Dagur - 23.06.1954, Page 1
GERIST ÁSKRIFENDUR!
Sími 1166.
Dagur
ÁSKRIFTARSÍMI
blaðsins er 1166. Gerizt
áskrifendur!
XXXVII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 23. júní 1954
29. tbl.
í Ákureyri 17. Jíení
Glæsileg hátíðahöld fóru fram
á Akureyri á 10 ára afmæli full-
veldisins. Þátttaka meiri en
nokkurn tíma áður. Bærinn fán-
um skrýddur. Þessi hátíðahöld
munu verða minnisstæð og Akur-
eyrarbæ til sóma.
Klukkan 8 á fimmtudagsmorg-
uninn 17. júní voru fánar dregn-
ir að hún um gjörvallan bæinn.
Margs konar skreytingar og lag-
færingar höfðu farið fram dagana
fyrir hátíðahöldin. Strax um
morguninn var auðséð að hér átti
að halda hátíð og það stórhátíð.
Veður var hið fegursta. Kl. 9
þennan fagra morgun voru menn
minntir á hátíðina með nokkuð
sérstökum hætti. Skreyttur bíll
ók um götur bæjarins með hljóm-
sveit. Var þetta vel til fundið og
minnti bæjarbúa á þátttöku og
kom mönnum í gott skap.
Þá var gengið til kirkju og
hlýtt messu séra Björns O.
Björnssonar.
Eftir hádegi lék Lúðrasveit
Akureyrar á Ráðhústorgi undir
stjórn Jakobs Tryggvasonar og
þá tóku menn að safnast saman
til skrúðgöngunnar.
Skrúðgangan fjölmenn.
Skrúðgangan, sem lagði af stað
Fjársöfnunin til fólks-
ins á Sandhólum
Fjársöfnunin til fólksins á
Sandhólum stendur nú yfir og
hafa þegar safnazt allt að 50 þús-
und krónur. Daglega berast
stórar gjafir.
frá Ráðhústorgi kl. tæplega 2 var
sú fjölmennasta sem hér hefur
sést. Hélt hún upp á hátíða-
svæðið sunnan við sundlaugina.
Lúðrasveitin lék fyrir göngunni.
Virðuleg samkoma á
hátíðasvæðinu.
Um kl. 2,15 fór fram fánahyll-
ing og karlakórar bæjarins,
Geysir og Karlakór Akureyrar
sungu undir stjórn þeirra Árna
Ingimundarsonar og Áskels Jóns-
sonar og Lúðrasveitin, undir
stjórn Jakobs Tryggvasonar, lék
nokkur lög.
Formaður Þjóðhátíðarnefndar,
Jón Norðfjörð leikari, setti sam-
komuna með ræðu. Síðan flutti
Fjallkonan, frú Sigríður Matthí-
asdóttir, ávarp eftir Stefán Ág.
(Framhald á 7. síðu).
ianum a AKureyri sagt upp a
ióShálsSard. 35 sfúdenfar braufskráðir
Fjórðungsfundur Fram-
sóknarflokksins hald-
inn á Akureyri
Fjórðungsfundur Framsóknar-
flokltsins verður haldinn á Akur-
eyri sunnudaginn 4. júlí næstk.
Ilefst í Samkomuhúsinu kl. 2
síðdegis. Á fundinum mæta
Steingrímur Steinþórsson land-
búnaðarráðherra og dr. Kristinn
Guðmundsson utanríkisráðherra.
Þess er fastlega vænzt að sem
allra flestir flokksmenn mæti.
Einkaskeyti til Ðags
trá Prag
Eftir 16. umferð á skákmót-
inu er Pachman efstur með
12V2 vinning, næstur er Szabo
með 12, þriðji Sliwa með 11, þá
Stáhlberg með 10% og svo
næstir lionum Friðrik og Dr.
Filip með 10 vinninga.
Guðmundur 6V2. — G. P.
Verður Iðnaðarbanki
stöfnaður á Akureyri
Á aðalfundi Iðnaðarbankans,
sem haldinn var fyrir skömmu í
Reykjavík, kom það fram að fyr-
irhugað er að stofna útibú frá
bankanum hér á Akureyri. Eiga 3
milljónir af væntanlegu ríkisfé að
ganga til þessa útibús.
Hús yfir útibú bankans á
Keflavíkurflugvelli er nú að
verða tilbúið og tekur væntan-
lega til starfa innan skamms.
Formaður bankaráðs er Páll S.
Pálsson. Bankastjóri er Helgi
Hermann Eiríksson.
„Fyrsta skylda hvers manns er að vera á verði
gegn sjálfum sér í öígafullum heimi.“ -
„Varðveitið frelsi hugans.“
Hálfri annarri stundu fyrir há-
degi þann 17. júní hófst hátíðleg
athöfn í Menntaskólanum á Ak-
ureyri. Hátíðasalur skólans var
þétt setinn gestum, kennurum og
ungum og gömlum nemendum.
Þórarinn Björnsson, skóla-
meistari, hóf ræðu sína á því að
bjóða velkomna foreldra nem-
enda. Einnig bauð hann vel-
komna tvo fulltrúa 25 ára stú-
denta og allmarga 10 ára stú-
denta, sömuleiðis tvogamlakenn-
ara skólans, er viðstaddir væru,
þá Lárus Rist og Vernharð Þor-
steinsson.
