Dagur - 11.05.1955, Qupperneq 8
8
Bagur
Miðvikudagimi 11. maí 1955
liðindi úr nágrannðbyggðum
Mmningaríundur um sfsrf gamla
kvennaskóians á Laipiandi
Gróðursett verða 3Ö0 sígræn tré eða eitt á hver ja
oámsmey og kennslukonu, sern við skólann dvaldi
Ýmis
Kirkja í smíðum á Hofs-
ósi - myndarleg sam-
koma fyrir kirkju-
byggingarmálið
Héraðssamb. cyfirzkra kvenna
héll aðalfund sinn í Húsmæðra-
skólanum á Laugalandi sunnu-
daginn 8. maí s!ðast liðinn, og var
hann mjög fjölsóttur. Hófst hann
með guðsþjónustu, er sóknarprest
urinn, séra Benjamín Kristjáns-
son flutti, en að henni lokinni var
gengið til venjulegra fundar-
starfa: lagðir fram reikningar og
skýrslur um störf Sambandsins
og félaga þeirra, sem í því éru, en
þau eru alls fimm. Einnig fóru
fram kosningar.
Héraðssambandið hefir einkum
heit sér fyrir eflingu heimilisiðn-
aðarins á félagssvæði sínu og hef-
ur það flesta vetur haft einhver
námskeið á sínum vegum í vefn-
aði eða saumum. En upprunalega
var það stofnað til að vinna að
endurreisn Húsmæðraskólans á
Laugalandi og hefir það hlynnt
að honum með ýmsum hætti og
ávallí haft tvær konur í skólaráði.
Minningarlundurinn. ,
Að frumkvæði Sambandsins
var á 75 ára afmæli gamla
Kvennaskólans á Laugalandi, fyr
Undanfarið hafa sýningar kvik-
myndaklúbbsins .,Filmíu“ hér í
bæ fallið niður sökum þess, að
kvikmyndimar voru með Gull-
fossi, og fengust ekki afgreiddar
í Iand sökum verkfallsins.
I kvöld kl. 7 verður fyrsta sýn-
ing „Filmíu“ eftir þetta hlé, í
Nýja-Bíó. Verður þar sýnd
myndin „Jeanne d’Arc“, en hún
var fyrsta myndin sem sýnd var
í Reykjavík á vegum „Filmíu“ í
nóv. 1953 og hefur nú verið sýnd
aftur þar vegna fjölda áskorana.
Á sunnudaginn kl. 1 sýnir , Film-
a“ nýja þýzka mynd, „La Pal-
oma“, í Nýja-Bíó, sem hefur
hvarvetna hlotið hið mesta lof.
Ný skrá.
VerSa sýningar á vegum
„Filmíu“ á hverjum sunnudegi
hér eftir kl. 1, á sama stað, og
verða þá sýndar gamlar og nýjar
úrvalskvikmyndir, m. a. væntan-
lega „Pepe le Moko“, frönsk
mynd, og „Maðurinu, sem vissi of
margt“, ensk mynd, tekin af Al-
fred Hitchcock. Innan skamms
verður nýrri kvikmyndaskrá,
með útdrætti úr efni myndanna
útbýtt meðal félaga í „Filmíu“.
Saga sveitastúlku.
,,Jeanne d‘Arc“, sem sýnd er í
kvöld, var gerð í Frakklandi árið
1928 og eru allir leikendumir
franskir. Fjallar myndin um feril
frönsku sveitastúlkunnar, sem
bjargaði ættlandi sínu frá ósigr-
um og hörmungum, en endaði líf
sitt á bálkestinum í greipum
ir þrem árum síðan, stofnað til
þess að koma upp lundi til minn-
ingar um starf eldra skólans og
hafa ýmsir afkomendur og vanda
menn gömlu námsmeyjanna gef-
ið til þess myndarlegar gjafir.
Eru þau samskot nú alls orðin
9075,00 ícrónur.
Hefir Jón Rögnvaldsson garð-
yrkjufræðingur í Fifilgerði gert
skipulagsuppdrátt að garðinum,
sem valinn hefir verið staður í
sambandi við skólalóðina, og er
nú búið að gera um hann vandaða
girðingu og byrjað að gróðursetja
og langar sambandið til að ljúka
því að mestu í sumar. Ætlunin er
að gróðursetja um 300 s'græn tré
eða sem svarar fjölda þeirra náms
meyja og kennslukvenna sem við
skólann dvöldu, og síðan birki og
reynivið til skjóls og skrauts.
