Dagur


Dagur - 14.09.1955, Qupperneq 2

Dagur - 14.09.1955, Qupperneq 2
2 D AGUR Miðvikudaginn 14. sept. 1955 .. Þó um fjarSægB förin liggi mínr feginn sneri eg afiur heim fil þín..." Kveðjoorð, er aska próf. dr. med. SKÚLA GUÐjÓNSSONAR var lögð í skagfirzka mold á laugard. Eftir Ólaf Sigurðsson á Hellulandi Góðir gestir frá Akureyri í N.-Þingeyjarsýslu Um leið og síðustu leifar hans eru fluttar til Skagafjarðar i átt- hagana í íslenzkri mold langar mig til að rita örfáar línur. Ekki er það setlun mín að fara að rita neina æfisögu heldur bregða upp nokkr- um leifturmyndum úr æfi þessa ágæta vinar mins og stórfræga vis- indamanns. Skúli er fæddur og uppalinn i Vatnsholti, næsta bæ við Hellu- land. Ragnheiður kona mín, og hann voru systkinabörn og uppeld- 'issystkin, mátti svo heita að eg væri uppeldisfélagi þeirra. Þó að hann væri nokkru yngri en eg unnum við ýmislegt saman, rerum t. d. alloft á sjó með hand- færi, fórum til grasa vestur á fjöll eða vorum við veiðibrask inn í Héraðsvötnum eða úti við sjó. Snemma bar á því að þessi drengur var athugull i bezta lagi. Tindi grös og steina og safnaði hornsílum í krúsir til að rannsaka þeirra lifnaðarhætti og svo gera á þeim uppskurði og það merkilega nákvæma. Fámáll var hann og fullorðinslegur og sagði fáum hug sinn. Kornungur las hann „Hvers vegna? Vegna þess“ spjaldanna á milli, var það hans mesta uppá- haldsbók. Svo virtist sem náttúru- fræði og lifeðlisfræði væri hans hugðarefni. Frá því fyrst hann fór í skóla og alla tíð siðan höfum við skrifast á. Hvar sem hann var staddur á hnettinum sendi hann mér bréf eða kort og það síðasta 5 dögum áður en hann lézt, skemmtilegt og fjör- ugt að vanda og allmargar vísur og Ijóð með, eins og venjulega. Skólaferill. A skólaárum sínum las hann mjög margt annað, en skólabæk- urnar, einkum voru það fræðibæk- ur og rit margvísleg, svo að hann kom vel menntaður út úr mennta- skólanum. Mikið dálæti hafði hann á einum kennara sinna, Sig- urði Guðmundssyni, síðar skóla- meistara, og taldi sig lánsmann að hafa átt þess kost að nema hjá honum. Einhverju sinni áttum við Sigurður skólameistari tal saman um Skúla. — „Eg hef aldrei þekkt eins andskoti djúpt hugsandi ung- ling eins og Skúla,“ sagði Sigurð- ur. Þeirra vinátta var föst og trygg alla tíð. Eftir að Skúli fór að hafa hér sumardvöl heimsóttu þeir hvorn annan á víxl. Um skólagöngu sína sagði Skúli þetta: „Eg rúmlega skreið gegnum prófið. Menntaskólinn fann ekkert út úr mér, en lífið hefur þó fundið nokkuð.“ Lækna- próf tók hann ágætt og eftir að hafa stúderað tvö ár í Berlín, verk- smiðjusjúkdóma og manneldismál, tók hann læknapróf við Hafnarhá- skóla til að hafa full læknisréttindi þar í landi, sagði hann mér að það hefði verið fremur leitt fyrir sig. Skúli greiddi götu fjölmargra Is- lendinga er til hans leituðu og áttu þeir gestrisni og góðvild að mæta á hans elskulega heimili. Honn var kvæntur danskri konu, Melite Lar sen. Hinni glæsilegustu konu -— eiga þau 3 mjög mannvænlegar dætur. V.sindastarf. Vísindastarf hans var tvíþætt. Annars vegar rannsóknir á at- vinnusjúkdómum, þar um reit hann sína doktorsritgerð og var svo settur yfir allt verksmiðjueftir- lit i Danmörk. Nú síðast hafði hann það einungis á Jótlandi, enda hlóðust þá á hann margvísleg störf. En hinn þátturinn, sem hann vann að með fullum krafti þar til yfir lauk, voru manneldisvísindi og undirstaðan var þessi: Þjóðirnar hafa á þúsundum ára sjálfar fundið það bezta sem hentaði hverju landi í klæðnaði, matarhæfi, matreiðslu