Dagur - 30.03.1955, Side 2

Dagur - 30.03.1955, Side 2
2 DAGUR Miðvikudaginn 30. marz 1955 Þðð þarf að varðveita gömlu húsin í Fjörunni! Hugleiðing í tilefni af samkomu Zontaklúbbsins fyrir Nönnahúsið Sunnudaginn 20. niarz sl. efndi Zonta-klúbbur Akureyrar til nokkurs konar kynningarsam- komu á Hótel KEA hér í bæ. — Var til samkomunnar stofnað í því skyni, að kynna starfsemi fé- lagsins, sem á þessum árum sér- staklega beinist að því að halda í heiðri minningu skáldsins og rit- höfundarins Jóns Sveinssonar (,,Nonna“). — Zontafélagsskap- urinn er að sínu leyti eins og Ro- tary, alþjóðafélagsskapur, þar sem konur ,er reka sjálfstæða at- vinnu eða stjórna fyrirtækjum, eru þátttakendur. — Það kemur því vel heim við hugsjón þessa félagsskapar, að taka sér fyrir hendur að halda á lofti minningu heimsborgarans „Nonna“, sem jafnframt er heiðursborgari Ak- ureyrar. Þetta var mjög ánægjuleg kynning. Salarkynni hótelsins vistleg eins og æfinlega: Björt hlý og hrein og blóm á borðum og alúð félagskvenna, eins og nærri má geta, hin hlýlegasta. Margt var til skemmtunar: Hljómlisý söngur og ræður. — Svafa Jónsdóttir, leikkona, setti samkomuna, Gísli Jónsson, menntaskólaken'ppj'i, flutti- ^ett erindi um skáldið og Árni íírist- jánsson, menntaskólakennari, las upp úr dagbókum Sveins föður „Nonna“ og úr bókinni „Nonni“. Líf og starf Jóns Sveinssonar má heita eitt hið mesta og sér- kennilegasta æfintýri, sem fyrir íslending hefur komið, og hafa þeir þó margir lent í ýmsu. Jón var einn hinn mesti ferðalangur á sínum tíma, fór t. d. kringum hnöttinn (en það er nú orðið svo hversdagslegt!). En þeir munu færri, sem haldið hafa 4515 (að eigin sögn) erindi um ísland á ótal mörgum þjóðtungum eins og „Nonni" gerði og bækur hans eru þýddar á 30 þjóðtungur. — Þar hefur „Nonni“ stungið alla ís- lendinga út! ,,Nonni“ átti heima á Akureyri, áður en hann, barn að aldri, fór til útlanda, og svo einkennilega vill til, að húsið, sem mamma hans átti, er til enn. — Það er þetta hús, sem Zonta-klúbburinn hefur eignast, góðu heilli, fyrir tilstilli eigendanna: Sigríðar Da- víðsdóttur og Zóphoníasar Árna- sonar, og það er hugsjón félags- kvennanna að laga og prýða þetta gamla hús í Aðalstræti 54 (Fjör- unni), svo að það verði sómasam- leg minning um Jón Sveinsson. Bráðum á „Nonni“ 100 ára af- mæli (16. nóv. 1957) og þá vilja konurnar að hægt-verði að hafa húsið til - sýnis - almenningi, og hyigjast þá'hafá safnað því, sem til næst, af minningum um hann, Þeir,' sém Hfá það, að Nonna- húsið komist upp (og það er ekki hætt við að konunum takist það ekki), munu viðurkenna, að þær, hafi lauðgað Akureyrarbæ að’ merkum verðmætum, sem inn- lendir og erlendir férðamenn t. d. munu gera sér far um að kynnast. En það er fleira þama í Fjör- unni, sem þarf að varðveita en „Ntinnahúsið"! —’ Það er gamla húsið hans séra Matthíasar, þar þarf aðkoma upp Matthíasarsafni. — Þar er gamla prentsmiðjan hans Björns Jónssonar, elzta prentsmiðja á Akureyri. — Þar er einnig hús Friðbjarnar Steins- Forn söngur og nýr Nokkur forn islenzk viðkvœdi, sbr. ritgerð Finns Jónssonar um islenzk fornkvœði i Ársriti Frœðafé- lagsins 1916: — Enginn veit til angurs fyrr en reytiir. — Stí er enginn glaður eftir annan þreyr. — Vel vitdi eg við veröldina skilja. — Syrigur i siglubandi, kaldr vindr er genginn burt af landi. — Fellur dögg á fagra eik i lundi. — Það er