Dagur - 23.09.1953, Blaðsíða 8
8
Baguk
Miðvikudaginn 23. sept. 1953
Vestur-lslendingar minntust
Stephans G. á 64. íslendinga-
deginum á Gimli
Stephan í engu líkur sjálfútnefndum „friðar-
vinum“ nútímans sagði prófessor Kirkconnell
Lakari veiði en í fyrra hjá rek
netaskipum austur í hafi
Sjómenn vilja að Ægir leiti síldar með
Asdic-tækjunum
Vestur-lslendingar héldu há-
tíðlegan 64. íslendingadaginn á
Gimli í sl. mánuði, og er skýrt
frá hátíðahöldunum í blaðinu
„Winnipeg Tribune<! 4. ágúst. —
Segir þar m. a. að 4000 manns —
flestir íslendingar eða íslenzkrar
ættar — hafi sótt hátíðina, sem
hafi í alla staði verið mjög mynd-
arleg. Á meðal gesta á hátíðinni
var forsætisráðhcrra Manitoba-
fylkis, D. L. Campbell.
Stephan G. heiðraður.
Blaðið skýrir svo frá, að þessi
hátíðahöld hafi verið tileinkuð
minningu Stephans G. Stephans-
sonar skálds, í tilefni af 100 ára
fæðingarafmæli hans og flutti
dr. Watson Kirkconnell, forseti
Acadía-háskóla í Nova Scotia,
aðalræðuna. Prófessor Kirkconn-
ell' er víðfrægur tungumálamað-
ur, rithöfundur og bókmennta-
fræðingur og hefur m. a. þýtt ljóð
íslenzkra skálda á ensku. Hann
fór mjög lofsamlegum orðum um
verk Stephans G. Stephanssonar.
Hann sagði m. a., að ekkert skáld
í Kanada hefði dregið upp svo
fagrar og skáldlegar myndir af
náttúru Kanada sem Stephan. Þó
hefði hann raunar engan tíma
haft til þess að sinna ritstörfum
nema þann, sem aðrir nota til að
sofa, því að hann hafi alla ævi
unnið baki brotnu við að yrkja
jörðina.
Ekki líkur „friðarvinunum“.
Prófessor Kirkconnell sagði, að
því er „Winnipeg Tribune“
hermir, að Stephan hafi í engu
líkzt hinum sjálfútnefndu friðar-
vinum samtímans, sem hafa á sér
Frá Firmakeppni Golf-
klúbbsins
Eftir að fjórar umferðir höfðu
verið spilaðar voru þessi firmu
eftir uppistandandi: Heildverzlun
Tómasar Steingrímssonar (Jakob
Jakobsson), Ólafur Ágústsson &
Co. (Ágúst Ólafsson), Kjötbúð
KEA (Magnús Guðmundsson),
Vélsm. Steindórs h.f. (Adolf Ingi-
marsson).
í fimmtu umferð áttust við
Kjötbúð KEA og Vélsm. Stein-
dórs. Lauk þeirri viðureign með
sigri Kjötbúðar KEA eftir jafna
og harða keppni. Heildv. T. St. og
Ól. Ág. munu væntanlega keppa
eitthvert næsta kvöldið. En úr-
slitakeppnin er ákveðin á sunnu-
daginn kl. 9, en þá eru alls spil-
aðar 36 holur og mun sú keppni
standa allan daginn.
sauðargæru sakleysisins, en
starfa í rauninni fyrir mesta sam-
særi veraldarsögunnar. Stephan
var, sagði hann, einlæglega and-
vígur stríði, því að lífsskoðun
hans var byggð á mannkærleika,
vísindum og frelsi. Þessi skoðun
hins merka kanadíska bók-
menntafræðings er athyglisverð
fyrir þá íslendinga, sem hafa ein-
hverja tilhneigingu til þess að
leggja trúnað á þá blekkingu
kommúnista hér, að Stephan G.
hafi verið trúbróðir þeirra. Nú
um skeið hefur Þjóðviljinn mjög
hampað skrifum Stephans og
reynt að láta líta svo út, sem
þessi mikli andi og mannvinur
hafi í rauninni verið fylgjandi for
myrkvunar- og afmenningar-
jkenningum kommúnista, en ekk-
ert gæti verið fjær sannleikanum.
Stephan G. var frjálsborinn
andi og allra manna ólíklegastur
til þess að ánetjast múgsefjunar-
tækni kommúnista. En samúð
hans með smælingjunum var rík
og tilfinning hans fyrir réttlæt-
inu sterk. Einmitt þess vegna
hefði hann alveg vafalaust for-
dæmt kúgunina, sem kommúnist-
ar standa fyrir og fyrirlitið frið-
arskraf landræningja og alþjóð-
legra stigamanna kommúnismans.
