Dagur - 11.05.1955, Side 1
Fylgist með því, sem gerizt
hér í kringum okkur. —
Kaupið Dag. — Sími 1166.
Dagur
DAGUK
kemur næst út laugardag-
inn 14. maí.
XXXVni. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 11. maí 1955
27. tbl.
Hagnýf ha
eykur feg
urððrskyn nemen
Skipuleg leit að nýjum fiskimiðum fyrir
ian land oq ausi
Fjöldi bæjarhúa skoðaði Iiaiidavimiusýumgu
Gagsifræðaskól anemenda
. Á sunnudaginn var hin árlega
handavinnusýning nem. Gagn-
fræðaskóla Akureyrar og var
sýningin í mörgum stofum, enda
fiölbreytt og niyndarleg að
vanda.
. Eins og áður er meginhluti
sýnjngarinnar handavinna stúlkna,
og eru þar hannyrðir og saum-
aðar flíkur af fjölmörgum gerð-
um. Nýjung var að þessu sinni
að til sýnis voru fallegar prjóná-
vörur ásamt hekluðum og gimb-
uðum munum. Af handavinnu
pilta vakti bókbandið einna
mesta athygli, enda vel unnið og
smekklega. Virðist bókband
henta vel sem skólavinna fyrir
unglinga, og ágætt er það fyrir
sem flesta, að kunna að binda
bækur. Auk bókanna voru smíðis-
gripir ýmsir, svo og húsgögn. Þá
voru sýndar teikningar nemenda
og kenndi þar margra grasa. M. a.
sást þar bíll, módel 1955, svo að
ljóst er, að unglingarnir fylgjast
með tímanum. Þá voru sýr.dar
iðnteikningar.
Nemendur vilja sjá árangur
erfiðis síns.
Fræðsluráði bæjarins og ýms-
um öðrum gestum var boðið að
skoða sýninguna. Þorsteinn M.
Jónsson skólastjóri ræddi um
sýninguna og handavinnukennsl-
una og lagði áherzlu á, að hún
færi þannig fram, að hún glæddi
vinnugleði nemenda, yki fegurð-
arskyn þeirra, en væri þó um leið
17. júní nefnd kosin
Bæjarstjóm Akureyrar kaus á
fundi sínum fyrra þriojudag
nefnd manna til að annast hátíða-
höld í bænum 17. júní n. k. Var
framkvæmdanefnd hátíðahald-
anna í fyrra endurkosin einróma,
enda þótti húh starfa þá með á-
gætum, en hana skipuðu:
Jón Norðfjörð, Páll Helgason,
Jón Ingimarss., Herm. Stefánss.,
Jóh. Þorkels's., Magnús Björnss.
Glæsilegur vagn tekinn
í notkun á Dalvíkur-
leiðinni
Nú í vikunni var tekinn í notfk-
un mjög giæislegur iángferða-
vagn á áætfunarleiðinni Dalvík-
Akureyri sem útibú KEA í Dal-
V.’k hefur sérleyfi á. Er þetta stór
nýtízku almenningsvagn af Volvo
gerð, búinn ágætum sætum og er
hið bezta farartæki í hvívetna.
Er mikill fengur að þessum stóra
og myndarlega vagni.
hagnýt. Nemendur vilja sjá árang-
ur vinnu sinnar, annars verður
hún þeim til leiðinda, sagði skóla-
stjórinn. — Handavinnukennarar
skólans eru: Frk. Freyja Antons-
dóttir, frk. Kristbjörg Kristjáns-
dóttir, frú Bergþóra Eggertsdótt-
ir, Guðmundur Frímann og Guð-
mundur Gunnarsson. Teikni- !
kennslu annast Guðmundur Gunn-
arsson og Haraldur Sigurðsson.
Gróðursetningarvinna
byrjar hjá Skóg-
ræktarfélaginu
Skógræktarfélag Akureyrar
byrjar gróðursetningu í Kjarna-
skógi annað kvöld (fimmtud. 12.
þ. m.). Farið verður frá Hótel
KEA kl. 7.30. Framvegis verður
gróðursett hjá félaginu á þriðju-
dags- og íimmtudagskvöldum. —
Farið verður á sama t'ma öll
kvöldin. Félagið heitir á bæjar-
búa að styrkja starfið með því að
taka þátt í gróðursetningu og
væntir einnig aðstoðar bílaeig-
enda við fiutning sjálfboðaliða.
