Dagur - 15.09.1954, Qupperneq 7
Bliðvikudaginn 15. sept. 1954
D A G U R
7
- Ferðaþankar
(Framhald af 5. síðu).
sókn við að búa börn þar undir
fermingu. Svo langt gengu þessi ]
málaferli, eftir því sem mér var
sagt í þessari ferð, að síra Halldór
stefndi tveimur sóknarbændum
sínum dauðum. Talið var að Páll
bróðir síra Halldórs hefði átt sinn
þátt í þessum málarekstri.
Að Valþjófsstað og Leirhöfn.
Næsti áfangi minn var Val-
þjófsstaðir. Sigurður bóndi hefur
gert mikið að húsabótum og jarð-
rækt. Nú búa fjórar fjölskyldur á
jörðinni. Þar eru þrjú nýlega byggð
steinhús.
Það virtist sem fleirbýli á jörð-
um eigi betur við þar, sem sauð-
fjárbúskapur er rekinn og land-
rými sæmilegt, en kúabú. Gestrisni
og fyrirgreiðslu naut ég þarna í
ríkum mæli.
Þá var næsti gististaður að Leir-
höfn. Ekki hefi ég annars staðar
komið þar, sem hafa orðið meiri
breytingar á einni jörð á síðustu
áratugum. Eg vann þarna nokkra
daga 1904. Þar bjó þá fátæk
ekkja með mörg börn, það elzta
um 17 ára. Tún var lítið. Sauð-
féð liíði mikið á útbeit. Nú er
búið að rækta um 100 ha. í landi
jarðarinnar. Þar af nytjað frá
Raufarhöfn um 30 ha. Hitt hafa
synir og afkomendur Kristjáns og
Helga ræktað, og það að verulegu
leyti, áður en stórvirk jarðræktar-
tæki komu til sögunnar.
Þeir bræður hafa haft fleira um
hönd en búskapinn. Kristinn stund-
að járnsmíði. Hann fann upp lóða-
rennuna, sem hefur verið til mik-
ils hagnaðar fyrir þorskveiðarnar
og sakt er að Norðmenn séu nú
farnir að nota. Helgi hefur stund-
að iðnað, leðurvinnu og bókband.
Hann á mikið bókasafn í skraut-
bandi. Bókasafnið hefur hann
ánafnað sýslunni. Sonur Sigurðar
rekur húsgagnaverkstæði í félagi
við annan. Af þessu sést að þarna
er um fjölbreytta starfsemi að
ræða og framfarir og breytingar
síðustu txma miklar.
Á Grjótnesi eru um 500 fjár.
Síðasti áfangi minn í þessari
ferð var Grjótnes. Þar býr Vilborg
Guðmundsdóttir, ekkja Björns Sig-
urðssonar bónda þar og í Ærlækj
arseli. Hún býr á hálfri jörðinni
með tveimur sonum sínum, en á
hinum hlutanum Björn bróðir
hennax og tveir synir hans.
A Grjótnesi hafa verið gerðar
miklar jarðabætur og töðufallið
tólffaldazt frá því, sem var fyrir
50 árum. Nú er ekki treyst á út-
beitina, eins og áður var. Sauðfé
mun nú vera um eða yfir 500 á
jörðinni.
Nú er svo komið að vegna fólks-
fæðar komast fjármargir bændur
ekki yfir að smala féð og ría á
vorin. Ekki telja þeir það hafa
áhrif á vænleika dilkanna, en hætt
er við að ullin verði lakari.
Það er víðsýnt og fallegt á
Grjótnesi í björtu veðri, en því var
nú ekki að heilsa. Bændur voru
orðnir áhyggjufullir út af heyjum
sínum. Votheysgerö er víðast lítil
og virðast. menn hafa ótrú á vot-
heyi handa sauðfé. Súgþurrkun
ekki almenn og fullnægði ekki í
svo rakasamri tíð. En þurrkurinn
var að koma og bætir úr vandræð-
unum í þetta sinn.
Það eru nú 50 ár síðan ég var
nokkra daga við vinnu á Grjót-
nesi. Þá þótti mér björgulegt þar.
Æðarvarp var mikið og kríuvarp
einnig. Fiskur gekk grunnt að
landi. Hrognkelsaveiði eftir þörf-
um á vorin og silungsveiði í tjörn-
um. Fullorðið fé gekk sjálfala að
mestu. Þó gat nú brugðizt til
beggja vona með það í hörðum
vetrum, ekki sízt ef ís lá við land
og tók fyrir fjörubeit. Svipuð skil-
yrði munu þá hafa verið í næstu
sveitum þarna fyrir austan. Detta
mér í hug í því sambandi orð, sem
höfðu eru eftir Stefáni Sigurðssyni
í Ærlækjarseli. Þó í gamni séu
sögð benda þau til hvernig hann
leit á afkomuskilyrðin þar þá.
