Dagur - 05.11.1952, Side 1

Dagur - 05.11.1952, Side 1
AUGLÝSINGAR í DEGI lesa flestir Akureyringar og Eyfirðingar! Áskrifendur úti á landi, sem ckki hafa innleyst póstkr. fyrir árgjaldinu, cru áminntir uin að gera það hið fyrsta. XXXV. árg. Akureyri, miðvikudaginn 5. nóvember 1952 44. tbl. Rösklega 100 brezkir skíððmenn hafa spurzt fyrir um möguieikð á bví að gista Ákureyri í vetur Frá umræðuíundinum um ferðamannamálin í sl. viku Það varð upplýst á fundinmn um fcrðamannamálin, sem hald- inn var hér fyrra þriðjudags- kvöld — og lauslega var greint frá í síðasta tbl. — að komið hef- ur fyrirspurn frá brezkum skíða- félögum um, hvort Akureyri gcti tekið við tvcimur 52 manna hóp- um brezkra skíðamanna í marz í vetur til nokkurrar dvalar. Þessi fyrirspurn sýnir glöggt, hverjir möguleikar eru tengdir ferðamannamóttöku hér á Akur- eyri, ekki hvað sízt á vetrum, því að bærinn hefur á ýmsan hátt á- gæta aðstöðu til þess að verða miðstöð vetraríþróttaiðkana. Hér skortir aðeins að búa svo í haginn, að t. d. skíða- og skautamönnum þyki hentugt að koma hér og geti notið þeirrar fyrirgreiðslu, sem þeir eiga að venjast i erlendum vetraríþróttabæjum. Félagsstofnun áhugamanna. Til fundarins að Hótel KEA var boðað af nokkrum áhugamönnum um þessi málefni og var í fram- söguræðu bent á, hverja möguleika Akureyri hefur til að verða eftir- sóttur ferðamannabær, ef þeim málum er nægilega sinnt af bæjar- manna hálfu. Kristján Sigurðsson, hótelstjóri, hafði framsögu á fund- inum, og var ræða hans birt í síð- asta tbl., en aðrir ræðumenn voru Haukur Snorrason, ritstjóri, Jakob Frímannsson,' framkvæmdastjóri, Olafur Jónsson, héraðsráðunautur, Hermann Stefánsson, íþróttakenn- ari og frú Dagmar Sigurjónsdóttir. Einar Kristjánsson framkvstj. var fundarstjóri, og ávarpaði hann einnig fundinn. Niðurstaða fundarins var, að fela fundarboðendum, þeim Krist- jáni Sigurðssyni hótelstjóra, Hauki Snorrasyni ritstj., Hermanni Stef- ánssyni iþróttakennara og Einari Kristjánssyni framkvæmdastjóra, ásamt Olafi Jónssyni héraðsráðu- naut, að undirbúa félagsstofnun og boða til framhaldsfundar síoar. Er svo ráð fyrir gert, að fyrir- tæki, félög og einstaklingar bindist samtökum um að hlynna að ferða- mannaméluntmi og hrinda í fram- kvæmd ýouaim umbótum. Var í því sambanái bent á, að síðan 1948, er hingað komu brezkir skíðamenn til þess að kynna sér aðstæður tíl vetraríþróttaiðkana, hefðu þesi mál legið í láginni og ekkert verið gert til þess að bæta úr þeim ágöllum, er þá voru ljósir í sambandi við móttöku skíða- manna, t. d. vegagerðir til skíða- landsins, skálabyggingar o. s. frv. Tilhögun skíðalandsmótsins. I athyglisverðri ræðu, er Olafur Jónsson ráðunautur flutti á fund- inum, benti hann m. a. á, hverja þýðingu það hefði, ef horfið yrði að því ráði að halda landsmót skíðamanna alltaf á sama stað. Af slíkri ákvörðun myndi leiða það, að komið yrði smátt og smátt upp mjög bættri aðstöðu, ekki aðeins til keppni, heldur og til æfinga. Taldi Ólafur eðlilegt, að Akureyri yrði valin sem framtíðarstaður landsmótanna vegna góðra sam- gönguskilyrða og þeirrar stað- reyndar, að hér er fremur að treysta á góðan skíðasnjó á vetrum og vorum en annars staðar á land- inu, vegna