Dagur - 26.05.1955, Page 4
4
D A G U R
Fimmtudaginn 26. maí 195!»
Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta:
Erlingur Davíðsson.
Skrifstofa í Hafnarstræti 90. — Sími 1166.
DAGUR
Ritstjóri: HAUKUR SNORRASON.
Árgangur kostar kr. 60.00.
BlaðiS kemur út á hverium miðvikudegi.
Gjalddagi er 1. júlí.
!
PRENTVERK ODÐS BJÖRNSSONAR H.F.
Stórir pokar og litlir
I DOÐRANTI einum miklum, sem kommúnistar
íáfu út á íslenzku fyrir nokkrum árum og nefnist í
oeirri útgáfu „Réttlæti, en ekki hefnd“, segir höf-
jndur bókarinnar, ameríski blaðamaðurinn Lauter-
öach, frá þvi á einum stað, að hann kom eitt sinn á
itimarkað í Rússlandi og kynntist verðlagi þar. Svo
' uliur sem hann er þó af samúð í garð sóvéttanna,
)g svo gjarnt sem honum er þó annars að líta á ailt,
»em hann sér þar eystra, gegnum rósrauð gleraugu
fraumóramannsins — annars hefði „Mál og menn-
ng'1 vissulega aldrei haft fyrir því að koma bók hans
ít á íslenzku með ærnum kostnaði — fer þó ekki
:ija því, að honum blöskri algerlega verðlagið á slík-
ím stöðum. Klykkir hann þá ófögru lýsingu út með
Ter.sum orðum (bls. 23): „Bændurnir komu til
narkaðarins með tvo poka: lítinn poka fyrir vör-
trnar, sem þeir ætluðu að selja, og stóran poka fyr-
i' rublurnar, sem þeir fengu fyrir þær.“ — Leiðir þá
uf sjálfu sér, að þessu hefur verið þveröfugt farið
tm kaupendurna, er þangað leituðu eftir brýnustu
íauðsynjum sínum, um fram mjög nauman skammt,
iji þeir fá annars staðar á hóflegu verði gegn
ikömmtunarmiðum: — Viðskiptavinirnir hafa auð-
'jrað orðið að láta stóra pokann með rúblunum fyr-
r litla pokann með afurðunum, enda segir t. d. um
oetta efni á bls. 50 í sömu bók, að „miðað við slikt
'erð, voru mánaðarlaun Natjösu virði tveggja syk-
urpunda og eins smjörpunds.“
HÉR ER AFLEIÐINGUM verðþenslu og lág-
liengis lýst einkar vel í fáum orðum og með skýrum
iæmum. Því einu skal hér við bætt, að það kemur
ag allvel fram í bókinni — en þó skýrar annars stað-
ir að vonum — að þetta ófremdarástand bitnar auð-
/itað fyrst og fremst á þeim, sem sízt skyldi: Þeim
jmkomuminnstu og fátækustu, daglaunamönnum og
/erksmiðjufólki. Embættismennirnir, liðsforingjarn-
:"r og flokksbroddarnir hafa nóg úrræði að afla sér
skömmtunarseðla, enda sjást þeir aldrei á slíkum
stöðum, og enda þótt svo væri ekki, hafa þeir tugi
oúsunda rúblna í laun á mánuði, á móti sex til sjö
lundruðum þeirra, sem lægst hafa kaupið, að fanga-
stéttinni frádreginni. — Svo virðist sem kommún-
:”stum hér heima þyki þetta ástand mjög til fyrir-
•nyndar, að öðrum kosti mundu þeir naumast vera
að flagga slíkum upplýsingum í ritum þeim, sem
jþeir sjálfir gefa út. Og annars mundu þeir ekki, æ
ifan í æ, efna til verkfalla og kaupsprenginga, enda
þótt öllum sé nú orðið ljóst, að slíkt leiðir aðeins til
þess, að „rúblnapokinn" stóri stækkar óðfluga, en
, ,Iitli pokinn" með nauðsynjavörunum minnkar jafn-
/el að sama skapi.