Tryggvi Þorsteinsson (sími 281)
tekur á móti þátttökutilkynning-
um. — Fyrsta sameiginlega gróð-
ursetningarferð UMSE og Skóg-
ræktarfél. Eyfirðinga er næstk.
laugardag. Fara Akureyringar og
fólk úr Hrafnagilshreppi í
Kjarnaskóg. Og sama dag er
gróðursetning f Glæsibæjar-
hreppi, utan við Lónsbrú og
verða þátttakendur úr hreppnum
og af Akureyri utan Glerár.
Viimuskóli starfræktur
Iiér í sumar
Ráðgert er að starfrækja
Vinnuskóla bæjarins með svip-
uðu fyrirkomulagi og sl. sumar.
Starfsgreinar verða m. a. garð-
rækt og fiskþurrkun, svo fremi
að fiskur verði fáanlegur. Garð-
ræktin er fyrirhuguð á Glerár-
eyrum. Þeir foreldrar, sem áhuga
hafa á því að koma börnum sín-
um í Vinnuskólann, tilkynni það
sera fyrst til formanns Vinnu-
skólans, Árna Bjarnarsonar, sem
gefur allar nánari upplýsingar
um væntanlega stavfsemi hans, í
vor og sumar. í Vinnuskólann
verða tekin börn á aldrinum 11—
13 ára. — For,m. nefndarinnar
segir blaðinu, að tillaga sú er
birtist í síðasta tbl.um vinnuskóla
á sjó, er í athugun hjá neíndimii.
Forset.i Ítalíu
Myndin er af Gicvanni Gronchi,
sem nýlega var kjörinn forseti
ítaiíu. Er kjörtími hans til ársins
1862. Haitn er úr stjórnarflokkn-
uin, Kristilega demókrataflokkn-
um, en í vinstri armi hans, og
naut ekki stuðnings Scelba for-
sætisráðberra né Fanfani for-
manus flokksíns. Þykir kosning
bans áfall fyrir þessa síjórnmála
menn báða, og líklegt að núv.
stjórn ítaiíu verði ekki Ianglíf
úr bessu.
Fyrsta knattspyrnu-
keppni sumarsins
Á sunnudaginn fór fram hrað-
keppnismót í knattspyrnu hér á
vellinum og kepptu KA, Þór og
MA. — KA sigraði : móti þessu.
Kalt var í veðri og keppnin frem-
ur dauf, enda er þetta fyrsti
kappleikur sumarsins.
Áthygíísverð tílíaga nokkurra
þingmanna Framsoknarflekksins
Frarn er komin á Alþingi tillaga til þingsályktunar urn að gerð
verði skipuleg leit að fiskimiðum fyrir togara íyrir Norðurlandi .og
Austurfandi. Eru flulningsmenn nokkrir þingmenn Framsóknar-
flokksins, þcir Bernharð Stefánsson, Vilhiálmur Hjálmarsson, Hall-
dór Ásgrímsson, Karl Kristjánsson og Gísli Guðjnundsson.
Tillaga þessi byggist á nýfeng-
inni reynslu á togveiðum fyrir
Norðausturandi og á þeirri stað-
reynd, að þessi landshluti á í vax-
andi mæli afkomu sína undir tog-
araútgerð og starfrækslu fisk-
vinnslustöðva. Togaraútgerð hef-
ur á seinni árum farið hraðvax-
andi frá Norðurlandi, svo sem
kunnugt er, og fiskiðjuver hafa
risið upp eða eru í undirbúningi.
Hins vegar er mjög óhentugt tyr-
ir togara, sem leggja upp í heima-
höfn, að þurfa að sækja á fjarlæg
mið suma árstíma.
f greinargerð segja flutnings-
menn að hér sé um svo þýðingar-
mikið mál að ræða, að enginn
dráttur megi verða á framkvæmd
þess, enda bendi nýfengin reynsla
til þess að leit þessi myndi bera
góðan árangur.
Tillagan er á þessa leið:
„Alþingi ályktar að skcra á
ríkisstjórnina að beita sér fyrir
því að fram fari skipuleg leit að
nýjum togaramiðuin fyrir
norðan Iand og austan.
Nauðsynlegur kostnaður
greiðist úr ríkissjóði.“
í fylgiskjali með tillögunni
vitna flutningsmenn í álit skip-
stjórans á togaranum Austfirð-
ingi, og skal það sagt í stuttu
máli.