og geymslu matvæla. Kom þeim Vilhjálmi Stef ánssyni landkönnuði og honum vel saman um þessa hluti og voru bréfafélagar um skeið. Fyrsta skrefið til rannsókna í þessa átt var vísindaleiðangur hans til Færeyja. Stóð sá leiðangur í tvö sumur með mannmörgu hjálp- arliði og sérstöku leiðangursskipi. Greiddi Carlsbergssjóður allan kostnað. I Færeyjum var að finna elzta hátt í matarhæfi og matvæla- geymslu á Norðurlöndum. Um þennan leiðangur reit hann bók á ensku, í tveim bindum mjög mynd- um prýdda. Næst var það að hann las allar íslenzkar fornbókmenntir og Bisk- upasögu með það í huga að fá vitneskju um matarhæfi og geymslu matvæla á Víkingaöld- inni og þar á eftir til að freista að fá ljóskast yfir hvað valdið hefur hinni miklu og öru hnignun eftir víkingatímabilið. Reit hann bók um þetta efni sem þýdd hefur ver- ið á íslenzku og heitir: „Matarhæfi og heilsufar í fornöld". Þá var það að prófa varð allt þetta sem hann hafði orðið vísari, á nákvæman, vísindalegan hátt. En góða aðstöðu til slíkra rannsókna fékk hann ekki fyrr en hið stóra „Hygenisk Institut“ var byggt við Arósar háskóla, það langstærsta og fullkomnasta á Norðurlöndum. Var í vetur verið að setja þar af stað geysimiklar dýratilraunir, þar sem sannprófað er gildi sem flestra matartegunda, margs konar mat- reiðslu og geymsluaðferða á mat- vælum. Samhliða þessu eru svo framkvæmdar nákvæmar efna- rannsóknir. Þegar þessum tveim rannsóknaraðferðum ber saman, þykir fullsannað svo að trúa megi. Fulltrúi á Þjóðabandalags- þingum. Meðan gamla Þjóðabandalagið var við líði með aðsetur í Geneve átti Skúli þar sæti sem fulltrúi danska ríkisins úr læknastétt, þar voru þá um 200 læknar. Ekki hafði þetta þir.g lengi setið, er valdir voru 7 læknar í yfirnefnd eða ráð, var Skúli einn þeirra. Starfaði þing þetta nokkra mánuði ár hvert í nokkur ár. Kurr heyrðist í dönskum blöð- um um að óþarfi væri að senda útlendat? læknir á þing þetta. Rík- isstjórnin benti á að þar sem pró- fessor Skúli væri í þessu ráði, væri hann orðinn Þjóðabandalagsins maður og það greiddi honum laun- in (sem þó voru helmingi hærri en þjóðirnar sjálfar greiddu sínum sendimönnum). A þingi 20 vísindamanna um manneldismál og atvinnusjúk- dóma, sem háð var í Sidney í Astralíu, var Skúli eini læknirinn sem mættu þar frá Norðurlöndum. A heimleiðinni flutti hann svo er- indi á læknafundum í San Frans- isco, New York, London. Nokkru síðar var haldið Norðurlandaþing- ið í Stokkhólmi um manneldisvís- indi og þar afróðið að Danir skyldu taka forystuna um rannsóknir og kennslu í manneldisvísindum undir stjórn Skúla. Var þá þegar hafin bygging að þessari stofnun „Aar- hus Universitets Institut". Fjármagnið gegnum eldhúsin! Þessa spurningu lagði Skúli fyr- ir sig og aðra manneldisfræðinga: Hvar streymir mest f jármagn þjóð- anna? — Gegnum eldhúsin var svarið. — Og það var eins og þjóð- irnar hrykkju við, við þetta stutta og nærtæka svar. Það er því auð- skilin hin geypilega fjárhagslega þýðing að vel sé farið með matinn, en það hefur líka aðra enn meiri og óútreiknanlega þýðingu fyrir vöxt og hreysti kynslóðanna, að maturinn sé ekki skemmdur, hin verðmætustu efni eyðilögð eða því bezta fleygt á leiðinni gegnum eld- húsin. Sameinuðu þjóðirnar gerðu sendimann á fund Skúla til við- ræðu að koma upp fullkomnum háskóla með mörgum prófessorum um þetta efni í Arósum undir handleiðslu hans og leggja fé til, ef Norðurlöndin öll stæðu saman um háskólann. Atti fundiy- að vera um þetta mál milli Norðurlandanna