Samþykkt var á fundinum að
gefa 3000,00 krónur til plöntu-
kaupa.
Stjórn Héraðssamabndsins skipa:
Sigríður Einarsdóttir, Eyralandi,
formaður, Jónína Björnsdóttir,
Laugalandi, ritari, og Kristbjörg
Kristjánsdóttir, Jódísarstöðum
gjaldkeri.
munkavalds miðaldanna. En hún
varð brátt tekin í dýrlingatölu og
er „Heilaga Jóhanna“ einn af
höfuðdýrlingum Frakka í dag. —
Leikstjórinn er danskur, Carl
Dreyer, og aðalhlutverkið leikur
Maria Falconetti, en það var
fyrsta og síðasta kvikmyndahlut-
verkið hennar. Hún er nú nýlátin
í Suður-Ameríku. Þegar um 1930
var „Jeanne d’Arc“ talin til s:-
gildra kvikmyndaverka og hefur
síðan farið siguríör um heim
allan.
Filmía er ekki skemmtiklúbhur.
„Film'a“ hefur nú sýnt all-
margar myndir hér í vetur, á
fyrsta starfsári sínu, og hafa und-
irtektir félagsmanna almennt
verið góðar. Hlutverk félagsins er
að sýna félagsmönnum sínum
gömul og ný listaverk úr heimi
kvikmyndanna, og jafnvel frem-
ur gömul, að gegna á þann hátt
menningarhlutverki og veita fé-
lagsmönnum sínum menntun og
fræðslu um hina nýju list, kvik-
myndina um leið. Hins vegar
hefur „Filrníu" aldrei verið ætlað
að vera skemmtifélag, né sýna fé-
lagsmönnum s'num myndir. sem
eru ,,spennandi“ eða skemmtileg-
ar á þann hátt, sem kúrekamvnd-
ir, eða innihaldslitlar dans- og
söngvamyndir gerast.
,,Filmía“ er fyrst og fremst
fyrir það fólk sem hefur yndi af
góðri leiklist á hinu hvíta tjaldi,
og kann að meta það, sem bezt
hefur verið gert í heimi kvik-
myndalistarinnar á hverjum tíma.
Sóknarnefnd Hofsóshrepps og
sóknarpresturinn, séra Árni Sig-
urðsson gengust fyrir samkomu í
barnaskólahúsinu á Hofsósi
sunnudaginn 8 maí til ágóða fyr-
ir kirkjubyggingu á Hofsósi. —
Samkoman hófst kl. 5 með ’-æðu
er séra Árni Sigurðsson flutti. Þá
söng kirkjukór Sauðárkróks und-
ir stjórn Eyþórs Stefánssonar og
að lokum voru sýndar kvik-
myndir. Samkoman var vel sótt
og þótti takast prýðilega.
Hofsósingar tóku á móti kirkju-
kór Sauðárkróks af mikilli rausn
og vinsemd, voru margar ræður
flutlar undir borðum og lýstu
þær vakandi áhuga fyrir söng-
mennt og kirkjulegum málefnum.
Meðal þeirra, er þar töluðu, var
prófasturinn, séra HelgiKonráðs-
son.
Byrjað var á byggingu kírkj-
unnar í Hofsósi í fyrra, og er nú
búið að steypa hana upp og timb-
Á síðastliðnu ári samþykkti
Alþingi ný lög um fuglafriðun og
er þetta fyrsta vorið og sumarið,
sem þau lög gilda. Lög þessi
byggjast í grundvallaratriðum á
alþjóðasamþykkt um friðun
fugla, sem gerð var í París árið
1950.
Nokkrar breytingar eru í nýju
lögunum, sem almenningi virðast
ekki vera kunnar. Þykir hlaðinu
því rétt að rekja hér á eftir
ákvæðin gagnvart nokkrum
helztu fuglategundunum.
Um 200 tegundir.
Um 200 fuglategundir hafa
náðst hér á landi. en af þeim
verpa hér aðeins um 70 tegundir.
