Dagur - 30.03.1955, Side 4

Dagur - 30.03.1955, Side 4
4 DAGUR Miðvikudaginn 30. marz 1955 DAGUR Ritstjóri: HAUKUR SNORRASON. Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta: Erlingur Davíðsson. Skrifstofa í Hafnarstræti 88. — Sími 1166. Blaðið kemur út á hverjum miðvikudegi. Árgangur kostar kr. 60.00. Gjalddagi er 1. júlL PRENTVERK ODDS BJÖRNSSONAR H.F. Vcið á rafmagni frá orkirverunum 1 í UMRÆÐUM ÞEIM, sem hér hafa farið fram nn rafmagnsverð, hefur komið í ljós, að á sama :íma sem Sogsvirkjun selur ái-skw. á 650 krónur lyggst Laxárvirkjun láta j)á, sem við orkuverið skipta, greiða 850 kr. Eru menn ekki sammála um éttmæti þeirrar verðlagningar. í sambandi við oessi mál er fróðlegt að athuga afstöðu löggjafans il i-afmagnsverðsins. Er þá fyrst að geta þess, að /firstandandi Alþ. hefur til meðferðar tillögu átta oingmanna Framsóknarflokksins, sem gerir ráð : yrir að ríkisstjórnin undirbúi ráðstafanir til þess nð raforka til almenningsnota verði seld sama J ærði um land allt. Tillögu þessari fylgir ítarleg ireinargerð, og segir þar m. a. á þessa leið: ,Á SUMARÞINGINU 1942 fluttu nokkrir þing- i : ienn Framsóknarflokksins tillögu í sameinuðu 1 )ingi um raforkumál. Var þar lagt til, að kosin yrði 5 manna nefnd, er gera skyldi tillögur urp járöflun til þess að byggja rafveitur í því skyni ih koma nægilegri raforku í allar byggðir lands- : ns, „enda verði raforkan ekki seld hærra verði í ii eifbýli en stærstu kaupstöðunum á hverjum iíma.“ ^essi tillaga var samþykkt á Alþingi með 43 ! namhljóða atkvæðum. Vfeii ihluti raforkumálanefndarinnar, sem kosin j 'ar samkvæmt framannefndri ályktun árið 1942, . iamdi frv. til raforkulaga og skilaði því til ríkis- -tiórnarinnar í nóv. 1944. Skömmu síðan, í janúar '.945, hlutaðist nefndin til um, að frumvarpið var ómíð fram á Alþingi, sem þá var að störfum. flutningsmenn frumvarpsins voru fimm, og fjór- : r þeirra höfðu átt sæti í nefndinni sem samdi : rumvarpið. í 12. gr. frv. var ákvæði um, að verð :'aforkunnar frá ríkisrafveitunum skyldi vera hið sama um land allt. En frumvarpið hlaut ekki : íullnaðarafgreiðslu á þinginu. .4 næsta þingi, seint á árinu 1945, var fram bor- . ð frv. til raforkulaga að tilhlutun samgöngumála- i ; 'óðuneytisins, og var það afgreitt með nokkrum ireytingum sem lög frá þinginu. í frumvarpinu 'oru engin ákvæði um jafnt raforkuverð. Fulltrúi 5'' amsóknarfk)kksins í iðnaðarnefnd neðri deild- ar bar fram svohljóðandi breytingartillögu við I rrumvarpið: ,áöluverð raforkunnar skal vera hið sama um dlt land og eigi hærra til notenda utan kaupstað- anna en íbúar þeirra þurfa að greiða á hverjum ! ';íma að meðaltali.11 ! Tillaga þessi var felld í þingdeildinni með 15 ] <egn 13 atkvæðum. Þá fluttu þrír þingmenn Framsóknarflokksins uvohljóðandi tillögu: „Heildsöluverðið skal vera hið sama um allt ] ,.and.