Dagur - 30.03.1955, Blaðsíða 8

Dagur - 30.03.1955, Blaðsíða 8
8 Baguk Miðvikudaginn 30. marz 1955 Sparimerkjasala í barnaskólanum Sala sparimerkja hér í Bamaskólanum hefur gengið greiðlega í vet- ur og hafa bömin keypt merki fyrir álitlega fjárupphæð. Vafalaust er, að mikið af þeim peningum, sem nú er á vöxtum í banka, hefði ella farið í sælgætiskaup eða annan óþarfa. Snorri Sigfússon, sem hefur umsjón með þessari starfsemi fyrir hönd Landsbankans, hefur skýrt blaðinu svo frá, að kennaralið Barnaskólans hér hafi lagt fram mikið og gott starf sparifjársöfnuninni til styrktar. Myndin er tekin í kennslustund nú í vikunni. Öm Snorrason kennari er að afhenda sparimerki í einum bekk skólans. Andrúmsloffið hér og í Reykjavík heilbrigðara en í öðrum bæjum í síðasta hefti Fréttabréfs um heilbrigðismál, sem próf. Níels Bungal ritar; er fróðleg grein um heilnæmi andrúmsloftsins í ýms- um borgum og niðurstöður rann- sóknar; sem brezki vísindamað- urinn prófessor Kennaway hefur gert í brezkum borgum og hér á landi og í Kaupmannahöfn og Osló. Kom prófessorinn hingað til lands 1953 og var að hans tilstilli komið fyrir rannsóknartækjum í rannsóknarstofu Háskólans í Reykjavík, í Barónsstig í Reykjavík og í sjúkrahúsinu hér á Akureyri. Mældist sótmagn andrúmsloftsins hér miklu minna en í enskum borgum og mun betra en í höfuðborgum Norður- landa, og arsenik í lofti og sóti var Tvær ýtur að snjó- mokstri á Öxna- dalsheiði Þessa dagana vinna tvær ýtur að snjómokstri á Öxnadalsheiði og hefur vegamálastjórninbrugð- ist vel og drengilega við að opna samgönguleiðina suður til n'okk- urrar frambúðar, en vegurinn er nú að kalla eina leiðin, sem fær er; síðan verkfall hófst. Mikill snjór er á heiðinni á svonefndum Flóa, og eru göngin víða um mannhæðar há. Unnið er að því að ryðja snjónum sem mest út af veginum. Akfæri var allgreitt í fyrradag, og kom áætlunarbíll Norðurleiðar frá Reykjavík hing- að kl. 11.30 um kvöldið. Holta- vörðúheiði er farin á hjarni, en snjólaust að kalla er á láglendi hér veetur undan. hér hverfandi lítið miðað við það, sem annars staðar gerist. Virðist því af þessum áthug- unum, að andrúmsloft hér sé heilnæmara og hreinna en í öðr- um bæjum. Er vonandi, að Rvik og Akureyri takizt að halda þess- um heiðri, að vera lofthreinustu bæir Evrópu. Séra Þormóður á Yatns- enda látinn Fyrir fáum dögum andaðist á ríkisspítalanum í Kaupmanna- höfn séra Þormóður Sigurðsson á Vatnsenda í Ljósavatnshreppi. Hafði hann farið til Danmerkur til að leita sér lækninga. Séra Þormóður var rúmlega fimmtug- ur, fæddur árið 1903, að Yztafelli í Köldukinn, sonur Sigurðar bónda og ráðherra Jónssonar og Kristbjargar Marteinsdóttur konu hans. Hann lauk guðfræði- námi 1928 og var vígður til Þór- oddsstaða í Kinn sama ár. Síðan 1931 sat hann á Vatnsenda. Auk prests-tarfs gegndi hann ýmsum trúnaðarstörfum í sveit sinni. Togararnir landa saltfiski Togarar Útgerðarfélags Akur- eyringa h.f. hafa landað hér á Akureyri síðustu daga sem hér segir: Harðbakur 25. þ. m. 148 lestir saltfiskur og 36 lestir nýr fiskur. Skipið fór á veiðar á laug- ardag. — Kaldbakur 28. þ. m. 120 lestir saltfiskur og 2 lestir nýr fiskur. Skipið fór út í gær. — Sléttbakur í gær, áætlað, 80 lestir saltfiskur, 