Dagur - 23.06.1954, Page 4
4
D A G U R
Miðvikudaginn 23. júní 1954
DAGUR
Ritstjóri: HAUKUR SNORRASON.
Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta:
Erlingur Davíðsson.
Skrifstofa í Hafnarstræti 88. — Sími 1166.
Blaðið kemur út á hverjum miðvikudegi.
Árgangurinn kostar kr. 50.00.
Gjalddagi er 1. júlí.
L
Prentverk Odds Björmsonar h.f.
17.
i '■] /
t c 'j r ' f:; xt' n v
UM LEIÐ og við fögnum 10 ára afmæli hins ís-
lenzka lýðveldis vérðum ’við að lita um öxl og leiða
hugann að þeirri löngu sögu, er gerir okkur, á
þessu merkisafmæli, fært að halda hátíð.
Undanfarin ár og áratugi höfum við tæpast haft
tíma til að horfa til baka. Okkur er farið eins og
þeim er hlaupa kapphlaup, að við einbeitum hug
anum að marki. En við mark nemum við staðar.
Sigurgleði hrærði hug og hjarta hvers einasta ís
lendinga 17. júní 1944. 1 dag á fullnaðarsigur ís-
lenzkrar frelsisbaráttu 10 ára afmæli. Þetta af-
mæli er að því leyti gleðilegt öllu öðru fremur, að
hvers konar menning og alhliða framfarir hafa
þróazt með vaxandi hraða, jafnhliða því aukna
frelsi, sem náðst hefur í áföngum. Það sýnir að
írelsið er fjöregg þjóðarinnar.
Eins ljóst og þetta er í dag fyrir allra augum,
mætti hitt líka vera ljóst, að þess skuli minnzt með
virðingu og þakklátum hug, að brautryðjendurnir
í frelsisbaráttunni hafa verið miklir sjáendur. Við
vantrú og vonleysi þjakaðrar þjóðar háðu þeir
foaráttuna bæði inn á við og út á við. Hugsjónir
Jóns Sigurðssonar og stjórnmálasnilli, ásamt
glæsimennsku hans og atorku, gera hann að hetju
dagsins meðan við fögnum frelsi á afmælisdegi
hans. Og þakka ber þeim hetjum öllum er börðust
fyrir þjóðina bæði fyrr og síðar. Það þarf hetju-
lund til að berjast fyrir frelsi og fullveldi þjóðar,
sem hvað efti rannað hefur verið nær hungur
dauða og hefur sokkið svo djúpt, að nærri lá að
nágrannaþjóð flytti hvert mannsbarn af landi
burt. Mörg nöfn eru skráð. Hin eru þó fleiri, sem
eru gleymd. Það eru nöfn þeirra óteljandi manna
og kvenna, sem voru hetjur hins hversdagslega
lífs. Stofninn góði er upphaflega byggði þetta land.
ÁÐUR EN ÞEIR íslendingar, sem nú eru á góð-
um aldri, höfðu slitið barnsskónum, var stærstu
steinunum rutt úr vegi í frelsisbaráttunni. Það er
því hætt við að fjöreggið, sem okkur var lagt í
lófa, verði okkur ekki jafn kært eða metið að
verðleikum og vert er. Það er okkar, hv.ers ein-
asta íslendings, hvar sem við vinnum og hvert
starf sem við vinnum, að leggja í það orku og
drengskap. Okkar vegna skulum við gera það.
Þjóðarinnar vegna skulum við gera það. Þá fúnar
ekki sá sterki stofn er við rekjum ættir til og við
getum lifað menningarlífi um ókomna framtíð.
Segja má að fyrstu 10 ára sagan séu bernskuár
íýðveldisins. Enn er of snemmt að leggja dóm á
bað brot sögunnar. En á þessu tímabili hafa stór-
viðburðir orðið í efnahags- og atvinnulífi þjóðar-
: nnar. Aldrei fyrr hefur orðið gjörbylting í land-
búnaðarmálunum. Nú er hann að verða mikils
:netinn á ný, eftir að hafa verið settur hjá á svo-
kölluðum „nýsköpunarárum“. Hin skammvinna
auðlegð nýsköpunnaráranna blindaði svo stjórn-
j.nálaleiðtoga okkar, að þeir gleymdu þeirri stað-
:*eynd að engin þjóð hefur komizt klakklaust yfir
þá þjóðlífsbreytingu, sem fylgir því ef bænda-
bjóð á allt í einu að hætta að lifa í landinu.
