Dagur - 15.09.1954, Síða 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 15. sept. 1954
Árásir „Alþýðumannsins
utanríkisráðherra
Síðan dr. Kristinn GuSmunds-
son varð utanríkisráðherra hefur
blaðið „Alþýöumaðurinn“ hvað
eftir annað verið með árásir á
hann, svo að segja má að það hafi
]agt hann í einelti. Nú síðast í 32.
tölubl., sem út kom þann 7. þ. m.,
er næsta rætinn samsetningur
um utanríkisráðherrann, undir
yfirskriftinni „Utanríkismál í
óvitahöndum".
Ekki kemur mér til hugar að
fara að svara grein þessari orði
til orðs, enda dæmir hún sig sjálf
vegna orðbragðs og rætni, en ör-
fáar athugasemir vil eg þó gera,
ef það gæti orðið blaðinu tii leið-
beiningar.
Þegar með fyrirsögn greinar-
innar er kveðinn upp sá dómur að
utanríkismál vor séu í óvita-
höndum. Gera verður þá kröfu,
að sá sem dóm kveður upp yfir
öðrum, einkum harðan dóm,
þekki sjálfur málavexti og' sé
dómbær um þá. „Alþýðumaður-
inn“ virðist vilja undirbyggja
dóm sinn um „óvitahátt“ Kristins
Guðmundssonar í utanríkismál-
um, einkum með því, að hann hafi
ekkert fengist við utanríkismál
áður en hann varð ráðherra, að
hann var ekki alþingismaður og
jafnvel að hann var Akureyring-
ur. En hvernig er það með rit-
stjóra „Alþýoumannsins"? Ekki
er vitað að hann hafi neitt fengist
við utanríkismál, ekki er hann
alþingismaður og hann er Akur-
eyringur. Hvaðan kemur honum
þá sú vizka, að hann þykist geta
talað eins og sá sem vald hefur
um utanríkismál? Eg held að
hann ætti að gæta sín betur. Það
er og næsta skrítið, þó það skipti
litlu, að sjá blað á Akureyri vera
hneykslað yfir því, að Akureyr-
ingur varð ráðherra. Frekar
virðist hafa mátt búast við slíku
af Reykjavíkurblaði, einkum
þegar þess er gætt, að í heilan
aldarfjórðung áður var ekki ann-
a,ð hægt að sjá en það væri beint
skilyrði allra flokka fyrir ráð-
herradómi að vera Reykvíkingur,
eða m. k. úr næsta nágrenni
Reykjavíkur.
Það er auðfundið, að „Alþýðu-
maðurinn“ er á móti hervörnum
í landinu. Er auðvitað hverjum
heimilt að hafa sína skoðun á því
máli og skal það ekki rætt hér.
En að skella skuldinni á Kristinn
Guðmundsson utanríkisráðherra
fyrir að útlendur herflokkur
dvelur hér, eins og „Alþýðu-
maðurinn“ raunverulega gerir, er
aftur óheimilt, því að hann átti
alls engan þátt í því, að hervarn-
arsamningurinn frá 1951 var
gerður. Aftur á móti greiddu allir
Alþýðuflokksmenn á þingi at-
kvæði með samningnum. Þeir
bera því sinn hluta af ábyrgðinni
á því að herliðið er hér, en Krist-
inn Guðmundsson enga. Mér
finnst því, að „Alþýðumaðurinn11
ætti að tala við sína eigin flokks-
bræður.
Utanríkisráðherra ber að sjálf-
sögðu ábyrgð á því, hvernig hann
hefur staðið að framkvæmd her-
varnarsamningsins. „Alþýðumað-
urinn“ telur að það hafi hannsýnt
„gunguhátt" og ýmis önnur
ósannindi, segir blaðið í því sam-
bandi. Við þau mun eg ekki elt-
ast hvert fyrir sig. En það sanna
í málinu er (og eg er sennilega
þessum málum eins kunnugur og
ritstjóri „Alþýðumannsins), að
utanríkisráðherra hefur í hví-
vetna sýnt fulla festu í viðskipt-
um við Bandaríkjamenn, enda
hefur mikið áunnist nú þegar.
Árekstrar á milli Iselndinga og
hinna erlendu manna á Keflavík-
urflugvelli hafa fæstir verið við
hermennina, heldur við hinn er-
lenda verktaka og starfsmenn
hans. Nú er búið að semja um
brottför þessa erlenda verktaka.
Verið er að afgirða svæði þau,
sem varnarliðið dvelzt á og sam-
skipti þess og íslendinga fara
minnkandi. Þessar og ýmsar fleiri
umbæktur hafa orðið fyrir for-
göngu utanríkisráðherrans. Menn
getur greint á um það, hvort þörf
sé á hermönnum hér eða hvort
þær eru tilvinnandi. Hitt held eg
að sanngjarna menn og kunnuga
þessum málum greini ekki á um,
að utanríkisráðherrann, Kristinn
Guðmundsson, hefur staðið vel í
stöðu sinni og að hann á þakkir
skilið fyrir störf sín.
Ekki lætur „Alþýðumaðurinn"
nægja að leggja öll störf dr.
Kristinn út á versta vel, heldur
er hann líka með fremur illgirn-
islegt, persónulegt nart. Að lesa
það t. d. í blaði, sem gefið er út
hér á Akureyri, að dr. Kristinn
„ofstopagjarn við þá, sem hann
hugði sér minni máttar, en bros-
gjarn og blíður í máli við hina“,
blöskrar mér alveg. Eg hygg að
það sé þvert á móti almennt við-
urkennt hér á Akureyri, að
Kristinn Guðmundsson sé hið
mesta Ijúfmenni og geri sér í því
engan mannamun.