Hann sagði að þeir, sem í þessum
sveitum byggju, þyrftu ekki að
hafa mikið fyrir lífinu. Þeir þyrftu
ekki annað að gera en leggjast á
bakið, þá skiti fuglinn eggjunum
ofan á þá, og þegar þeir leggðust
á magann, synti fiskurinn upp í
þá.
Nú gildir þetta ekki lengur, því
kröfur eru nú gerðar til fleira en
að hafa í munn og maga. Auk þess
hafa gjafir náttúrunnar minnkað.
Æðarvörpin, t. d. fiskur á grunn-
miðum o. fl.
í vinnu hjá búnaðarfélaginu.
Gefinn hestur til heimferðar.
Eins og áður hefur verið á
minnzt, var ég ráðinn að Ærlækj-
arseli, en svo lánaður þaðan yfir
vorið til að vinna hjá búnaðar-
félaginu. Kaupið var nú ekki hétt,
en vel úti látið. Þegar heim átti
að halda um haustið, var ekki um
sjóferð að ræða. Við félagar urð-
um því að fá hesta. Nafni minn
gat þó fengið tvo hesta hjá Bimi
í Sandfellshaga. Áttu þeir að fara
inn í Eyjafjörð til göngu þar. Eg
reyndi að fá keyptan einn af hest-
um þeim, sem notaðir voru við
flutninga að brúnni é Jökulsá, sem
þá var byrjað á, en vinna var þá
ekki hætt og sumir hestarnir
meiddir. Allt cement var flutt í
pokum á klökkum, utan frá sjó,
sem er löng leið. I þessum vand-
ræðum mínum tilkynntu húsbænd-
ur mínir mér, að þeir mundu sjá
mér fyrir hesti heim. Endaði það
með því, að þeir gáfu mér hest,
sem var hinn traustasti og bezti
gripur.
Eftir kynni mín af Norður-
þingeyingum, sérstaklega í Skinna-
staða- og Presthóla-sóknum fyrir
50 árum, mynnist ég þeirra með
virðingu og þakklæti, og endur-
teknu þakklæti fyrir viðtökurnar
nú.
Hellu, 22. ágúst 1954.
Skemmtiblúbburinn
ALLIR EITT
Dansleikur í Alþýðuhusinu
föstudaginn 17. þ. m. kl. 9
e. h. — Aðgangur ókeypis fyrir
þá er höfðu fasta miða síðast
liðinn vetur.
Miðanna sé vitjað í Al-
þýðuhúsið, fimmtudagskvöld
16. þ. m. kl. 9—10 e. h.
Gamla stjórnin.
Skólatöskur ,
og Skjalatöskur
nýkomnar.
Bókaverzl. Edda h.f.
Simi 1334.
Herbergi
til leigu 1. október. Gæti verið
aðgangur að eldhúsi.
Afgr. visar á.
Herbergi
til leigu. Aðgangur að eldhúsi
kemur til greina.
Uppl. i sima 1448.
Tvö herbergi
til leigu á Suðurbrekkunni,
saman eða sitt í hvoru lagi.
Afgr. vísar á.
BTH-þvottavél
til sölu vegna þrengsla. Verður
seld ódýrt.
Sverrir Hermannsson,
Ráðhússtfg 2.
íbúð til sölu.
Ncðri hæð hússins Ránargötu 22
er til sölu. Tilboð óskast íyrir 1.
október n. k. Réttur áskilinn.
Konráð Sœmunclsson.
Unglingspiltur
laghentur, sem nennir að vinna,
óskast nxi þegar til iðnaðarstarfa.
Nöfn umsækjenda leggist í póst
í pósthólf 187.
Ferðatöskur
Innkaupatöskur
Skjalatöskur
Járn- og glcrvörudeil-d
Presto-
skópalæsingar
Krómaðar
gluggasp ennur
Stormjárn
Fatasnagar
Bréflokur
Járn- og glervörudeild
Hermundur Friðriksson
á Gili sjötugur
Hermundur Friðriksson bóndi
á Gili í Hrafnagilshreppi, varð
sjötugur 9. september. Hermund-
ur er góður bóndi og mikill
áhugamaður um jarðrækt og
önnur búnaðarmál. Hann er
smiður góður og ágætur' ná-
granni. Einn af þeirn mönnum er
lætur lítið yfir sér, en er í hópi
þeirra eyfirzku bænda, er sagt
hefur verið um, að væru traustir
menn.
- Hvalveiðar
(Framhald af 8. síðu).
hirtur. í maga hans var eingöngu
rauðáta.
Fimm stórhveli segist Páll hafa
séð í sumar en þau má hann ekki
skjóta, samkvæmt hvalveiðilög-
unum.
Eitt sinn rákust þeir á mar-
svínavöðu austur á Skjálfanda.
Voru í henni 150—200 dýr. Voru
þau gæf og stefndu þeir bátnum í
miðja torfuna. Engu skoti var
samt hleypt af í þetta sinn og
hópnum óskað góðrar ferðar.