\\
NÚ ER HAFIN stóriðja í þágu landbúnaðarins.
,’Fallvötn eru vh'kjuð, stórvirkar landbúnaðarvél-
ar, sem enginn hafði séð fyrir fápm árum, eru
að verki í hverri sveit. Nýbýlin eru skemmtilegt
tákn um stöðvun þeirra þjóðfé-
lagsbreytinga er nýsköpunar-
stjórnin var að leiða yfir þjóðina.
Stjórnarþátttaka Framsóknar-
flokksins 1947 er samofin þessum
straumhvörfum.
ÞRÁTT FYRIR þá skugga, sem
hvíla yfir samskiptum þjóða bæði
í austri og vestri, munum við þó
vera bjartsýnni á framtíðina en
nokkru sinni fyrr. Til þess höfum
við Iíka fullan rétt, því að segja
má að hornsteinninn sé lagður.
Eyfirðingar og austur-takmörk
Eyjafjarðarsýslu.
Á SÍÐASTA aðalfundi KEA
var minnzt lítillega á Laufásbæ-
inn J sambandi við minjasafn og
endurbyggingu þessara bæjar-
húsa ,annað hvort þar, sem þau
eru, eða annars staðar. Sumum
hefur dottið í hug að flytja bæinn
inn til Akureyrar og endurreisa
hann þar, því að flestir munu
hallast að því að minjasafnið
verði staðsett í höfuðstað hér-
aðsins.
Undir þessum umræðum kom
fram rödd um það, að ólíklega
myndu Þingeyingar verða fúsir
til að láta Laufásbæ af höndum
við Eyfirðinga, því að bærinn
væri þingeyskur, en ekki ey-
firzkur. Þá kom í hug minn sú
spurn, hverjir væru Eyfirðingar
og hverjir ekki. Eyjafjarðarsýsla
er að vísu svo til öll vestan fjarð-
ar, en eru þá engir aðrir Eyfirð-
ingar, nema íbúar þeirrar sýslu?
Nær ekki hugtakið Eyfirðingur
yfir alla þá, sem við fjörðinn búa,
ásamt íbúum dalanna, sem grein-
ast út frá honum (Fnjóskadalur
þó ekki meðtalinn, nema Dals-
mynnið)? Hvað segja Svalbarðs-
ströndungar og Höfðhverfingar?
Telja þeir sig ekki fremur Ey-
firðinga, en Þingeyinga? Eru þeir
ekki um verzlun og samgöngur,
atvinnuhætti og ýmjs félagsmál
óhjákvæmilega tengdir Akureyri
og Eyjafirði? Og hví skyldu ekki
bæimir, sem standa á bökkum
Eyjafjarðar (svo sem Láufás),
fremur teljast til hans, heldur en
eyju, sem er austur í Skjálfanda-
fljóti?
Ekki er mér fullkunnugt, hve
gamall sá háttur er, að hafa
sýslutakmörkin við Varðgjá, en
ekki blandast mér hugur um,
hvar hin eðlilegu takmörk eru.
Hvers vegna ekki að færa þessa
merkjalínu austur á Vaðlaheiði?
Eins og hún er minnir hún á ein-
okun Dana á íslandi og hina ill-
ræmdu skiptingu landsins í
verzlunarhéruð. Að visu geta nú
þeir, sem búa gegnt Akureyri,
óhindrað keypt sínar lífsnauð-
synjar þar, og haft þar flest þau
viðskipti, sem þeir óska, en laga-
legt yfirvald þeirra (sýslumaður
Þingeyinga) situr á Húsavík, og
sumir munu telja, að þeir séu
neyddir til að telja sig Þingey-
inga, þótt þeir búi við Eyjafjörð.
Nú vil eg ekki láta skilja orð
mín svo, að eg meti það (út af!
fyrir sig) til einhverra neyðar-
kjara, að verða að teljast Þingey-
ingur. Fjarri fer því. En ef til
reipdráttar kæmi um Laufásbæ-
inn, vegna þess ,að hann sé þing-
eyskur, þá tel eg óhjákvæmilegt
að færa sýslumörkin, þvi að öðr-
um kosti gæti svo farið, að hinn
þingeyski Laufás yrði fluttur til
Húsavíkur, en það væri að færa
skörina upp í bekkinn!