Starfstími fiskiðjuveranna, sem
starfrækt eru í mörgum sjávar-
,rSkóli fyrir skattgreiðendur” -
frumsýning hér í næstu viku
Leikfélagið sýoir „Mýs og «ienn“ í Húsavík
iim næstu belgi
Nú er að Ijúka æfingum hjá
Leikfél2gi Akureyrar á frönskum
gamanleik, scm ber nafnið „Skóli
fyrir skattgreiðendur“. — Mun
frumsýning verða hér í næstu
viku.
Höfundar eru Vernuil og Berr,
en þýðandi er Páll Skúlason
Spegilsritstjóri. Leikstjóri er Jón
Norðfjörð.
Leikurinn gerist í París í nú-
tímanum, cg fjallar á skemmti-
legan hátt um skattaframtöl og
ónákvæmni við framtalningu og
annað í þc-im dúr. Með aðalhlutv.
fara Jón Norðfjörð, Brynhildur
Steingrímsdóttir og Júlíus Júlí-
usson frá Siglufirði, sem leikux
hér sem gestur. Iiefur hann farið
með hlutverk sitt áður í Siglu-
firði. Aðrir leikendur eru: Páll
Halldórsson, Jóharin Ogmunds-
son, Sigríður P. Jónsdóttir, Vign-
ir Guðmundsson, Jónas Jónasson,
Halldór Helgason, Pálína Guð-
mundsdóttir og Bára Björgvins-
dóttir.
,,Mýs og menn“ í Húsav k.
Ákveðið er að Leikfélag Akur-
ej'rar fari leikför til Húsavik nú
um helgina, hina fyrstu í sögu
þess, og sýni sjónleikinn ,.Mýs og
menn“ í samkomuhúsinu bsr. —
Verða sýningar kl. 8 á laugar-
dagskvöldið og kl. 4 á sunnudag-
inn. Leikfélag Húsavikur annast
undirbúning þar.
þorpum norðan- og austanlands,
verður of stuttur, ef þau verða
eingöngu að treysta á bátafisk og
halli verður á rekstri þeirra. Af-
koma verkafólks á þessum stöð-
um verður þá að sama skapi lé-
leg.
Miðin of fjarlæg-
Togarar þeir, sem gerðir eru út
frá þessum stöðum, leitast við að
leggja aflann upp í heimahöfn. En
þetta er miklum erfiðleikum
bundið, þar eð þeir verða að
sækja á fjarlæg mið fyrir vestan
land eða sunnan eða jafnvel við
Grænland og eyða þá 2 sólar-
hringum umfram í siglingu, e£
landa skal eystra. Afleiðingin
verður einnig styttri veiðitími.
Brýn nauðsyn er.því að finna ná-
lægari mið.
Mið fundin við Kolbeinsey.
Fyrir austan og norðan Iand
eru stórir flákar, sem nýtízku
togarar geta fiskað á dýpis
vegna. Skipuleg leit hefur ekki
farið fram. En einstakir togar-
ar hafa reynt fyrir sér hér og
þar.
Þórður Sigurðsson skipstjóri
á Austfirðingi, hefur öðru
hverju eytt einu til tveim
dægrum í þessu augnamiði, og
ekki án árangurs. SI. sumar
fann hann fiskimið austur af
Kolbeinsey. Entist þetta mið,
ásarnt fleiri smáblettum, svo
vel að Austfirðingur hefur ekki
aflað betur annað sumar. Fátt
skipa var á þessum slóðum. Og
miðið er lííið og mun þola illa
mörg veiðiskip í lengri tíma.
Það cr skoðun Þórðar, að
ekkcrt verð hetra gert fyrir
fiskiðjuverin og togaraútgerð-
ina en að láta fara fram skipu-
lega leit að nýjum og nærtæk-
ari miðum á norðaustursvæð-
inu.
Hér er um mikið flæmi að ræða,
sem liggur frá Kolbeinsey norður
og austur fyrir Jan Mayen og
þaðan suður undir Færeyjar.
5 stiga frost í gær-
morgun
Kuldatíð liefur verið hér
nyrðra um hríð, og oft frost í
uppsveitum, en frostlaust hér
á Akurc-yri að deginum. Kald-
ast varð í fyrrinótt og mældist
rösklega 5 stiga frost hér á
brekkúnum snemma í gærmorg
un. Hefur gróðri lítið sem ekki
farið fram nú um hr.’ð.