kaupmanna prýði, peir vinda segl við rá, sigla peir sjó, pó sjóinn yfir pá drifi. — Blitt lœtur veröldin, fölnar fögur fold, langt er siðan mitt var yndið lagt i tnold, — Hvað vilja bœndur kcera, nú tnega hofmenn lœra. sonar, þar sem Goodtemplara- reglan var stofnuð hér á landi og Friðbjöm hafði sína bókasölu, sem líklega er sú elzta á Norður- landi. Það ætti ekki illa við að sám- eina allt þetta hverfi og gera úr því eitt allsherjar byggðasafn, stafn af gömlum, merkum húsum, þar sem meikismenn-hafa-húsum ráðið. Og safna þar að sjálfsögðu mörgum merkum munum og verðmætum, sem minna á þá merku eigendur. Þá verður gaman að koma J Fjöruna, þó blessuð kirkjan sé farin, illu heilli- Að þessu munu mörg og góð öfl vinna, en bezt treysti eg kon- unum til framkvæmda. Halldóra Bjarnadóttir. Hver vill faka að sér að aka börn- um að Pálmholti í sumar? Barnaheimilið færir út kvíarnar - leysir vanda- mál margra beimila Barnaheimilið Pálmholt, sem Kvenfélagið Hlíf starfrækir hér í útjaðri bæjarins, hefur nú starf- að í 5 sumur og nú, er 6. surr.arið fer í hönd ,er heimilið að færa út kvíarnar, því að aðsókn er mikil og vaxandi og reynslan sannar, að starfræksla heimilisins leysir vandamál margra heimila í bæn- um, og helzt þeirra, sem mesta rörf hafa fyrir örugga barna- gæzlu af ýmsum ástæðum. Blaðið átti nú í vikunni tal við frú Elin- borgu Jónsdóttúr og frú Kristínu Pétursdóttur um þessimál. Skýi'ðu )ær frá því, að ákveðið væri nú að taka 60 börn á aldrinum 3—5 ára á heimilið í sumar, og er það fleira en nokkru sinni fyrr. í fyrra var hafizt handa um að byggja leikskála við heimilið og verður því verki lokið í sumar. Batnar þá aðstaða til muna. Ann- ars er heimilið vel búið að öllu leyti og landrými er nægilegt. Hefur félagið nú nýlega fest kaup á landi til viðbótar, og er land- rými Pálmholts þá orðið um 8 «*■ • dagsláttur. Forstöðijjcpna í sum- verður ungfrú Margrét jSehram. ei) .þún, er útskrifua jir fkstruskólp 1 Reýkjavlk, Vpr hún fóstra á heimilinu í fyrra og töldu þær Elinborg og Kristín að heim- ilinu væri vel borgið í höndum hennar og hins bezta af henni að vænta í starfinu. —o— En barnaheimilið á nú að stríða við vandamál, sem ekki er enn séð hvernig leysist: flutningur barnanna að heimilinu og frá því. Undanfarin ár hefur 26 manna vegn annast flutningana kvölds og morgna og var það fyrir- komulag ágætt, en nú er sá vagn tekinn til annarra nota og ekki fáanlegur. Er heimilinu nú hin brýnasta nauðsyn að komast í samband við einhvern aðila, sem hefur ráð á „rútubíl" eða öðrum hentugum vagni, sem nota mætti til þessara flutninga kvölds og morgna. Vill blaðið hér með bcina því til þcirra, sem ráð hafa á slíku farartæki, í bæ eða héraði, að þeir athugi hvort ekki geti samrýmst hagsmunum þeirra að semja við forráðamenn barna- heimilisins um flutningana. — Hér er ekki ætlast til neinnar góðgerðarstarfsemi heldur mun koma full greiðsla fyrir. Þc-gar flutningamálið er leyst, mun barnaheimilið geta geta lagt fram aukinn skerf tilaðleysavandamál barnaheimilanna í, bænum, sem þurfa áð'kprpa börnupum af göt- untií og i Hoirt umhverfi sumár- mánuðina. Með því starfi vinnur Kvenfél. Hlíf samfélaginu öllu gagn. 100þús.kr.gjöfKr. Kristjánsson- ar 1944 er orðin 142 þús. kr. í ár Sjúkrahúsið liefur móttekið helming fjárins 20 árgangar af barnabiaðinu „Yorið" á Ákureyri komnir úf Fyrir fáum dögum kom ú< hér