Dagur - 24.08.1955, Side 8

Dagur - 24.08.1955, Side 8
Daguk Miðvikudaginn 24. ágúst 1955 Mikil laxveiði sunnanlands - með- alveiði og vel það norðanlands Sunnanlands, og þó einkum við Faxaflóa, hefur verið mikil lax- veiði í sumar, og mun meiri en var metárið 1952, sagði Þór Guð- jónsson veiðimálastjóri blaðinu í viðtal í gær. En hann er nú á ferð hér nyrðra og á leið austur í Mývatnssveit til þess að ræða veiði- og fiskiræktar- mál við bændur þar og e. t. v. víð- ar. I ánum á Suðurlandi hefur verið mikil laxagengd, en nýtist illa vegna vatnsflaums í ánum og erf- iðrar aðstöðu, enda hafa rigningar Bæklingur um ferðalag með fljúgandi diski! Kominn er út á íslenzku bæk- lingur eftir Bandaríkjamanninn Daniel W. Fry, og heitir hvorki meira né minna en: „Vélfræðingur ferðast með fljúgandi diski og boð- skapur Marzbúa til jarðarbúa." Er lesendum ætlað að taka heitið bók- staflega. Undur þessi og stórmerki eiga að hafa gerzt á tilraunastöö Bandarikjamanna á Wliite Sands eigi alls fyrir löngu. Bæklingur þessi mun fást í bókabúðum hér í bæn- Endurbæfur á Svalbarðs- sfrandarvegi Nýlega er að mestu lokið endur- byggingu vegarkafla í milli Siglu- víkur og Halllandsness á Svalbarðs- strönd. Var vegurinn breikkaður og hækkaður. Snjóþungt var jafnan á þessum kafla og urðu af erfiðlcikar við mjólkurflutninga á vetrum. — Bændur á Svalbarðsströnd og í Höfðahverfi hófu forgöngu um að koma þessum cndurbótum á. Sval- barðsstrandarhreppur lagði fram 200 þús. kr. lán til þess að vinna verkið, og verður það endurgreitt af vegaframlaginu á næstu árum, eftir því sem það fellur til. Höfð- hverfingar leggja fram 14 vaxta af fé því, senr hreppurinn jturfti að taka að láni til jress að hrinda mál- inu í liöfn. á þeim slóðum verið með eindæm- um. A Vesturlandi og í Húnavatns- sýslu hefur verið góð veiði, og hér nyrðra, t. d. í Laxá í Aðafdal, virð- ist vera meðalveiði. Veiði lýkur í mörgum ám nú um mánaðamótin, en annars staðar er veitt til 15. september. Ilrygnir laxinn hér fyrr en ætlað var? Veiðimálaskrifstofan hefur haft með höndum ýmsar merkilegar rannsóknir á fiskistofninum i ís- lenzkum ám og lífsskilyrðin þar. Veiðimálastjóri sagði blaðinu frá því m. a., að rannsóknir þessar hefðu m. a. leitt það í ljós, að lax í sumum ám á Suðvesturlandi hrygndi mun fyrr en hingað til hef- ur verið lalið. Væri fróðlegt rann- sóknarefni, að athuga þá hluti í fleiri ám, t. d. norðlenzku ánum, og mikils virði fyrir bændur og veiðimenn að vita hið rétta í því efni. Veiði- og fiskiræktarmál okk- ar öll eru nú í deiglunni, og' er ætlunin að koma þeim í fastara form með lagafrumvarpi því, sem lagt var fram á Alþingi í vor og verður væntanlega tekið fyrir á næsta þingi. Var það frv. samið af milliþinganefnd, er hafði kynnt sér reynslu síðustu áratuga, viðhorf manna nú, og niðurstöður þeirra athugana, sem gerðar hafa verið á fiskistofninum í ám og vötnum. Hinni nýju löggjöf er ætlað að tryggja eftir föngum viðhald fiski- stofnsins og eðlilegS nýtingu hans, til hagsbóta og ánægju fyrir sem flesta landsmenn. Ýmis tíðindi úr nágrannabyggðum Góður heyskapur í iKartöfluuppskera