Dagur - 19.03.1955, Page 4

Dagur - 19.03.1955, Page 4
D AGUR Lau"ardaginn 19. marz 1955 >4444444444444444444444444444444444444444444444444$1 DAGUR Ritstjóri: HAUKUR SNORRASON. AfgreiSsla, auglýsingar, innheimta: Erlingur Davíðsson. Skrifstofa í Hafnarstræti 88. — Sími 1166. BlaSið kemur út á hverjum miðvikudegi. Árgangur kostar kr. 60.00. Gjalddagi er 1. júlí. PRENTVERK ODDS P.JÖRNSSONAR H.F. Undarleg þögn FYRIR NOKKRU skýrði forstjóri Sambands sl. samvinnufélaga frá því í ræðu, sem hann hélt íhér, að viðstöddum blaðamönnum og ýmsum gest- im, að fjárfesting Sambandsins í iðnaðarfyrir- '.ækjunum hér á Akureyri næmi tugum milljóna jtróna. Hefði verið unnið þannig að uppbyggingu . ðnaðarins hér á Akureyri, að til frambúðar væri. Húsin og vélarnar nægðu til þess að skila allt að pví helmingi meiri afköstum en er í dag. En þetta jafngildir því, að til eru hér í bænum hús og vélar il þess að veita hundruðum manna lífvænlega at- dnnu, til viðbótar því iðnverkafólki, sem fyrir er, og greiða a. m. k.. 10 milljónir króna á ári í vinnu- aun í viðbót við það mikla fé, sem í dag er greitt .ðnverkafólki í verksmiðjunum. Til þess að þessi abstaða, sem samvinnufélögin hafa skapað hér á Akureyri, nýtist til fulls, þarf að auka markað : yrir framleiðsluvörurnar. Landsmenn þurfa að aka innlendar vörunr fram yfir útlendar vörur. 3r það heldur enginn neyðarkostur, því að ný ;ækni og aukin kunnátta hafa skipað framleiðslu samvinnuverksmiðjanna í flokk hinna beztu fáan- ! egu iðnaðarvara; og verðið er í alla staði sam- .íeppnishæft, og oft mun lægra en á erlendri vöru. OLLUM, sem á hlýddu, hlaut að vera ljóst, að fiér var á dagskrá stórfellt hagsmunamál Akur- íyrar. Þegar þær tölur, sem forstjórinn nefndi, ■iiu bornar saman við áætlaðan kostnað við að íoma hér upp hraðfrystihúsi, og aðgætt er, hver atvinnuaukning leiðir af starfrækslu þess, sjá : nenn í einu vetfangi, hversu stórfellt átak til upp- byggingar samvinnufélögin hafa gert hér á Akur- (iyri. Aukin sala framleiðsluvara samvinnuverk- ísmiðjanna jafngildir beinlínis aukinni atvinnu og auknum vinnulaunum til fólksins hér á Akureyri, og á hvort tveggja er mikil þörf. Um þetta ættu dlir bæjarmenn að geta verið sammála. EN ÞÁ BREGÐUR svo undarlega við, að í blöð- im bæjarins ríkir alger þögn um þetta stórfellda i.iagsmunamál. Það þykir ekki í frásögur færandi íuér, að til sé hér á staðnum tæknileg aðstaða til að veita 200—300 manns fasta atvinnu og greiða iiO—11 milljónir króna í vinnulaun, í viðbót við atvinnureksturinn sem fyrir er! Hvað er hér að gerazt? Eru menn blindir fyrir þeim möguleikum, aem þarna eru fólgnir fyrir bæ og hérað? Skárra r/æri það en viðleitni til að fela fyrir almenningi ipessa stórfelldu möguleika til þess að efla at- vinnulífið og treysta afkomuöryggi þeirra, sem ?