Dagur - 30.03.1955, Page 1
FyJgist með því, sem gerizt
hér í kringum okkur. —
Kaupið Dag. — Simi 1166.
DAGUR
kcmur næst út laugardag-
inn 2. apríl.
XXXVni. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 30. marz 1955
18. tbl.
Fruswarp m nfíf veðiánakerfi,
im veifir tÖÖ miiij. lil íbúðafána
Sett verður upp Iiúsoæðisstjórn - gefin út
vísitölutryggð verðbréf
í gær Iag'ði félagsmálaráðherra fram á Alþingi frumvarp um mikia
aðstoð ríkirins við íbúðarbyggingar og nýtt fyrirkomulag þeirra
máfa. Er ætlunin að veita 100 millj. krónur til íbúðarlána á þessu
ári og jafnbáa upphæð á næsta ári.
Er frv. þetta í samræmi við
stjó.rnarsamninginn um aukna að
stoð almannavaldsins til lausnar
hú.snæðisvandamála í sveitum og
bæjum. Af þeirri heildarupphæð,
sem varið verður til lána, mun
byggingasjóður sveiíanna fá 12
millj. hvort árið.
Húsnæðisstjórn.
Frumvarp þetta er mikill bálkur,
og verður hér á eftir aðeins stikl-
að á aðalatriðunum Sett verður
á stom sérstök húsnæðisstjórn, er
heyrir undir félagsmálaráðuneyt-
ið. Á hún að beita sér fyrir um-
hótum í húsnæðismálum, hafa
yfirumsjón með lánsfjáröflun og
lánveitingum til íbúðabygginga í
landinu. í stjórn þessari sitja 3
menn, sem ríkisstjó.rnin skipar til
sex ára.
Nýtt veðlánakerfi,
Komið verður á stofn nýju veð-
lánakerfi til íbúðabygginga, und-
ir stjórn húsnæðisstjórnar og
Landsbanka íslands. í því skyni
gefur Landsbankinn út banka-
vaxtabréf fyrir 200 millj. króna
á árunum 1955 og 1956. Er fénu
skipt í A-lán, er verða 60% láns-
fjárins, og B-Ián, er verða 40%.
A-lánin eru með föstum vöxtum
cg aíborgunum ,en B-lánin verða
veitt með vísitölukjörum og af-
borganir og vextir bundið fram-
færsluvísitölunni. Er þetta algert
nýmæli. Fé til veðlánastarfsemi
Verzlunum hér lokað
á hádegi á föstudaginn
Vegna hátíðahalda í tilefni
af aldaraímæli frjálsrar verzl-
unar á íslandi, sem fram fara
hér í bænum á föstudaginn
kemur, verður verzlunum bæj-
arins lokað þann dag frá há-
degi. Dagsins verður minnzt
með samkomu á Ráðhústorgi,
er hefst kl. 1. l»ar leikur
Lúðrasveit bæjarins, og Frið-
jón Skarphéðinsson bæjarfó-
geti flytur ræðu.
Síðegis er boð inni hjá Verzl-
unarmannafélagi Akureyrar og
Kaupfélagi Eyfirðinga fyrir
verzlunarmenn og ýms-a aðra
gesti. Verða þar fiuttar ræður
í tilefni þessa afmælis.
þessarar verður aflað þarmig:
Veðdeild Landsbankans selur
bankavaxtabréf, til hennar falla
og afborganir og vextir af smá-
íbúðarlánum, en þau falla nú
undir þetta kerfi, þá verður aflað
fjár með lánum hjá bönkum og
sparisjóðum, þá er og varasjóður
þessarar deildar og að lokum er-
lend lán, sem Landsbankinn tek-
ur til íbúðabygginga.
Útlán til einstaklinga og
byggingarfélaga.