neð- Svarfaðardal Svarfaðardal, 22. ág. Heyskapur hefur víðast gengið vel hér um slóðir, enda tíðin verið hin bezta. Nú munu allmikil hev komin í garð, en [)ó er heyskap enn haldið áfram og mun verða eitthvað enn[)á, enda ekki mjög á sumarið liðið. Bændur hér um slóðir munu geta litið ókvíðnir fram á veginn að því cr fóðuröilun snertir lianda búpeningi sínum í })etta skipti. Fiskafli er tregur á Dalvík. Von- andi glæðist aflinn senn. Langt er síðan síld hefur borizt [)angað til söltunár. Fjöldi norskra skipa í vari á Raufarhöfn Raufarhöfn 23. ágúst. 20 norsk síldarskip liggja nú í vari á Raufarhöfn, og margir Norð- menn í landi. Sum þessara skipa eru á þorskveiðum þar eystra, en önnur á síld. Enn er mikið að gera og langur vinnudagur hjá flestum. Er nú unnið við að ápakka síldina, því að flutningaskip munu innan skamms taka hana til útflutnings. 60 þús. tunnur voru saltaðar. Margt aðkomumanna er hér enn. Verið er að heyja túnin. Til þess var enginn tími á meðan síld- arsöltunin stóð yfir. Bæjarsljórn - og fjöldi manns - heiðra Þorstein M. Jónsson Fjöldi manns heimsótti Þor- stein M. Jónsson skólastjóra á 70 ára afmæli hans sl. laugardag, og mikill fjöldi lieiilaóska barst hvaðanæfa af landinu. Bæjarstjórn Akureyrar heiðraði forseta sinn myndarlega á þessum tímamótum. Bæjarráð heimsótti hann og færði honum að gjöf tvö - Óþurrkarnir á Suðurlandi (Framhald af 1. síðu). lömbunum ekki neitt. Lömbin svo hörmuleg kvikindi, að eg skil ekki að nokkurt þeirra geti orðið með meira en 20 punda kroppi i haust. Þau eru með „votahrúður“ um snoppur og haus.“ Lítið mótstöðuafl. „Hvemig myndi svo verða að taka þessar skepnur á fóður í fiaust, ef eitthvað af þeim yrði látið lifa? Hvað ætli þær hafi mikið mótstöðuafl gegn komandi vetri, og hvað verður mikið bæti- efni í fóðri þvi, sem kynni að svæl- ast inn á þessu sumri? Það liggja þó nokkrir peningar í strigayfir- breiðum á hey, allt þetta graut- fúnar niður.“ Fúi og ófærð. „Girðingastaurar eru orðnir grænir af fúa. Allt, sem eyðilagzt getur, stefnir í eina og sömu átt. Vegir upp til dala eru gjörsamlega ófærir. Það boðar það, að ef ekki hættir að rigna innan tíðar, verða menn í mestu vandræðum með að koma að sér þungavöru, svo sem kolum og fóðurbæti, ef hann þá einu sinni fæst nokkur. Upp úr kartöflugörðum fæst ekki neitt.“ Því miður satt. „Eg veit, að þetta er ljót lýsing, en þvi miður er hún sönn, því að svona er ástandið í dag. Blöð og útvarp segja ekki nema undan og ofan af ástandinu. . . . “ Þannig farast þessum bónda orð, og menn setur hljóða við lestur- inn. — Um þessi vandamál þjóð- félagsins er rætt í leiðara blaðsins í dag. an við meðallag á Svalbarðsströnd Svalbarðsströnd 22. ágúst. Heyskapur hefur gengið ágæt- lega, enda hefur tíðin verið svo hagstæð að óvenjulegt er. Tún voru yfirleitt vel sprottin, enda er hér notaður mikill, tilbúinn áhurð- ur. Þó mun þurrkurinn sums stað- ar hafa háð því nokkuð að vel sprytti eftir fyrri slátt. Margir bændur eru nú meira en hálfnaðir með seinni slátt, og hafa væntan- lega flestir lokið heyskap fyrstu daga september. Horfur með