Dagur - 09.09.1953, Síða 1
GJALDDAGI
blaðsins var 1. júlí. — Léttið
innheimtuna! Sendið afgr.
áskriftargj aldið!
DAGUR
kemur næst út á regluleg-
um útkomudegi, miðviku-
daginn 16. september.
XXXVI. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 9. september 1953
49. tbl.
Útgerðarfélag Akureyringa h.f. hefur nú
eignazf fjórða „nýsköpunartogarann"
Enginn staður hefur tekið meiri stakkaskiptum hér í bænum á
síðustu tveimur árum en Eiðsvöllur á Oddeyri. Þar er nú grænn
völlur og fagurt blómaskrúð. Á sama tíma cr Ráðhústorg óbreytt.
Ljóta girðingin stendur enn og þcssi blettur, sem ætti að vera
grænn casis í miðjum bænum, er raunar lítið nema Ijótt bílastæði.
Tveir togarar héðan byrja á ný
að veiða fisk til herzlu
Tveir af togurum Útgerðar-
félags Akureyringa h.f., Harð-
bakur cg Svalbakur, eru að hefja
veiðar á ný, eftir nokkurt hlé, m.
a. vegna eftirlits skipanna, og
munu skipin leggja aflann hér
upp til herzlu.
Líklegt er að nýi togarinn,
Sléttbakur, leggi hér upp fisk til
herzlu til að byrja með a. m. k.
Fjórði togarinn, Kaldbakur, veið-
ir nú fyrir Þýzkalandsmarkað.
Mikil atvinna er samfara þess-
ai-i fiskverkun og kemur það í
góðar þarfir nú með haustinu, er
atvinnuútlit hér í bænum er
ískyggilegt. Útgerðarfélagið á
hér nú liggjandi um 200 lestir af
skreið, og mun pökkun til út-
flutnings hefjast innan skamms.
Jörundur á reknetaveiðum.
Fimmti togarinn, sem hér er
gerður út, Jörundur, sem var
aflahæsta skip flotans á síldveið-
Álftin flaug af
tjörninni
f gærmorgun heyrðu bæjar-
menn svanasöng á Pollinum
skammt frá Torfunefi. Var þar
komin cin álftin af andatjörn
bæjarins. Hafði hún allt í einu
tekið sig upp og flogið burt.
Nokkru seinna var hún hand-
sömuð og flutt á tjömina aftur.
A. m. k. cin gæsin á tjörninni
cr flcyg og fer stundum í fcrða-
lög, en leitar jafnan á tjörnina
aftur.
unum í sumar, er á reknetaveið-
um austur í hafi.
Slys við nýju
Hörgárbrúna
Á mánudagsmorguninn varð
það slys við nýju Hörgárbrúna,
sem nú er í smíðum, að bjálki féll
í höfuð Þórðar Pálmasonar frá
Núpufelli er þar vann og meiddist
hann alvarlega og var fluttur í
sjúkrahúsið hér. Eru meiðsli hans
talin alvarlegs eðlis.
Lítil telpa varð úti
í Steingrímsfirði
Átakanlegt slys, sem snortið hefur
alla þjóðina djúpt, varð skarnmt frá
Hólmavík í s. 1. viku, cr lítil telpa,
nær fjögra ára, villtist út úr þorp-
inu á fimmtud. og fannst ckki fyrr
cn á sunnudág, um 8 km. frá þorp-
inu og var hún látin af vosbúð og
jrreytu. Fjöldi manns lcitaði henn-
ar allan tímann. Litla telpan var
frá Akranesi og hafði komið til
Hólmavíkur sama daginn og liún
týndist, með foreldrum sínum, að
heimsækja ættingja. Hún hét Dað-
ey Pétursdóttir.
Aðalfundur Stéttar-
sambands bænda
Aðalfundur Stéttarsamb. bænda
hófst að Bjarkarlundi í Reykhóla-
sveit á mánudaginn og sækja hann
fulltrúar víðs vegar af landinu. Um-
ræður hafa aðallega snúist um verð-
lagsmál landbúnaðarins.
Þingeyingar minnast
aldarafmælis
Stephans G.
Á sunnudaginn minntust Þing-
eyingar aldarafmælis Stephans
G. Stephanssonar skálds með
samkomu að Laugum. Gekkst
Héraðssamband Þingeyinga fyrir
samkomunni. Aðalræðuna fyrir
minni skáldsins flutti Þóroddur
Guðmundsson frá Sandi. Héraðs-
sambandið hyggst koma upp
minningarlundi að Laugum og
hefur héraðsskólinn gefið land til
þess.
ÞSHKBSkHKHXtSHS CBKHKH3-.
Malvöruverð hjá KEÁ er lægra
en lægsta smásöluverð í Rvík
Hinn 1. sept. birti verðlagsskrifstofan í Reykjavík hina tnán-
aðarlegu skýrslu um verðlag nauðsynjavarnings í Reykjavík.
f Er allmikill verðmismunur á ýms um vörutegundum. Athjgl-
isverðast er, að lægsta smásöluverð á ýmsum nauðsynjavörum
í verzlunum í Reykjavílt er hærra en ríkjandi smásöluverð
hjá Kaupfélagi Eyfirðinga hér á staðnum. Dæmi:
Lægsta verð í Rvík Verð KEA
Rúgmjöl 2,80 2,30
Hveiti 2,90 2,80
Haframjöl 3,20 3,10
Baunir 5,00 4,55
Strásykur 3,20 3,15
Púðursykur 3,20 3,00
Frá þessu verði reiknar kaupfélagið síðan endurgreiðslu þá,
sem aðalfundur kann að ákveða. Sl. ár nam hún 5% og er sam-
anburðurinn því raunverulega þehn mun hagstæðari en ofan-
greindar tölur gefa til kynna.