BJARTSÝNIR MENN vona, að leiðtogar þjóð-
anna séu teknir að átta sig á þeirri staðreynd, að
eins og málum er nú komið í heiminum um vígbún-
að og möguleika gereyðingarstríðs, borgi sig ekki
::ramar að efna til styrjalda, því að þar geti enginn
aigrað, en allir hljóti að tapa. Vonandi líður þá einn-
:ig að því, að leiðtogar atvinnustéttanna átti sig á
'því í tæka tíð, að sá tími er nú liðinn, þegar þess var
■ jinhver von, að verkföll og vinnustyrjaldir leiddu til
annars en sýndarsigra, sem engum koma að gagni,
■sn baka mörgum, ef ekki öllum, þegnunum tjón, og
geta jafnvel svipt öllum grundvelli undan heilbrigðu
athafnaKfi og f járhag þjóðanna: Þar fer ætíð á sömu
leið nú orðið, þegar til slíkra óynd-
isúrræða er gripið: Stóri pokinn
stækkar, en minni pokinn minnkar,
þveröfugt við það. sem til var
ætlazt. Það er því engin veginn að
ósekju, að þeir gerast nú æ fleiri
— bæði launþegar og framleiðend-
ur — sem vilja skakka þennan
hættulega leik, áður en framleiðsl-
an stöðvast og fjárhagsgrundvöllur
þjóðarbúsins hrynur að fullu. Þeir
ætlast til þess af ríkisvaldinu, að
það setji sem bráðast heilbrigða
vinnulöggjöf, þar sem réttur laun-
þeganna sé tryggður, en jafnframt
reistar við því skorður, að fámenn
klíka óhlutvandra manna, sem vill
þjóðfélagskerfi lýðræðisins feigt,
geti hvenær sem er att verka-
mönnum og öðrum launþegum út
í verkföll, jafnvel gegn vilja meiri-
hlutans í stéttarfélögunum, svo
sem oft verður nú raunin á.
SETNING NÝRRAR vinnulög-
gjafar — myndugrar, en þó sann-
gjarnrar og heilbrigðrar, — er
kveði skýrt á um þetta, er orðin
aðkallandi nauðsyn, sem löggjaf-
arvaldið verður að taka föstum
tökum. En slíkar ráðstafanir eru
þó engan veginn nægilegar, heldur
verða aðrar og jákvæðari aðgerðir
að koma til, ef vel á að fara. Það
er sanngjarnt og sjálfsagt, að laun-
þegum verði jafnan tryggður full-
ur réttur til eðlilegra og réttmætra
kjarabóta í beinu hlutfalli við þá
batnandi afkomu, sem þjóðarbúið
í heild gæti vissulega notið, ef at-
hafnalífið og framleiðslan væri
ekki stöðugt trufluð með harðvít-
ugum og stöðugum borgarastyrj-
öldum milli launþega og framleið-
enida, Svo sem nú hefur gengið um
sinn, þar sem deilunum hefur lang
oftast — a. m. k. nú upp á síðkast-
ið — lokið með kauphækkunum,
en engum raunverulegum kjarabót-
um. — Af þeim úrræðum, sem
stungið hefur verið upp á í þessu
sambandi, virðast tvö einkum
koma til greina: Annað er hlut-
fallsleg breyting á öllum launum
og þjónustugjaldi hvers konar eftir
heildartekjum þjóðarbúsins á
hverjum tíma — eins konar land-
aurareikningur í nýrri og endur-
bættri mynd. — Hætt er þó við, að
slíkt kerfi reyndist alltof flókið og
erfitt í framkvæmd, og stöðugt
mætti um það deila, hver vera ætti
hlutfallstala hverrar atvinnustétt-
ar við þá skiptingu. — Hitt úrræð-
ið, er úrræði samvinnunnar. Það er
þaulreynt í framkvæmd á sviði
hvers konar viðskipta og hefur
ennfremur verið reynt í sambandi
við margs konar framleiðslu, — og
hefur alls staðar gefizt vel. Sam-
vinnumenn trúa því, að á grund-
velli samvinnunnar verði að byggja
á sem allra flestum sviðum við-
skipti þegna -og þjóðfélags í fram-
tíð, ef stéttastríðið -— hin ófrjóa og
háskalega barátta um stóru og litlu
pokana — á ekki að leggja fjárhag
og atvinnulíf þjóðanna i auðn og
rústir á næstu tímum.