Þegar Helgi hinn magri nam
land og gerðist héraðs- og ættar-
höfðingi við Eyjafjörð, var hann
ekki í vafa um takmörkin. Land-
nám hans náði frá Siglunesi til
Reynisness, og þó að enginn geti
með fullri vissu sagt hvar Reyn-
isnes er, hefur aldrei verið dreg-
ið í efa, að það væri yzt á Gjögra-
skaga. Landnám Helga magra var
báðum megin fjarðarins. Innan
þess ramma eru allir réttnefndir
Eyfirðingar, og í samræmi við
það ættu sýslutakmörkin að vera.
J. Ó. Sæmundsson.
FLEIRI EN einn borgari hafa
komið að máli við blaðið og
kvartað undan því að saúðfé
gangi nú laust í bænum. Hafa roll
ur farið inn á lóðir manna að
undanförnu og skemmt gróður.
Dagur vísar umkvörtun þessari
til réttra aðila og finnst sjálfsagt
að hún sé tekin til greína.
Verzlunarmaður skrifar:
„í TÍMANUM er nýlega skrif-
að um gluggaskreytingar á þjóð-
hátíðardaginn, þ. e. myndir Jóns
Sigurðssonar, og fyrrverandi og
núverandi forseta íslands. Eg er
honum sammála um það, að
óhæft var að sleppa myndinni af
Jóni, en bhta myndir af hinum
tveim. En mér finnst gæta mikils
misskilnings hjá greinarhöfundi,
þegar hann er að fara í mann-
jöfnuð. Þegar birtar eru undir
slíkum kringumstæðum myndir
af fyrsta forseta fslands og hinum
núverandi við hlið Jóns Sigurðs-
sonar, er verið að sýna virðingu
æðsta embætti ríkisins, æðsta
tákninu, en ekki verið að hossa
persónum né sýna Jóni Sigurðs-
syni virðingarleysi."
Jón skrifar:
„KOMMÚNISTAR við frétta-
þjónustu Ríkisútvarpsins, ef
nokkrir væru, ofansjávarpramm-
ar eða kafbátar, ættu býsna auð-
velt með að vinna máli sínu lið,
svo að lítið bæri á. Hér skulu
nefnd dæmi.
1. Þeir myndu vanda sig við
orðaval, er þeir þýða fregnir úr
erl. málum. Orð geta haft áróð-
ursgildi, þó að sakleysisleg séu.
Stjórn Kommúnista í Kína er
kölluð í enskum fréttum The
peoples government. Rétta þýð-
ingin á þessu er þjóðarstjórn, en
það myndu þeir ekki hafa svo,
heldur alþýðustjórn. Þannig
gætu þeir hagrætt mörgu, ef vilj-
inn væri fyrir hendi.
2. Þeir velja úr fréttir frá Ósló
og Stokkhólmi, en það er ekki
sama hverjar eru teknar og
hverjum sleppt.
3. Sumar fregnir eru lesnar að-
eins einu sinni, sumt er lesið
tvisvar á dag, sumt þrisvar. Sú
frétt, sem lesin er þrisvar hefur
að öðru jöfnu meira áróðursgildi
en sú, sem lesin er einu sinni. Það
er ekki sama, hvernig þessu er
skipt niður.
Glöggir menn, sem hlusta á
erl. stöðvar, ættu að hlusta vel á
fréttaflutning Ríkisútvarpsins sér
til umþenkingar og sálubótar.
NÚ I KVÖLD (mánud.kvöld)
hlustaði ég á þýðingu útvarpsins
á svari Edens við fyrirspurn
Atlee og fleiri út af Guatemala.
Svo vel vildi til, að ég hlustaði
á brezka útvarpið í dag. Eden
sagði m. a. eitthvað á þá leið, að
svona atburðir (þ. e. það, sem nú
gerist í Guatemala) væru ekki
neitt einsdæmi í Mið-Ameríku.
Þessu var sleppt úr hér. Hver
ætli hafi verið þýðandinn?
