Dagur - 11.11.1953, Blaðsíða 11

Dagur - 11.11.1953, Blaðsíða 11
Miðvikudaginn 11. nóvember 1953 D AGUR 11 ijr bœ off - FOKDREIFAR (Framhald af 6. síðu). margar frægar cg ágætar kvik- myndir verið sýndar við litla að- sókn, en sentimentalar miðlungs- myndir fyila húsin e t. v. kvöld eftir kvöld. Nærtækt dæmi mun vera nú á þessum vetri. Hér var sýnd einhver frægasta kvikmynd, sern Bretar hafa gert á seinni árum, „The Sound Barrier", við fremur litla aðsókn að eg held, aftur á móti mun þýzk miðlungsmynd og tæplega það (Eg heiti Niki) hafa hlotið mikla aðsókn. Svona gengur það stundum, enda er smekkurinn misjafn og ekki um það að fást. Myndaval kvikmyndahúsanna læt eg þvi afskiptalaust, Þau verða víst oft að taka við því, sem að þeim er rétt að sunnan. En það er tvennt, sem eg vil gagnrýna. í fyrsta lagi hléin. Þau ci'u óafsakanleg með öllu. í fyrra reyndu kvikmyndahúsaeigendur að ‘verja þau, en mistókst. Nefnt var að bíógestir vildu endilega fá sér frekst loft í miðri mynd, og áttu þeir þvi að vera ílíkir öllum bíó- gestum í öðrum löndum, þar sem þessi leiðindahlé þekkjast ekki. En þetta er aðeins fyrirsláttur. Hléin eru til þess að freista þess að selja sælgæti og tóbak og annað þess háttar. Þau eru gerð fyrir kvikmyndahúseigendur en ekki bíógesti. Eg sótti kvikmyndasýn- ingu í öðru bíóhúsinu hér eigi alls fyrir löngu. í húsinu voru 30—40 manns. Þeir máttu þola 10 mín- hlé á lélegri mynd, sem bezt hefði verið að ljúka af hið fyrsta. Loftið í húsinu var ágætt. Kannske hefur bíóið selt nokkra sælgætispoka, en þeir, sem sóttu sýninguna komust 10 mín seinna í rúmið en ella. Eg vil skora á kvikmyndahúsin hér að láta af þessum ósið, að hafa hlé á myndasýningum algerlega að óþörfu. Og eg vil leyfa mér að vænta þess að templarar gangi þar á undan. Til bíóreksturs þeirra eru gerðar meiri kröfur en annarra og eru þeir heldur ekkert of góðir lil þess að létta hléunum af almenn- ingi. Þau eru ekki fyrir hann gerð. SEINNA atriðið, sem eg vil gagnrýna, snýr að Nýja-Bíói. Eg held; að þörf sé orðin á því að sér- fræðingur athugi hljómútbúnað kvikmyndahússins. Eg fullyrði, að varla er unnt að fylgjast með mæltu máli í kvikmyndum þeim, sem þar eru sýndar. Og slikt er svo mikill galli, að eg held að það hljóti að borga sig fyrir kvik- myndahúsið að freista þess að koma þessu í lag, þótt jafnvel kosti ný tæki. Að svo mæltu læt eg þecsu spjalli lokið. Eg get gjarnan getið þess, að þessi gagnrýni er ekki sett fram af neinni hótfyndni eða illvilja í garð kvikmyndahúsa. Kvikmyndir eru góð og nauðsynleg skemmtun hér sem annars staðar. En þetta, sem að ofan er nefnt, eru tveir leiðir fylgifiskar okkar kvikmyndasýninga, sem unnt er að Xagfæra, ef vilji er til þess.