Dagur - 15.09.1954, Side 5

Dagur - 15.09.1954, Side 5
Miðvikudaginn 15. sept. 1954 D A G U R 5 Kristján Eldjárn Kristjánsson: FERDAÞANKAR Ferðalag eða sumarfrí. Þann 8. þ. m. brá eg mér í nokkurra daga ferðalag. Það mætti eins kalla það sumarfrí, því nú er alsiða að fólk fái frí frá störfum og ferðist. Ekki er þó auðvelt fyrir bændur almennt og búálið að hlaupa frá búum sínum svo dög- um skiptir. Það er fyrst þegar þeir eru hættir búrekstri, að hægt er að leyfa sér það ef þá heilsa og aðrar ásæður leyfa. Tilbreytingarík og fögur leið. Eg hefi lengi haft í huga að bregða mér austur x Norður-Þing- eyjarsýslu og heilsa þar uppá gamlar stöðvar og nú kom tæki- færið. Ferðafélagið auglýsti ferð frá Akureyri að morgni 8. ágúst austur að Skinnastað, í tilefni af 100 ára minningu kirkjunnar bar. Frá Akureyri átti að leggja af stað kl. hálf átta, en af einhverjum ástæðum var ekki Iagt af stað fyrr en kl. 8. Þessi töf varð þess vald- andi að naumlega náðist áætlaður timi kl. 2 að Skinnastað. Farin var austari leiðin, um Mývatnssveit og Hólsfjöll, með viðkomu við Dettifoss. Eins og kunnugt er, er þetta mjög tilbreyt- ingarík og fögur leið. Veður var því miður ekki sem bezt, norðan gola og þokuslæðingur og fór veð- ur versnandi eftir því sem norðar og austar kom. Það spillti líka ánægjunni yfir dásemdum náttúr- unnar að sjá víða velkt og hrakin hey. Það var einnig í vaxandi mæli eftir því sem norðar dró. Skógurinn í Axarfirði þróttmeiri nú en fyrir 36 árum. Axarfjörður er falleg sveit og sýndist mér skógargróður mun útbreiddari og þróttmeiri nú, en er eg fór þar um fyrir 36 árum. Skinnastaðakirkja. A Skinnastað er mjög fallegt, en að þessu sinni naut fegurðin sín ekki vegna veðurs. Nú var bjart yfir kirkjunni og umhverfi henn- ar. — 1918 var eg staddur þarna á aðalfundi Ræktunarfél. Norður- lands, sem haldinn var í kirkjunni Ort í „Jeppasæti“ á heimleið 17. ágúst 1954. Að Hítamesi heimsókn lokið er. Þár hafa ótal vinir fagnað mér. Þar brosir við mér allt, sem augað leit, og ilmur jarðar steig úr hverjum reit. Þar virtist flest á sínum sama stað, og svipir minninganna þyrptust að. Um sánd og bakka skellt var oft á skeið. Skammt var milli spretta á sléttri leið. Á æskudögum oft var hraðað för út a Fjöru, Hólmi og Marteinsvöf; sauðfé smalað, söl af skerjum reitt, safnað skeljum og í lónum veitt. Til átthaganna enn eg baki sný, en eflaust lengi að heimsókninni bý. Og þó eg uni þar sem nú eg er, fer þeirra svipur ei úr huga mér. Hítarnes er hagavönum kært. Það hefur margan valinn gæðing nært. Þar hef eg áður vakra vini átt. Þar verður mér svo létt um andardrátt. Mikill hraðinn þótti þá, — þó ei skaða gerði — þegar maður þeysti á Þokka, Glað og Herði.*) Svipur er hýr, því sólin skín í heiði. Sex, tveir, einn fer sem gæðingur á skeiði. Litklæðum skartar Holtavörðuheiði. Heimferðin verður greið í óskaleiði. Hratt eg ek um Húnaþing. Hér eru vegir greiðir. Mikið gras, en lítið lyng, leiti og ásar breiðir. Þykir gott á Þingeyrum að búa. Þar er fögur, friðsæl strönd, frjósöm tún og engjalönd. í landnámi Ingimundar gamla eins og forðum finnast en n framgjarnir og hraustir menn. og 1904 var eg þar við messu hjá fræðimanninum séra Þorleifi Jóns- syni. Þá var kirkjan dökk utan og turnlaus. Nú var hún með ný- byggðum turni og endurmáluð. Uppnmalega málaði Arngrímur Gíslason kirkjuna af þeirri list sem honum var lagin. Kirkjan er virðulegt hús, sem á sjálfsagt eftir að standa lengi og bera vitni þeim stórhug og smekkvísi, sem ríkti á þessum stað fyrir 100 árum. Þá mun einnig hafa framtíðar- gildi hinn veglegi skýrnarfontur, sem afkomendur séra Hjörleifs, er lét byggja kirkjuna gáfu við þetta tækifæri. Kirkjuathöfnin var öll mjög virðuleg. Þá er það viðburður í strjálbýlum sveitum og fámennum kirkjusóknum að skýrð séu í einu fjögur börn og gift tvenn hjón eins og þama var gert. Að kirkjuathöfn- inni lokinni fengu allir gestir ríku- legar veitingar. *) Nokkrir af gæðingum Júlíusar bónda í Hítarnesi, sem valdir voru úr handa gestunum. ' v •» » i^.