kyrrviðra og þurrviðra, sem einkenna þennan landshluta umfram flesta aðra staði á landinu. Athyglisvert málefni. Vafalaust er, að ferðamanna- málunum og þeim fjáröflunarleið- um fyrir byggðarlagið, sem þeim eru tengd, er of lítill gaumur gef- inn hér. Er því hreyft merku máli með fundarboðun þessari og fyrir- hugaðri félagsstofnun og vonandi, að fyrirtæki og félög í bænum reynist svo framsýn að sjá, hvert gildi ferðamannamóítakan hefur fyrir allt athafnalif bæjarfélagsins, og auðveldi þeim mönnum, sem hér hafa rofið þögnina, starfið við að koma samtökum á fót. Er það íyrirboði um fram- kvæmdirnar í vefur? í sl. viku setti niour nokkurn snjó á fjallvegi hér nærlendis, ekki hvað sízt á Vaðlaheiðarveg. Var heiðin illfær venjulegum bifreiðum um sl. helgi nema á snjókeðjum. Fyrir helgina voru ýmis vegavinnuverkfæri austan heiðar, t. d. jarðýta að vinnu austan í heiðinni og hefill á veg- inum í Ljósavatnsskarði, en ekki lét vegamálastjómin skafa snjó- inn af heiðarbrúninni þótt frost- laust væri og verkið mjög auð- velt. Spáir þetta ekki góðu um framkvæmdir við að halda þess- um þýðingarmikla þjóðvegi opn- um í vetur. Fullvíst má telja, að í tíðarfari eins og því, sem verið hefur undanfarnar vikur, mun snjór ekki hafa verið látinn fest- ast á þjóðvegum í nágrenni Reykjavíkur til trafala fyrir alla umferð. Héseíahlulur um 16.000 krónur síðan ágústbvrjun - Tító marskálkur flutti í fyrradag mikla ræðu á flokksþhigi júgó- slafneska kommúnistaflokksins. Hann sagði að Júgóslafar hefðu brotizt undan yfirráðum Rússa þegar sýnt var að þeir ætluðu að reka hreinræktaða nýlendupóli- tík í Austur-Evrópu og nota hag- kerfi landanna þar eins og rnjólk- urkýr fyrir efnaþagsmál Rúss- Iands. Tító veit hyað hann er að tala um. Hann er útskrifaður úr finuntuhcrdeildarskólunum í Moskvu og var lengi mikill áróðursmaður fyrir Rússa. Fékk jafnvel menn úr fjarlægustu löndum til þess að vinna fyrir kommúnismann í Júgóslafíu, sbr. þegar Sigurður Róbertsson rit- höfundur vann áð því kauplaust eitt sumar að leggja „veg æsk- unnar“ í Júgósafíu, sem komm- únistískir skemmdarverkamenn hafa síðan sprengt í loft upp. — Nýr læknir í bænum Sigurður Ólason læknir (póst- meistara Kristjánssonar hér í bæ) auglýsir í blaðinu í dag lækningastofu að Ráðhústorgi 1. Hefur hann viðtalstíma alla virka daga kl. 12.30—-15 nema laugar- daga kl. 10—12. Sími lækninga- stofunnar er 1034. Sigurður Óla son hefur nokkur undanfarin ár verið héraðslæknir í Hólmavík og notið þar mikilla vinsælda. 14 kg. meðalþimgi dilka í Þingeyjarsýslu Meðalþungi dilka, sém slátrað var í Húsavík í haust var 14,01 kg., var 13,86 kg. í fyrra. Vegna fjárskiptanna var miklu færra fé slátrað í ár en í fyrra, alls um 9000 kindum, e.n á 18. þús. kind- um í fyrra. Þyngsta dilkinn í ár átti Sigurður bóndi Kristjánsson á Grímsstöðum við Mývatn, vóg 27 kg. verömæíi aflans mun Reknetaveiði Akureyrarskip- anna austur í hafi er lokið og komu öll skipin inn úr síðasta túrnum nú um helgina og hafði síðasta veiðiförin gengið heldur illa, aðallega vegna óhagstæðs veðurs. En síðan fyrsta skipið fór út með reknetin, 10. ágúst sl., hafa fimm skip héðan frá Akureyri aflað alls um 11000 tunnur af fyrsta flokks Norðurlandssíld, og