fOOOOtKHKHKBKHKBKHKHKKBKHKHKHKKHKBKKHKHKHKHKHKKlííC
Akureyri er orðin, ásamt Hafnarfirði, næst
stærsta togaraútgerðarstöð landsins
Síðastl. miðvikudag undirrituðu þeir Jakob Frímannsson fram-
kvæmdastj., Guðmundur Guðmundsson framkvæmdastj. og Steinn
Steinsen bæjarstjóri, samning mn kaup á togaranum Helgafelli frá
Reykjavík, fyrir liönd Útgerðarfélags Akureyringa, og hefur félag-
inu þannig bætzt fjórði „nýskökpunartogarinn'* og togaraflota Ak-
ureyringa fimmta skipið.
Er Akureyri þar með orðin,
ásamt Hafnarfirði, næst stærsti
togaraútgerðarstöð landsins. —
Stjórn Útgerðarfélags Akureyr-
inga h.f. hefur gefið út fréttatil-
kynningu um kaupin, svohljóð-
andi:
„Stjórn Útgerðarfélags Ak-
ureyringa hcfur nýlega fest
kaup á togaranuin „Helgafelli“,
Reykjavík. — Samninga fyrir
félagsins hönd önnuðust þcir
Jakob Frímannsson, Steinn
Steinsen og Guðmmidur Guð-
mundsson. Kaupsamningur var
undirritaður í Reykjavík 2. þ.
m. og er kaupverðið SVi milljón
krónur.
Skoðun á skipinu fram-
kvæmdu þeir Albert Sölvason,
framkvæmdastj., og Guðmund-
ur Guðmundsson, fram-
kvæmdastj., auk Erlings Þor-
kelssonar, skipaeftirlitsmanns.
Töldu þeir skipið í góðu lagi.
Skipið verður afhent í
Reykjavík 8. þ. m. og fer þá
strax hingað til Akureyrar, þar
sem það verður útbúið á veið-
ar.
Breytt verður um nafn á
skipinu og það verður skráð
hér á Akureyri, og hefur því
verið valið nafnið „Sléttbakur".
Skipstjóri verður Finnur
Daníelsson, sem verið hefur 1.
stýrimaður á „Kaldbak".
Þannig segir í fréttatilkynn-
ingu Útgerðarfélagsstjórnarinnar.
Auk þess, sem þar er greint, er
blaðinu kunnugt um, að „Slétt-
bakur“ mun bera einkennisstaf-
ina EA—4, (hinir togararnir bera
einkennisstafina EA 1—3. — 1.
stýrimaður verður Vilhjálmur
Þorsteinsson frá Hrísey.
Lán frá Samvinnutryggingum.
Fimmtudaginn 3. september
kom bæjarráð saman á fund til
þess að taka afstöðu til tilkynn-
ingar stjórnar Útgerðarfélagsins
um kaupin á togaranOm og til
beiðni um bæjarábyrgð fyrir lán-
um, sem félagið hefur tekið til
kaupanna. Samkvæmt því sem
fram kom á fundinum, eru
greiðsluskilmálar þessir: Við
undirskrift samnings greiðast 500
þús. kr., og tók Útgerðarfélagð þá
upphæð að láni hjá Samvinnu-
tryggingum, til 4 ára, fyrsta af-
borgun fer fram í sept. næsta árs.
Þá er 500 þús. kr. víxill, til sex
mánaða. til fyrri eigenda. Þá er
skuldabréf til 10 ára, til fyrri eig-
enda, að upphæð kr 3.084.667.30,
yfirtekin skuld við stofnlánadeild
sjávarútvegsins kr. 1.322.000 og
loks yfirtekin skuld við ríkissjóð
kr. 93.132.80. Samtals kr.
5.500.000.00. Meiri hluti bæjar-
ráðs, eða 4 af 5 bæjarráðsmönn-
um, samþykkti að heimila
ábyrgðina. Annar fulltrúi Sjálf-
stæðsflokksns í bæjarráði greiddi
ekki atkv. Þessi ákvörðun bæjar-
ráðs var síðan staðfest á bæjar-
stjórnarfundi sl. föstudag.
Þýðingarmikið spor.
Vafalaust er, að allur þorri
bæjarmanna fagnar þessum
framkvæmdum. Útgerðarfélag
Akureyringa h.f. hefur sannað
það með rekstri fyrri togara, að
því er vel trúandi fyrir þessari
aukningu flotans. Félagið hefur
verið farsælt allt frá fyrstu tíð.
Til þess hafa valist ágætir menn,
bæði á sjó og landi, enda sýna nú
verkin árangurinn. Félagið hefur
— á sama tíma sem togaraútgerð
annars staðar hefur átt í miklum
(Framhald á 7. síðu).
Tveir íslendingar sækja
lýðháskóla norskra
bindindismanna
Þegar Hannes J. Magnússon
skólastjóri var á ferð í Noregi á
sl. vori og ræddi við forustumenn
norsku bindindissamtakanna,
buðu þeir ókeypis skólavist fyrir
tvo íslenzka námsmenn að lýðhá-
skóla norsku samtakanna, að
Frekhaug við Bergen. Þetta til-
boð var auglýst innan íslenzku
góðtemplararreglunnar og sótti
margt ung fólk um skólavistina.
Nú nýlega hefur verið ákveðið, að
skólavistina hljóti þau Jón B.
Gunnlaugsson frá Olafsfirði og
Sigrún Gissurardóttir í Reykja-
vík.