Dagur - 24.08.1955, Blaðsíða 1

Dagur - 24.08.1955, Blaðsíða 1
Fylgist með því, sem gerizt hér í kringum okkur. — Kaupið Dag. — Sími 1166. Dagur DAGUR kemur næst út miðviku- daginn 31. ágúst. XXXVUI. árg. Akureyri miðvikudaginn 24. ágúst 1955 41. tbl. Héraðshæli Húnvetninga Hið nýja og veglega héraðshæli og sp tali Húnvetninga blasir við vegfarendum skammt fyrir ofan Blönduós. Er það glæsileg bygging, sem sefur nokkurn svip á umhverfið. Húsið er fullgert að utan. — Fóru með íshafsfarinu fræga, „Kista Dan“ Hið fræga íshafsfar, Kista Dan, kom hér í sl. viku og lestaði hér um 1000 lestir af Grænlands- varningi, sem geymdur hefur verið á Oddeyri á vegum Nordisk Mineselskab. Lauk lestun sl. mánudag, og hélt skipið þá af stað til Grænlands. Verkamenn í mánaðarvinnu. Mikil atvinna hefur verið fyrir verkamenn hér við Grænlandsvör- urnar, og eru þó ekki öll kurl kom- in til grafar enn. Með Kista Dan fóru 10 verkamenn til Meistara- víkur. Eru þeir ráðnir til vinnu þar að uppskipunar- og hafnarvinnu og við önnur algeng verkamannastörf í mánaðartíma. Fá þeir greidd laun samkvæmt taxta hér. Þessir fóru: Halldór Aðalsteinsson, Strandgötu 35, Jón Konráðsson, Hafnarstræti 23, Ingvar Kristins- son, Brekkugötu 13, Otto Ryel, Aðalstræti 58, Rikharður Pálsson, Skipagötu 2, Guðjón Njálsson, Munkaþverárstræti 30, Bjarni Jónsson, Glerárgötu 10, Þorvaldur Pétursson, Aðalstræti 18, Geir Örn Ingimarsson, Engimýri, og Eiríkur Kúld, Þingvöllum. Ljóðabók eftir Snæbjörn Einarsson Ut er komin ljóðabók eftii Snæ- björn Einarsson frá Raufarhöfn. Heitir bókin „Ber þú mig þrá“. í bókinni eru 47 kvæði. Yrkisefni eru margvísleg, Lóur að hausti, Oður til íslenzka bóndans, Börnin úr dalnum, Vígöld og vopnahlé, Lítil stúlka og vorið, og svo fram- vegis, og loks mörg tækifæris- kvæði. Þetta er fyrsta bók höfund- ar. Bókin er 106 bls., vönduð að frágangi, prentuð í Prentverki Odds Bjömssonar h.f. Enn skip að lesta. í gær var norska skipið Tottan að lesta Grænlandsvörur við Odd- eyrartanga, og enn er von á skip- um til að flytja vörur til Græn- lands. Fleiri verkamenn? I ráði mun vera að ráða eina 5 menn til viðbótar til Grænlands- ferðar. Slíkl rigningar- og sólarleysissumar ir gefa hugsað sér nema þeir, Akureyringar sigruðu Suðurnesjamenn! í gærkvöldi var háður á íþróttavellinum í Reykjavík úrslitaleikur í Knattspyrnu- móti íslands í II. deild, milli Akureyringa og Suðurnesjam. Akureyringar sigruðu með 2 :1 marlti, og eru þar með sigur- vegarar í II. deild, og flytjast upp í I. deild með keppnisrétt- indum á næsta íslandsmóti. — Mörkin skoruðu: Ragnar Sig- tryggsson og Baldur Árnason. Knattspyrnufél. V kingur kem ur til Akureyrar um næstu helgi og leikur hér á laugardag og sunnudág. Vesiur-íslenzk söngkona söng við guðsþjónustu hér Síðastl. sunnudag söng einsöng við guðsþjónustu hér í kirkjunni vestur-íslenzk söngkona, sem hér var á ferð, ungfrú Margrét Thor- láksson, dóttir Oktavíusar Thor- lákssonar í San Francisco, er var 25 ár trúboði í Japan. En hann er bróðir Thorbjörns Tliorlákssonar, hins fræga vestur-íslenzka læknis. Ungfrú Margrét liefur í sumar ferð- azt um Noreg og Island. Hingað hefur lnin komið einu sinni áður. I kirkjunni söng liún lagið „Nú legg ég augun aftur“ eftir Björgvin Guð- mundsson, og vakti söngur hennar óskipta athygli kirkjugesta. Akureyringar sigruðu Kjalnesinga og Suðurnesjam. í frjálsíþróífum Kepptu að Hlégarði í Mosfellssveit um s.l. helgi S.l. laugardag fór fram keppni í frjálsíþróttum milli ÍBA, Keflvik- inga og Kjalnesinga að Hlégarði í Mosfellssveit. Sigruðu Akureyringar í báðum keppnunum og ennfremur báru handknattleiksstúlkur frá ÍBA sigur úr býtum gegn Kjalnesingum með 6:1 marki. Keppnin var'mjög tvísýn og spennandi. Veður var hið versta, rigning og rok meðan á keppni stóð, og árangur því lakari en ella. Höskuldur G. Karlsson var hlutskarpastur keppenda og sigraði hann í 3 greinum auk boðhlaups. Eyrstir urðu: 100 m: Hiiskuldur Karlsson, Ak- ureyri 11.4 sek. 400 m: Guðfinnur Sigurvinsson, Keflavík 58.9 sek. 1500 m: Þórhallur Guðjónsson, Keflavík 4.37.2 mín. 4x100 m: Sveit Akureyringa 49.0 sek. Histiikk: Jóhann Benediktsson, Keflavík 1.65 m. Langstökk: Höskuldur G. Karls- son, Akureyri 6.08 m. Þrístökk: Höskuldur G. Karlsson, Akureyri 12.26 m. Kúluvarp: Reynir Háifdánarson, Kjalarn. 