Dagur - 04.05.1955, Side 8

Dagur - 04.05.1955, Side 8
8 Baguk Miðvikudaginn 4. maí 1955 Landakynning „Orlofs" í Skjaíd borgarbíó annað kvöld" Kvikmynd og frásögn frá íslendingabyggðum í Kanada og víðar Nú sækir unga fólkið í sundlaugina Aðsókn að útisundlaug bæjarins hefur stóraukizt siðan vatnshitun- artaekin voru tekin í notkun, og það þrátt fyrir að aðgangseyrir er nú reiknaður, en áður var ekkert gjald tekið. Myndin er tekin við sundlaugina nú á dögunum. Ákveðið að hefja þegar vinnu við frystihúsbryggjuna á Oddeyri Þýzkur verkfræðingur væntanlegur til við- r ræðna við stjórn Utgerðarfélagsins um hraðfrystihúsmálið Annað kvöld efnir ferðaskrif- stofan „Orlof“ til fyrstu landa-. kynningar sinnar hér á Akureyri, og verður kynning þessi helguð Kanada og Bandaríkjunum. G'sli Guðniundsson, tollvörður, mun flytja frásögn og skýringar við nýja kvikmynd, sem tekin hefur verið í íslendingabyggðunum í Kanada. Þá verða sýndar kvikmyndir með skýringum Gísla frá ýms- um merkisstöðum í Bandaríkjun- um. „Orlof“ hefur gengizt fyrir nokkrum slíkum landakynning- um í Reykjavík og hafa þær allar verið vinsælar og mjög fjölsóttar. Aðgangur er ókeypis. Hópferð vestur. í ráði er að ferðaskrifstofan efni til kynnisfarar héðan að heiman vestur til Kanada í sum- ar og mun verða ferðast um mán- aðartíma um hinar ýmsu íslend- ingabyggðir vestanhafs og flestir merkisstaðir þar heimsóttir. í þessa för verður haldið 12. júní n. k. og .verður flogið beint til Winnipeg, þar sem ferðin sjálf hefst. Sökum erfiðra póstsam- gangna í verkfallinu hefur ekki enn verið gengið frá endanlegri kostnaðaráætlun farar þessarar, en nokkur sæti eru enn laus. Fararstjóri verður Gísli Guð- mundsson, en hann er gjörkunn- ugur í íslendingabyggðunum og hefur dvalizt þar um 10 ára skeið. Önnur landakynning síðar. Auk íslendingakvikmyndar- innar, verða sýndar fleiri kvik- myndir frá Vesturheimi, m. a. frá hinum fræga þjóðgarði í Yellowstone Park, frá New York og víðar. Síðasti Bændaklúbbsfundur- inn var haldinn að Hótel KEA 26. f. m. Á þessum fundi voru þrjú mál tekin til meðfcrðar. Fram- sögumenn voru þeir Jón Rögn- valdsson, sem talaði um garð- rækt o. fl., Gunnar Kristjónsson á Dagverðareyri talaði um reynslu sína í kornrækt, og Ámi Jónsson tilraunastjóri gerði kar- töfluræktina að umtalsefni. Allmargir bændur og aðrir jarðræktarmenn tóku til máls á fundinum og var hann hinn ánægjulegasti. Bændaklúbbsfundunum er nú lokið að þessu sinni. Hafa þeir jafnaðarlega verið haldnir á hálfsmánaðarfresti í vetur og hafa verið ágætlega sóttir, þegar veður og færi hafa ekki hamlað fundarsókn. Fjölmörg landbúnaðarmál hafa verið rædd og oftast hafa ..fag- menn“ haft framsögu og tekið þátt í umræðum. Þessi landakynning „Orlofs“ er hin fyrsta, sem ferðaskrifstof- an kemur upp utan Reykjavíkur, og er í ráði, að eftir nokkrar vik- ur verði efnt til annarrar slíkrar hér í bæ. Mun hún væntanlega fjalla um Suðurlönd. Landakynningin annað kvöld verður í Skjaldborgarbíói, eins og áður er sagt og hefst kl. 9 e. h. og er öllum frjáls aðgangur. í Íslendingabyggðum Kanada er nú talið að búi um 30 þús. manns af íslenzku bergi brotnir og er fólk hvatt