkvæmt
[ skipulagsuppdrætti bæjarins.
131 verkamaður
skráður atvinnulaus
Atvinnuástand hér í bæ er
mjög erfitt um þessar mundir.
Verkamannafélag Akureyrar-
kaupstaðar skráði 131 verkamann
atvinnulausan um sl. mánaðamót.
Höfðu þessir menn 311 manns á
framfæri sínu. Meðaltekjur þess-
ara manna, segir félagið, reynd-
ust kr. 14.631.00 á sl. ári. Ðæjar-
ráð samþykkti um mánaðamótin
að halda sama fjölda verka-
manna í vinnu fyrir bæinn í fe-
brúar og var í janúar. Um 150
manns sóttu um vinnu hjá bæn-
um í sl. mánuði og fengu 70—80
þeirra nokkra úrlausn. Þetta er
alvarlegasta vandamál bæjar-
íélagsins á þessum vetri.
Hafnarstræti og komið fyrir nýj-
um sjálfvirkum upphitunartækj-
Alþingismennirnir Bernharð
Stefánsson og Karl Kristjánsson
komu hingað flugleiðis frá Rvík
í gær.
að koma fyrir viðbótar-frystivél-
um. Tekið var til afnota nýtt
gróðurhús við Brúnalaug og
gagngerð endurbót framkvæmd
á gróðrarstöð félagsins þar.
Aðkallandi verkefni.
Sökum þess hve lítið hefur
verið hægt að vinna að nýbygg-
ingum undanfarin ár, eru nú
margar framkvæmdir mjög að-
kallandi. Má þar helzt nefna
byggingu verzlunar- og skrif-
stofuhúss á Dalvík, byggingu
verzlunarútibús í Glerárþorpi og
kartöflugeymslu á Akureyri. —
Mun verða reynt að ráðast í eitt-
hvað af þessum byggingum á
þessu ári, ef nokkrir möguleikar
verða til.
Trú á framtíðina.
Jakob Frimannsson lauk
skýrslu sinni með þessum orðum:
„Með frjálsari verzlun og
minnkandi afskiptum hins opin-
bera af störfum og framkvæmd-
um í þessu landi fáum vér sam-
vinnumenn nýja trú á framtíðina.
Og í þeirri von, að vér megum
bera gæfu til að nota oss þetta
aukna frelsi til nýrra átaka í bar-
áttunni fyrir bættum kjörum
félagsmanna með aðstoð sam-
vinnu og samhjálpar í fram-
leiðslu, verzlun og viðskiptum,
lcveð eg félagsmenn Kaupfélags
Eyfirðinga með beztu óskum um
farsælt nýbyrjað ár og þakka
góða samvinnu á liðnum árum.“