kartöfluuppskeru munu vera neðan við meðallag, en margir garðar eru of þurrir, enda hefur varla rignt, svo teljandi sé, nema einu sinni til tvisvar í 2 síð- ustu mánuði. Byggingaframkvæmdir eru með meira móti í sveitinni í sumar. Fjós eru byggð á 3 bæjum, fjárhús á 2 og heyhlöður á 2, og auk þess 2 votheysturnar 12 metra háir. Þá hefur kirkjubyggingunni miðað nokkuð, áleiðis. Tvö tófugreni voru unnin hér í sumar. Grenjaskytta er Októ Guðnason, Svalbarðseyri, og er hann afbragðsskytta. Saltað í 5000 timnur í Hrísey málverk eftir listamennina Ás- grim Jónsson og Jón Stefánsson. BOÐ BÆJARSTJÓRNAR. I gær hafði bæjarstjórnin svo hádegisverðarboð til heiðurs Þor- steini og frú Sigurjónu Jakobsdótt- ur, konu hans. Þar töluðu, auk bæjarstjóra, bæjarfulltrúarnir Jón Sólnes, Steindór Steindórsson, Björn Jónsson, Marteinn Sigurðs- son og Jakob Frímannsson, sem mælti fyrir minni frú Sigurjónu. I þakkarræðu minntist Þorsteinn M. Jónsson Akureyrar og minnti á, að bærinn vaeri nú talinn fallegasti bær landsins, og væri mikilsvert, að sá orðstir lifði. Benti hann m. a. á, að stækka bærí Lystigarðinn með því að tengja saman gilið austan við veginn og garðinn. Á afmælisdaginn voru og fluttar margar ræður á heimili Þorsteins. Jóhann Frímann afhenti málverk eftir Guðm. Einarsson frá Miðdal, frá kennurum Gagnfræðaskólans, og ávarpaði Þorstein skólastjóra ennfremur töluðu Sverrir Pálsson, séra Kr. Róbertsson, Jón Sigur- eeirsson, Egill Þórláksson og séra Pétur Sigurgeirsson. Hvassviðri af suðvestri geysaði um mikinn hluta landsins í fyrri- nótt og gær. Syðra var versta hrak- viðri, en hér bjart og hlýtt, 20 stig um miðjan dag í gær. I Húnavatns- sýslu var aftaka rok í fyrrinótt. og urðu skaðar af, þótt ekki stórvægi- legir. Sunnanáttin mun verða ríkj- andi næstu dægur, með úrkomu syðra en góðviðri hér. Hrísey 21. ágúst. Hér er fremur dauft yfir þessa siðustu daga. Ógæftir hamla veið- um, og hafa bátar legið í vari að undanförnu, þar til nú, að fyrsti báturinn fór á handfæraveiðar í nótt. Alls var saltað í um 5000 tunnur síldar, og er það að visu ekki mikil söltun, en þó sú mesta um margra ára skeið og góð at- vinnubót. Heyskap er lokið að mestu. — Kartöfluuppskera er góð og sums- staðar ágæt. Merkiskona sextug Svarfaðardal, 22. ág. Sextug verður á morgun, 23. ág., ein af merkiskonum þessa byggðar- lngs, frú Ré>sa Þorgilsdóttir á Sökku. Hún er fædd þar 23. ág. 1895. For- eldrar hennar sent þar bjuggu, voru lijónin: Þorgils Þorgilsson, ættaður úr Árnessýslu, d. 29. júlí 1918, og Elín Sigurbjörg (f. 25. júní 1863, d. 14. júh' 1933) Árnadóttir, hrcpp- stjóra í Syðra-Holti, Pálssonar, pr. að Bægisá, Árnasonar, biskups Þór- arinssonar á Hólunt. Hinn 29. apríl 1924 giftist frú Rósa og gekk að eiga Gunnlaug Gíslason’ frá Hofi í Svarfaðardal, Jónssonar, bónda þar, og Ingihjarg- ar Þórðardóttur frá Hnjúki, er nú er nýlega látin. Ári síðar hófu þau Rósa og Gunnlaugur búskap á Sökku, og búa þau j)ar enn blóm- legu qg farsælu búi. Þeim varð fjög- urra barna auðið, sem öll eru upp- komin. Tvær dætranna eru giftar, en sonur þcirra og ein dóttir eru enn heima hjá