Dagur - 26.05.1955, Síða 1

Dagur - 26.05.1955, Síða 1
J Fylgist mcð því, sem gerizt hér í kringum oltkur. — Kaupið Dag. — Sími 1166. DAGUR kcmur næsí út miðviku- dagimi 1. jún:. XXXVin. árg. Akureyri, fimmtudaginn 26. maí 1955 30. tbL Ákureyringur við nám í Bandaríkjunum Tryggvi Jónsson frá Akurcyri, scm myndin er af, dvelur nú í Rich- mond í Bandarkjunum ásamt 4 öðrum íslendingum, sem þar eru við vinnu og nám hjá Virginia Tractor Company. Kynna þeir sér m. a. meðferð stúrrá vinnuvéla af ýmsum gerðunt, og alveg sérstaklega öryggisreglur við notkun þeirra. Ðagblöðin i Osló minnast fornra tengsla og fagna nýjnm samskiptum EINKASKEYTI TIL DAGS. Osló í gær. Oslóborg var fánum prýdd í morgun í tilefni forsetakomunn- ar, og öli dagblöð landsins birtu greinar um norsk-íslenzk sam-' skipti fyrr og síðar, cn þau dcrifa öli hjartaniega og vinsamlega. Klukltan um 11 í morgun fór mannfjöldi að safnast saman í grennd við Hönnördbryggju, sem er örskammt frá ráðhúsi borgar- innar. Loguðu 10 kyndlar á hafn- arhliði ráðhússins til hátíðabrigð- is. — Klukkan 11.30 s'gldi „Gull- foss, fríður cg fánum skreyttur, í augsýn áhorfenda í landi, og litlu fyrr hófst skothríð til heiðurs gest- unum frá hinum aldna Akershus- kastala. Lífvörður konungs hafði fylkt liði við höfnina og herhljóm- sveit lék. Ólafur krónprins hélt síðan á herbát að skipshlið, en aðr- ir norskir tignarmenn og ráðherrar, og íslenzku sendiherrahjónin og fleiri, biðu gestanna. Kíukkan laust fyrir 12 kom Há- kon konungur og kannaði liðsveit- ir. — Virtist aðkt n umcnr um hinn aldni konungur, beinn í baki og hinn íyrirmannlegasti, bera aldur- inn vel. Rétt um klukkan tólf renndi svo báturinn að bryggju og forseta- hjónin og fylgdarlið þeirra steig á land, i för með krónprinsinum, en konungur tók á móti þeim. Eftir að menn höfðu heilsast fóru konungur og forseti liðskönnun, en mikill mannfjöldi, sem safnast hafði sam- an allt í kring, laust upp húrra- og fagnaðarhópum. Síðan stigu þeir konungur og forseti í bíl og óku af stað um Karl-Jóhannsgötu til kon- ungshallarinnar, en forsetafrúin ók með krónprinsinum. Mikiíl mann- fjöldi hcrfði á ckuferðina til hall- arinnar, og var heimsókn þessi á hvers manns vörum. Síðdegis í dag leggur forseti blómvönd á minnisvarða fallinna Norðmanna í Akershuskastala, en heldur síðan í ráðhúsið. — í kvöld er mikil veizla á konungsgarði. A morgun er heimsókn í Háskól- ann og söfnin á Bygdöy, og um kvöldið hátíðarsýning í Þjóðleik- (Framhald á 7. síðu). Endurbætur á Hótel KEA ; r Afaiigi í starfi nautgriparæktarfélagamia, sem vænlegur er til árangurs í kynbótastarfiim Um miðjan maí var Hótel KEA tilbúið að taka á móti ferðamanna- straumnum. Var þá lokið ýmsum endurbótum innanhúss. Öll her- bergi voru máluð og lagfærð og aðalsalur hótelsins málaður og prýddur með ljósum gluggatjöld- um og blómum. Ennfremur hefur anddyri verið prýtt og fleyri endur bætur gerðar. Hótelið er nú ágætlega búið til að taka á móti þeim ferðamanna- straum, sem leggur leið sína hing- að norður. Er það ánægjulegt að geta í höfuðstað Norðurlands tek- ið á móti gesturn, æðri sem lægri, og veitt þá þjónustu, er fullnægi kröfum tímans. — Hótelstjóri er Sigurður Sigurðsson. Frá fræðsluskrifstofu KEA Samvinnukvikmyndin „Viljans merki“ verður sýnd í deildum KEA í næsta mánuði. Deildar- stjórar þyrftu sem allra fyrst að athuga hvenær þeir teldu heppileg- an sýningartíma, svo að raða mætti niður sýningunum á ákveðna daga nokkru fyrirfram. Reynt verður að sýna tvisvar á hverjum stað, ef óskað er. Til greina gæti komið að fella kvik- myndasýninguna inn í dagskrá annarrar samkomu, en þó því að- eins að um innansveitar- (og ókeypis-) skemmtun sé að ræða. Fræðslufulltrúinn verður til við- tals á fræðsluskrifstofunni (í Hó- tel Goðafoss) flesta virka daga kl. 13—16, þó ekki laugardaga. Á aðalfundi Sambands naut- griparæktarfélaga í Eyiafirði, scm haldinn var að Ilótel KEA 10. ma: sl., var cndanlega samþ. að stofna búfjárræktarstö). Verð- ur henni valinn staður á