Dagur - 23.06.1954, Síða 8
8
Baguk
Miðvikudaginn 23. júní 1954
Farið að nota nýja gerð af ís í
fiskiskipum
Dreifing áburðarins og slátfur
náði saman
120 sýnisreitir þeir, er ráðu-
nautar Búnaðarfélags Islands
hafa undir höndum og dreifðu
áburði á í vor, eru á svæðinu frá
Austur-Skaftafellss. að Stranda-
sýslu, að báðum meðtöldum.
Sláttur þessara sýningarreita
hófst 10. júní eða aðeins nokkrum
dögum eftir að dreifingu var lok-
ið á þeim síðustu. Veðráttan var
óhagstæð um tíma og tafðist
dreifingin af þeim sökum.
Sprettan varð aftur á móti mjög
ör, svo sem kunnugt er, svo að
sláttur reitanna hófst þetta fyrr
en áætlað hafði verið.
Svo sem ráðgert var upphaf-
lega, halda ráðunautarnir fundi í
hverjum hreppi á þessu svæði um
leið og þeir koma til að rannsaka
reitina og slá. Mun mörgum þykja
fróðlegt að fylgjást með uppsker-
unni og sjá með eigin augum
þessa fábrotnu tilraun, sem þarna
er gerð með mismunandi áburð-
armagn og mismunandi áburðar-
tegundir.
Hinar umfangsmiklu og marg-
brotnu tilraunir tilraunastöðv-
anna hér á landi hafa ekki verið í
nægilegum tengslum við bænd-
ur, sennilega að nokkru leyti fyr-
ir þá sök, að bændum hefur fund-
izt tilraunirnar of vísindalegar og
margbrotnar til þess að auðvelt
væri að tileinka sér þær á stuttri
stund. Er þetta að vissu leyti rétt,
það sem það nær, og þarf ekki að
kasta rýrð á störf stöðvanna
nema síður væri.
Hitt er augljóst, að eiiifaldar
og fábrotnar áburðartilraunir,
sem gerðar eru heima í sveitun-
um, geta leitt hið ólíklegasta í
Ijós, og á þann hátt að hverjum
er auðskilið. Það er staðreynd, að
næstum enginn bóndi veit ná-
kvæmlega hvað hann á að bera á
af tilbúnum áburði ár hvert og
Mikill námsmaður
Eins og getið er um á öðrum
stað hér í blaðinu, tók Sveinn
Jónsson, héðan úr bænum, lang-
hæsta stúdentspróf landsins á
þessu ári. Dagur bix-tir hér próf-
einkunnir hans. Það skal tekið
fram, að tvær þær lægstu voru
gefnar á fjórðabekkjarprófi.
ísleixzkt munnleg 9,6
íslenzka skrifleg 9,4
Danska 8,2
Enska 9,0
Þýzka 9,8
Fi-anska 10
Latína 9,8
Saga 10
Náttúrufræði 10
Stærðfræði munnleg 10
Stærðfræði skrifleg 10
Eðlisfræði munnleg 10
Eðlisfræði veikleg 9,6
Stjörnufræði 10
Erfitt mun áreiðanlega reynast
að gera betur. Vetrareinkunnir
Sveins voru eitthvað lægri, en
þær ei’u reiknaðar með í aðal-
einkunn.
enginn veit hvað óhagstæð
áburðai-notkun veldur miklu
fjárhagslegu tjóni, bæði beint og
óbeint. Kemur þar til greina,
bæði uppskerumagn og gæði.
Þessi nýja búnaðarfræðsla get-
ur því haft mikla þýðingu og það
því fi-emur að bændur veita
henni allan stuðning.
Fyrstu stúdentarnir
brautskráðir frá
Laugarvatni
Frá nýja Menntaskólanum að
Laugai-vatni brautskráðust 15. þ.
m. 10 stúdentar, þeir fyi-stu á
þessum stað.
í Menntaskólanum að Laugar-
vatni voru s.l. vetur 90 nemendur.
Skólameistai-inn Dr. Sveinn
Þói-ðarson flutti merka ræðu við
skólaslitin.
Hæstu einkunn við stúdents-
próf hlaut Árni J. Bergmann,
Keflavík, úr máladeild, 1. ág.
eink. 9.36. Var það hæsta eink-
unn skólans á þessu fyrsta skóla-
ári. Ágætiseinkunn 9.00 hlutu
einnig Höx'ður J. Bergmann úr
máladeild og Tryggvi Sigui-bjarn-
ai-son Innri-Njarðvík, úr stærð-
fræðideild.