Lán verða aðeins • veitt til
íbúðabygginga, til meiriháttar
viðbygginga og til kaupa á nýjum
íbúðum. Þau veitast enstaklng-
um og byggngafélögum. Láns-
upphæðin má vera allt að 2/3
kostnaðarverðs íbúðar, þó ekki
yfir 100 þús. kr. á íbúð. Lánin
verða bæði A-lán og B-lán til
sömu íbúðar, þannig að A-lánið
verður ekki lægra en 50 þúsund
kr., og B-Iánið ekki lægra en 20
þúsund kr. Lágmarkslánsupphæð
er því 70 þús. kr., og hámarks-
upphæð 100 þús. A-lán skulu
tryggð með 1. veðrétti í íbúðum,
en B-lán með samhliða veðrétti,
eða 2. veðrétti. Af Alánum verða
7 % vextir og þau til 25 ára, en af
BMnum verða hliðstæð kjör og af
vísitölutryggðum verðbréfum, en
vextir mega þó vera 1/4% hærri
en af bankavaxtabréfum.
Samkvæmt greinargerðinni hef-
ur Landsbanki íslands fallist á að
annast fjárútvegunina og aðra
starfsemi, sem þessu nýja kerfi er
samfara.
Merkilegt mál.
Frumvarp þetta er hið merkatsa
nýmæli. Er svo til ætlast að með
því verði heilsuspillandi húsnæði
brátt útrýmt og húsnæðismál al-
mennings öll færð til betri vegar.
Óskar Eiríksson
verður garðyrkju-
ráðunautur hæjarins
Á bæjarstjórnarfundi í gær var
samþykkt að ráða Óskar Eiríks-
son, búfræðikandídat, garðyrkju-
ráðunaut í stað Finns Ámasonar.
Líkan af skálabyggingu í Hlíðarfjalli, sem gerð væri upp úr gamla sjúkrahúsitiu. Byggingalagið er látið
halda sér að rnestu ncma ris er hækkað til að fá svef iloft. Skáli þessi mundi fullnægja þeim kröfum
seni eru gcrðar til fyrsta flokks skíðaskála. —
Bæjarstpra lætor af fiendi hlota
gainla sjákraliássins - ýmis félags-
samtök styðja málið
Verkfaíl Iiefst hér
á föstodag -
Áður boðað verkfall hjá
Verkamannafélagi bæjarins og
Verkakvennafél. mun hefjast á
föstudag. Er talið ólíklegt að
samið verði fyrir þann tíma.
Fátt nýtt hefur gerzt í verk-
fallsmálunum syðra síðustu
daga og Iiggja samningafundir
niðri að sinni. Það bar þó til
tíðinda að fyrirtæki Hafnar-
fjarðarbæjar sömdu við verka-
lýðsfélögin á staðnum og gengu
að öllum kröfum þcirra, en þeir
samningar breytast í samræmi
við heildarsamninga þá, sem
væntanlega verða gerðir. í
bæjarstjóm Hafnaríjarðar ráða
jafnaðarmenn og kommúnistar.
Nokkrir aðrir atvinnurekendur
í Hafnarfirði hafa samið á þess-
um grundvelli.
„Mýs og menn“ á
laugardaginn
Frumsýning á sjónleiknum
„Mýs og menn“ eftir Steinbeck,
verður að öllu forfallalausu n. k.
laugardag, 2. opríl kl. 8 s. d., en
næstu sýningar á sunnudag og
miðvikudag fyrir páska.
Fastir frumsýningagestir þurfa
að vitja aðgöngumiða sinna í dag i
og á morgun, og verða þeir til.
afhendingar í verzl. London.
Að öðru leyti verður tekið á
móti aðgöngumiðapöntunum í
símá 1639 milli kl. 1 og 2 daglega,
*:n aðgöngumiðasala verður opin
í afgreiðslu Morgunblaðsins Jeik-
dagana frá kl. 4.30 til 6, og í leik-
húsinu kl. 7 til 8.
Athygli fastra frumsýningar-
gesta skal vakin á því, að vegna
mikilla eftirsþurna eftir fj um-
sýningasætum, veroa þeir miðar
sem ekki eru só-ttir á tilsettum
tíma, seldir öðrum án frekari fyr-
irvara.