Akur- eyri. Stofnun búfjárræktarstöðvar hefur alllengi verið á dagskrá hjá eyfirzkum bændum, svo sem vikið hefur verið að hér í blaðinu áður. En á aðalfundi S. N. E., sem hald- inn var 10. þ. m., var endanlega samþykkt að kaupa hið kunna býli, Lund við Akureyri, og einnig Raungárvelli, í þessu skyni. Um þetta segir svo í fundargjörðinni: Stofnun búfjárræktarstöðvar. „Formaður sambandsins, Halldór Guðlaugsson, hafði framsögu máls- ins. Skýrði hann gang málsins frá því að síðasti aðalfundur fól stjórninni að vinna markvisst að athugunum á því máli. Lýsti hann störfum stjórnarinnar og árangri, sem er, að nú stendur S. N. E. til boða kaup á býlunum Lundi og Rangárvöllum, fyrir samtals kr. 550.000.00 með hagkvæmum greiðsluskilmálum og öðrum skil- yrðum viðkomandi. Lýsti hann nauðsyn á stofnun búfjárræktar- stöðvar og skýrði frá möguleikum til stofnunar slíkrar stöðvar. Olafur Stefánsson, ráðunautur Búnaðarfélags Islands, talaði um gagn og nauðsyn afkvæmarann- sóknarstöðvar. Lýsti hann áliti sínu á staðsetningu slikrar stöðvar að Lundi og Rangárvöllum er hann taldi góða að sínu áliti, eftir þeim athugunum er hann hefði getað framkvæmt á stuttum tíma. Til máls tóku Sigfreður Guðmundsson, Stefán Halldórsson, Jón Guðmann, Arni Jónsson, Jón Kjálmarsson, Jónas Kristjánsson og Eggert Ða- víðsson. Stjórnin lagði fram tvær tillögur í málinu. Fyrri tillagan var svo- hljóðandi: Aðalfundur S. N. E., haldinn á Akureyr i 10. maí 1955, samþykkir að fela stjórninni að ganga frá kaupsamningi jarðanna Lunds og Rangárvalla við Akureyri, á grund- velli kauptilboða þeirra, er fyrir íundinum liggja frá eigendum nefndra jarða og að fengnu sam- þykki Búnaðárfélags Islands og landbúnaðarráðherra, til þess að stofnsetja þar og starfrækja búfjár- ræktarstöð fyrir héraðið. Tillagan var samþykkt í einu hljóði. Síðari tillagan var svohljóðandi og samþykkt í einu hljóði: Þá heimilar fundurinn stjórninni, að fengnu samþykki yfirstjórnar búnaðarmálanna í landinu, að hefja á þessu ári, ef unnt reynist, nauðsynlegar byrjunarframkvæmd ir að stofnun slíkrar búfjárræktar- stöðvar. Sé stjóminni heimilt, í nafni félagsdeildanna og á ábyrgð þeirra, að veðsetja eignir S. N. E. og taka lán, sé það fáanlegt, til við- bótar því handbæra fé, er S. N. E. hefur nú til umráða, bæði tií greiðslu á kaupverði nefndra jarða, svo og til nauðsynlegra fram- kvæmda vegna búfjárræktarstöðv- arinnar." Með stofnun búfjárræktarstöðv- ar stíga Eyfirðingar stórt skref í búfjárræktinni. Þessari nýju stöð er fyrst og fremst ætlað hlutverk í nautgriparæktinni og e. t. v. einn- ig í sauðfjárrækt. Búfjárræktarstöðin að Lundi á að' vera eins konar framhald af sæðingarstöðinni á Grísabóli. A mámidagirm komu hingað til bæjarins Gíslj Sígurbjörns- son framkvæmdastjóri og tveir þýzkir verkfræðingar frá fyrir- tækjum þeim sem reiðubúin eru ad taka a5 sér framkvæmd hraðírysíihússbyggingar fyrir Utgerðarfélag Akureyringa h.f. og lána fé til framkvæmdanna. Hélt stjórn Ú. A. fundi með þeim þann dag og aftur í gær, sem enduðu með því að upp- kast að samningum var undir- ritað af báðum aðilum, en samningarnir taka þó ekki gildi fyrr en þeir hafa verið sam- þykkíir af stjórnum beggja Iandanna. Útgerðarfélagið mun nú scmja við byggingameistara s bænum inn framkvæmd sjálfr- ar húsbyggingarinnar. Gangi greitt að fá nægilega marga fagmenn, standa vonir til að byggingaframkvæmdir hcfjist fljótt upp úr hvítasunnu. Hinir erlendu verkfræðingar athuguðu einnig slippinn á Oddeyrartanga og möguleika á framkvæmdum þar. Vonandi leiðir sú athugun einnig til samninga um framkvæmdir þar. Snarpur jarðskjálfta- kippur Aðfaranótt 19. þ. m. varð all- snarpur jarðskjálftakippur víða á Norðurlandi. Vaknaði fólk sums staðar af fasta svefni um eða litlu eítir klukkan 3 um nóttina. Hvergi hafa, s%’o vitað sé, orðið skemmd- ir á húsum eða öðrum mannvirkj- um. Jarðskjálftamælar sýna að jarðskjálftakippurinn muni hafa átt upptök sín 20 km. vestur af Grímsey.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.