Af þessum íslenzku varpfuglum
njóta aðeins 3 tegundir engrar
friðunar, en það eru hrafn, kjói
og veiðibjalla. Af óvissum gestum
og umferðafuglum, sem hér eru
jafnan margir má aðeins veiða 4
Reykvíkingar bjóða
upp á skemmtun
Hér kom á sunnudaginn kaba-
rett-flokkur ísl. tóna frá Reykja
vík, hljóðfæraleikarar, söngvarar,
dansarar, leikarar o. s. frv., cg
hélt hér 4 skemmtanir yfir dag-
inn sem voru allvel og sumar
ágætlega sóttar. Greiddu menn
35 kr. í aðgangseyri. — Meðal
skemmtikraftanna voru kunn
nöfn úr útvarpinu, einkum dæg-
urlagasöngfólk. í hópnum var
Kristinn Hallsson söngvari, og að
öðrum ólöstuðum mun hann hafa
vakið rnesta hrifningu. En æði
bragðdaufir voru sumir dægur-
lagasöngvararnir við hliðina á
honum.
urklæða þak hennar. Hefur þessi
áfangi tekizt vel og reynzt til-
tölulega mjög ódýr. Mikið er þó
ógert enn og vantar að sjálfsögðu
fé til þess að fullgera kirkjuna.
Hofsósingar munu hins vegar
leggja allt kapp á að korna verki
þessu áfram og fullgsra bygging-
una hið fyrsta.
Aðalfundur Ungmenna-
sambands Skagfirðinga
Aðalfundur Ungmennasam-
bands Skagafjarðar var haldinn á
Sauðárkróki 23. og 24. apríl
Foi'maður sambandsins, Guð-
jón Ingimundarson, bauð fulltrúa
velkomna til fundarstarfa og
flutti yfirlit yfir störf sambands-
stjórnar á liðnu starfsári. Sam-
bandið hafði staðið fyrir eða átt
þátt í tíu mótum og kappleikjum
á liðnu ári.
Að venju hélt sambandið hér-
aðsmót sitt á Sauðárkróki 17. júní
og sá um fjölbreytt hátíðahöld
þann dag.
íþróttakennarar störfuðu á
vegum sambandsins um nokkurt
skeið og leiðbeindu félögum við
margs konar íþróttaiðkanir og
önnur félagsleg störf,
tegundir tímabundið, en þær eru:
Litli-hvítmáfur, friðaður frá 19.
maí til 15. ágúst, blesgæs, friðuð
frá áramótum til 20. ágúst, og
Margæs og helsingi sem njóta
sömu friðunar.
Endur og gæsir friða'ðar að
vorinu.
Grágæsin er nú fríðuð á vorin
og til 20. ágúst, ennfremur heiða-
gæsin. þá eru endur allar friðaðar
frá áramótum til ágústloka. nema
sefönd og toppendur, sem ekki
njóta friðunar nema frá 20. apríl
til 20. ágúst, og stokkönd, rauð-
höfði og hávella sem ekki njóta
friðunar í jan. og febrúar. Lóm-
urinn er friðaður frá 20. apr.til 20.
ágúst, rjúpan er ófriðuð aðeins
á tímahilinu 15. október til 22.
desember.
Sjófuglar.
Um sjófugla gilda þessar regl-
ur: Friðunar frá 19. mai til 15.
ágúst njóta: skúmar-, silfurmáfur,
litli-svartbakur, hettumáfur, rita,
álka, langvía, stuttnefja, teista og
lundi. Frá 1. april til 20. ágúst
njóta friðunar: fýll, súla, díla-
skarfur og toppskarfur. Óheimilt
er þv I að skjóta svartfug! allan
eftir 19. maí. ,
Eggjataka bönnuð.
Um egg tegundanna gildir sama
vernd og um líf þeirra. Á tak-
mörkuðum svæðum þar sem
veiði eða eggja- og ungataka sjó-
fugla hefur talizt til hlunninda,
skulu friðunarákvæðin ekki vera
því til fyrirstöðu, að nytja megi
þau hlunnindi eftirleiðis. Vegna
fornra hlunninda er taka andar-
eggja leyfð við Mývatn, en háð
ákveðnum reglum. Heimilað er
að taka krluegg, þó aldrei nema
fyrsta varp og ’ annað egg af
tveimur. En til allrar eggjatöku
þarf sérstakt leyfi.
