Dagur - 30.03.1955, Side 6
6
DAGUR
Miðvikudaginn 30. marz 1935
í óttans dyrum
Saga eítir DIANA BOURBON
24. DAGUR.
(Framhald).
Eg sá einnig svip Renés spegl-
ast í skilrúmsglerinu, og skildi, að
hvaS sem þessi sakleysislega
spurning mín annars merkti í
huga hans, var hugmyndin um
leynidyr engan veginn nein nýj-
ung fyrir hann.
„Nei, heyrðu nú,“ sagði Babs.
„Leynidyr! Ekki nema það þó.
Annars er hugmyndin skemmti-
leg. Það væri svei mér gaman að
birtast allt í einu í klúbbnum
þegar gleðskapurinn stendur sem
hæst! En hvernig datt þér þetta
íhug?“
Eg yppti öxlum. „Ekki af neinu
sérstöku, mér flaug þetta bara í
hug.“ Eg sá að hún trúði ekki
þessari yfirlýsingu.
René fór loksins, en lofaði að
koma aftur síðar um daginn. Og
um það bil klukkustund eftir að
myrkt var orðið, var eg kölluð
niður í anddyri. Yfirþjónninn til-
kynnti, að sendiboði biði mín
niðri. Hann hélt hann væri frá
sendiráðinu, og vildi ekki koma
inn fyrir.
Þetta hlaut að vera Mohr! Og
■til þess að sætta þá, sem tor-
tryggnir kynnu að vera, við komu
hans, fékk hann mér digurt um-
slag og lét mig kvitta fyrir. En lét
dæluna ganga í hálfum hljóðum
um leið:
„Eg fór strax eftir að dimmt
var orðið og ætlaði að taka g!er-
augun þín, en það var óþarfi.
Húsið var brunnið til ösku.“
„Hvað segirðu?“
„Brunnið til kaldra kola. Og
laglega af sér vikið í þokkabót. í
rústunum mátti sjá fosfórglampa,
rétt eins ogíkveikjusprengjahefði
verið að verki. Þeir halda því að
íkveikjusprengja hafi fallið inn
um þakglugga og ekki hafi verið
tekið eftir því fyrr en um seinan.
Og nú er ekkert að sjá þar. Bara
rústir.“
„En lík Janie?“
„Þeir hafa ekki leitað að neinu
líki. Þeir telja að lafði Janie hafi
ekki verið heima. Og ef eitthvað
finnst seinna, þá er það bara
venjulegt slys í loftárás. Það er
allt og sumt.“
Rétt í þessu kom herforingja-
bill akandi að húsinu. í honum
var Romney hershöfðingi. Ben
kinkaði kolli til mín og flýtti sér
í burt. Hann lofaði að láta mig
heyra frá sér í síma síðar. Eg
beið unz hershöfðinginn var
kominn í talfæri.
Hann varð á undan að ávarpa
mig: „Hvernig líður henni?“
spurði hann.
„Onnu? Hún er eins. Hún er
enn meðvitundarlaus.“
„En Babs?“
„Hún er ákaflega taugaspennt.
En það er eins og vænta mátti.“
„Eg get því miður ekkert stanz-
að. Skrapp aðeins til þess að telja
hana á að fara til Cambridgeshire
ásamt drengnum og móður minni.
Hún getur ekki gert neitt fyrir
Onnu hér, og hún ætti ekki að
vera hér, eins taugaóstyrk og hún
er, meðan verstu loftárásirnar
ganga yfir. Viljið þér ekki koma
með mér til hennar? Eg er
hræddur um hún neiti að fara.“
Og það voru engar ýkjur Babs
neitaði ekki aðeins harðlega, hún
æsti sig upp rétt eins og það væri
óbærileg hugsun að skilja við
þet^a gamla og draugalega hús.
„Én kæra Babs,“ sagði hers-
höfðinginn. „Þú gerir ekkert gagn
með því að vera hér kyrr, hvorki
fyrir sjálfa þig né aðra. Eg get
fundið þig úti í sveit alveg eins
oft og hér eins og nú er ástatt Og
þú og drengurinn væruð örugg
þar.“
„Nei, eg fer ekkert. Eg get ekki
farið og eg vil ekki fara héðan,“
sagði Babs þvermóðskulega.
Mér fannst aðeins vanta að hún
segði,' að hún vildi ekki fara frá
þessu húsi og þeim leyndardómi,
sem það geymdi.
„Kannske það sé einhver viss
persóna hér, sem þú villt ekki yf-
irgefa?"
Rödd hans var breytt. Hann
talaði hörkulega.
„Þú mátt halda um það sem
þér sýnist.“
Eg vildi ekki hlusta á þetta
uppgjör og gekk út á ganginn og
lokaði á eftir rnér.
Skyldi þetta vera það, sem
René átti að gera? Að balda
henni kyrri í London ?