áér búa. Aukið gengi íslenzks iðnaðar í heild er stór- ::elldasta hagsmunamál Jæssa bæjar um þessar :nundir. Verðhækkun á rafmagni EFTIR AÐ BIRT hefur verið greinargerð um íauðsyn þess að hækka verð á rafmagni, er aug- Ijóst, að bæjarstjórnin hér á eins og sakir standa ekki annars úrkosta en breyta verðskránni og krefja hærri greiðslu af bæjarbúum fyrir selt raf- ínagn. Rafveita Akureyrar verður að skipta við i£ 1 *■« fk I V; heildsala sem heitir Laxárvirkjun og er að kalla má ríkisfyrirtæki, þótt bærinn sé þar meðeigandi að nokkru leyti Og þessi heildsali hefur tilkynnt hækkun á vöru sinni, sem Rafveitan verð.ur að velta yfir á kaupendur. Þáð eru því verzlunarhættir Laxárvirkj- unar, sem þarfnast athugunar. SAMKVÆMT greinargerð þeirri, sem birt hefur verið, þarf Laxárvirkjunin að verja 5,5 millj. á þessu ári til vaxta og afborgana af lánum, auk þess sem reksturs- kostnaður er áætlaður 875 þús. kr. Af þessari heildarupphæð, 6,3 millj., eiga Akureyringar að greiða 5,1 milljón, eða bróður- partinn. Síðan 1953 hefur skatt- heimta fyrir selt rafmagn hér í bæ hækkað úr 859 þús. kr. í rösk- ar 5 millj. í ár. Hækkunin er gíf- urleg og í rauninni meiri en rétt- lætanlegt er eins og allt er í pott- inn búið. Hér er gert ráð fyrir að greiða mannvirki, sem á lengi að standa, að fullu á 15 árum. Vext- ir af lánum eru reiknaðir 5Vz% af ríkisvaldinu, eða framkvæmda- banka þess, og er þó um að ræða gjafafé. Viðskiptaaðferðin er sú, að til þess að fá fé til afborgana og vaxta, er hækkað verð á seldu rafmagni í dag að því marki, að það skili allri upphæðinni. Með þeim hætti verða notendur í dag líka að greiða fyrir hið ónotaða rafmagn, sem ríkisvaldinu hefur enn ekki unnist tími og fé til að leiða austur á land eða í aðrar áttir. Hér virðist um mjög vafa- sama stefnu að ræða, svo að ekki sé fastara að orði kveðið, og vel kann svo að fara, að hin stórfellda hækkun verði til þess að draga úr notkun á rafmagni hér á sama tíma og mikil afgangsorka er fyr- ir hendi og nýtist ekki. EINS OG FYRR segir mun ekki um annað að ræða fyrir bæjarstjórn Akureyrar en ráð- gera hækkun á smálsöluverði sínu að sinni. En jafnframt sýnist sjálfsagt, að teknar verði upp viðræður við ríkisvaldið um það ' réttlæti, sem notendum raf- magns er skammtað með þessum aðgeiðum. Akureyrarbær lét á sínum tíma orkuver sitt, er hann hafði byggt, ganga inn í sameign ríkis og bæjar við Laxá, fyrir ] lágt verð. Aldrei var til þess ætl- ast, að uppskeran af því yrði sú, sem nú er orðin. Afgangsorkan við Laxá er eign þjóðfélagsins, og meðan hún notast ekki, verður heildin að bera kostnaðinn af því, en ekki fólkið á Ak. og í sveit- unum í grennd. Engin ástæða er til þess fyrir fólkið hér nyrðra, að taka þegjandi við þeim skerf, sem ríkisvaldið hefur hér skýringar- lítið að því rétt. Eftirlegukindur kommúnista. KOMMÚNISTABLAÐIÐ hér hefur stokkið upp á nef sér rétt einu sinni vegna þess að Dagur birti nú í vikunni bréf frá þing- eyskum bónda, þar sem farið er heldur ómildum orðum um kvik- myndina Sölku Völku. Eiga kommatetrin naumast orð til að lýsa hneykslun sinni, að andað skuli á Halldór Laxness. Með skrifum þeim koma þeir upp um þá skoðun sína, að loka eigi