Dagur - 19.02.1955, Síða 8

Dagur - 19.02.1955, Síða 8
Daguk Laugardaginn 19. febrúar 1955 Hrifnir áheyrendur á hljómleik- um Guðrúnar Kristinsdóffur Hin unga Iistakona, Guðrún Kristinsdóttir, hélt píanótónleika hér í Nýja-Bíó á fimmtudags- kvöldið, og stóð Tónlistarfélagið fyrir hljómleikahaldinu. Húsið var þéttsetið og eftir- vænting áheyrenda mikil, að fá að heyra leik Guðrúnar hér á heimaslóðum eftir sigra þá, sem hún hefur unnið á listabrautinni i Kaupmannahöfn og Reykjavík. Óhætt er að fullyrða, að hún | hafi ekki valdið | vonbrigðum. — ; Hún hafði valið | sér efnisskrá að | hæfi mikilla pí- anóleikara, ekki einhæfa heldur fjölþætta, og lék verk eftir Bach, Mozart, Beethoven, Bartók, De- bussy og Chopin. Fantasíur Bachs lék hún þegar í upphafi af öryggi og leikandi tækni. Þá var ekki síður gam- an að heyra sónötu Mozarts, þar sem hver tónn þessa fíngerða og unaðslega verks hljómaði krist- alskír. En í sónötu Beethovens (Appassionata) kom glöggt í ljós, að auk þess sem Guðrún hefur mikið vald á hljóðfærinu, býr hún yfir skapandi tónlistargáfu. Áheyrendum fannst þeir komast í snertingu við tilfinningahitann, sem brann í brjósti tónskáldsins er hann samdi þetta stórbrotna verk. En þó var túlkunin hófsöm og samboðin góðum listamanni. Með leik þessa verks náðu tón- leikamir hámarki. Seinni hluti hljómleikanna hófst með sónatínu Bartóks, og eru verk hans kennd við nútímann, en mörgum nútímamanni er þó ofraun að dá þann stíl. En fróð- legt er jafnan að heyra fleira en hefðbundna klassík. Nær hjarta manns eru leifturmyndir De- bussy, og Guðrún lék tvö smá- verk hans létt og leikandi, svo að unun var að hlýða. Loks lék hún Chopin, Ballata í f-moll, undur- fagurt verk og ljómaði bæði við- kvæmni og heitt hjarta í túlkun þessa ljóðs, eins og vera ber. Dönsk blöð létu svo ummælt í haust, að íslendingar gætu verið ánægðir með hina ungu listakonu sína. Akureyringar mega vera það öðrum fremur. Ollum má vera Ijóst, að frk. Guðrún hefur stundað nám sitt af mikilli kost- gæfni og að hún hefur náð góð- um þroska. En vonandi verður hér ekki staðar numið, heldur auðnast henni að halda áfram og sækja lengra á listabrautinni úti í hinum stóra heimi. Hljómleikar hennar heima og erlendis gefa fyrirheit um meiri frama. Áheyrendur hér fögnuðu Guð- rúnu forkunnarvel. Bárust henni margir fagrir blómvendir og var hún kölluð fram á sviðið hvað eftir annað. Að lokum lék hún aukalag. — A. Iðja mótmælir inn- flutningi erlends iðnaðarvarnings Aðalfundur Iðju, félags verk- smiðjufólks á Akureyri, var haldinn sl. sunnudag. Á fundin- um var samþykkt ályktun, þar sem skorað er á stjórnarvöld landsins að stöðva óhóflegan inn- flutning á erlendum iðnaðarvör- um, sem hægt er að framleiða jafngóðar í landinu. Þá var og samþykkt ályktun, þar sem lýst er fylgi við þá stefnu, að berjast gegn dýrtíð og versnandi lífskjör- um. í stjórn voru kosnir: Jón Ingimarsson, form., Friðþjófur Guðlaugsson, varaform., Kristján Larsen, ritari, Hjörleifur Hafliða- son, gjaldk. og Hallgrímur Jóns- son, meðstj. — í Iðju eru nú 390 