á Akureyri 1. hefti 21. árgangs bamablaðsins „Vorið“ sem þeir gefa út Hannes J. Magnusson skólastjóri og Eiríkur Sigurðsson yfirkennari. Er þetta eintak 40 bls., prentað á ágætan pappír og hið vandað- asta að öllum frágangi. Efnið er fjölbreytt, og hefst heftið á stuttri grein eftir Hannes J. Magnússon, þar sem hann gerir grein fyrir því, hvers vegna hann hóf úlgáfu barnablaðs á sinni tíð, og rekur hann síðan sögu blaðsins með nokkrum orðum. Hannes minnir á það í grein sinni, að þegar hann hóf undirbúning að útgáfunni, haustið 1931, var öðruvísi um- horfs í þjóðfélaginu en nú er. — Lestrarefni barna var fremur fá- tæklegt og full þörf að bæta úr því. En mest réði þó, að hann taldi slíkt blað geta orðið að liði við að halda uppi félagsstarfsemi meðal barna, til dæmis barna- og unglingafélagsskap góðtemplara- reglunnar. Fyrsta blað Vorsins kom út í janúar 1932, aðeins 8 síður, og komu út 8 hefti á ári fyrstu tvö árin, en síðan var blaðið stækkað í 12 síður og stóð svo í 2 ár. En þá féll útgáfan nið- ur í 3 ár, en blaðið hóf göngu á ný 1939, og gerðist Eiríkur Sigurðs- son þá útgefandi og ritstjóri með Hannesi og hefur svo verið síðan. Hefur Vorið komið út reglulega síðan sem ársfjórðungsrit, og lauk 20. árganginum um sl. áramót. Þetta barnablað hefur átt vin- sældum að fagna víða um land, en einkum er það útbreitt á Norðurlandi. Blaðið hefur það orð, að flytja einvörðungu mann- bætandi lesefni, vera íslenzkt í málflutningi og viðhorfum og reyna að láta gott af sér leiða í hvívetna. Með þessu framtaki sínu hafa þeir Hannes J. Magn- ússon og Eiríkur Sigurðsson gert útgáfustarfsemi hér á Akur- eyri fjölbreyttari en ella, og er það einnig nokkurs virði. — Er ástæða til að þakka það og árna Vorinu gengis í framtíðinni. Tveir umsækjendur um starf garðyrkjuráðu- nautar o Tveir menn sækja um starf garðyrkjuráðunautar hér á Ak- ueyri, en það var nýlega auglýst lil umsóknar. Sækja Sigurður ij Gunnlaugsson garðyrkjumaður og Óskar Eiríksson búfræðingur. Árið 1944, á fimmtíu ára afmæli kvenfélagsins Framtíðin afhentu hjónin frú Málfríður Friðriks- dóttir og Kristján Kristjánsson forstjóri, félaginu gjöf, að upp- hæð hundrað þúsund krónur. Skyldi fjárhæð þessi skiptast jafnt milli elliheimilissjóðs, er kvenfélagið hafði þá efnt til, og Fjórðungssjúkrahússins á Akur- eyri, er þá var hafinn undirbún- ingur að og kvenfélagið lét sig miklu varða. Hefur fé þetta staðið á vöxtum síðan, í vörzlum Framtíðarinnar, og nam hvor helmingur þess um síðustu áramót röskum sjötíu og einu þúsundi króna. Nú hefur stjórn Framtíðarinn- ar afhent gjaldkera bygginga- nefndar sjúkrahússins hlut þess í gjöfinni, og mun því fé þegar ráðstafað til kaupa á nauðsynleg- um lækningatækjum. Stjórn Framtíðarinnar vill nota þetta tækifæri til að endurtaka þakklæti sitt til gefenda þessarar höfðinglegu gjafar og jafnframt fyrir þann skilning og velvilja, er gjöfin lýsti til menningar- og mannúðannára Akureyrarbæjar. Stjórnin. TIL LEIGU Iíefi til leigu 14. maí 4 her- bergi í Skipagötu 12. Til- valin fyrir skrifstofur eða einsmanns herbergi. Allar uppl. veitir undirritaður. Eyþór H. Tómasson Ford Prefect með nýlegri vél, í góðu lagi og vel útlítandi, til sölu. A. v. á. ÍBÚÐ Hjón með 1 barn óska eftir 2-3ja herbergja íbúð 1. eða 14. maí. Þarf helzt að yera á Oddeyri. Uppl. í síma 2284.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.