12.02. II Sunnlenzkur bóndi bregður upp mynd af ástandinu á óþurrkas\ æðinu Heyin ónýt - í bezta falli lélegt fóður - ær með sútarsvip, ullarlausar og horaðar, lömbin rýr - kýr að verða nytlausar Kringlukast: Magnús Lárusson, Kjalarn. 36.34. Spjótkast: Vilhjálmur Þórhalls- son, Keflavík 43.91. Keppni var hagað þannig að 2 keppendur voru frá hverjum aðila og voru gefin stig 5, 3, 2 og 1 fyrir 1. 2. 3. og 4. mann. Næst stigahæst- ur einstaklinga var Leifur Tómas- son, Akureyri. Mótsstjóri var Axel Jónsson. Akureýri xmnn Iprótlabandalag Suðurn. með 56:51 stigt'. Akureyri vann Ungmennasamb. Kjalarn. með 60:47 stigum. Nýtt dilkakjöt á boð- stólum í gær í gær var nýtt dilkakjöt á boð- stólum hér í fyrsta sinn á sumrinu, var slátrað 80 lömbum úr Skriðu- hreppi. Voru þau væn. Kroppþungi að jafnaði um 14 kg. Ætlað er. að slátrað verði tvisvar í viku hér fram til sláturtíðar. Ástandið á óþurrkasvæðun- um sunnan- og vestanlands hefur aftur versnað þessa síð- ustu daga, eftir örfáa særni- lega þurrkdaga um daginn, er þó nýttust ekki vegna stonns. Fuku þá hey víða sunnanlands og varð stórtjón. Stórrigningar hafa geysað syðra síðustu daga, ofan á allan þann vatnsflaum, sem fyrir var. Astand- ið í mörgum sveitum er orðið mjog slæmt, og verra, en almenn- ingur hér um slóðir getur gert sér grein fyrir án þess að sjá með eig- in augum. Ofögur lýsing. Bóndi á Suðvesturlandi hefur í bréfi nú um miðjan ágúst lýst ástandinu. Er það ófögur lýsing, en því miður allt of sönn. Bréfið skýrir sig sjálft og fer hér á eftir: Mikil eyðilegging. ..... Eg held það mætti til fróðleiks teljast fyrir þá, sem fjarri okkur Sunnlendingum búa, að fá sanna og rétta lýsingu af hey- skaparástandinu hér sunnanlands í sumar, en eg er, því miður, ekki nógu orðfær til að gefa lýsingu, sem gæti nokkurn veginn verið tæmandi. — En eitt er víst, eyði- leggingin er þegar orðin svo gífur- leg, að það mun þurfa 2—3 ár eða lengri tíma til að bæta það að fullu. Og sjá má öll merki þess, að þetta er aðeins fyrsti kapítulinn í ólesinni sögu, en gefur þó auga leið, hvernig verða muni.“ „. . . . ef hey skyldi kalla“. „Það af heyi — ef hey skyldi kalla — sem sett hefur verið upp í sæti eða galta, er kolmórautt, marghrakið, útþvegið og hvergi nærri vatnslaust. Svo flóðrignir alltaf ofan á þessar hrúgur. Allir endar, hom og raðir, sem útundan striga-ábreiðunum standa, dregur og drekkur í sig vatn. Frá jörðunnf gengur vatnið fet upp í hrúgubotn- inn, svo að neðan til er sætið bara fúastumpur. Gangi maður fram hjá þessum hrúgum, leggur af þeim úldinn fúaþef. Það lítið, sem tekið hefur verið inn hér sunnan- og suðvestanlands í sumar, er hálf- og alónýtt fóður. Þar, sem óslegið er á túnum, er grasið fúið upp til miðs eða meira.“ Volað búfé. „Slikt rigninga- og sólarleysis- sumar munu fáir geta hugsað sér, aðrir en þeir, sem reynt hafa. Mörgum sinnum gæti manni dott- ið í hug, að sólin væri horfin af himninum. Jörðin er öll eins og heili, svo að skepnur kafa í holt- um og melum. Kýr eru að verða grúthoraðar og nytlausar, og loðn- ar eins og útigangsstóð áþorra.Ær eru með sútarsvip, ullarlausar og auðsjáanlega horaðar og mjólka (Framhald á 8. síðu). Tveir laxar veiddir í Eyja- fjarðará f gær fékk Þorvaldur Jóns- son smiður hér í bæ 14 punda lax í Eyjafjarðará, í svonefnd- um Merkigilshyl. Fyrr í þess- um mánuði hafði hann fengið 5 punda lax ofar í ánni. Þetta eru fyrstu laxarnir, sem frétzt hefur að veiðzt hafi í sumar, en nokkur silungsveiði hefur ver- ið í ánni. Telja stangveiðimexm að árangur friðunar árósanna og netaveiðibanns sé þegar að koma í ljós, og horfur séu á því, að Eyjafjarðará verði góð stangveiðiá þá tímar líða. —• Þetta er þriðja árið; sem áin nýtur friðunar fyrir netaveiði. Það er stangveiðifélagið hér í bæ, sem hefur hana á leigu, og hefur látið laxaseiði í hana undanfarin tvö ár. Lax sá, seiu nú hefur veiðzt, getur þó ekkí verið af þeim stofni heldun eldri. Var látið laxaklak í ána sumarið 1938, og hefur lítils háttar orðið vart við lax í ásuai nu a semm arum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.