félagsmenn. Bjarni Rafnar opnar lækningastofu Bjarni Rafnar læknir opnar lækningastafu í húsi KEA hér í bæ næstk. mánudag og mun starfa 'hér sem sjúkrasamlags- læknir. — Bjarni var hér áður starfandi læknir um skeið, en fór utan til framhaldsnáms 1952 og dvaldi tvö ár í Danmörk og lagði stund á lækningu kvensjúkdóma sem sérgrein. Síðan starfaði hann eitt ár í Landsspítaalnum í Rvík. Vmis tiðindi úr nágrannabyggðum Lokið skíðanámskeiði í Dalvík f dag mun Ijúka skíðanám- skeiði í Davík. Var það mjög fjöl- sótt og ánægjulegt. Skíðasnjór var ágætur allan tímann og veður oft stillt. Á morgun fer fram skíðakeppni og skilnaðarhóf. — Skíðakennarinn, Jónas Ásgeirs- son, er þegar ráðinn til ung- mennafélaganna í Ongulsstaða- hreppi, og hefjast námskeiðin þar á mánudaginn. Állir bæir á Árskógs- strönd hafa fengið • rafmagn í gær var verið að ljúka við innlagningu á síðasta bænum á Árskógsströnd. Var það Hella. Stóðu vonir til að verkinu lyki í dag. Rafvæðmgin á Árskógs- strönd hefur tekið nokkru lengri tíma en áætlað var og olli það nokkrum vonbrigðum. Híbýli fólksins hafa tekið stakkaskipt- um og veita þann unað og þau þægindi, sem allir landsmenn gera nú kröfu til að njóta. Nokkrar trillur hafa róið að imdanförnu og fiskað sæmilega skammt undan landi. Árskógs- strendingar halda þorrablót í kvöld að Árskógi. Þjóðdansanámskeið á Laugum Þjóðdansanámskeið stendur yf- ir í Laugaskóla. Nemendur æfa dansana af kappi og hafa mjög gaman af þeim. Námskeið þetta, sem stendur aðeins yfir í 10 daga, er góð tilbreyting í skólalífinu. Kennari er Ásdís Karlsdóttir, íþróttakennari frá Akureyri. Nokkrir umgangskvillar hafa valdið óþægindum og truflunum á kennslu að undanförnu í skól- anum. Enginn hefur þó veikzt hættulega, en margir fengið •auða hunda, hlaupabólu og hettusótt. Blöðin mánaðargömul, er þau berast Norður- Þingeyingum Norður-Þingeyingar búa við mikla samgönguörðugleika. — Reykjaheiði lokast fyrst heiða í snjóum, og hin leiðin vestur yfir um Hólsfjöll, verður og snemma ófær. Treysta Norður-Þingey- ingar þá á komur ríkisskipanna, en er þær brugðust, var héraðið einangrað. Síðasta reglulega póstferð frá Reykjavík var 21. janúar, og kon; póstur frá 17. jan- úar, með blöð. Þá barst nokkur póstur með aukaferð Drangs frá Akureyri 4. febrúar, en ekki sunnanblöð. Síðan var engin póstferð fyrr en nú í vikunni, að Drangur flutti kol úr Hvassafelli til Kópaskers. Og nú er ríkisskip á leiðinni. En simnanblöð verða mánaðargömul, er þau berast. — Fólk í þessu héraði furðar sig á því, að póststjórnin skuli ekki reyna að gera sérstakar ráðstaf- anir til póstflutninga er venjuleg- ar leiðir lokast. Til dæmis, að ekki skuli hafa verið sendur snjóbíll yfir Reykajheiði. En snjóbfll frá Akureyri hefur þrá- sinnis ekið til Húsavíkur og bætt úr samgönguerfiðleikum með 'þvf. — Blaðinu var símað frá Kópaskeri nú í vikunni, að sem fyrr væri kaupfélagið vel birgt af nauðsynjum og mundi ekki verða skortur enn um hríð, þótt siglingar tefðust meira. Sjúkra- flugvél Björns Pálssonar kom að Leirhöfn á mánudag og flutti