“ j Tillaga þessi féll með jöfnum atkvæðum, 16 j igegn 16. Á Alþingi 1952 flutti Eiríkur Þorsteinsson, þing- •naður Vestur ísfirðinga, frumvarp til laga um jöfnun raforkuverðs, en það hlaut ekki fullnaðar- í afgreiðslu. Eins og hér hefur verið rakið, hafa verið gerðar j íokkrar tilraunir til þess að fá lögfest það fyrir- j iieit, sem þingmenn gáfu ágreiningslaust með J í lamþykkt þingsályktunai tillögunnar 1942, að raf- orkan yrði ekki seld hærra verði í dreifbýli en í stærstu kaupstöð- unum ,en þær tilraunir hafa enn ekki borið árangur. Fyrirtæki þau, sem nú selja raforku hér á landi, eru nálega öll byggð af ríkinu eða með meiri eða minni aðstoð þess. Ákveðið hefur einnig verið, að ríkið byggi þær aðalrafveitur til almennings- þarfa, sem komið verður upp í náinni framtíð. Og þar sem þjóð- félagið hefur tekið þessar fram- kvæmdir á sig í svo stórum stíl, eins og nauðsynlegt var, er eðli- legt, að allir þegnar þess njóti sömu kjara. Mikið vantar nú á, að svo sé hjá almenningsrafveit- um, t d. er áberandi hátt verð á rafmagni frá rafveitum á þeim stöðum, sem ekki hafa vatnsafl til rafmagnsframleiðslunnar. Það er nú orðið viðurkennt af möi'gum, að nauðsyn beri til að gera aðstöðu manna í lífsbarátt- unni sem jafnasta, hvar sem þeir búa á landinu. Á það hefur verið bent, hversu þýðingarmikið sé að skapa og viðhalda jafnvægi í byggð landsins. Starfa nú tveir stjórnskipaðir menn að athugun þeirra mála, samkv. ályktun Al- þingis. Eitt af því helzta, sem þar hlýtur að koma til greina, er að gera ráðstafanir til þess að jafna svo sem verða má aðstöðu manna til að njóta þeirra lífsþæginda og gæða, sem almenningur sækir eftir og telja má til lífsnauðsynja nú á tímum, en þar er rafmagnið í fremstu röð.“ ÞAU RÖK, sem hér hafa verið færð fyrir tillögunni um jöfnun rafmagnsverðsins, eru vissulega svo stei’k, að ótrúlegt verður að telja, að ekki sé meirihluti fyrir henni á Alþingi. Þinginu má ekki ljúka svo, að úr því fást ekki skorið. Á nátfúrugripasafni. Á SUNNUDÖGUM leggja margir leið sína í náttúrugripa- safn bæjarins í slökkvistöðvar- byggingunni. Þótt safnið sé ungt að árum, er þar margt merkilegt að sjá. Fuglasafnið er mjög gott og er sífellt að aukast. Og fyrir áhuga umsjónarmannsins og vel- vilja margra bæjarbúa, berast safninu á ári hverju ýmsir munir. Koma þeir víða að. Sumt útvegar umsjónarmaðurinn — Kristján Geirmundsson — sjálfur. Nýlega hefur safninu t. d. bætzt storkur, og fékk Kristján hann í skiptum fyrir íslenzka fuglahami, frá þýzku náttúrugripasafni. Stund- um koma sjómenn með muni. — Hafa skipsmenn á Sambar.ds- skipunum og togurunum verið drjúgir að afhenda safninu fugla og sjódýr, til gagns og gamans fyrir þá, sem í landi eru. Standa bæjarbúar í þakkarskuld við alla, sem hlynna að safnínu. Það er ungt, en þegar góður vísir þess, sem koma skal. Hálfnað er verk þá hafið er. Menningarstarfsemi á hrakhóluni. HÉR ER ÝMIS viðleitni til menningarstarfsemi af bæjarins hendi, en öll er hún á hrakhólum og býr við þröngan kost. Amts- bókasafnið, það merkilegá safn, er í bráðarbirgðahsúnæði, svo þi'öngu, að það notast engan veg- inn