Haukur Snorrason:
Á 10 ára afmæli lausnar
Parísarborgar eru ytri merki
stríðsins horfin - en
París í júní. — Þegar leiðsögumenn, sem fylgja
ferðamönnum um París nú á þessu sumri, koma að
torginu við Notre Dame-dómkirkjuna, minna þeir
gjarnan á að rétt 10 ár eru liðin síðan byssukúlur
hvinu í lofti í milli sandpokavirkja Þjóðverja á
Dessum stað og staðnæmHust á veggjum kirkjunnar.
í ágúst 1944 skundaði de Gaulle hershöfðingi inn
á þetta torg og gaf þar til kynna, að hernám Parísar
af Þjóðverja hendi væri lokið, en nýtt tímabil frels-
is og friðar hafið. f dag sjást engin merki um
kúlnaskothríðina við Notre Dame, né heldur sand-
pokavirki, og yfirleitt sjást engin ytri merki heims-
styrj aldarinnar lengur í París. Parísarbúar hafa
afmáð þau öll og þeim hefur aftur tekizt að gera
sína ástkæru höfuðborg að miðstöð listanna,
skemmtananna, tízkunnar og sælkeranna — og
jafnvel einnig pólitískan miðdepil Evrópu. — París
sjálf hefur ekkert yngzt á þessum 10 árum, og yfir-
lit hennar er harla gamallegt í augum þeirra, sem
líta stræti hennar og torg í fyrsta sinn. En Parísar-
búar kunna ýmis brögð til að sýna ýmis svipmót
borgarinnar. Á þessu sumri uppljóma þeir Sigur-
bogann og Invalides-minningakirkjuna og marga
fleiri merka staði á kvöldum, og í Versölum er æv-
intýraljómi látinn stíga fram úr myrkri horfinna
tíða með fjölforeytilegri ljósadýrð. En þótt merki
stríðsins og þess umróts, er það hratt af stað, sjáist
ekki á götum Parísar, þarf ekki að skyggnast djúpt
til þess að verða þess var. í því efni eru blöðin
skuggsjá tímanna. Þar koma fram þær hræringar,
sem dyljast ferðamanni, sem leiðsögumaður fylgir
inn á Notre Dame torg eða til annarra merkisstaða.
-----o------
Á síðustu mánuðum hafa geysað svo harðar deil-
ur í Frakklandi, að sumir telja að fara verði aftur
til Dreyfus-málsins til þess að finna hliðstæðu jafn
heitra umræðna i frönsku stjórnmálalífi. Þetta eru
deilurnar um Evrópuherinn. Þegar kommúnistar
eru undanskildir, hafa allir stjórnmálaflokkar
landsins klofnað í stærri eða smærri einingar í
þessu máli. Útlendingar furða sig á því, að jafnein-
falt mál skuli vera þvílíkt hitamál meðal andstæð-
inga kommúnismans, en það mun staðreynd — og
hún ekki óskiljanleg — að spurningin um endur-
vopnun Þýzkalands hefur orðið til þess að eitra
sambúð Þjóðverja og Frakka fremur en nokkuð
annað mál á dagskrá síðan í stríðslok. Það hefur
farið í taugarnar á Frökkum að Bandaríkjastjórn
hefur bent ásakandi til Parísar á meðan þessar um-
ræður hafa farið fram og hefur viljað kenna Frökk-
um einum um að sáttmálinn um Evrópuherinn er
enn ekki genginn í gildi — og það meðan ítalir
voru ekkert fúsari til samþykktarinnar og Bretar
mjög tregir til að hafa nokkur afskipti af málinu.
Endurvopnun Þýzkalands er beiskasti, pólitíski
bitinn, sem að Frökkum hefur verið réttur síðan í
stríðslok ,og margir þeirra virðazt þeirrar skoðun-
ar, að bezta ráðið til þess að halda amerísku her-
sveitunum kyrrum í Evrópu — en það vilja lýð-
ræðisflokkarnir umfram allt eins og heimsástandið
er — sé að banda honum frá og tregðast við að sam-
þykkja Evrópuherinn sem lengst.
------o-----
En meginástæða þess, hve margir Frakkar hafa
snúizt gegn Evrópuhernum — og þar með sameig-
inlegri vörn Vestur-Evrópu-þjóðanna gegn ógnun-
inni úr austri, er Indó-Kína styrjöldin. Kjarni
franska hersins — meira en 40 þús. manns — á í
styrjöld í Indó-Kína, sem hvorki virðist hægt að
öFramhald á 7. síðu).