Dagur - 11.11.1953, Page 9

Dagur - 11.11.1953, Page 9
Miðvikudaginn ll.nóvember 1953 D A G U K 9 Nokkrir þættir úr sögn félagsins Hestamannafélagið Léttir á Akureyri hélt afmælisfagnað 7. þ. m. að Hótel KEA á Akureyri, í tilefni þess að það er nú 25 ára. Setzt var að kaffiborði og bauð formaður félagsins, Árni Magnús- son, félaga og gesti velkomna. Minntist hann svo Jóns sál. Geirs- sonar læknis, sem lengi var for- maður félagsins og sem hafði sér- staklega mikinn áhuga fyrir mál- efnum þess. Undir borðum söng Sigurður Olafsson frá Reykjavík nokkur hestamannakvæði, Pétur Jónsson söng gamanvísur, Hjörtur Gíslason las upp kvæði og Þorsteinn Þor- steinsson sagði frá stofnun félags- ins og helstu störfum. Einnig sagði hann afrekssögur af hestum og að lokum minnti hann á tilgang fé- lagsins. Eftir borðhaldið var dansað, spilað og spjallað um hesta. Hestamannafélagið FÁKUR í Reykjavík er stofnað 29. marz 1922. Svo er Hestamannafélagið GLAÐUR í Dölum, stofnað 20. júlí 1928. Þriðja í röðinni er Hestamannafélagið LÉTTIR á Akureyri, stofnað 5. nóv. 1928. í fyrstu stjórn þess voru, formaður Pálmi Hannesson (nú rektor), ritari Sig. E. Hlíðar dýralæknir og Þorsteinn Þorsteinsson. Stofn- endur voru fimmtán. Á árinu 1929, gengu 40 menn í félagið. Aðalfundur var haldinn 19. marz 1929. Stjórnin var þá öll endurkosin. Um vorið voru haldn- ar kappreiðar á Þveráreyrum. Það sumar var tekinn á leigu hagi í Ytra-Krossanesi, fyrir hesta félags- manna og byggð rétt við hliðið inn í hagann. Hestaverðir voru ráðnir þeir Þorsteinn Þorsteins- son og Einar Björnsson. Sóttu þeir og fluttu hestana í hagann, um helgar og oftar ef óskað var. Á aðalfundi 9. marz 1930, var Sig. E. Hlíðar kosinn formaður í stað Pálma Hannessonar, sem þá var fluttur til Reykjavíkur. En Ingimundur Arnason kosinn ritari. Um vorið var löguð hlaupabraut, á eyrunum norðan við Glerá og þar haldnar kappreiðar. Sami hagi var leigður. En hestavörður var þá Guðmundur Andrésson. Sumurin 1931 og 1932, voru haldnar kapp- reiðar á Melgerðismelum. En hestavörður var þau sumur Ármann Tomasson. Svo var starf- semin engin í nokkur ár. Vorið 1942, gekkst Jón Geirs- son læknir fyrir því að vekja fé- lagið til starfa. Var aðalfundur haldinn 9. maí 1942 og kosin stjórn: Formaður Jón Geirsson, ritari Hjörtur Gíslason og féhirðir Ragnar Ólason. Þann 14. maí var framhald aðal fundar og þá kosið í nefndir þann- ig: Laganefnd: Jóhannes Jónasson, Þorsteinn Þorsteinsson og Haf- stemn Halldórsson. Hestanefnd: Arni Magnússon, Ingólfur Ár- mannsson og Steingrímur Hansson. Veganefnd: Magnús Aðalsteinsson, Kristján Jónsson og Björn Hall- dórsson. Skeiðvallarnefnd: Þor- steinn Þorsteinsson, Steingrímur Hansson, Ingólfur Armannsson, Guðmundur Halldórsson og Sig- urður Sigurgeirsson. Þann 21. maí 1942 var fundur haldinn og þá samþykkt lög fyrir félagið. Þá var einnig rætt um hesthúsbyggingu og að koma upp skeiðvelli. Hafði skeiðvallarnefnd athugað ýmsa staði, sem helzt kæmi til álita að nota, og lagði meirihluti nefndarinnar til, að fengið yrði land til þess, sunnan við Akureyri á vesturbökkum Eyjafjarðarár. Fundur var haldinn 9. sept. 1942. Var þá fengið leyfi bæjar- stjórnar Akureyrar fyrir skeiðvelli í svonefndum Stekkjarhólma, og var ákveðið að hefja þegar að- gerðir á staðnum, með vinnufram- lögum félagsmanna. Skyldi unnið þrjú kvöld í viku, þrjár stundir í senn og Þorst. Þorsteinssyni falin verkstjórn. Þá var einnig rætt