Dagur - 04.05.1955, Blaðsíða 1
Fylgist með því, sem gerizt
Iiér í kringum okkur. —
Kaupið Dag. — Sími 1166.
Dagur
DAGUR
kcmur nœst \ít laugardag-
inn 7. maí.
XXXVUI. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 4. maí 1955
25. tbl.
Sjúkrahúsið í Klakksvík
Myndin cr af sjúkrahúsinu í Klakksvík, þar sem danski læknirinn
Halvorscn situr, er mest hcfur komið við sögu í læknisdeilunni
svonefndu, sem mjög hcfur komið róti á hugi Færeyinga og Dana að
undanförnu. Kampmann fjármálaráðherra Dana mun hafa tekizt
að lægja öldurnar, er hann heimsótti Færeyinga á dögunum. Er
allsherjarverkfallinu aflétt, og horfur taldar líklegar, að samið
vcrði um málið með friðsamlegu móti einhvern næstu daga.
reijasi veronæ
landbúnaððrvörum
Eftir að kunngerðir hafa verið
binir nýju samningar um kaup og
kjör að afloknu verkfalli, eru
uppi háværar raddir meðal
bænda, að krefjast þegar í stað
verðhækkunar á landbúnaðar-
vörum svo að bændum verði
tryggð sama haekkun á kaup-
gjaldsliðum vísitölubúsins og
samið hefur verið um til verka-
Ályktun Búnaðarsambands
Þingeyinga.
Stjórn Búnaðarsambands Þing-
eyinga kom saman á fund um s. 1.
helgi og samþykkti að senda
Stéttarsambandi bænda eftirfar-
andi skeyti:
„í tilefni af verkfallssamning-
unum gerum við kröfu til þess,
að Stéttarsamband bænda beiti
sér fyrir því, að landbúnaðar-
vörur hækki þegar í stað svo að
bændum verði tryggð sama launa
hækkun á kaupgjaldsliðum vísi-
tölubúsins og samið hefur verið
um til verkamanna. Þurfi laga-
breytingu sé stuðlað að því, að
hún verði borin fram á Alþingi til
til fullnaðarafgreiðslu nú þegar.1.
■ ■
ins 1 ræktun
Kristján Geirmuiidssoii
Græiiiandsleiðangri
Á morgun fer héðan til
Reykjavikur Kristján Geir-
mundsson, hinn kunni fugla-
skoðari og taxidermist, og
vcrður hann þátttakandi í
Grænlandslciðangri, sem fyr-
irhugaður er á vegum Náttúru-
gripasafns íslands. Dr. Finnur
Guðmundsson fuglafræðingur
verður fararstjóri rannsóknar-
leiðangursins. Farið verður til
Meistaravíkur og dvalist þar
og á nálægum landssvæðum á
Austur-Grænlandi og gerðar
ýmsar náttúrufræðilegar at-
huganir, einkum hvað við kem-
ur fuglalífi. Með dr. Finni
verður, auk Kristjáns, Hálfdán
í Kvískerjum í Skaftafells
sýslu, en hann er kunnur
áhuga- og athugunarmaður um
fuglalíf. Þeir félagar hyggjast
dvclja um tveggja mánaða
skeið á Grænlandi.
Samræming á fasteigna-
mat fer fram í ár
Afgreitt var í fyrradag sem lög
írá Alþingi frumvarp til laga um
samræmingu á fasteignamati. Skal
endurskoðun þessi fara fram á ár-
inu 1955. Sameinað Alþingi kýs
tvo menn hlutfallskosningu, en
fjármálaráðherra tilnefnir þriðja
manninn og verður hann formaður
nefndarinnar. Gildandi fasteigna-
mat er frá 1942. Verðsveiflur og
stórbreyttar atvinnuaðstæður hafa
mjög raskað verðmæti fasteigna á
þessum tíma.
8. bindi if secfu Ssiendinga eftir
Jónas Jónsson kom úf 1. maí
Menningarsjóður hefur gefið út
fyri hlutann af áttunda bindi Sögu
Islendinga, en það er S3mið af
Jónasi Jónssyni frá Hriflu og fjall-
ar urn tímabilið 1830—1874 eða
áratugina, sem Jón Sigurðsson var
forustumaðurinn í stjórnmálum Is-
lendinga. Er þessi fyrri hluti bind-
isins 464 biaðsíður að stærð og
prýddur 84 myndum. Aður haía
fjögur bindi komið út af sögu Is-
lendinga, 4., 5., 6. og 7. bindi, en
þau nú yfir tímabilið 1500—1830.
Fyrri hluti áttunda bindisins
hefst á frásögn af dönskum stjórn
málum á þessu tímabili, einkum að
því leyti, sem þau varða málefni
Islands. — Síðan eru þættir um
kirkju- og skólamál, skáld og rit-
höfunda, vísindi, listir og blöð og
tímarit, einkum Fjölni og Ný fé-
lagsrit. Tímabilið, sem hér er um
fjallað, er mesta vakningaröld ís
lenzku þjóðarinnar, en á fyrri hluta
þess drottnaði rómantíska stefnan
í andlegu lífi Evrópu og vakti frels-
isöldu víða um lönd. — Boðberar
(Framhald á 8. síðu).