mun láta nærri að þessi afli sé að verðmæti um eða yfir 4 milljónir króna. Hafa þessi skip því dregið mikinn feng að landi á skömmum tíma og fyrir sjómennina hefur þarna verið um góða atvinnu að ræða, því að hásetahlutur ásamt verkunarlaunum um borð í þeim skipum, sem hæst eru að afla- magni mun nema um 16.700 kr. Aflamagnið mun vera sem næst þetta: Snæfell 2690 tn. Akraborg 2539 tn. Súlan um 2200 tn. Ingvar Guðjónsson uin 2500 tn. Stjarnan 1144 tn. Auk þessara norðlenzku skipa hafa nokkrir austfirzkir bátar stundað þessar veiðar og aflað vel. Mikilsverð reynsla. Telja má að þcssi reknetaút- gerð austur í hafinu hafi gefið góða raun fyrir útgerðarmehn og sjómenn, en þó er e. t. v. ekki minnst um vert að með henni hefur fengizt dýrmæt reynsla fyrir þjóðarbúskapinn allan, reynsla, sem líklegt er að byggt verði á í framtíðinni. Það má telja nokkurn veginn víst, að ef hin stærri skip síld- veiðiflotans hefðu öll horfið ao þessuin veiðum í ágústbyrjun — eða jafnvcl fyrr — mundi útkoman á síldarvertíðinni hafa orðið ömiur og bctri en raun varð á, fyrir útgerðina og þjóð- arbúskapinn. Miklar líkur eru til þess að með reknctaveiðum á þessum slóðum hcfði mátt trygrgja afkomu mikils meiri hluta flotans og forða frá hall- ærisstyrkjum, og afla tug- milljóna króna verðmæta fyrir þjóðarbúið. Það er því ástæða til þess nú, — er skipin eru komin heim eftir langa útivist á þessum slóðum, — að þakka þeim útgerðarmönnum, losa fjórar milljónir er þarna riðu á vaðið, mikilsvert brauti-yðjendastarf, og þá ekki. síður að þakka sjómönnunum. sem með þessari erfiðu sókn austur í haf, hafa vísað veginn fyrir síldarútveg framtíðarinnar, jafnframt því sem þeir hafa fært þjóðarbúinu milljónaverðmæti. Eftir síldarleysisárin mörgu hefur útgerð þessara skipa nú orðið til þess að kveikja á ný þá von, að síldarútgerð frá Norður- landi geti verið arðvænlegur at- vinnuvegur. Aðeins það, að menn öðlist trú á möguleikum til fram- kvæmda á ný, hefur mikla þýð- ingu fyrir atvinnulífið. Norð- lendingar — og Akureyringar og Siglfirðingar sérstaklega — hafa því ríka ástæðu til þess að bjóða, sjómennina á reknetaskipunum velkomna heim og þakka þeim mikilsvert framlag til þess að gera þennan landshluta lífvæn- legan um naestu framtíð. Anganþeyr - ný ijóöabók eftir Þórodd GtiSmundsson fré Sandi Komið er út nýtt ljóðasafn eft- ir Þórodd frá Sandi. Er bókin prentuð hér á Akureyri, hjá Prentverki Odds Björnssonar h.f., á kostnað höfundar, og er 108 bls. að stærð í venjulegu broti. — Áður hafa komið út þrjár bækur eftir Þórodd: Skýjadans, sögur, 1943, Vilíiflug, ljóð, 1946, og loks bókin um íöður höfundar, Guð- mundur Friðjónsson, ævi og störf, 1950 ,og vakti sú bók all- mikla athygli. — Hinnar nýju ljóðabókar, er nefnist Anganþej'r, verður væntanlega getið nánar hér í blaðinu innan skamms. Margir ungir menn ganga í Félag ungra Framskónar- manna Félag ungra Framsóknannanna hafði fund að Hótel KEA síðastl. sunnudag og var þar rætt um vetrarstarf félagsins. Á þessum fimdi bættust félagmu margir nýjir félagmenn og er það gleði- legur vottur um vaxandi áhuga ungra manna fyrir stefnu Fram- sóknarflokksins í landsmálum.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.