-r Guðbjörg Sigurðard. frá Þinganesi MINNINGAR0RÐ Nýlega lézt hér á Akui'eyri Guðbjörg Sigurðardóttir frá Þinganesi, nærri 88 ára að aldri. Hún hefur átt heima hér hjá börnum sínum, Arnheiði Guð- mundsdóttur og Snorra Guð- mundssyni, byggingameistara, síðastliðín 20 ár. Guðbjörg var fædd að Reyðará í Lóni 28. ágúst 1866. Ólst hún þar upp hjá foreldrum sínum. Þegar hún var uppkomin var hún á ýmsum bæjum, þ. á. m. um tíma hjá Jóni Jónssyni í Bjarnarnesi (síðar á Stafafelli'). Mun hún hafa orðið þar fyrir ýmsum menning- aráhrifum, m. a. glæðst áhugi hennar fyrir bókum og hvers konar fróðleik. Síðar giftist hún Guðmundi Jónssyni frá Hoffelli, og bjuggu þau lengst í Þinganesi Heilsað upp á gamla kunningja. Af því eg var nú kominn þarna á fornar slóðir vildi eg ekki hverfa heim án þess að heilsa upp á fleiri staði og gamla kunningja. Það var á fyrstu skólastjórnar- árum Sigurðar búnaðarmálstjóra á Hólum, að hann gekk fram í því að ráða skólasveina til sumardval- ar milli námsvetranna, á fyrir- myndar heimilum út um land, því þá var ekki yerkleg kennsla í skól- anum. Vorið 1904 voru tveir námssveinar ráðnir austur í Axar- fjörð. Eg var annar þeirra. Hinn Kristján Sveinsson úr Skagafirði. Kristján var ráðinn hjá Birni hreppstjóra í Sandfellshaga, en eg til þeírrd bræðra Björns og Stefáns Sigurðssonar í Ærlækjarseli. Stef- án var ógiftur þá og bjó með móð- ur sinni Kristínu Björnsdóttur. Bjöm var giftur Vilborgu Guð- mundsdóttur á Grjótnesi. Þegar þetta var, áttu þau tvö börn Guð- mund og Kristin, en eignuðust fleiri síðar, sem öll eru mjög mannvænleg. Ærlækjarsel var ágætt heimili og í mörgu til fyrir- myndar. Fyrsta nothæfa sláttuvélin í landinu. Þar var þá komin sláttuvél. Það er fyrsta nothæfa sláttuvélin, sem til landsins var flutt. Björn mun hafa komið með hana þegar hann kom frá smíðanámi í Danmörku. Þessa vél notuðum við á sléttum og grösugum engjum í Ærlæjar- seli. Vélin var þung í drætti því ljárinn mun hafa verið um 5 fet. Hestar voru líka óvanir drætti og til að byrja með, ekki til aktygi heldur voru í þeirra stað notaðir hnakkar. Band var þá strengt yfir hnakkinn og undir kviðinn og sláttuvélataugarnar festar í það á hliðum. Hestarnir voru teymdir og var það ekki skemmtilegt verk. Varð þá líka oft að líta til hliðar til að fylgjast með því að ljárinn skilaði hreinum skára en „man- aði“ ekki. Fljótt komu þó aktyg- in, því þá mun hafa verið fyrir nokkru farið að framleiða þau í Ólafsdal. Um vorið unnum við nafnar við „jarðabætur" hjá bún- aðarfélagi Axarfjarðar og Núpa- sveitar. Aðallega unnum við þó í Núpasveit og á Vestur-Sléttu, Leirhöfn og Grjótnesi. Við vorum þar þrír saman. Þriðji maðurinn var Jóhannes Þórarinsson frá Bakka, nú á Húsavík. Hann var þá nýútskrifaður frá Ólafsdal og var hann flokksstjórinn, samvizku- samur og ágætur maður. Aðal vinnan var ofanafrista í túnum. Það var erfitt verk ekki sízt þar sem var harðlend og sendin jörð. Ekki var þá heldur af sér dregið eða slegið slöku við því kapp og metnaður einkenndi þessi vinnu- brögð þá. En þegar maður nú ber afköstin þá saman við vélavinn- una nú, liggur við að maður harmi það að hafa slitið kröftum