eins vel og efni standa til Og er þetta rétt hermt, þótt safninu bætist einhver herbergi í sama húsi, sem nú stendur til. Hús- næðismál safnsins verða ekki leyst nema í bókasafnsbyggingu sem frá upphafi er sniðin um bókasafnið og þá starfsemi, sem því er tengd. Hér er til mei'kileg- ur vísir að byggðasafni, en það safn er húsnæðislaust með öllu. Bærinn á vísir að málverkasafni, sem vafalaust mundi aukast og eflast, ef til væri einhver sama- staður fyrir þær myndir. Hér er nú rætt um að efna til Matthías- arsafns, en húsnæðisleysi er þar helzti þröskuldur í vegi, og svo mætti lengi telja. Safnahús er lausnin, Á ÞESSUM húsnæðisvandræð- um fyrir mer.ningarstarfsemi í bænum er aðeins ein framtíðar- lausn: bygging safnahúss, sem frá upphafi væri sniðið utan um þessa starfsemi alla og höfð við vöxt. Þetta er framtíðarmál. Ljóst ér, að bærinn skortir fjárhagslegt bolmagn til þess að koma upp slíku hvisi á næstunni. En hann gæti farið að undirbúa það. Stofna þarf safnahússsjóð, og bæjarfélagið á að leggja dálítið fé í hann á hverju ári. Ef sú stefna hefði t. d. verið tekin upp fyrir 10 árum, mætti hefja verkið á þessu ári og byggja í áföngum. Eg er mótfallinn þeirri hugmynd að gera efri hæð slökkvistöðvar að safnahúsi fyrir bæinn: Það hús- næði, er byggt verður, getur komið í góðar þarfir fyrir ýmsa starfsemi hæjarins, sem rrú er í leiguhúsnæði. Safnahús á að vera sérstök bygging á góðum stað, og þannig gert, að það verði bæjar- prýði og raunverulegur styrkur öllu menningarstarfi í bæjarfé- laginu. Veiðiskapur í heiðavötnum. Baidur Jónsson skrifar blaðinu á þessa leið: f 12. tölublaði Dags, 9. þ. m., á bakhlið þess, eru: Ýmis tíðindi úr nágrannabyggðum. Þar á með- al frá Fosshóli: Hjarnið á Fljóts- heiði bílfært. Silungsvciði á hciðavötnuni. Ráðgerð er silungsveiðiför suð- ur á Kálfborgarárvatn og ýtt óbeint á fleiri til hins sama — Trúlegt þykir mér að fréttamaður blaðsins hafi eiginlega ekkert leitt hugann að því, hvort slíkt væri heimilt eða ekki .Annars hélt eg að öllum almenningi væri það ljóst, að enginn einstaklingur mætti veiða fugl eða fisk í annars landi án leyfis. Eg tek þig á hné mér — góði Lúther (fréttamaður blaðsins) — eins og lítinn dreng og kenni þér það, að þú munir ekki hafa heimild til að veiða sil- ung í Kálfborgarárvatni, og þeg- ar þér er kennt — er öðrum bent — bent á það að enginn utan sveitar og allmargir innansveitar hafa ekki rétt til að veiða í nefndu vatni og ætlast er til að Fyrir nokkrum árum stofnuðu þeir hagi sér þar eftir. nokkrir Bárðdælir veiðifélag Kálfborgarárvatns. Aðaltilgangur þess félags var og er að leitast við að rækta og efla silungsstofn- inn, svo að útvegurinn beri sig betur. — Meðlimir þessa félags hafa EINIR dorgarveiðirétt upp um ís á margnefndu vatni. — Þannig standa sakir nú.