um að stofna til happdrættis, til fjár- öflunar fyrir félagið. Seinna um haustið var keyptur hestur af Kristjáni Jónssyni og dregið um hann á sumardaginn fyrsta 1943. Þann 17. janúar 1943 var aðal- fundur haldinn. Form., Jón Geirs- son, var endurkjörinn og var hann lengst af formaður til dauðadags. Jón var mikill áhugamaður um mélefni félagsins og sérlega hátt- prúður og lipur í allri umgengni og mjög vinsæll, bæði sem læknir og maður. Aðrir formenn hafa verið Björn Halldórsson, Þorst. Þor- steinsson, Samúel Kristbjarnarson og nú Árni Magnússon. Ritari var kosinn Jóhannes Jónasson og svo 8 sinnum endurkosinn, eða svo lengi sem hann gaf kost á sér. Enda vann hann mikið fyrir félag- ið. Við tók svo Vilhelm Jensen. Féhirðir var Ragnar Ólason í 5 ár og leysti það starf vel af hendi. Svo tók Þorleifur Þorleifsson við, og svo Júlíus Pétursson og nú Ing- ólfur Magnússon. Árið 1943 var stofnað til kapp- reiða og árlega síðan. Árið 1944 keypti félagið hesthús ásamt hlöðu og starfrækti það. Árið 1946 var kosin skemmtinefnd, sem starfaði allmikið, einkum formaður hennar, Þorl. Þorleifsson, svo sem með því að koma upp riddaraflokki í skrautbúníngum til að slá „kött- inn“ úr tunnunni. Hefur félágið, síðan haft nokkra „kattarslagi". Arið 1950 var stofnað til Þing- vallaferðar á hestum, til þátttöku í landsmóti hestamanna. Þátttak- endur voru 23 á suðurleið, en 27 norður, með 118 hesta. Samúel Kristbjarnarson og Stefán Stein- þórsson stjórnuðu ferðinni og gekk það allt vel og varð til sóma fyrir félagið. Arið 1951 var stofnað til boð- reiðar og svo nokkrum sinnum síð- an. Boðreiðar hafa síðan verið teknir upp hjá fleiri félögum og þykja góður leilcur. Enn er margt ótalið, svo sem stuttar skemmtiferðir á hestum, myndasýningar og skemmtifundir. í stjórn félagsins eru: Form. Árni Magnússon, ritari Vilhelm Jensen og féhirðir Ingólfur Magn- ússon. Félagsmenn eru nærri því hundrað. I lok ræðu sinnar mælti Þ. Þ. á þessa leið: „Tilgangur félagsins er sá, að koma á samtökum meðal þeirra er hestum unna, stuðla að góðri og réttri meðferð hesta og efla áhuga og þekkingu á ágæti þeirra og íþróttum. Fyrsta boðorð félagsins til hvers einasta félaga er, að sýna í verki góða og rétta meðferð hesta, — eftir beztu vitund — hvenær sem þeir fást eitthvað við þá. Þetta boðorð samrýmist alveg ósk- um hestamanna, um að fá notið sem mestra kosta hestanna. Því að undirstaða góðrar tamningar er að sannfæra hinn ótamda félaga um, að maðurinn sé góður og nærgæt- inn vinur og stjórni ekki aðeins með taumhaldinu, heldur einnig með orðum og leyniþráðum, sem ávallt liggja á milli manns og hests, séu þeir vinir. Að ávinna sér vináttu og traust reiðhesta, er lykill að kostum þeirra. Eg þakka stjórnendum og öllum, sem vel hafa unnið fyrir málefni félagsins. Eg óska að Léttir okkar lifi lengi og haldi í heiðri hinum góða tilgangi stofnendanna, og vinni mikið gagn hestum og hesta- mennsku í landi okkar.