“ SOKN, félag fravisóknarkvenna á Akureyri, hcldur fund á skrifst. flokks- ins, Hafnarsu'æti 93, næstkom- andi mánudagskvöld kl. 8.30. Félagskonur, mætið og takið iveð ykkur kaffi. STJÓRNIN. Óskilakind í haust var mér dreginn hvítur lambhrútur, hornóttur, mð mínu rnarki: Sílt bæði eyru og biti franran hægra. Lamb þetta á ég ekki. Réttur eigandi vitji þess sem fyrst, sanni eign- arrétt og greiði áfallinn ltostn- að. Þóroddur Sæmundsson, Vökuvöllum við Akureyri. Drengjaföt ný á 13 ára dreng til sölu í Efnalaugin Skírnir. Hnakkur og beizli til sölu — sem nýtt. Verð kr. 800.00. Ennfremur KJÓLFÖT m. tilheyrandi. Tækifærisverð. Afgr. vísar á. Raftækjaverzlun Eg undirritaður opna raf- tækjaverzlun á morgun í Brekkugötu 3. Sími 1258. Gjörið svo vel að reyna viðskiptin. Viktor Kristjánsson, rafvirkjameistari. Þjóðvarnaliðar stofna flokksfélag Þjóðvarnarliðar hafa stofnað flokksfélag hér í bæ. Kom Valdi- mar Jóhannsson bókaútgefandi í Reykjavík þeirra erinda hingað norður um sl. mánaðamót og var félagið stofnað sl. föstudag. Munu um 20 manns liafa gengið í félag þetta á stofnfundi. Stjórn skipa: Kristófer Vilhjálmsson, form., Marteinn Sigurðsson, varaform., Unnur Áskelsdóttir, ritari, Björn Halldórsson, gjaldkeri, meðstjórn- endur eru Bjarni Arason, Friðrik Adolfsson og Þorsteinn Jónsson. Varamenn: Kristín Isfeld og Aðal- steinn Guðnason. í gær kom út blað, sem flokkurinn gefur út, og kallast Norðanfari (hinn 3. í röð- inni með því nafni) og er Bjarni Arason ábyrgðarmaður. — Heyrzt hefur að félagið hyggist bjóða fram við bæjarstjórnarkosningar. - Úr erlendum blöðum (Framhald af 7. síðu). um érum gert mikið til þess að kynna fulltrúum á Alþýðusam- bandsþinginu ýmsa nýja þætti í starfi samvinnuhreyfingarinnar, og ennfremur að kynna þeim ýmis ný viðhorf, seni skapast hafa. Til dæmis voru fulltrúarnir minntir á það á næst síðasta Alþýðusam- bandsþingi, að ef vissir áætlana- smiðir jafnaðarmanna hefðu feng- ið vilja sínum framgengt í tíð Verkamannaflokksstjórnarinnar um að þjóðnýta smásöluvezlunina, mundi íhaldsstjórnin, sem nú situr að völdum, standa í því í dag að selja einkafyrirtækjum verzlanir samvinnufélaganna, eftir að þjóð- nýtingin hefði verið afnumin. Á nýloknu þingi voru þeir minnt- ir á þá staðreynd, að nú, eftir að eftirlits- og haftaskipan ríkisins hefur að mestu verið afnumin, hef- ur samvinnuhrejdingin ein tekið að sér það hlutverk ,að standa á verði fyrir hagsmuni neytenda. Og á það var líka bent, að æskilegt væri, að félagar verkalýðshreyfingarinnar tækju aukinn þátt í að móta stefnu samvinnuhreyfingarinnar nú og í framtíðinni. Allt er þetta skyn- samlega hugsað, enda eru kaup- félögin skipulögð til þess að taka tillit til vilja allra félagsmannanna. Aukin þátttaka veraklýðshreyfing- arinnar í starfi samvinnufélaganna mundi opna tækifæri til stórauk- inna áhrifa á efnahagslegt, félags- legt og pólitískt líf þjóðarinnar. SAMVINNUHREYFINGIN er raunhæft tæki til efnahagslegs lýð- ræðis og hún þarfnast velvilja og stuðnings þeirra milljóna, sem standa að verkalýðshreyfingunni, til þess að þeir komi fram með sína gagnrýni og sínar hugmyndir, taki þátt í stjórn og starfi sem virkir samvinnumenn. Margir af áhrifa- mönnum Verkamannaflokksins og verkalýðshreyfingarinnar fengu fyrstu tækifærin til þess að læra í skóla reynslunnar einmitt í félags- starfi kaupfélaganna og enn í dag er ekki völ á betri skólum fyrir starfsmenn hins efnahagslega lýð- ræðisskipulags framtíðarinnar. . . (Lausl. þýtt). MÓÐIR, KONA, MEYJA (Framhald af 6. síðu). Síðasta flíkin er svartur taft- kjóll, með grænum röndum og grænum undirkjól og jakka. — Verðið er samtals kr. 815.00.