veika stúlku á sjúkrahús. Erfið færð um Þingeyjarsýslu. Ymsir erfiðleikar hafa verið á mjólkurflutningum í Suður- Þingeyjarsýslu að undanförnu, því að vegir eru víða ófærir. — Rutt var fram að Narfastöðum í Reykjadal og hefur tekizt. að halda opnum vegi til Húsavíkur þaðan. Þá er hægt að aka í (Framhald á 7. síðu). Sléttbakur brýtur ísinn Síðastl. sunnudag náði lagísinn út fyrir Odderyratanga og allt út að Hallandi. Togarinn Sléttbakur varð að brjóta sér leið frá Tanga- bryfígjuni) er skipið hélt á leið til Reykjavíkur. — Bærinn Hallandí sést yzt til vinstri á myndinni. Náði lagís óvenjulega langt. Mikið um dýrðir á Akureyri á Iðndsmóíi Ungmennaíél. í sumar Búizt við að mikill mannf jöldi gisti bæinn nm mánaðamótin júní-júlí Landsmót Ungmennafélags ís- lands verður háð á Akureyri dagana 2. og 3. júlí í sumar og landsþing ungmennafélagssam- takánna fer einnig fram á Akur- eyri. Verður það háð dagana á undan, 30. júní og 1. júíí. Ung- mennasamband Eyjafjarðar hef- ur tekið að sér að sjá urn lands- mótið. Undirbúnmgur er þegar hafinn. Mikið um dýrðir. Samkvæmt heimildum frá U. M. S. E. verður mikið um dýrðir á Akureyri þessa daga og búizt við geysilegum mannfjölda hvað- anæfa af landinu eins og á fyrir- farandi landsmótum ungmenna- félaganna. Fyrri mótsdaginn fer fram skrúðganga og lúðrasveit leikur. Fáni Ungmennafélags íslands verður vígður, starfsfþróttir fara „Hatta“ bar á gamlárskvöld ,,Hatta“, eign Famieyjar Jónsdóttur, Aðalstræti 82 hér á Akureyri er á þriðja vetur. Átti hún á sl. vori tvö lömb. Lambið, sem hún eignað- ist á gamlaárskvöld var hvítur hrútiu: og dafnar hann vel. fram og háð verður glímukeppni og frjálsíþróttakeppni. Síðari daginn fer fram sund- keppni, útifundur, keppt verður til úrslita í frjálsum íþróttum. — Guðsþjónusta verður í kirkjunni. Þá verður kórsöngui-, þjóðdansar, fimleikasýningar. Þingeyingar sýna bændaghmu og kvikmynda- húsin sýna væntanlega íþrótta- kvikmyndir og dansað verður í samkomuhúsunum. U. M. S. E. mikill vandi á höndum. Eins og sjá má af þessu laus- lega yfirliti, verður margt að sjá og heyra þessa dagana á Akur- eyri. Á hitt verður líka að líta, að erfitt verk bíður U. M. S. E., að sjá svo um landsmót þetta að til sóma verði okkur Norðlending- um. Veltur það á fjölmörgum að- ilum hér á Akureyri og víðar, að slíkt geti orðið. Héraðsstjórinn, Valdimar Óskarsson, lét þess getið, að þeir aðilar, er þegar hef- ur verið leitað t.il um fyrir- greiðslu hér í bæ, hafi tekið sér mjög vel og haft fullan vilja á að greiða götu U. M. S. E. Þingeyingar æfa glímu. Þingeyingar æfa nú glímu af kappi, bæði í Reykjadal og Mý- vatnssveit. Vagga íslenzku glím- unnar hefur I.engi staðið í Þing- eyjarsýslu og enn í dag eru þar margir ágætir glímumenn. — Bændaglíman, sem þeir ætla að sýna á landsmótinu, mun því vekja mikla athygli. Leiksýningar? Æskilegt hefði verið að ung- mennafélögin, eitt eða fleiri, hefðu séð sér fært að hafa leik- sýningar, eina eða eða fleiri, í Samkomuhúsi bæjarins mótsdag- ana.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.