Um leið og samtalinu lýkur,
minnir Páll mig kurteislega á
sannsögli, ef eitthvað verði eftir
sér haft, en sjálfur er hann á leið
út á íþróttavöll og verður mark-
vörður í knattspyrnukappleik. í
von um að rétt sé frá hermt,
óska eg þessum gjörfulega manni
góðrar ferðar á völlinn og góðrar
ferðar á sjóinn — þar sem leik-
urinn mun verða drengilegur —
og starf veiðimannsins er gert að
íþrótt.
- Miklar framkvæmdir
í Ólafsfirði
(Framhald af 1. síðu).
ið við hluta verksins. Þar er nú
3y2 metra dýpi á stórstraums-
fjöru. Mjög voru skoðanir manna
skiptar um það, hvort þessi
dýpkun væri framkvæmanleg,
þar sem óttast var að botninn
væri of harður til uppmoksturs.
Þetta reyndist þó ekki og gekk
verkið vel. Til þessa verks hafa
gengið í sumar um 200 þús. kr.
Þá var í sumar byggð 20 metra
bryggja og tengdar með henni
saman tvær aðrar bryggjur, sem
hvor um sig var 25 metrar.
Hafnarbætur og margháttaðar
aðrar framkvæmdir sýna að
Ólafsfirðingum má eflaust skipa á
bekk með þeim er með mestum
dugnaði búa í haginn fyrir ókom-
inn tíma.
Rowntree's
Súkkulaðiduft
sœtt. — á kr. S.00 baukurinn
N ýlenduvörudelidin
og útibúin.
UR BÆ OG BYGGft
I. O. O. F. — 13691781/2 —
Messur á sunnudaginn: í Lög-
mannshlíð kl. 2 e. h. í Akureyrar-
kirkju kl. 5 e. h. — í Glerárþorpi.
Prestur: Kristján Róbertsson frá
Sigluirði.
Áheit á Akureyrarkirkju. Kr.
15.00 frá S. M. K. — Kr. 100.00
rá S. J. — Kr. 26.00 rá Sillu. —
Þakkir. Á. R.
Guðsþjónustur í Grundarþinga-
prestakalli. Kaupangi, sunnudag-
inn 26. sept. kl. 2 e. h. Munka-
þverá, sunnudaginn 3. október
kl. 1.30 e. h.
Dánardægur. Magnús Sigur-
björnsson, Aðalstræti 2, Akur-
eyri, andaðist á Fjórðungssjúkra-
húsinu sunnudaginn 12. þ. m. —
Magnús vann lengi hjá Raveitu
Akureyrar, góður borgari og
vinsæll af öllum sem kynntust
honum.
Ungt fólk annast samkomuna á
Sjónarhæð n. k. sunnudag kl. 5.
Stuttar ræður, mikill söngur og
hljóðfærasláttur. Allir hjartan-
lega velkomnir.
Haustbazar verður í kristni-
boðshúsinu Zion fimmtud. 16.
þ. m., til ágóða fyrir húsið. Þar
verður selt kaffi, blóm, garð-
ávextir, prjónles o. fl. heimaunnir
munir. Opið frá 3—10.
Áheit á Munkaþverárkirkju.
Frá vopnfirzkum konum kr. 150.
Með þökkum móttekið. Sóknar-
prestur.
Hjónaband. Laugardaginn 11.
sept. síðast liðinn voru gefin sam-
an í hjónaband af sóknarprestin-
um í Grundarþingum: ungfrú
Guðrún Ingólfsdóttir og Ingi Jó-
hannesson bæði til heimilis í
Stóra-Dal.
Hjónaefni. 10. þ. m. opinberuðu
trúlofun sína, ungfrú Þóra
Kristín Flosadóttir, Hrafnsstöð-
um, Köldukinn og Gunnar Svan-
ur Hafdal, búfræðingur, Sörla-
txmgu í Hörgárdal.
Styrkið heilsuhælið í Hvera-
gerði. — Á afmæli hins þjóð-
kunna læknis Jónasar Kristjáns-
sonar, mánudaginn 20. september
n. k., verða seld mei-ki Náttúru-
lækningafélagsins hér til styrktar
byggingu heilsuhælisins í Hvera-
gerði. Almenningur er beðinn að
taka merkja-börnunum vel og
styrkja þetta þjóðþrifa-fyrirtæki.
FOKDREIFAR
(Framhald af 4. síðu).
snerti, þar sem börnin í flestum
tilfellum gætu notað leikfimiföt
sín og hvað heilsufræðilegri hlið
málsins viðvikur, álít eg, að
börnunum sé alveg eins nauð-
synlegt að læra að dansa rétt, og
þar með öðlast fallegar hreyfing-
ar, eins og að stökkva yfir hest-
inn og taka heljarstökk. Steypi-
baðið geta þau fengið, eins eftir
dansinn.
f von um að þetta megi finna
hljómgrunn hjá réttum aðiljum,
þakka eg fyrir birtinguna.
Vetrarmann
vantar mig frá 1. eða 15.
október.
Rósa Jónsdóttir,
Þverá. Sími: Munkaþverá.
Kt. E. Kristjánsson.