Á fundinum voru rædd ýmis
félagsmál og gerðar margvíslegar,
samþykktir um verkefni þau, sem
framundan eru.
Þá var rætt um stuðning ung-
mennafélaga við bvggingu sjúkra
húss á Sauðárkróki, og samþvkkt
tillaga þess efnis, að ungmenna-
félagar beiti sér fyrir því að bú-
endur sýslunnar leggi inn á
reikning sjúkrahúss á Sauðár-
króki eitt lamb' á komandi hausti.
Sðari daginn þáðu fulltrúar
kaffiboð UM.F Tindastóls á Sauð-
árkróki.
í stjórn voru kosnir þeir Guð-
jón Ingimundarson, Sauðárkróki,
Sigurður Jónsson, Reynistað, og
Magnús H. Gíslason Frostastöð-
um.
Skólaslit í Glerár-
Barnaskóla Glerárþorps var
sagt upp síðastliðinn föstudag. 80
börn hafa stundað nám þar sl.
vetur. Þar af luku 10 böm burt-
fararprófi. Hæstu einkunn hlaut
Olafur Kristjánsson, Ljótsstöð-
um, 9.33. Sala á sparimerkjum í
skólanum hófst eftir áramótin, og
seldust merki fyrir rúmlega 6
þús. krónur. — Börnin höfðu
samkomur í vetur til ágóða fyrir
ferðasjóð sinn og var ágóði um
1800 krónur. Vorskólinn hófst
sl. laugardag fyrir 3 yngstu ár-
ganga barnanna. — 3 kennarar
starfa við skólann. Skólastjóri er
Hjörtur L. Jónsson.
Frá starfi barnaskólans
á Sauðárkróki
Barnaskólanum á Sauðárkróki
var slitið 1. maí. Skólastjórinn,
Bjöm Daníelsson, flutti yfirlit
yfir vetrarstarfið, og minntist í
því sambandi á væntanlegar
framkvæmdir við skólahús og
leikvöll, en þar er enn margt
ógert, en verður smám saman
unnið að því eftir því sem fjár-
hagur leyfir. Jafnframt minr.tist
hann á hinn lofsverða árangur,
sem náðst hefði í sparifjársöfnun
skólabarna á vetrinum, og þakk-
aði þann skilning og velvilja, sem
foreldrar virðast sýna því máli.
Á vetrinum eignaðist skólinn
segulbandstæki í félagi við
Gagnfræðaskólann.
Heilsufar skólabarna var injög
slæmt mestan hluta vetrar og al-
veg fram undir vor, er það komst
loks í eðlilegt horf.
Alls voru 106 börn í skólanum,
en það er lág tala. borið saman
við íbúafjölda staðarins.
Oll börn luku ársprófi og þar af
24 barnaprófi, 5 þeirra með ágæt-
iseinkunn. Hæstu meðaleinkunn
hlaut Jósefína Hansen, 9,48. Af
barnaprófsbörnum hlutu 15 börn
1. eink. og ágætiseink. í réttritun,
16 1. eink. og ágætiseink. í mál-
fræði og 19 1. og ágætiseinkunn í
reikningi.
Þeim börnum, sem hlutu hæstu
meðaleinkunn í hverjum bekk
voru veitt bókaverðlaun úv ný-
stofnuðum sjóði.
Að lokinni ræðu skólastjóra
tóku til máls Sigurður P. Jónsson
kaupmaður, sem er prófdómari
við skólann, og Jón Þ. Björnsson,
fyrrv. skólastjóri, er skýrði frá
verðlaunasjóði, er hann hann
mundi afhenda skólanum til að
veita þeim börnum viðurkenn-
ingu, er sköruðu fram úr í kur-
teisi og prúðmannlegri fiam-
komu.
Vorskólinn hófst mánudaginn
2. maí. Þar innriluðust 26 nýliðar.
FiEmíu-kíúbburinn hefur starf á nf
með sýningu á Jeanne d'Árc
Áðeins kjói, hrafn og veiðibjalia
njófa engrar friðunar að Eögum
Fyrsta vorið, sem nýju fuglafriðunarlögie gilda