Sumarnámskeið á Löngumýri
Eins og auglýst hefur verið hefj-
ast sumarnámskeið að Löngumýri
í Skagafirði fyrir ungar stúlkur
þann 25. júní næstkomandi.
Forstöðukonan þar, frk. Ingi-
björg Jóhannsdóttir, var nýlega
erlendis og kynnti hún sér þá tii
högun á slíkum sumarnámskeið-
um. Byrjaði hún þessa starfsemi
síðastl. sumar.
Hér er um að ræða hálfsmánað-
ar námskeið við nám og leik. —
Er allt miðað við það að gera dvöl
ungu stúlknanna á staðnum upp-
Verkafólk til laudbiui-
aðarstarfa
Búnaðarfélag íslands hefur hafl
forgöngu um ráðníngu erlends
verkafólks til landbúnaðarstarfa.
Hafa þegar verið ráðnir 40 dansk-
ir landbúnaðarverkamenn og talið
líklegt að hægt sé að ráða mun
fleiri ef þörf reynist. Erfiðlega
gengur með kvenfólkið. Hefur enn
ekki tekizt að fá konur til land-
búnaðarstarfa fré meginlandinu.
Helzt er í ráði að leita fyrir sér í
Færeyjum í þessu efni.
byggilega ag hressandi. — Skilyrði
eru hin beztu og starfskrafta: við
námskeiðin mjög góðir. — Vil eg
hvetja foreldra til þess að gefa
dætrunum kost á að dvelja á
Löngumýri hálfan mánuð í sumar.
Þátttöku er hægt að tilkynna ckk-
ur séra Kristjáni Róbertssyni og
til Löngumýrarskólans. P. S.
Svíar reisa undraborg
Síðustu fregnir berma að Svíar
ætli að reisa undraborg skammt
frá Stokkhólmi og ef áætlunin
stenzt, verður hún tilbúin árið
1960. 35 þús. manns eiga að búa
í borg þessari. Verður hún að ýmsu
leyti frábrugðin því sem áður hef-
ur þekkzt. Má þar meðal annars
nefna, að þar verður vel séð fyrir
þörfum bílaeigenda með því að
ætla bílastæði fyrir hverja 5 íbúa.
Þá verður þarna markaðstorg eitt
mikið og á það að vera undir gleri
og upphitað. Frá torginu, sem að
einhverju leyti verður kærkominn
hvíldarstaður, liggja svo götur
hinar ýmsu opinberu byggingar,
bíó og verzlunarhús og eiga þær
líka að vera með glerþaki.
Kvennaskólinii á Blönduósi 75 ára
KVENNASKÓLINN Á BILÖNDUÓSI er 75 ára
um þessar mundir. Var þess minnst á veglegan og
virðulegan hátt með hátíðahöldum á Blönduósi um.
síðustu helgi. Hófust hátiðahöldin á laugardaginn, 21.
maí sl. Þann dag skipti um veður, og varð blíðviðri
báða hátíðisdagana.
Á laugardagirm var almenn samkoma, en á sunnu-
daginn nemendamót. Hófst það með guðsþjónustu kl.
2 e. h. og þjónaði prófasturinn, séra Þorsteinn Gísla-
son í Steinnesi.