25 lestir nýr fiskur. Skipið fer út í dag. — Svalbakur er væntanlegur hingað í dag. Togarinn heitir Norðlendingur og á heima í Ólafsfirði Er þegar farion að veiða fyrir frystihús Hörmulegt slys í gærkveldi I gærkveldi, rétt áður en blaðið fór í pressuna, vildi það slys til að Ilelgi Stefánsson frá Hallgilsstöðum í Fnjóskadal varð undir dráttarvél, er hann var að leggja af stað með aust- ur yfir heiði ásamt tveimur sveitungum rínum er voru með sína dráttarvélina h\Tor. Var hann þegar fluttur í sjúkrahús og var meðvitundarlaus síðast þegar fréttist. Aðalfundur Framsókn- arfélags Svarfdæla Framsóknarfélagið í Svarfað- ardal hélt árshátíð sína að Höfða 19. marz sl. Helgi Símonarson bóndi að Þverá flutti aðalræðuna, Jóhannes Oli Sæmundsson fræðslufulltrúi sýndi 2 kvik- myndir og sagði ferðaþátt og Björn Jónsson bóndi á Ölduhrygg las upp kafla úr bók Davíðs Stef- ánssonar, Sólon Islandus. Siðan var dansað fram á nótt. Veitingar voru hinar myndarlegustu og samkomnan eins fjölsótt og hús- rúm frekast leyfði og hin ánægju legasta í hvívetna. í s.I. viku luku fullírúar norð- lenzku kaupstaðanna þriggja, Olafsfjarðar, Sauðárkróks og Húsavíkur, við hlutafélagsstofn- un um togaraútgerð þá, sem búin er að vera á döfinni frá því á s.l. hausti. Heitir útgerðarfélagið Norð- lendingur, og ber togarinn, sem félagið hefur keypt með milli- göngu fjármálaráðuneytisins, sama nafn. Er heimilisfang skips- ins í Ólafsfirði og ber það ein- kennisstafina ÓF—4. í stjórn hins nýja félags eru Jón Gunnarsson kaupfélagsstjóri, ÓJafsfirði, form. Björgvin Bjamason, bæjarstjóri, Sauðárkróki, og Jóhann Her- mannsson, bæjarfulltr.^ Húsavík. Félagið hefur samið við Út- gerðarfélag Akureyringa um rekstur togarans og er Guðmund ur Guðmundsson framkv.stjóri skipsins. Skipið fór á veiðar um s.l. helgi og hefur aflað vel í upphafi að þvl blaðið hefur frétt. Mun skip- ’ ið leggja upp aflann til frystingar. ’ Fjölmeniii á æskulýðs- fuiidinum Mikið fjölmenni sótti æsku- lýðsfundinn í Akureyrarkirkju á sunnudaginn. Veður var ákaflega gott og lék Lúðrasveitin úti og var þar fjöldi áheyrenda. Síðan var gengið til kirkju og var svo margt kirkjugesta, að eigi fengu allir sæti. Aðalræðuna á fundin- um flutti séra Kristján Róberts- son. Almennur söngur var og var m. a. sungið lag og sálmur fund- arins: „Hver stund er stund með þér“. Fundurinn stóð í röskar 2 klst. Ymis tíSindi úr nágrannabyggðum Afli glæðist mjög á heimamiðum eyfirzku hátanna Ólafsfirði. Tveir trillubátar, sem réru í fyrradag með loðnu, fengu góð- an afla. Stígandi 6 þúsund pund og Þrándur 3 þúsund pund. Jörundur kom með fullfermi til Ólafsfjarðar í gærmorgun og landaði þar í gær. Var skipið að- eins fáa daga í þessari veiðiför. Nokkuð af aflanum var karfi. M.s. „Haukur“ kom til Ólafs- fjarðar á sunnudaginn. Hann var á vertíð í Hafnarfirði en leitaði til heimahafnar þegar verkfallið skall á. Hann var með mikinn fisk um borð en fékk ekki losun í Hafnarfirði. í Keflavík gat hann losað 8 tonn, en með afgar.ginn kom hann norður og verður fisk- urinn hengdur upp. Hann var far inn að skemmast lítilsháttar. Haukur mun fara á togveiðar og leggja aflann upp á Dalvík og Ólafsfirði. Undanfarið hefur verið at- vinnuleysi í