“ Eiginmennirnir, sem vinna eldhússtörfin Vestur í Bandaríkjunum eru sífellt í gangi svo- nefnd skoðanakönnun um svo að segja allt í milli himins og jarðar. Gallupstofnun og fleiri slíkar eru 'sífellt að rannsaka hvað fólk hugsar og gerir, og birta niðurstöður. Sennilega er oft eitthvað að marka þessi vísindi, þótt fyrir hafi komið að þeim hafi skjátlast hrapallega, einkum í sambandi við kosningaspár. Nákvæmari munu þær vera, er þær taka fyrir störf manna fremur en hugsanir. — Ætla má því, að það sé eitthvað að marka, er þær birta t. d. fróðleik um það, hvernig eigin- mennirnir reynist við eldhússtörfin. En samkvæmt nýjustu niðurstöðum eru þeir drjúgir við diskaupp- þvott og eldamennsku þar vestur frá. í nýlegu hefti af Look er t. d. greint frá því, að 62 af hverjum 100 eiginmönnum í Bandaríkjunum hjálpi konum sín- um við að þvo upp og 40 af hverjum hundrað hjálpi til við eldamennskuna. Það kom og í ljós, að yngstu eiginmennirnir eru harðduglegastir á þessu sviði. f New York til dæmis hjálpuðu 87 af hverjum 100 eiginmönnum á aldrinum 21—29 ára við ýmiss kon- ar innanhússtörf. En þeir virðast slappast með aldrinum. Þegar aldurinn er kominn yfir 45 ár er prósentan líka komin niður í 70. Virðist mega skoða þetta sem uppbót á að verða gamall. í þessu sama Look-hefti, er fróðleg og gamansöm grein um eiginmenn í þessu nýja hlutverki. Er greinarhöfundur að velta því fyrir sér, hvernig standi á því, að húsbóndinn á heimilinu, sem fyrir nokkrum áratugum sat keikur við borðsendann og lét heimilisfólkið stjana við sig er nú sjálfur á hlaupum fram í eldhús að sækja þetta eða hitt, og stendur svo með svuntu að diskauppþvotti að lok- innni máltíð Ástæðurnar cru margvíslegar, en höf- undur telur meginorsök ógæfunnar (fyrir karlþjóð- ina) að karlmenn gerðust stuðningsmenn kvenrétt- inda á liðnum áratugum i stað þess að halda eins lengi í forréttindi sín og stætt var. Eftir að jafnrétti var viðurkennt, gat ekkert forðað karlmönnunum frá eldhúsinu, segir þar. Þá kennir hann því og um, að karlmenn hafa — af misskilningi — lagt sig fram um að finna upp alls konar heimiilstæki til hús- hjálpar, svo sem þvottavélar, ísskápa, uppþvottav., ryksugur o. s. frv. en gættu bara ekki að því að út- koman á því varð sú, að þeir máttu sjálfir erfiða við að nota þessi tæki. Þá hafa karlmenn, segir í grein- inni, barizt fyrir styttri vinnutíma og lengri helgum, og til hvers? Jú til þess að þrífa til í kjallaranum, mála gluggana, þvo upp, ditta að girðingunni. Þetta ei’ sjálfskaparvíti að áliti höfundar, en of seint að iðrast eftir dauðann. Við eigum cngar stofnanir hér á Islandi, sem geta saga okkur hve mörg prósent af íslenzkum eigin- mönnum tilheyra hinni nýju stétt eldunar- og hrein gerningamanna, en ætla má, að við slögum í þessu efni, sem sumum öðrum efnum, hátt upp í Amer- íkumanninn. Ungu eiginmennirnir standa við eld- húsborð og vaska og hlaupa um húsið með diska- iþurrku eða bleyju, en þeir eldri eru kannske eitt- hvað slappari, hér eins og þar. íslenzka konan er enginn eftirbátur stallsystra sinna í öðrum löndum að krefjast jafnréttis.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.