Einkunnarorð hins nýja
menntaskóla er: Manngildi,
þekking, atorka.
Vel valin afmælisgjöf
Lárus J. Rist íþróttakennari
varð 75 ára 19. þ. m. Hann tók
þátt í norrænu sundkeppninni á
afmælisdaginn. Syntu þá 200 m. í
Sundlaug Ak. og virtist það engin
ofraun fyrir hann. Lárus er ennþá
léttuií á fæti og gengur teinréttur.
Er hann hafði lokið sundinu á
afmælisdaginn var honum til-
kynnt að nokkrir kunningjar
hans gæfu 300 trjáplöntur í skóg-
ax-reitinn að Botni í Hrafnagils-
hreppi, og að ÍBA annaðist gx-óð-
ursetningu þeirra. Verða plönt-
ui-nar gróðursettar annað kvöld
meðfram læknum, sem Lárus lék
sér hjá, þegar hann var barn að
aldri.
Þeir, sem vilja taka þátt í
gi-óðui-setningai-fei-ðinni, eru beðn
ir að mæta við Hótel KEA kl. 7,20
annað kvöld.
Lárus lét sjálfur girða reit til
skóggi-æðslu meðfram læknum
fyrir nokkrum árum og voru
fyi-stu plöntui-nar gi-óðui-settar
þar 1951. Lái-us hefur brennandi
áhuga fyrir því, að Botn — æsku-
heimili hans — verði komandi
kynslóðum til fax-sældar og
áminningar um að græða landið
og ala upp hi-austa og þjóðholla
æsku, sem vinni að i-æktun lands
og lýðs. Hann hefur gefið Akur-
eyrarbæ jörðina í þeim tilgangi
að þar verði unglingum bæjarins
gefinn kostur á að dvelja að
sumi-inu og þi-oskast við leiki og
störf undir handleiðslu góðra
kennara. Hugsjónaheimur Lárus-
ar vii-ðist jafn víður og bjartur og
verið hefur, þrátt fyrir háan
aldui-.
Iðnþing íslendinga
verður á Akureyri
Iðnþing íslendinga, hið 16. í
röðinni, verður sett hér á Akur-
eyri næstkomandi laugardag, 26.
þ. m., kl. 2 síðd. Fer setningarat-
höfnin fram í Varðborg, en að
öðru leyti fara þingstöríin fram
í Gagnfræðaskóla Akureyrar. —
Gert er í-áð fyrir, að þingið standi
í 4—5 daga. Þingfulltrúar eru
milli 50 og 60, víðs vegar að af
landinu. Iðnþingið mun fjalla um
ýmis vandamál iðnaðarins, svo
sem tollamál og útvegun lánsfjár
til iðnaðarþarfa. Þetta mun vera
í annað sinn, sem iðnþing er háð
hér á Akureyri.
Menntaskólmn í Rvík
útskrifaði 117 stúdenta
Menntaskólanum í Reykjavík
var sagt upp með viðhöfn í há-
tíðasal skólans 16. þ. m.
Hæstu einkunn hlaut Þorsteinn
Sæmundsson, Bólstaðarhlíð 16,
Reykjavík. En þar að auki fékk
hann 8 önnur verðlaun skólans —
þar á meðal fyrir námsafrek í
öllum tungumálum, og einnig
fyrir prúðmennsku, stundvísi og
hegðun. Slík verðlaun hlaut
einnig Gerður Figved.
Pálmi Hannesson, rektor, flutti
nokkur ávai-psorð og kvaddinem-
endur með stuttri ræðu. Hann
hefur, sem kunnugt er, verið
heilsulítill að undanförnu eða
lengst af á þessu skólaári.
Fárið er að reyna hér á landi
nýja tegund af ís til geymslu á
fiski í skipum. Eru nokkur veiði-
skip búin að reyna þennan ís og
gefur hann góða raun, að því er
Ólafur Þórðarson, fyrrverandi
fulltrúi hjá Lýsi h.f., hefur tjáð
sunnanblöðumun, en liann ér
upphagsmaður þessarar nýjungar
hér á landi.