“ SEXTUGUR: Helgi Krisijánsson kjöimaism. Hinn þrítugasta októbermánaðar þessa árs átti Helgi Kristjánsson kjötmatsmaður í Húsavík 60 ára afmæli. Sú venja hefur skapazt hér á landi, að staldrað er við á slíkum tímamótum æfinnar, litið yfir far- inn veg og vinir og kunningjar, sem muna eða vita um tímamótin, senda afmælisbarninu kveðju eða líta inn. Ekki verður sagt að Helgi hafi farið varhluta í þessu efni, því að húsfyllir vár á heimili hans lengi dags og fram á nótt, í orðsins fyllstu merkingu. Var það fólk bæði úr Húsavík og margir langt framan úr sveitum, enda er Helgi með vinsælustu mönnum káup- staðarins og langt út fyrir hann. Nýtur hann þar annálaðrar greiða- semi við alla sem hann nær til og vilja þiggja, ásamt trúmennsku og samvizkusemi í þýðingarmiklu starfi, er hann hefur gegnt um margra ára skeið, snertandi mjög marga einstaklinga. Sá, sem þessar línur ritar, hefur þekkt Helga síðan hann var ungl- ingur og má segja að við séum ald- ir upp saman og þó að eg færi úr héraðinu um fimmtán ára bil, slitnaði aldrei þráður vináttu og kunningsskapar, þó nokkuð togn- aði á honum um skeið, enda rann saman að nýju þegar eg flutti aft- ur í héraðið. Slxkt skeður varla nema þráðurinn sé upprunalega af góðum toga, enda er tryggð Helga til gamalla kunningja óbrigðul. Um störf Helga mun eg ekki ræða hér, til þess munu aðrir verða, en með þessum línum vildi eg aðeins votta honum persónu- Iega þakkir mínar (og sem eg veit að óteljandi margir munu vilja taka undir fyrir sína hönd) fyrir nær 50 ára óslitna vináttu og óteljandi skemmtilegar stundir, er við höfum átt saman fyrr og síðar, því að oft var glatt á hjalla, þar sem við vorum saman unglingar og einnig síðar, enda er Helgi síglað- ur og kátur. Getur hann og tekið sinn þátt í samræðum um ýmiss konar efni, því að hann er víða heima, þó ekki sé langskólageng- inn. Flestir, sem Helga þekkja, ljúka upp eiiíum munni um það, að hans líkar mættu vera miklu fleiri en til eru og mundi þá mannlíf allt batna að mun, frá því sem er. Það er því einlæg ósk þeirra hinna sömu, að Helga megi auðnast heilsa og starfskraftar enn um langan aldur og sem betur fer, bendir allt á, að þær óskir geti rætzt. Húsavík, 1. nóvember 1953. SiéarSur Egitsson. Garnaveiki í sauðfé á Hólsf jöllum í fréttabréfi til blaðsins frá Þor- steini bónda Sigurðssyni í Víðidal segir svo: — Garnaveiki hefur nú undan- farið herjað sauðfé okkar hér í Víðidal og Möðrudal, þó sérstak- lega hér í Víðidal þetta síðastliðna ár, er við höfum fargað og misst úr henni um 20 ær, sumar svo illa farnar, að ekkert hefur verið hægt að hirða af þeim. Nú í haust höfum við lógað öllu því fé', sem við sáum að auð- sætt var að var veikt. Og eru nú hér allar lambgimbrar settar á á þessum bæ og hafa þær verið bólusettar með lyfi frá Keldum. Verst hefur þó garnaveikin farið með tvö búin í Möðrudal undan- farin ár. Góður heyskapur. Heyskapartíð var hér fádæma góð og almennt heyjað vel, enda spretta með langbezta móti. Lítillega hefur snúizt til norð- anáttar hér í haust og þá með all- snörpum byljum, einkum tvisvar sinnum, en birt upp með blíðviðri strax á eftir. Nú er komið í aðra viku vetrar og aðeins að sést hrafl af snjó. BRAGGI óskast til leigu um lengri eða skemmri tíma. RAFVEITA AKUREYRAR. UpppJ)v°tta g r i 11 d 11 r Járn- og gleruörudeild. Myndara mmar Járn og glervörudeild. Reglustikur Járn- og gtervörudeild. Plast-búsáhöld Afar fjölbreytt úrval. Jdrn- og glervörudeild. Stílabækur 12 og 18 lína. REIKNINGSBÆKUR, rúðustrikaðar. Verð 1 króna. Járn- og glervörudeild. Skemmtiklúbbur Iðju verður n. k. sunnudagskvöld, í Alþýðuhúsinu, og hefst kl. 8.30 e. h. Spiluð verður félagsvist. — Þorleifur Þorleifsson stjórnar. Verðlaun veitt. DANS á eftir. Svanhvít Jósefsdóttir syng- ur með hljómsveitinni. Munið eftir skírteinum,spil- um og blýanti. Komið og skemmtið ykkur — hvergi meira fjör. STJÓRNIN.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.