Bernh. Stefánsson.
Flórmjöl
50 kg á kr. 130.00
Nýlendiivörjidelidm
og útibiiin.
IGardínu-damask
5 litir.
Sloppanylon hv.
Ásbyrgi h.f.
Sláturpokaléreft
i: rúllupylsunálar
BRAUNSVERZLUN
- Valur og atvinnu-
rekendur semja
• (Framhald af 1. síðu).
Vinnuveitendum skal þó heim-
ilt að nota eigin bifreiðir í eigin
þjónustu, þar sem vinnuveitand-
inn á bæði bifreiðina og vöruna,
sem flutt er og reiknar sér ekk-
ert sérstakt gjald fyrir flutning-
inn. — Ennfremur skal heild-
verzlunum og viðgerðarverk-
stæðum, verksmiðjum og útgerð-
armönnum heimilt að aka á eigin
bifreiðum vörum sem heyra beint
undir atvinnurekstur þeirra, og
byggingameisturum að nota vöru
bifreiðir við atvinnurekstur sinn
til flutninga á hlassþunga allt að
einu tonni. Framangreint ákvæði
þessarar greinar tekur eigi gildi
fyrr en 1. marz 1955. Fram að
þeim tíma skuldbinda vinnuveit-
endur sig til að koma á vinnu-
miðlun, þannig, að bifreiðastöðin
Stefnir s.f. fái 60% af öllum þeim
akstri, sem neðangreind fyrirtæki
kaupa að: KEA, Akureyrarbær
og fyrirtæki hans, Guðm. Jör„
Útgerðarfélag KEA h.f. og SÍS.
Vinnumiðlun þessi skal fram-
kvæmd þannig, að 1. des. 1954 og
1. febr. 1955, kanni hvert fyrir-
tæki hve mikið það hefur skipt
við Stefni s.f. og auki þá viðskipti
sín þar, hafi þau ekki náð þeirri
hlutfallstölu, er að framan grein-
ir, ella dragi úr þeim ef hlutfalls-
talan er orðin of há.
Valur skuldbindur sig til, ef
hörgull er á vörubifreiðum, að
láta vinnuveitendur þá, sem aðil-
ar eru samningi þessum, hafa for-
gangsrétt á að fá vörubifreiðir til
flutninga.
Samningur þessi gildir frá og
með undirskriftai'degi til 1. júní
1955, og er uppsegjanlegur með
eins mánaðar fyrirvara. Sé hon-
um ekki sagt upp, framlengist
hann um 6 mánuði í senn með
sama uppsagnarfresti.
Fulltrúar vinnuveitenda taka
fram, að samningsgerð þessa
megi á engan hátt skoða sem við-
urkenningu þeirra á því, að
Vörubílstjórafél. Valur fullnægi
skilyrðum að teljast stéttarfélag
í skilningi laga nr. 80 1928.
Fulltrúai' Vals taka fram, að
þeir telji félag sitt stéttarfélag í
merkingu ofangreindra laga.
í fundinum sl. mánudag samþ.
atvinnurekendur og Bílstjórafél.
Valur að ganga að samþ. fundar-
ins, er samþ. var hjá sáttasemjara
á mánudagsnóttina.
BÚTASALA
í dag og næstu daga.
Odýrir fóðurbútar, satin-
bútar og allskonar bútar.
Braimsverzlun
Vinsœlu
Þýzku Töflin
fimtn í kassa, komin
Verð kr. 52.50.
Járn- og glervörudeild
Heinz sésulitur
Spænskf hunang
nýkomið
KJÖTBÚÐIR KEA
Hafnarstræti 89.' Sími 1714.
Ránargötu 10. Sími 1622.
Léttsaltað
dilkakjöt
KJÖTBÚÐIR KEA
Hafnarstræti 89. Sími 1714.
Ránargötu 10. Sími 1622.
RAFGEYMA
klemmur
4 stærðir
Véla- og búsáhaldadeild
PHILIPS
reiðhjólalugfir
Véla- og búsáhaldadeild
Dynamóar
12 v. 600 W
Agœtir til lýsingar á
sveitabœi og i skip
Véla- og búsáhaldadeild
Rafmagnsplötur
tveggja hólfa
Straujárn
Brauðristar
stórar og litlar
Strauvélar
Vöfflujárn
Rafmagnsofnar
Rafmagnskönnur
Hraðsuðukatlar
Véla- og búsáhaldadeild.
Skrifblokkir
Lausblaðabækur
Bréfamöppur
Járn- og glervörudeild
Til leigu:
2 lierbergi í Hafnarstr. 100.
Alm. Tryggingar h.f.
Uinboð Akureyri.
Sími 1600.
Nýkomið:
Kvenbomsur
tau með loðkanti,
þrír litir
Karlmannabomsur
tau og gúmmí
Karlm.skóhlífar
ýmsir litir
Hvannbergsbræður
Skóverzhin.
Línsferkja!
Plastic-línsterk j a
á glösum — mjög cndingargóð
Endist marga þotta!
N ýlenduvörndelidin
og útibúin.
PENNAVESKI
margar gerðir
Járn- og 'gTervÖfudeild
Yfirbreiðslur
(Presenningar)
Jáirn- og glervörudeild
Flöskulakk
<sf^>
Nýlenduvömdelidin
Nýsviðin svið
Kjötbúðir KEA
Hafnarstræti 89. Sími 1714.
Ránargötu 10. Sími 1622.
Hálftunnur
kvarffunnur
úr brenni
Góð kjötílát!
KJÖTBÚÐIR KEA
Hafnarstræti 89. Sími 1714.
Ránargötu 10. Sími 1622.