Eftir dálitla stund kom hers-
höfðinginn út frá henni. Hvað svo
sem gerzt hafði var hann ekki
lengur reiður. „Eg skal senda bíl
eftir þér eftir klukkutíma eða
svo,“ sagði hann í dyrunum.
En hún sat við sinn keip. „Eg
fer ekkert,“ endurtók hún í sí-
fellu.
Hann benti mér að fylgja sér.
„Eg sendi bflinn í öllu falli,“ sagði
hann. „En eg gæti trúað að hún
neitaði enn aS koma- meS -honum.
Eg skil ekki hvað gengur að
henni. Kannske væri bezt að eg
léti móður mína búa hér hjá
henni um sinn.“
(Framhald).
SKEMMTISAMKOMA
í Sólgarði
laugardaginn 2. apríl n. k. og
hefst kl. 9.30 e. h.
TIL SKEMMTUNAR:
Sjónhverfingar:
Björgvin Júníusson.
Upplestnr og gamanvísur:
Jón Norðfjörð
Gamanþáttur:
Guðmundur Ágústsson
Spurnivgaþáttur: Já eða nei?
Haukur og Kalli spila.
Veitingar.
Ungmennafél. Saurbæjarhr.
STÚLKU
vantar í eldhús Fjórðungs-
sjúkrahússins á Ak. frá 15.
apríl næstkomandi.
Uppl. í síma 1294.
Lítil íbúð
í Flafnarstræti 37 cr til sölu.
Tækifærisverð.
Jóhamies Guðmundsson.
Hafnarstræti 47.
Innilaukar:
Besoníu- og GIox-
iníu laukarnir eru
komnir aftur.
Blómabúð KEA.
Tökum fram í
dag:
Mokkastell
(Postulm 6 teg.)
Sígarettukassa
Sígarettuhylki
°g
Öskubakka
Blómabtið KEA.
TIL SÖLU
tvær, fjögurraherbergja íbúð-
ir neðarlega á Oddeyri, góð
geymsla í kjallara. Upplýsing-
ar gefur ' < ' j ‘ -
Elías Tómasson
Búnaðarbankanum
Barnavagn
til sölu.
A. v. á.
Orgel (Leibmann)
TIL SÖLU.
Uppl. í síma 1588.
EIN ÞYKKT,
ER KEMUR í STAÐ
SAE 10-30
OLÍUFÉLAGIÐ H.F.
Söluumboð t
Olíusöludeild KEA
Sími 1860 og 1100.
Jarðarför bróður okkar,
STEFANS JÓNSSONAR,
fer fram laugardaginn 2. apríl og hefst með húskveðju að
Sandgerði í Glerárþorpi kl. 1 e. h. — Jarðsett verður að Lög-
mannshlíð.
Systkini hins látna.
IHjartanlega þakka ég öllum þeim, sem glöddu mig með g
heimsóknum, skeytum og gjöfum á áttatíuára afmæli s
mínu. — Sérstaklega þakka ég „Kvenfélagi Svalbarðs- g
strandar“ og „Kristinboðsfélagi kvenna Akureyriu ransn- |
arlegar gjafir. — Guð blessi ykkur öll. g
Sigríður Þórláksdóttir. g
Geysir heldur konsert
í Nýja Bíó næstkomandi sunnudag kl. 3 e. h. Ingibjörg
Steingrímsdóttir syngur einsöng með kórnum. Aðrir ein-
söngvarar eru: Henning Kondrup og Sigurður Svan-
bergsson.
HANDKLÆÐI
HANDKLÆÐADREGILL
2 tegundir
ÞVOTTAPOKAR
Vefnaðarvörudeild
Frá Skákfélagi Akureyrar
Skákþing Akureyrar hefst sunnudaginn 3. apríl kl. 2
e. h. í Hafnarstræti 88. — Keppt verður um titilinn skák-
meistari Akureyrar. — Þátttaka tilkynnist til stjórnar
félagsins fyrir 2. apríl.
Stjórniv.
IJfsæðiskarlöflur
Þeir, sem ætla að biðja oss fyrir sölu á útsæðiskartöfl-
um tilkynni oss það fyrir páska.
KJÖTBÚÐ KEA.
Tilkynning um garða
Þar sem nú er búið að ákveða þann hluta af Hafnar- og
Golfvallargörðunum, sem látnir verða í ár undir kart-
öflurækt fyrir almenning, er nauðsynlegt að þeir sem
áður hafa haft garða þarna, tali við mig sem fyrst. Ekki
síðar en 6. næsta mánaðar. Þeir, sem missa garða sína
þarna, er hægt að benda á Vinnuskólalandið.
Finnur Árnason.
Auglýsið í Degi
CBÍÍHSÍBÍtHShÖtHStHÍtHÍÍHÍtHÍtHÍtHÍÖÍBÍÖÖÍHÍtHÍÍHÍtHlHÍÖ-ttÖÍHlHÍÖÍHÍtH