ís þessi er að sjá alveg eins og
venjulegur ís, en í honum ei-u
efni, sem verja fiskinn fyrir
gerlamyndunum, þegar ísinn
Máládeild:
Ágúst N. Júnsson, ísaf. 8.10
Áslaug Eiriksdóttir, Mvr. 8.27
Bergþóra Sigfúsdóttir, S.-Múl. 7.75
Edda Kristjánsdóttir, Ak. 8.57
Haukur Bððvarsson, Borg. ág. 9.1S
Jóhanna Skaftadóttir, Sigluf. 7.(50
Jón Bjarman, Ak. 5.35
Kristfn Pétursdóttir, Sigluf. 7.22
Kristín Tryggvadóttir, Ef. 7.70
Lárus Guðmundsson, ísaf. 7.34
Loftur Magnússon, Strand. 7.75
Jfargrét Guttormsdóttir, S.-Múl. 8.15
Sigríður Érlingsdóttir, Rvík 7.05
Skúli Steinþórsson, Ak. 7.54
Svanhildur Hermannsd., S.-Þing. 7.5!)
Svava Stefánsdóttir, Ak. 8.50
Þröstur Laxdal, Ak. 8.81
Utatiskóla
(eftir einkunnastiga Örsteds):
Óttar Eggert Pálsson, Rvík 4.20
Steerðf rceðideild:
Edda Thorjacius, Sigluf. 8.02
Friðleifur Stefánsson, Sigluf. 7.29
Guðmundur Guðmundsson, Skag. 8.(58
bráðnar. Efni þetta er sett í
vatnið, sem ísinn er framleiddur
úr og er hægt að koma því fyrir
í öllum frystihúsum, sem fram-
leiða ís. Óhjákvæmilega verður
ísinn með þessu móti nokkru
dýrarí en venjuiegur ís.
Togarinn Geir er kominn til
Reykjavíkur úr sinni fyrstu
veiðiferð með þennan ís. Skipið
var 8 daga á veiðum og kemur
með kai-faafla, sem geymist held-
ur betur en þorskur. En geymslan
Guðmundur Halldórsson, ísaf. 7.96
Hclgi Sigvaldason, Barð. ág. 9.04
Hjörtur Jónasson, N.-Þing. 7.34
Ingvar Níelsson, Neskaupst. 7.81
Jón ölver Pétursson, Snæf. 7.39
Kristján Gissurarson, S.-Múl. 7.09
Lárus Jónsson, Barð. 8.54
Sigurður G. Sigurðsson, ísaf. 8.01
Sigurpáll Vilhjálmsson, N.-Þing. 7.48
Sveirtn Jónsson, Ak. ág. 9.54
Sverrir Géorgsson, Rvík 7.64
Valdimar Jónsson, Rvík 7.44
Vilhjálmur Einarsson, S.-Múl. 7.94
Örn Baldvinsson, Ef. 7.80
Frá Ferðafélagi Ak.
Næstu kvöldfei-ðir félagsins
verða á miðvikudag, 23. júní, (í
kvöld) að Dalvík og Karlsá og
miðvikud. 30. júní í Fnjóskárdal
og Svalbarðsströnd (hringferð).
Fai-ið verður frá Stefni kl. 8 um
kvöldið. Farmiða verður að taka
fyrir kl. 5 e. h.
Stúdentar frá Menntaskólanum á Akureyri 1954
«
Aft. röð: Sverrir Georgsson, Sigurpáll Vilhjá'.mssoii, Sigurður G. Sigurðsson, Áslaug Eiríksdóttir, Frið-
leifur Stefánsson, Sigríður Erlingsdóttir, Helgi Sigvaldason, Edda Thorlacius, Valdimar Jónsson,
Bcrgþóra Sigfúsdóttir, Hjörtur Jónsson, Margrét Gultormsdóttir, Jón Öiver Péíursson, Lárus Jóns-
son, Óttar Eggert Pálsson. — Miðröð: Svava Stefánsdcttir, Jón Biarman, Kristín Tryggvadóttir, Örn
Baldvinsson, Kristín Pétursdóttir, Haukur Böóvars ;on, Svanhildur Hermannsdáttir, Þröstur Laxdal,
Edda KrÍE-tjánsdóttir, Guðinúndur Halldórsson, Jóhanna Sltaítadóttir, Lofíur Magnússon. — Fremsta
röð: Kristján Gissurai-son, Skúli Steinþórsson, Sveiníj Jónssoxi, Guðmundur Guðmundsson, Vilhjálmur
Einarsson, Ingvar Níelsson, Ágúst Jónsson, Lárus Gu&nundsson.
(Framhald á 7. síðu).
Stúdentar frá M. A. 1954