Meðal ræðumanna á skólahátíð þessari voru þeir
Steingrimur Steinþórsson ráðherra, Jón Pálmason al-
þingismaður, Guðbrandur ísberg sýslumaður og Jóra
Baldurs kaupfélagsstjóri. Karlakórinn Húnar og
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps skemmtu með söng.
Mot þetta sóttu um 500 manns, flest konur. Skól-
anum voru færðar margar veglegar gjafir í tilefni
afmælisins.
Kvennaskólinn á Blönduósi er nýlega endurbættur
.og féll kennsla njður eitt ár af þeim sökum. Var það
árið 1952—1953. Hóf hann svo starf með endurnýj-
uðuni krafti undir stjórn hinnar kunnu skólastýru,
frú Huldu Stefánsdóttur.
Kvennaskólinn á Blönduósi var fyrstu ár sín að
UndirfeHi í Vatnsdal og Lækjamóti og síðan að Ytri-
Ey, áður en hann var fluttur að Blönduósi. — Fór
snemma mikið orð af honum og hefur hann alla tíð
átt vinsældum og virðingu að fagna, svo sem glögg-
lega kom fram á 75 ára afmæli hans um síðustu helgi.
Sumaráætllm Flugfélags íslands
á imiaiilandsleiðum
Sumaráætlun Flugfélags íslands..á innanlandsflug-
leiðum gekk í gildi í gær (25. maí). Verður hún með
svipuðu sniði og í fyrra, nema hvað flugferðum til
Egilsstaða verður fjölgað til muna. Er ráðgert að
fljúga þangað alla virka daga. Þá verða í fyrsta skipti
í sumar reglubundnar flugferðir milli Reykjavíkur og
Grimseyjar, með viðkomu á Akureyri í báðum leið-
um. Hefjast þessar ferðir um miðjan júní, og er ráð-
gert að fljúga á sunnudögum. Verður fjögurra tíma
viðstaða í Grimsey, og gerir það mönnum kleyít að
skoða sig um á eynn io gnjóta náttúrufegurðar norðan
við. heimskautsbaug.
Milli Akureyrar og Reykjavíkur verða farnar 18
ferðir í viku: morgun-, síðdegis- og kvöldferðir fjóra
daga vikunnar og morgun- og kvöldferðir þrjá daga.
Vestmannaeyjaferðir verða tvær alla virka daga, en
ein ferð á sunnudögum. Eins og áður er getið verða
flugferðir til Egilsstaða alla virka daga, og verða tvær
þeirra um Akureyri og ein um Hornafjörð. Þá verður
flogið til ísafjarðar alla daga, að sunnudögum undan-
teknum,
Til Hornafjarðar og Sauðárkróks verða þrjár ferðir
í viku hverri og tvær ferðir til eftirtaldra staða: Flat-
eyrar, Þingeyrar, Patreksfjarðar, Blönduóss, Kópa-
skers, Siglufjarðar og Fagurhólsmýrar. Vikulegar ferð-
ir verða farnar til Bíldudals, Hólmavíkur, Sands,
Kirkjubæjarklausturs, Skógasands (um Vestmanna-
eyjar) og HeUu (um Vestmannaeyjar).
Flugvélar Flugfélags íslands munu halda uppi áætl-
unarflugi til 20 staða utan Reykjavíkur í sumar, og
munu þær verða á ílugi 142 klukkustundir að jafn-
aði á viku.
Sökum síaukins kostnaðar við allan rekstur flug-
véla félagsins hefur orðið að hækka fargjöld á innan-
landsflugleiðum, en þau hafa haldizt svo til óbreytt
undanfarin fimm ár. Gekk fargjaldahækkunin í gildi
25. maí. Sá háttur verður jafnframt upp tekinn, að
veita 10% afslátt af farmiðum, séu þeir keyptir fram
og aftur samtímis. Aður var aðeins veittur slíkur af-
sláttur á leiðinni Reykjavík—Vestmannaeyjar—
Reykjavík. Flugfarmgjöld hjá Flugfélagi íslanda
munu hins vegar haldast óbreytt.