Kvikmyndir um upp-
eldismál
Síðastliðinn sunnudag voru
sýndar í Skjaldborg fræðslukvik-
myndir um upeldismál á vegum
Barnaverndarfélagsins. Jónas
Pálsson, sálfræðingur, skýrði
myndirnar og flutti ávarp á und-
an. Myndir þessar eru fengnar að
láni frá Sameinuðu þjóðunum.
Myndirnar eru þrjár, og fjalla
tvær þeirra um afbrotahneigð
barna og unglinga, en ein um
lystarleysi barna. Segja má, að
grundvöllur sá, sem þessar
myndir eru byggðar á er, að ekki
sé það rétt stefna að dæma og
hegna fyrir yfirsjónir, en líklegra
til árangurs sé að skilja, útskýra
og fyrirgefa. í stað þess að dæma
unglingana í hegningarhús, er
reynt að koma þeim aftur á rétt-
an kjöl á barnaheimilum og sér-
stökum stofnunum. Voru sýnd
dæmi um þetta. Rauði þráðurinn
í myndunum var sá, að mest
væri um það vert í uppeldinu, að
skilja börnin rétt og sýna þeim
ástúð og kærleika.
Alþingi kvatt saman
Alþingi hefur verið kvatt saman
til fundar 1 .október næstk.
Merktur máfur skotinn
á Eyjafirði
Nú fyrir helgina skaut Agnar
Tómasson hér í bæ máf á Eyja-
firði og var máfurinn merktur
með alúmhring á fæti. Stóð á
hringnum: Skovgaard, Viborg.
Hefur máfurinn því verið
merktur í Danmörk, en ekki
vitað hvenær. Kristján Geir-
mundsson fuglafr. mun hafa
tekið að sér að koma vitneskju
um máfinn til Danmerkur og
mun þá upplýst, hvemig máf-
urinn hefur hagað ferðum sín-
um.
Bretar smíða 500 fiski-
skip á næstu 10 árum
Brezka ríkisstjórnin hefur lagt
fram endurreisnaráætlun fyrir
brezka fiskveiðiflotann og gildir
hún fyrir næstu 10 ár. Á þessu
tímabili á að smíða 500 fiskiskip,
eða með öðrum orðum 1 nýtt skip
á að hlaupa af stokkunum í viku
hverri. Aðallega að smíða dies-
el-togara, 120—140 feta langa og
er áætlað að hver togari kosti
100.000 sterlingspund, eða röskar
4,6 millj. króna. Ríkið lánar tog-
arafélögum fé með hagstæðum
kjörum til skipasmíðanna. Þegar
er farið að panta togara samkv.
áætluninni. M. a. er nú hefjast
smíði fyrir togaraeigendur í
Grimsby hjá Cochrane & Sons í
Selby, en sú skipasmíðastöð smíð
aði marga ísl. togara eftir stríðið.
(Framh. af 1. síðu).
Danir þreifa fyrir sér.
Blaðið hefur það-fyrir satt, að
námufélagið hafi þreifað fyrir sér
hjá fyrrv. ríkisstjórn um mögu.
leika á samningum um aðstöðu
á íslandi, en engar opinberar til-
kynningar hafa verið birtar um
það, né heldur, hvert svar hafi
verið gefið. Sterkur orðrómur er
þó uppi um það, að látið hafi ver-
ið í þáð skína, að mál þetta yrði
af íslands hálfu tengt óskum um
fiskveiðaréttindi við Grænland.
Var þó augljóst, að námufélagið,
sem er hlutafélag, hefur ekki
vald á því að semja um neitt
slíkt.
Þörf á nánari athugun.
Ekkert skal um það fullyrt
hér, hvort rétt sé eða æskilegt að
veita námufélaginu þá aðstöðu, er
það mun óska að fá hér á landi,
en hitt virðist auðsætt, að eðli-
legt sé að athuga málið til hlítar
og birta almenningi síðan greinar
gerð um það. Fyrir þennan bæ, er
hér um að ræða harla merkilegt
mál, sem vel gæti haft mikla þýð-
ingu fyrir afkomu og efnahag
byggðarlagsins og ekki nema
sanngjarnt, að það sé gert opin-
þert, um hvað hér er að tefla og
hvernig hefur verið brugðist við
Allmörg skip héðan og af Aust-
urlandi stunda reknetaveiðar
austur í hafi á svipuðum slóðum
og í fyrra, en afli þeirra hefur
verið mun tregari en í fyrra fram
að þessu. Skipin héldu flest af
stað héðan 4.—5. sept., en þó fóru
a. m. k. tvö nokkrum dögum fyrr.
Samkvæmt upplýsingum, sem
blaöið hcfur aflað sér, var afli
skipanna licðan orðin sem hér seg-
ir í gær: Akraborg hefur landað
225 tunnum, er með um 300 trp
um borð. Njörður, hefur landað
180 tunnum, er með um 150 tunnur
um borð. Jörundur, hefur landað
627 tunnum af saltsíld og 217 tn.
af frystri síld. Skipið er nú á leið
til miðanna aftur. Snæfell, liefur
landað 365 tunnum, hefur um 125
tunnur um borð. Stjarnan, hcfur
landað 279 tunnum, er með 35
tunnur um borð. Súlan, hcfur land-
að 240 tunnum, er með 235 tunn-
ur um borð. Sæfinnur, hefur land-
að 239 tunnum, er með 45 tunnur
um borð.