blöð- unum fyrir bréf og greinar frá al- menningi, ef þau falla ekki að öllu leyti saman við skoðanir þeirra. \em blöðin rita. Er þetta raunar viðhorf allra einræðis- sinna, að binda fyrir munninn á almenningi nema þegar honum er ætlað að syngja einvaldsherrun- um lof og dýrð. HÉR í BLAÐINU er mönnum yfirleitt leyft að kveðja sér hljóðs um ýmis málefni, og það þótt sumir þeir rithöfundar séu ekki sammála blaðinu um þau mál, sem um er rætt. Blöðin eiga að verar vettvangur almennra um- ræðna. Dagur taldi því rétt að leyfa þingeyska bóndanum að lýsa skoðun sinni á kvikmynd- inni um Sölku Völku. Skoðun blaðsins sjálfs á myndinni var lýst, er hún var sýnd hér á Akur- eyri, og er hún önnur en skoðun bréfritarans. En menn eiga að fá rúm til þess að, lýsa viðhorfum sínum til almennra rnála, bótt það fari í taugamar á einhverjum, sem ekki eru sama sinnis. „Verkam.“ er svo mjög niðri fyr- ir út af þessum dómi Þingeyings- ins, að hann birtir tyo. skammar-; pistla um hann, en gáir ekki að sér og fer villur vegar. Ætlar blaðið að gera heilmikla samlík- ingu á andlegu ástandi þingeyska bóndans og eftirlegukindum sem það segir „þingeyska bænd- ur“ hafa fundið, er beir fóru „skemmtiferð inn á Vatnajckul“ o. s. frv. Gallinn er bara sá. að það voru bændur úr Fljótsdal, sem fóru í bennan leiðangur og fundu eftirlegukindurnai' og komu Þingeyingar þar bvergi nærri. Eru kommúnistar því heldur betur áttavilltir eins og fyrri daginn. En þeir eru sífellt að villast, enda með eilífa átta- vitaskekkju, sem ekki lagast fyrr en þeir losa sig við kredduna. ísfirðiugar ræða „jafnvægi í byggð landsins". Bæjárstjórnin á Isafirði gerði ný- lega ályktun um „jafnvægi í byggð landsins", sem blaðið vill vekja at- ltygli á. Er þar fjallað um málefni, sem oft liafa verið til umræðu hcr í blaðinu. Minna þessi mál öll á nauðsyn þess, að kaupstaðirnir úti á landi taki upp samvinnu sín i milli. Var tilraun gerð til þcss hér um árið, cr efnt var til kaupstaða- ráðstcfnu, en því miður fór svo, að sú tilraun drukknaði í grautarpotti flokkabaráttunnar. Menn reyndust meiri flokksmenn, sumir hverjir, er á hólminn kom, en fulltrúar lands- byggðarinnar. En ályktun ísfirðinganna cr á þessa leið: Ályktun bæjarstjórnar. „Bæjárstjórn ísafjarðar skorar eiudregið á Alþjngí og ríkisstjórn að eftirláta bæjarfélögunum utan Réykjavikur nauðsynlega tekju- stofna, og bendir þar sérstaklega á söluskatt og landsútsvar. Jafn- framt skorar bæjarstjórnin á Al- þingi og ríkisstjórn áð. létta af bæj- arfélögunum lögboðnum útgjöldum t d. lögreglukostnaði og framlagi til ahnannatrygginga. Bæjarstjiirnin telur það vera nauðsynlegari þátt í J>ví að viðhalda jáfnvægi í byggð landsins, að létta útsvarsbyrðum af íbúum Jjeirra bæj- arfélagá úti um land, sem eins og (Framhald á 7. bls.). ERLEND TIÐINDI Átökin í \ erkamannaflokki Breta verða e. t. v. Attlee og Bevae háðum til falls Síðastliðinn miðvikudag samþykkti þingflokkur brezkra jafnaðarmanna að víkja Aneurin Bevan, fyrrv. heiibrigðismálaráðherra, og