þeim. Giftu og burt- fluttu'dæturnar eru: Jóna Magnea, gift sþra Stcfáni Snævarr á Völium, og Dagbjört, sem er gift séra Þóri Stephensen á Hvoli í Dalasýslu. Frú Rósa er vinsxl kona, ljúf og hlýleg í viðmóti og fraimirskarandi gestrisin. Myndarskapur og fyrir- mennska er henni í blóð borin. Heimilið á Sökku ber þess líka ótví- ræðan vott. — Megi þessari merku konu verða langra lífdaga auðið og góðra! Hátíðlegur bændadag- ur á Laugum Laugum 21. ágúst. Búnaðarsamband Suður-Þingey- inga hélt bændadag að Laugum í Reykjadal á sunnudaginn var. Sér- stakur hátíðisdagur bænda — bændadagurinn — er orðin föst venja þar og hafa bændur í öðrum landshlutum tekið upp sama sið- inn. Bændadagurinn á sunnudaginn var hófst með guðsþjónustu í íþróttahúsinu og messaði Friðrik A. Friðriksson, prófastur i Húsa- vík, en Páll H. Jónsson, kennari á Laugum stjórnaðii almennum söng. Formaður Búnaðarsambandsins, Hermóður Guðmundsson í Árnesi í Aðaldal, setti samkomuna með ræðu og stjórnaði henni. Aðrir ræðumenn voru: Tryggvi Sig- tryggsson bóndi á Laugabðft í Reykjadal og Baldur Baldvinsson bóndi á Ofeigsstöðum, Jóhann Konráðsson frá Akureyri söng með undirleik Áskels Jónssonar, Jón Norðfjörð leikari skemmti með upplestri, skrítlum og gamanvís- um, og Karlakór Reykdæla söng undir stjóm Páls H. Jónssonat, og stjórnaði söngstjórinn einnig al- mennum söng á samkomunni. Þá kepptu knattspyrnumenn úr Mývatnssveit og Reykjadal, og unnu Mývetningar. En í þessum sveitum báðum hefur knattspyrnu- þjálfari verið í sumar og kennt ungum mönunm. L'til berjaspretta. Berjasoretta er mjög lítil x Reykjadal, en betri talin í upp- sveitunum, í Mývatnssveiit og líka í Bárðardal. Þorgrímur Stefánsson, fyrrum ferjumaður á Blöndu, látinn Blöndudalsliólum 17. ágúst. Hinn 13. ágúst lézt í sjúkrahús- inu á Blönduósi Þorgrímur Stef- ánsson, sem lengi bjó í Syðra- Tungukoti i Blöndudal, en sá bær heitiri nú Brúarhlíð, enda stendur hann rétt við nýju brúna á Blöndu. Aður en brúin var byggð var þarna um lengri tíma dragferja á Blöndu og Þorgrímur ferjumaður. Minnast hans margir frá þeim tíma er hann stóð við ferjusveifina og barðist við vatnsflauminn í ánni. Þorgrímur var fæddur 19. marz 1891 í Rugludal í Blöndudal, sem var fremsta býlið í dalnum og nú fyrir löngu komið í eyði. Árið 1916 kvæntist Þorgrímur frænd- konu sinni, Guðrúnu Björnsdóttur, og reistu þau bú í Syðra-Tungu- koti (Brúarhlíð), en þar höfðu for- eldrar beggja búið. Á síðastliðnu ári lét Þorgrímur af búskap, sök- um vanheilsu, og fékk dóttur sinni og tengdasyni (Guðmundi Evþórs- syni) jörðina í hendur. Þorgrímur var áhugasamur elju- maður, sem þrátt fyrir langvarandi veikindi í fjölskyldunni, gat bætt jörð sína verulega, og þegar hann hætti búskap hafði hann nýlega reist snoturt íbúðarhús úr stein- steypu. Fimm börn þairra Guðrúnar og Þorgríms komust til aldurs, öll gift Stefán, verkamaður í Reykja- vík, Björn, verkamaður á Hofsósi, Aðalbjörg, húsfreyja í Holti í Ás- um, Konkordía, húsfreyja á Tanna- stöðum í Hrútafirði, og Emilía, húsfreyja í Brúarhlíð. — B J.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.