Til sámanburðar má geta þess,
að á sama degi í fyrra var afli
reknetaskipanna mun meiri, t. d.
liafði Akraborg þá nær 1500 tn.
alls, Snæfell 1509, Súlan 860 og
Stjarnan 452 (eftir skemmri tíma).
af íslenzkum stjórnarvöldum. —
Ekki er vitað til þess, að leitað
hafi verið álits bæjaryfirvalda
hér um málið.
Aðstaða í Færeyjum til
athugunar.
Á s. 1. vori mun námufélagið
hafa sent fulltrúa til Færeyja til
þess að athuga um aðstöðu þar
og er ástæða til þess að ætla, að
það hafi ekki verið gert fyrr en
eftir að þær fréttir höfðu borizt
frá íslandi, að ekki væri líklegt
að málið fengizt tekið til athug-
unar nema í sambandi við fisk-
veiðaréttindi við Grænland. Nú
er vitað, að námuvinnslan í Meist
aravík mun að líkindum hefjast
á næsta ári og því tími til kom-
inn fyrir námufélagið að ganga
frá samningum um umskipunar-
höfn hið fyrsta. Má ætla, að ef
ekki verður neitt gert frekar í
málinu af íslendinga hálfu, verði
Færeyjar ákveðnar sem um-
hleðsluhöfn og aðstöðu komið þar
upp. Væri þá það tækifæri, sem
kann að vera fyrir hendi til blý-
móttökunnar hér, glatað, án þess
að almenningur hefði jafnframt
vitneskju um, hvernig að mál-
inu hefur verið unnið og hvaða
skilmálar settir. En það eru óvið-
| unnandi málalok.
Sjómenn vongóðir.
Eins og fyrr segir kom ágæt afla-
hrota á austurmiðunum um mán-
aðarmótin sept.-okt. í fyrra og stóð
fram um miðjan október. Skipin
hættu þá í nóvember byrjun. Sjó-
menn eru vongóðir um að afli glæð-
ist því að þeir telja að mikil síld
sé á svæðinu en erfitt að finna
liana með déptarmælunum.
Verður Ægir sendur austur?
Útgerðarmenn munu liafa mik-
inn áhuga fyrir því, að Ægir, sem
nú er búinn Asdic- tækjum til síld-
ar leitar, verði sendur austur á
miðin til jiess að aðstoða skipin
við að finna síldina, en ekki hefur
blaðið fregnir af því, hvort við
þeim tilmælum verður orðið eða
ekki.
Vestur-íslenzk kona
í ábyrgðarstöðu
í Bandáríkjiinum
Blaðinu hefur borizt úrklippa
úr amerísku tímariti, þar sem
sagt er frá frama vestur-íslenzkr-
ar konu, frú Ragnhildar Roberts
í Radcliffe, Mass. Frú Ragnhildur
er dóttir Jóns Jónssonar og
Bjargar Stefánsdóttur, systur
Jóns Stefánssonar Filippseyjar-
kappa og frú Þórdjsar, ekkju Da-
víðs Sigurðssonar smiðs. Eru þau
frú Ragnhildur og Ragnar Stef-
ánsson offursti því systkinabörn.
Ragnhildur lauk prófi frá Minne-
sotaháskóla og hlaut 24 ára göm-
ul mikla viðurkenningu með því
að vera ráðin yfirmaður starfs-
fólks við Kendall-kornmyllurnar
í Walpole, Mass., en Kendal Co.
er eitt kunnasta myllufyrirtæki
vestra. Reynsla hennar þar og
álit varð til þess að hún var ráðin
til að standa fyrir fjölmennum
skóla, sem á að mennta ungar
stúlkur til þess að taka að sér
ábyrgðarstöður í verzlun og iðn-
aði. Skóli þessi er í tengslum við
verzlunardeild hins fræga Har-
vard-háskóla í Cambridge, Mass.
Ummæli hins ameríska tímarits
bera þess ljósan vott, að þessi
unga kona nýtur mikils álits og
starf hennar vekur athygli.
Stöplar Skjálfanda-
fljótsbrúar fullgerðir
í haust
í sumar hefur verið unnið að
brúargerð á Skjálfandafljóti
,undan Stóruvöllum í Bárðardal,
og mun fullgengið frá stöplum
brúarinnar í haust, en brúargerð-
inni mun verða lokið næsta sum-
ar. Þetta er mikil brú, 112 m. í
milli stöpla, Jónas Snæbjörnsson
kennari á Akureyri hefur stjórn-
að verkinu í sumar.
- Vinnsla blýgrjótsins á Grænl.