foringja vinstri- arms flokksins, úr þingflokknum. Formaður flokks- ins, Clement Attlee^ bar sjálfur fram tillöguna. Hún var samþykkt með naumum meirihluta. — Eftir þetta situr Bevan á þingi sem óháður V erkamannaflokksmað - ur, en er enn í Verka- mannaflokknum sjálfum nema miðstjórn hans ákveði að fylgja dæmi þingflokksins og gera hann flokksrækan. En það mál mun koma á dagskrá innan skamms. Eru þetta allt allmerkir atburðir í stjórnmála- sögu samtímans og rétt að athuga þá dálítið Átökin hafa veikt nánai. aðstöðu Attlees. I blaðaskrifum um að- draganda þessa máls kerrulr glöggt fram, að hér er meira á bak við en átök, sem urðu í milli Bevans og flokksleiðtoganna í þinginu nú fyrir fáum dög- umt er Bevan og 61 fylgismaður hans snerust önd- verðir gegn málflutningi Attlees í landvarnamálum. Hér er raunar um að ræða uppgjör eftir fjögra ára linnulaust ósamkcmulag í milli Bevans og flokks- forustumiai’, bæði utan þings og innan. í rauninni hefur staðið minni styr-r um málflutning Bevans en framkomu hans. Hann er af ýmsum flokksmönnum talinn hafa miðað baráttu sína síður við framgang máiefna en raunverulega valdastreitu um forust- una í flokknum. Takmark hans, segja andstæðingar hans sumir, hefur fremur verið að stéypta Attlee af stóli og hrifsa til sín flokksforráðiri en breyta raun- verulegri stefnu flokksins í mikilvægustu málum. Og þessar aðferðir hans hafa nú leitt til brottrekst- ursins af hendi þeirra, sem hafa meirihluta í þing- flokknum, þótt naumur sé. En ýmis blöð telja. þar á meðal frjálslynda blaðið Manchester Guardian, að þessi átök muni e. t. v. verða til þess að Attlee missi flokksforustuna, þótt hann hafi um sinn sigrað Klofningurinn í flokkn- um er svo mikill, að þeir, sem andvígastir eru Be- van, munu einskis láta ófreistað til þess að hann verði rekinn úr flokknum sem heild og þeir telja Attlee allt of hægfara og varkáran, og ekki munar nema hársbreidd að þeir snúist gegn honum líka og heimti skeleggari forustu. Fari svo, er Attlee vafa- laust oltinn úr sessi, og nýr forustumaður tekur við. Vel má svo fara, að saman dragi aftur, þótt ekki horfi líklega um það nú. Minna má á, að Bevan hef- ur fyrr verið rekinn úr flokknum og var tekinn í sátt eftir nokkurt tímabil. Það var árið 1939, er bæði Bevan og Sir Stafford Cripps var vikið úr flokknum um stundarsakir. En báðir komust fljótt til valda og áhrifa innan flokksins og syndir þeirra voru Jieim þá fyrirgefnar. Með Bevan stendur harðsnúið lið þingmanna og eru þar sumir verulegir áhrifamenn bæði í ræðu og riti. Samt telja sumir þeirra, að Bevan hafi gengið of langt í andstöðu sinni við flokksforustuna, og munu ekki fylgja honum á eyðimerkurgöngu hans. Meðal Jieirra er Richard Crossmann, sem á að hafa sagt, að Bevan væri sjálfur versti óvinur pólitískrar framtíðar sinnar. Meirihluti Attlees var naumur, en lið hans er sterkara en tölurnar gefa til kynna. Að baki hans (Frámhald á 7. síðú).

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.