Þau munu nú vcrða örlög
sjúkrahússins hér á Akureyri, að
elzti bluti þess verður fluttur upp
í lliíðarfjall og endurbyggður þar
sem almenningsskíðaskáli.
Verður þessi bygging því enn
um ókomin ár til þess að bæta
heilsu manna og örva heilbrigt
líf. Ei-u þetta góð endalok á
löngu þjónustuhlutverki þessa
aldna húss.
Bæjarstjórn samþykkir að
láta búsið.
Bæjarstjórn staðfesti á fundi
sínutn í gær samþykkt bæjarráðs
10. marz, um að láta Fei'ðamála-
félag Akureyrar fá gamla spítal-
ann, að undanskildum ganginum
að sunnan og steinhúsinu að
norðan, til þess að endurreisa
hann sem almenningsskíðaskála á
Selhæð í Hlíðarfjalli. Er þetta
raunar ekki anikil fórn fyrir bæ-
inn. Á sínum tíma fékk bærinn 80
þús. kr. tilboð í allan spítalann,
en hefur nú selt steinhúsið fyrir
70 þúsund kr. Hins vegar er þetta
framlag líklegt til þess að hrinda
áleiðis því nauðsynjamáli, að
koma upp almenningsskíðaskála í
Hlðarfjalli, bæta aðstöðu til að
jhalda hér skíðamót og fá bæjar-
mönnum aðstöðu til að notíæra
sér hið ágæta skíðaland hér í ná-
grenni bæjarins.
Eftir norskri fyrirmynd.
Ferðamálafélagið hefur að
undanförnu unnið að því að und-
irbúa skálagerð í Hlíðarfja'Ii og
hefur m. a. aflað upplýsinga fi'á
Noregi um skálagei'ð. Hefur fé-
lagið nú bráðabirgðateikningu af
skála, sem byggja mætti úr gamla
spítalanum án þess að raska
húsaskipan miög mikið. Er þetta
myndarlegt hús, röskl. 280 fer-
metrar, ein hæð með risi. Er ætl-
ast til að á neðri hæð verði veit-
inga- og samkomusalur og leik-
stofur, skíðageymsM, snyrtildefar
o. fl., en á í'ishæð svefnloft, er
einkum mundi hentugt fyrir
skólafólk í útilegum, auk þess
sem þar er aðstaða fyrir húsvörð.
Skáli þessi mundi vei'ða hin.
myndarlegasta bygging, en mikið
verk og kostnaðarsamt er að
koma honum upp Hyggst Ferða-
málafélagið leita samvinnu við
íþróttafélögin, skólana og ýmis
önnur félög og stofnanir um mál-
ið, og er líklegt að almenn sam-
staða fáist um þessa framkvæmd.
Vegurinn, sem er lykill að
fjallinu.
S.l. sumar lét Ferðamálafélag-
ið hefja vegargerð í Hlíðarfjalli,
en sá vegur er lykill að því, að
hægt sé að njóta aðstöðunnar til
skíðaíþróttar. Er vegagerðin all-
mikið vei'k og kostnaðai'samt og
verður henni haldið áfram í sum-
ar. Þykir reynslan sína, að þarna
megi koma upp akvegi, sem fær
sé bílum í öllum venjulegum
vetrum. Hefur vegarpartur sá,
sem gei'ður var í sumai', verið
upp úr snjó í allan vetur.
Aðalíundur Ferðamálafélagsins.
Aðalfimdur Ferðamálafélagsins
var haldinn s.l. mánudagskvöld.
Var þar rætt um þessi mál og
stjórninni heimilað að halda
áfram undirbúningsstarfi sínu
við vegagerð og skálabyggingu.
Ur stjórn áttu að ganga Kristján
Kristjánsson, Jakob Frímanns-
son, Karl Friðriksson og Einar
Kristjánsson og voru þeir allir
endurkjörnir, en fyrir í stjórn-
inni eru Hermann Stefánsson,
Kristinn Jónsson og Haukur
Snoi-rason.