til að nota þetta tækifæri til þess að kynnast lífi þess og starfi af eigin sjón og raun. Burtfararprófum lokið á Hólum Búnaðarskólanum á Hólum í Hjaltadal var slitið á laugardag- inn var. Af þeim sem luku burt- fararprófi hlaut hæsta einkunn Frímann Þorsteinsson frá Syðri- Brekkum í Skagafirði, 1. eink. 8.87 stig. f yngri deild varð hlut- skarpastur Bergur Þorsteiusson og fékk hann í aðaleinkunn 8.98 stig. f bændadeild varð Diðrik Kuhn hæstur. Hlaut ágætisein- kunn, 9.46 stig. Einn nemandi skólans hafði nokkra sérstöðu. Var það Indriði Ketilss. frá Ytra-Fjalli í S.-Þing. Hann var í bændadeild í fyrra- vetur, en settist svo í yngri deild í haust og lauk prófi með henni nú í vor. Fékk hann ágætisein- kunn, 9.75 stig. Fæðiskostnaður skólapilta varð kr. 23.00 á dag. Þar með talið þjónustugjald. — Verknám- ið hófst þegar á mánudag Einetæður félagsskapur. Félagsskapur, sem þessi, mun vera einstæður í sinni röð liér á landi. Með hverju árinu sem líður hafa fundir þessir orðið fjöl- mennari og vinsælli. Ýmislegt hefur verið sagt frá þeim hér i blaðinu og hafa þeir, sem ekki hafa átt þess kost að sækja fund- ina, látið í ljósi ánægju sína yfir því. Bændaklúbburinn er um margt ólíkur öðrum félögum. Fundirnir eru líka í ýmsu á annan veg en almennt gerist. Þar eru engar samþykktir gerðar, éngin fundar- gjörð skrifuð, ekkert félagsgjald er greitt og allir velkomnir. Ef til vill er það vegna þessa algerða frjálsræðis, hve fundir þessir eru vinsælir. Og víst hafa þeir verið hinn bezti skóli og auk þess oft bráðskemmtilegir. Ef að líkum lætur mun starf hafið að nýju þegar s.umarönnum lýkur. Jónasarlundiir í Hriflu Á sjötíu ára afmælinu var Jónasi Jónssyni frá Hriflu marg- víslegur sómi sýndur. Vinir hans í Reykjavík og grennd efndu til fiölmenns samsætis að Hótel Borg. Þar fluttu ræður Vilhjálm- ur Þór bankastjóri, Erlendur Einarsson forstjóri, Guðlaugur Rósinkranz þjóðleikhússtjóri, Helgi Lárusson kaupm., Jörund- ur Brynjólfsson Alþingisforseti o. fl. Voru Jónasi afhentar góðar gjafir. Fyrr um daginn höfðu vinir Jónasar afhent honum mál- verk, er Gunnlaugur Blöndal listmálari hafði gert af Jónasi, og ennfremur hafði honum verið til- kynnt, að ýmsir þingeyskir og eyfirzkir vinir hans gæfu 5000 trjáplöntur til að gera Jónasar- lund í Hriflu. Ýmis annar sómi var honum sýndur á þessum degi. Kópavogur orðinn kaupstaður Alþingi afgreiddi á mánudag- inn lög um stofnun kaupstaðar í Kópavogshreppi. Hefur það ver- ið mikið deilumál syðra. Einkum hafa kommúnistar verið því and- vígir, en andspyrnuna má rekja til þess, að einn af réttlínumönn- um þeirra er oddviti og tekur fyrir einhver hæstu laun á ís- landi. Verður bæjarstjóri hins nýja kaupstaðar að sætta sig við miklu minni völd og laun en oddviti kommúnista hefur haft. - Saga íslendinga (Framhald af 1. síðu). þeirrar stefnu hér á Iandi voru Bjarni Thorarensen og Fjölnis- mennirnir Jónas Hallgrímsson, Tómas Sæmundsson, Konráð Gíslason og Brynjólfur Pétursson. I síðari hluta þessa bindis verð- ur meðal annars lýst dómsmálum, heilbrigðismálum, samgöngum og landbúnaði, útvegi og viðskiptum og bindinu lokið með nánari frá- sögn af frelsisbaráttunni og