“ AÐ SÝNINGUNNI lokinni færði frú Gunnhildur Ryel, for- ir hönd áhorfenda, frk. Margrétu Steingimsdóttur beztu þakkir fyrir sýninguna og árnaði fyrirtæki hennar allra heilla, sömuleiðis þakkaði hún ungu stúlkunum, sem fram komu, þeirra ágæta skerf til þess að gera daginn ánægjulegan. Tóku áhorfendur undir með lófa- taki. AÐRIR AÐILAR, sem lögðu hönd að verki að gera sýninguna sem bezt úr garði, eru: Frk. María Sigurðardóttir, sem annaðist hár- greiðslu, frk. Valborg Ryel, sem sá um snyrtingu og Blómabúð KEA, sem lagði til blómvönd við brúðar- kjólinn. Þá voru hattar frá Hatta- búð Soffíu Pálmadóttur í Rvík. I. O. O. F. — Rbst. 2—1021U18y2 I. O. O. F. = 135111381/2 = □ Rún 595310117 = 2 Kirkjan. Messað á Akureyri næstk. sunnudag kl. 2 e. h. — F. J. R. ©Æskulýðsfélag Ak- ureyrarkirkju. — Fundur drengja kl 5 e. h. í kapell- unni. Þeir, sem eiga eftir að fá aðgöngumiða að árshátíð félagsins, geta fengið miðana á fundinum. Sunnudagaskóli Akureyrar- kirkju er á sunnudaginn kemur kl. 10,30. 5—6 ára börn í kapell- unni, 7—13 ára börn í kirkjunni. Bekkjarstjórar mæti kl. 10,10. — Æskulýðsblaðið kemur út. Afmælisfagnaður Skógræktar- félags Tjarnargerðis verður í Al- þýðuhúsinu 14. þ. m. kl. 8.30. Áheit á Strandarkirkju. Kr. 50 frá Á, E. — Mótt. á afgr. Dags. Hjúskapur. 18. október voru gefin saman í hjónaband í Laufási ungfrú Arnbjörg Benediktsdóttir, Grenivík, og Þórlaugur Gunn- laugsson, sjóm., sama stað. — Séra Þorv. G. Þormar gaf brúð- hjónin saman. Strandarkirkja. Gamalt áheit kr .100 frá Þ. Ö. — Kr. 20 frá ónefndum. — Kr. 400 frá B. — Kr. 50 frá ónefndum. — Mótt. á afgr. Dags. Hjúskapur. Ungfrú Fjóla Hjaltalín, Akureyri og Randver Karlesson, frá Hlíðarhaga í Eyja- firði. Gift 6. nóv. af séra Fr. J. Rafnar vígslubiskupi. — Heimili þeirra er í Norðurgötu 35, Ak. Kirkjugifting. Þann 8. nóv. sl. voru gefin saman í hjónaband í Akureyrarkirkju ungfrú Svava Friðjónsdóttir, Bjarmastíg 13, og Sigurður Jósefsson, bóndi að Torfufelli í Eyjafirði. — Heimili þeirra verður í Torfufelli. Slökkvilið bæjarins hafði æf- ingu hér í bænum sl. miðviku- dag. Ok slökkviliðið á tveimur bílum og með allan útbúnað að húsi í innbænum, reisti þar upp stiga og reyndi annan út- búnað. Þyrptist fólk að til að horfa á og var öllum ekki ljóst strax, að um æfingu var að ræða. Lakast var þó, að íbúar hússins, sem valið var, vissu almennt ekki um æfinguna og hefur blaðið verið beðið að benda hlutaðeigendum á það i allri vinsemd, að sjálfsagt sé að láta viðkomandi fólk vita, hvað í vændum er áður en æf- ing hefst, t. d. vegna sjúklinga, sem vera kynnu í húsum þess- um. Sjötug varð 7. þ. mán. Sigrún Sigurðardóttir, ekkja Halldórs