sínum við svo árangurslítið verk á nú- tíma mælikvarða. Samt sem áður var þetta stæling og þroskaauki fyrir unga menn. — En áfram með ferðasöguna. Ekki friðsamt í sókninni fyrir 50 árum. Fyrstu nóttina gisti eg í Prest- hólum. Þar er venzlafólk mitt. Þorgrímur Armannsson frá Hraun- koti býr þar. Þar hefur einnig búið tengdafaðir hans Guðmundur frá Brekku og nú er sonur Þorgríms að byggja nýbýli á jörðinni. Hafa þeir mikið fjárbú. Þó landið sýnist hrjóstugt eru ræktunarskilyrði góð og nýræktir miklar. Sauðfé er nú fóðrað á töðu og minna treyst á útbeit en áður var. Þegar eg fór þarna um fyrir 50 árum bjó síra Halldór x Presthól- um .Hanú var gestrisinn og góður heim að sækja, en ekki vildi hann láta hlut sinn fyrir öðrum. Átti hann í sífelldum málaferlum við sóknarbörn sín, sem munu hafa átt upptök sín í ágreiningi út af ítökum kirkjunnar í reka á nokkr- um jörðum. Var svo mikil alvara og úlfúð út af þessum málaferlum, að mörg sóknarbörn síra Halldórs voru hætt að nota hann til prests- verka. Vorið 1904 var síra Þor- varður Þorvarðarson í Presthóla- (Fi-amhald á 7. síðu). í Nesjum. Var hann völundar- smiður eins og hann átti ætt til, bæði á tré og járn. En Guðmund missti hún með sviplegum hætti 21. ágúst 1909. Hann drukknaði í Hornafjarðarfljótum, er hann var að sækja heyskaparfólk út í Skógey. Þau hjón eignuðust 5 börn og var það elzta þeirra þá um fermingu. Þessi eru börn þeirra: Ásgeir, smiður í Höfn, Arnheiður, kona Þengils Þórðar- sonar bankaritara á Akureyri, Nanna, kona Stefáns Karlssonar í Stöðvarfirði, Snorri, bygginga- meistari á Akureyri og Kax’l, myndskeri í Reykjavík, en hann lézt fyrir nokkrum árum. Öll voru börnin mannvænleg og hafa fengið að erfðum snillingshendur forfeðra sinna. Eftir lát manns síns bjó Guð- björg áfram í Þinganesi og kom þar upp börnum sínum. Nokkrum árum síðar lézt Ástríður systir hennar, kona Gunnars Jónssonar, síðar bóksala í Höfn, bróður Guðmundar en þau voru líka bú- sett í Þinganesi. Kom þá í hlut Guðbjargar að rétta heimili Gunnars hjálparhönd, og annast að öllu leyti yngsta barnið, Ás- geir, um tíma. En Ástríður lézt við fæðingu hans. Annað systur- bai’n sitt ól hún líka upp að miklu leyti. Guðbjörg lézt 6. dag ágústmán- aðar sl. og var kista hennar flutt austur að Stafafelli í Lóni og jarðsett þar í nálægð leiða ætt- ingja og vina. Jarðái’förin fór fram í ágætu veðri 14. f. m. og var þar mai’gt fólk saihan komið að kveðja hina öldnu og vinsælu heiðui’skonu. Guðbjörg var mesta myndar- og fríðleikskona. Hún hélt sér mjög vel og var heilsugóð þar til síðastliðinn vetur, þrátt fyrir há- an aldur. Hún var skynsöm kona, ættfróð og minnug á menn og at- burði. Hún var í eðli sínu mjög bókhneigð, og hefur dóttir henn- ar sagt mér, að oft hafi hún haft opna bók hjá sér, þegar hún sat við rokkinn. Ekki bar hún það með sér, að hún hafi átt erfiða ævi, þó hlýtur svo að hafa verið eftir lát manns síns meðan börnin voru ung. En hún var þrekmikil og taldi það ekki eftir sér að rétta öðrum hjálpax-hönd, þegar þess þui’fti með. Það sýnir að hún átti ekki aðeins þrek og dugnað, heldur einnig þá hlýju hjartans, sem einkennir hverja góða konu. En öll var framkoma þessarar glæsilegu konu tíguleg, og hefur sá eiginleiki þó eflaust notið sín betur í fai’i hennar, meðan hún var yngri. Eg átti því láni að fagna, að eiga vináttu Guðbjargar frá Þinganesi. Fræddi hún mig um ættir fólks og ýmsa atburði á ætt- arslóðum hennar. Fyrir þá fræðslu og vináttu hennar er eg þakklátin’. Blessuð sé minning hennar. Eiríkur Sigurðsson.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.