kaupstaðnum. Hefur nú brugðið mjög til batnaðar i því efni og hafa menn nóg að gera eins og er. ísinn á Mývatni 95 cm. þykkur Reynihlíð. Mývatnssveit hefur verið björt og fögur undanfarið. En vetrar- ríki er mikið og frostharka hverja nótt, allt upp í 14 stig. Þó brá til þíðviðris á þriðjudagsnótt og var nokkur bloti í gær. Snjór er ekki mikill en jörð er djúpt frosin. ís- inn á miðju Mývatni reyndist 95 cm. þykkur, er hann var mældur fyrir fáum dögum. Vegirnir bera glögg merki hinna langvarandi frosta í vetur. Frostið hefur Iyft þeim óvenjumikið. Eru því ræsi varasöm og virðast sokkin. Einn- ig vegarkaflar þeir, er liggja á klöpp eða annarri fastri undir- stöðu. Er vegurinn af þessum sökum ósléttur. — 25. þ. m. lézt að Skútustöðum í Mývatnssveit, Margrét Benediktsdóttir. Var hún elzti Mývetningurinn. Mar- grét var vinnukona alla æfi og hin mesta trúleiks- og sómakona oghafði oftar en einu sinni hlotið verðlaun fyrir störf sín. Loðnuganga á Eyjafirði Haugaresi. Bátarnir á Hauganesi reru á mánudag með nýja loðnu frá Ak- ureyri til beitu. Aflinn var 4—6 skippund. Sjómenn verða varir við miklar loðnugöngur út í firð- inum og eru þær á innleið. Ekki hefur þó tekizt að veiða hana þar út frá. Raufarhöfn sérstakt læknishérað Rauíarhöfn. Fjöldi fólks frá Raufarhöfn er á vertið fyrir sunnan í vetur. Er þar því fremur fámennt. Snjór er ekki sérlega mikill þar austur frá, en svellalög og mjög frosin iörð. í fyrradag samþykkti Alþingi að Raufarhöfn yrði sérstakt læknishérað. Fagna Raufarhafn- arbúar þessari nýju lagasetningu. Hrefna skotin við Hrísey. Hríseyjarbátarnir fengu léleg- an afla á mánudag. Telja sjómenn þar að enn muni ekki veruleg fiskiganga komin. Páll Pálsson hrefiiuskytta skaut hrefnu á mánudaginn, út á móts við Hrísey. Er þetta fyrsta hrefn- an, sem hann veiðir í ár. Fór hann með hana til Dalvíkur og var unnið þar að hvalskurði í gær Loðna veiðist á Akur- eyrarpolli Á sunnudaginn veiddist fyrsta loðnan á Akureyrarpolli, um 25 tunnur. Mest af henni var þegar selt til beitu í verstöðvarnar út með firðinum. Pollurinn var ísi lagður í fyrradag. En í gær varð aftur vart við loðnu og var þegar í gærmorgun farið að kasta fyrir, hana. Húnavaka á Blönduósi Dagana 22. til 27. marz stóð hin árlega Húnavaka á Blönduósi. — Var gestkvæmt í bænum þessa daga og margt til skemmtunar að vanda. Leikfélagið á Blönduósi sýndi „Þrjá skálka“. en leikstjóri er Tómas R. Jónsson á Blönduósi. Héraðsbúar sáu fyrir söng á vök- unni. Hafði Karlakór Bólstaðar- hlíðarhrepps samsöng, en söng- stjóri er Jón Tryggvason í Ártún- um. Einnig skemmti Karlakórinn Húnar með söng, en söngstjóri er Guðmann Hjálmarsson. Þá voru kvikmyndasýningar dansskemmt anir o. fl. Meðal þess, sem fram fór, og athygli vakti, var mælsku- keppni í milli héraðsbúa austan og vestan Blöndu. Kepptu í öðru liðinu Ágúst B. Jónsson á Hofi, Runólfur Björnsson á Kornsá, Halldór Jónsson á Leysingja- stöðum og Lárus Sigurðsson á Tindum, en í hinu liðinu Gunn- ar Grímsson, Skagaströnd, séra Valdimarsson Skagaströnd, séra Pétur Ingjaldsson, Höskuldsstöð- um, og Pétur Pétursson, Blöndu- ósi. — Þótti að þessu hin bezta skemmtun og ræðumenn standa sig með prýði.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.