í Kaupmannahöfn snemma í vetur sem leið, eða þegar Skúli treysti sér heilsunnar vegna og segði til. Heíur sá fundur ekki enn verið haldinn, þegar siíkur hámenntaður vísindamaður er horfinn sjónum og starfsdagur hans allur, mun marg- ur góður Islendingur harma það að þjóðin bar ekki gæfu til að njóta hinna glæsilegu starfskrafta hans. Heima á fornum slóðum. Ekkert var honum jafnkært og dvölin hér hjá okkur á æskustöðv- unum. Hann var ekki fyrr farinn, en hann fór að hlakka til næstu komu sinnar hingað og stundum átti hann erfitt með að dylja sökn- (Framhald á 7. síðu). Valþjótsstað 5. sept. 1955. Við Núpsveitungar fengum góða gesti síðastliðinn laugardag. Voru það þeir Jóhann Konráðsson söngvari og Askell Jónsson undir- leikari. Skemmtu þeir í kirkjunni að Snartarstöðum á vegum Ung- mennafélags Núpsveitunga. Kirkj- an var troðfull fram að dyrum. Fólk kom úr öllum sveitum sýsl- unnar, allt frá Þórshröfn og Rauí- arhöfn til þess að hlusta á þennan glæsilega söngmann. — Jóhann brást heldur ekki vonum manna, fremur en endranær, því að hvar sem hann lætur til sín heyra hrífur hann áheyrendur með hinni fá- dæma blæfögru rödd sinni, sem einnig er mjög þróttmikil og glæsi- leg. Meðferð hans á lögunum Sum- ardagur eftir Pétur Sigurðsson, Kveðja og Dísa eftir Þórarinn Guðmundsson og Ungtduld Schu- berts, svo að eitthvað sé nefnt, var með afbrigðum góð, svo að eg hef ekki heyrt hana slíka hjá öðrum söngvurum. Annars voru sum lag- anna greinilega of lág fyrir radd- svið Jóhanns, til þess að hann gæti gert þeim góð skil. Að vísu hefði það verið mjög góður söngur við hlið íslenzku útvarpssöngvaranna alkunnu, en Jóhann má þó athuga vel val þeirra laga, er hann syng- ur. — Askell annaðist undirleik af sinni alkunnu lipurð og smekkvisi. Mörg laganna varð að endurtaka og fimm aukalaga kröfðust áheyr- endur. Þeir félagar hafa nú síðastliðin sumur ferðast talsvert um Norður- og Austurland og alls staðar kom- ið, séð og sigrað. Þeir eru einnig hin mestu ljúfmenni í öllum samn- ingum og kynningu. Setja sig inn í allar aðstæður og gera sér allt að góðu. Það er ómetanlegt fyrir okkur Norðlendinga að eiga þess kost að heyra af og til í þessum vinsæla söngvara, sem nefndur er um leið og þeir Stefán Guðmundsson og Einar Kristjánsson. Jóhann! Hafðu þökk fyrir marg- ar ógleymanlegar stundir, bæði fyrr og síðar. Ragnar Helgason. SÝNINGAR. Fróðleiksþrá var fjarska sterk á Fróni, alla daga. Ýms voru samin ágæt verk, um bað getur saga — og baga. Ennþá reyna allir þeir, sem eiga á slíku færi, að stuðla að því að meir og meir mannfólk sjái og læri, — þó væri. Sýnt er allt, til sjós og lands, sem að nafnið hefir: Hestar; málverk, hrútar, dans, hannyrðir og vefir, — og refir. Blámenn, tröll og berserkir, búningar og gríinur, starfshlaup, akstur, skreið og skyr, skáldsögur og rímur, — og gl.'mur. Nýung hverja að nema og sjá nú er orðinn siður. Værugjörnum verður þá varla gefinn friður, — því miður. Fróðlegt er að fylgjast með þeim fúrðum, er þeir sýna. Margt við höfum sjaldgæft séð, nú s ðast þetta fína, — frá Kína. DVERGUR. Gagnfræðaskóli Akureyrar Vegna skiptingar í bóknáms- og verknámsdeiklir G.A., eru börn þau, er tóku fullnaðarpróf frá Barnaskóla Akureyrar sl. vor, eða forráðamenn þeirra, beðnir að koma til viðtals við mig fyrir 18. þ.m. F.g verð til viðtals í skólanum frá kl. 5—7 síðd. dagana 15.—17. þ.m., að báðiim meðtöldum. Akureyri, 12. sept. 1955 JÓHANN FRÍMANN skólastjóri

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.