Meginálierzla íögS á að styrkja írum-
þætti ræktmiariiiiiar -- frumvarpið
fííítt að tilmælum Steiiifflríms Stein-
o
þórssonar landbúnaðarráðlierra
Um miðja s. I. viku samþykkti Alþingi frumvarp um breytingar á
jarðræktarlögunum frá 1950. Frumvarpið var flutt af tilmælum
Steingríms Stcinþórssonar landbúnaðarráðherra. Milliþinganefnd,
er Búnaðarþing kaus í fyrra vetur, samdi frumvarpið.
Lögin fylgja sömu stefnu og
mörkuð var með lögunum 1950,
hún er að styrkja fyrst og fremst
frumþæíti ræktunarinnar og eink
um framræzlu. Lögin ákveða
verulega hækkun á hluttöku rík-
isins í ræktunarkostnaði, enda
var svo komið, sökum hækkunar
verðlagsins í landinu, að hLut-
deild ríkisins var orðin miklu
minni en upphaflega var til ætl-
azt. Munu nýju lögin bæta að-
stöðu bænda til ræktunar og ým-
issa framkvæmda.
Breylingatillaga Bernharðs.
í frumvarpinu hafði verið gert
ráð fyrir, að styrkur til að slétta
túnþýfi skyldi felldur niður með
öllu, enda væri slíkt þýfi nú hvar
vetna úr sögunni. Bernharð Stef-
ánsson flutti breytingartillögu
um að styrkir til þessarar slétt-
unar skyldi greiðast til ársloka í
ár, en þá felldir niður. Var tillaga
hans samþykkt.
Hafa þeir fáu bændur, sem
ekki hafa fullokið túnsléttun, því
frest til næstu áramóta til að
Ijúka því og fá styrk til fram-
kvæmdanna.
Helztu ákvæði laganna.
í áliti, er landbúnaðarnefnd
Skij )in raælast í Iiöín að loknu verkfalli
- . ■ ./'■.•
Efrideildar lét fylgja frumvarp-
inu er gerð grein fyrir helztu
breytingunum sem verða í nýju
lögunum, og fer sá kafli nefndar-
álitsins hér á eftir í aðalatriðum:
Styrkur til framræzlu.
Héraðsráðunautum í jarðrækt
er fjölgað úr 12 í 15 og laun þeirra
greidd að helmingi úr ríkissjóði í
stað 2/5 nú.
Ríkissjóður hefur greitt 50%
kostnaðar við rekstur skurðgraf-
anna, þegar þær vinna að skurða-
gerð til uppþurrkunar túna, engja
eða haglendis, en nú ef lagt til að
ríkissjóður greiði 65%.
Vinnsla og jöfnun Iands.
Vinnsla og jöfnun lands vegna
túnræktar var áður styrkt með
200 kr. grunnstyrk á hvern hekt-
ara og jafnt á alla nýrækt. Nú er
ræktunarlandinu skipt í tvennt:
sandlendi, og þar er grunnfram-
lagið lækkað úr 200 kr. í 150 kr.
á hektara en á öðru ræktunar-
landi er framlagið óbreytt, 200 kr.
á hektara.
Áður gat enginn fengið fram-
lag úr ríkissjóði á meira grjót-
nám úr ræktunarlandi en 50 rúm
metra á ári, og þá 2 kr. á rúm-
metrann. Nú er lagt til að breyta
þessu, taka 50 rúmmetra hámark
ið úr lögunum og hækka ríkis-
framlagið í 4 kr. á rúmmetra
grjóts. . Þetta ákvæði gildir þó
ekki þar, sem grjótið er seljanlegt
Framhald á 7. síðu.
Undir eins og verkfalli lauk, hófst vinna við losun skipa. Dísaneu iiafði leg'ið liér við bryggju allan
tírnann sem verldallið stóð hér, cn nú var það skjótlega Iosað og sigldi á brott um leið og Svalbakur
kom af veiðnm mikið hlaðinn. Annríki hefur þó ekki verið hér í höfninni og verður ekki fyrr en
skipin taka að streyma með umhleðsluvörumar að sunnan.
Július Bogason skák-
meistari Akureyrar
Skákþingi Akureyrar er nýlokið.
Júlíus Bogason varð skákmeistari
Akureyrar með 5 vinninga. Annar
varð Jón Ingimarsson og þriðji
Randver Karlesson.
A annan í páskum komu slcák-
menn úr Hörgárdal og íefldu á 14
borðum við Taflfélag Akureyrar.
Leikar fóru þannig, að Akureyring-
ar unnu með 9i/2 vinning móti 4]/2.
Meistaraflokksmenn úr Taflfé-
lagi Akureyrar voru meðal kepp-
endanna.