Skýrsla um skólann og starfið.
Þessu næst greindi skólameist-
ari frá ýmsu því helzta viðvíkj-
andi skólastarfinu.
Þetta skólaár var 74. starfsárið
frá stofnun Möðruvallaskóla, en
27. árið frá stofnun menntaskóla.
Nemendur voru 247, þar af 69
í miðskóladeild, en 178 í hinum
eiginlega menntaskóla. Stúlkur
voru alls 82 eða þriðjungur, og
fer þeim árlega fjölgandi. í
heimavist bjuggu 131, þar af að-
eins rúmir 40 í gamla húsinu.
Próf í skólanum.
Undir landspróf gengu 32 og
fengu 16 þeirra framhaldseink-
unn. Hæstur þeirra var Harald-
ur Sveinbjörnsson af Ströndum
með 8,94.
Undir .stúdentspróf gengu
óvenju fáir, aðeins 35, og stafar
fæðin af þeirri breytingu, sem
gerð var á skólanum, er hann
varð 4 vetra menntaskóli. Lang-
hæsta prófið tók Sveinn Jónsson,
Akureyri, úr stærðfræðideild, ág.
eink. 9,54. Er þetta mjög mikið
námsafrek og hæsta stúdents-
px-ófið á landinu á þessu ári. Lét
skólameistai-i vel af stúdentun-
um öllum. Væru þeir skyldu-
ræknir og hollir menn í hvívetna.
Skóla- og félagslíf.
Félagslíf var venjulegt. Þi-ótt-
mesta starfið var hjá íþrótta-
félaginu. Nýjungar voi-u bók-
menntakynningar nokkrar og efl-
ing bókasafns skólans, að frum-
kvæði nernenda.
Heilsufar var fi-emur gott, eink-
um voi-u kennarar við hesta-
heilsu.
Vertu sæll, mínus!
Þórarinn, skólameistari, gat
þess, að nú væri í fyi-sta sinn á
stúdentsprófi gefið eftir einkunna
stiganum frá 0—10, og væri nú
Orstedskerfið úr sögunni og þar
með mínusamir. Ekki taldi hann
nýja kerfið til bóta. Einkunnir
gamla kerfisins hefði verið hægt
að segja með orðum og þær hefðu
talað skýru máli, en einkunnir
eftir þessu nýja kerfi væru svo
mai-gar, að mannlegt skyn næði
ekki að greina þar á milli, og yfir
þær næðu engin 01-ð.
„Úr háreistum burstunum má
lesa stórhug aklamótaáranna.“
Hoi-nsteinninn að húsi skólans
var lagður 4. júní 1904, og stend-
ur það því á fimmtugu. Sagði
skólameistari, að enn teldu marg-
ir Menntaskólahúsið vera feg-
urstu byggingu bæjai-ins, og
staðai-valið hefði ekki getað tekizt
betur. Rómaði hann mjög útsýnið
yfir á „fagurskyggðan Pollinn og
hina línumjúku og litaþýðu
VaðÍaheiði.“
(Framhald á 8. síðu).
Forseti íslands, herra Ásgcir
Ásgeirsson, og forsetafrúin, frú
Dóra Þórhallsdóttir, munu koma
til bæjarins í opinbera heimsókn
á sunnudaginn kemur. Verður
forsetaritai-i, Henrik Sv. Björns-
son, í fylgd með þeim. Koma þau
landleiðina að sunnan, og kl. 4 e.
h. verður móttökuathöfn í Lysti-
garðinum. Þar leikur Lúðrasveit-
in og karlakórar bæjax-ins syngja,
en forseti bæjarstjórnar, Þoi-st.
M. Jónsson, ávarpar heiðursgest-
Kemur fyrst Megað til bæjarins á
sunnudaginn, en næstu daga mun
hann heimsækja sýslubáa
ina. Um kvöldið verður þeim
haldið samsæti að Hótel KEA.
Á mánudag fara svo forseta-
hjónin fram í Eyjafjörð, og verður
móttökuathöfn að Laugalands-
skóla kl. 4 e. h.
Á þriðjudag verða þau að Ár-
skógsskóla, einnig kl. 4 e. h.
Að morgni miðvikudags er bú-
izt við því að forseti og frú hans
fari sjóleiðis til Ólafsfjarðar, og
svo þaðan til Siglufjarðai-.
Frá norrænu sund-
keppninni
Ákveðið hefur verið að keppni
fai-i fram milli Reykjavíkur, Ak-.
ureyrar og Hafnarfjarðar í sam-
bandi við sundkeppnina, þannig,
að sá aðili, sem fær hæsta %
tölu þátttakenda í norrænu sund-
keppninni fái sérstakan verð-
launagrip, er gefinn mun vei'ða
af Sundráði Reykjavíkur eða að
tilhlutan þess. Þess er að vænta
að Akureyringar liggi ekki á
liði sínu, jafnvel þó að þeir telji
ekki miklar líkur fyrir, að sigur-
inn falli þeim í hlut.