athöfn- um Jóns Sigurðssonar. Mun bindinu ljúka með þjóðhá- tíðinni 1874, þegar þau miklu þáttaskil urðu, að Kristján níundi færði Islendingum nýja stjórnar- skrá, en skömmu síðar lauk starfs- degi Jóns Sigurðssonar. Verzlunum lokað kl. 12 á laugardögum Frá og með næstk. Iaugar- degi verður verzlunum hér lokað kl. 12 á hádegi, en opið til kl. 7 á föstudagskvöldum. Mun svo verða í sumar. Þá heíur- blaðið fengið þær upp- lýsingar, að kjötbúð KEA og úíibú og nýlenduvörudeild KEA og útibú verði opnar frá kl. 8.30 á laugardagsmorgna í sumar. ÐAGUR kemur út á laugardaginn, 7. maí. Auglýsingar þurfa að ber- ast fyrir hádegi á föstudag. Dagur er bezta auglýsingablað- ið á Norðurlandi. Á hafnarnefndarfundi nú fyrir skemmstu var ákveðið að hefja hið fyrsta vinnu við fyrirhugaða bryggjugerð á Oddeyri, en bryggja sú á að vera við hrað- frystihúsið og til upplags fyrir togarana. Verður byrjað að gera vinnu- palla, svo að hægt sé að fara að ramma niður bryggjujárnið, sem hér er til og hefur lengi beðið þess, að verkið gæti hafizt. Hraðfrystihúsmálið. Teikningar af fyrirhuguðu hrað- frystihúsi hér eru fyrir nokkru full- Eldsvoði í Skagafirði A mánudaginn um miðjan dag brann bærinn í Syðri-Hofdölum í Viðvíkursveit í Skagafirði. Brann bærinn til ösku og varð fáu einu úr honum bjargað. Framhús voru úr timbri, en að öðru leyti var bær- inn torfbær. Tvíbýli er i Syori-Hofdölum. Búa þar Trausti Arnason og Krist- ján Hrólfsson. Hafði Kristján ný- lega flutt úr gamla bænurn í nýtt hús, en átti þó ýmsa muni þar eft- ir, en Trausti bjó þar með allt sitt. Tveir togarar Útgerðar- félagsins landa edendis Tveir af togurum Útgerðarfélags Akureyringa lar.da fiski erlendis um þessar mundir. Svalbakur íór með eigin afla og saltfisk úr Slétt- bak til Esbjerg í Danmörku og landar þar í vikunni, en Harðbak- ur er á leið til Aberdeen í Skot- landi með saltfisksfarm. Sléttbak- ur fór héðan á veiðar í fyrrakvöld og verður afli hans hertur hér, en Kaldbakur er að ljúka saltfiskstúr og er væntanlegur hingað innan skamms. gerðar, og hafa þau þýzku fyrir- tæki, sem til orða hefur komið að lánuðu fé til mannvirkisins, fengið þær til athugunar. Hingað er væntanlegur innan skamms verkfræðingur frá þessum fyrirtækjum, til viðræðna við stjórn Útgerðarfélagsins um málið. Verður ekki fullyrt að sinni, hvort hið fyrirhugaða þýzka lán er fáan- legt, eða hverjar horfur eru á þvi, að framkvæmdir við frystihúss- byggingu geti hafizt fyrir alvöru. En það mun þó vilji forráðamanna Útgerðarfélagsins að byrja á verk- inu hið allra fyrsta. Hreiður á snúrustaur! Þclta auðnutittiingshreiður er á baklóí) hér í bænuni, og er dálítið skemmtilega fyrir komið, eins og raunar má sjá á myndinni. Hreiðurkarfan er ofan á snúru- vaíningum, en ofan á oka hafði ýruband verið hengt, og lenti spvrðan því unáir hreiðrinu, en ýsusporðamir eru eins og til skjóls fyrir egg og unga. Hætt cr við, ao ýsan verði orðin í meira lagi sigin um það bil er ungarnir verða fleygir. Bændaklúbbur EyYirðinga fekur sér hvíld frá sförfum a5 sinni Félagsskapur, sem nýtur vaxandi vinsælda og vekur athygli víða um land

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.