heit. Halldórssonar, fyrrum stýri- manns á Hjalteyri. Sigrún var orðlögð dugnaðarkona, en missti sjónina fyrr nokkrum árum. Hún dvelst á Hjalteyri hjá sonum sín- um, Sigurði og Ragnari. Sjötugsafmæli eiga í dag, 11. nóv., tvíburasytkinin Albína Pét- ursdóttir kona Jóns St. Melstað, bónda á Hallgilsstöðum í Hörg- árdal, og Randver frá Svertings- stöðum. I. O. G. T. Stúkan ísafold- Fjallkonan heldur fund næstk, mánudag kl. 8,30 í Skjaldborg. — Venjuleg aðalfundarstörf. Hag- nefndaratriði. Nýir félagar vel- komnir. Heimilisiðnaðarfélag Norðurl. byrjar mánaðar bókbandsnám- skeið á næstunni. Kennari Þór- arinn Loftsson. Upplýsingar í símum 1488 og 1026. Áheit á Grenjaðarstaðakirkju. Kr 50 frá Á. K. — Kr. 20 frá ónefndum. — Beztu þakkir. Ásm. Kristjánsson. Áheit á nýja sjúkrahúsið. Kr. 10 frá E. H. — Mótt. á afgr. Dags.. Hjúskapur. Laugardaginn 7. nóv. voru gefin saman í hjóna- band á Möðruvöllum í Hörgárdal ungfrú Sigrún Ragnarsdóttir frá Hjalteyri og Haukur Óli Þor- bjömsson, bifreiðastjóri, Brekku- götu 43, Akureyri. í göngum í haust fékk Jónas bóndi Sigurðsson á Guðrúnar- stöðum í Eyjafirði tvílembinga af fjalli, er vógu við fráfall 23 og 21 kg. hvor. Voru þetta hvort tveggja hrútlömb. Ærin var einlembd í fyrra og var dilkurinn þá 24 kg. 65 ára varð 9. þ. m. Magnús Vilmundarson, Norðurgötu 30, Akureyri. Kanttspyrnufél. Ak. hefur félagsvist og dans fyrir unglinga 12 —16 ára kl. 3 e. h. n.k. sunnudag, þann 15. nóvember. — Nánar í götuaugl. Stjómin. Sjötugur verður á morgun Jónatan M. Jónatansson, skó- I smíðameistari, Glerárgötu 6, Ak- " ureyri. Fimmtugúr verður 14. þ. m. Björn Magnússon, Aðalstræti 4, Akureyri. Litmyndir frá Róm, Grikklandi og Kýpur, skýrðár með stuttu ferðasöguágripi, verða sýndar á Sjónarhæð frá kl. 5 til 5,30 á und- an samkomunni n.k. sunnudag. Ókeypis. Allir velkomnir. Kvennasamkoma á Sjónarhæð á miðvikudagskvöldum kl. 8.50. Samkoma fyrr ungar stúkur kl. 6 á fimmtudagskvöldum, og sam- koma fyrir drengi á laugardögum k. 5.30. — Sjónarhæð. Áheit á Strandarkirkju. N. N., Svarfaðardal, kr. 100. — S., Dal- vík, kr 10. — S., Dalvíli, kr. 5. — M. H., Dalvík, kr. 20. — Y. H. kr. 100. — B. A. kr. 100. — N. N., Dalvík, kr. 50. Mótt. á afgr. Dags. Frá Karlakór Akureyrar. Æf- ing í kvöld (miðvikudag) á venjulegum stað og tíma. Félag- ar, mætið stundvíslega. Stjórnin. Beztu þakkir flyt eg eftirtöld- um bókaútgefendum og einstakl- ingum, sem gefið hafa bækur í bókasafn Æskulýðsheimils templ ara á Akureyri: Barnablaðið „Æskan“, Reykjavík, Þorsteinn M. Jónsson bókaútgefandi, Akur- eyri, Árna Bjarnarson, bóksali, Akureyri, Bókaúgáfa Máls og menningar, Reykjavík, Kristján S. Sigurðsson kirkjuvörður, Ak- ureyri, Halldór Friðjónsson, fyrr- verandi ritstjóri, Akureyri. Akureyri 6. nóv. 1953. F. h. Æskulýðsheimilis templara. Eiríkur Sigurðsson. Skemmtiklúbbur templara held- ur skemmtikvöld sitt að Varðbqrg föstudaginn 13. þ. m. kl. 8.30. Til skemmtunar: Félagsvist og dans.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.