Dagur - 14.09.1955, Blaðsíða 5

Dagur - 14.09.1955, Blaðsíða 5
Miðvikudaginn 14. sept. 1955 D AGUR 5 Hinn glæsilegi heimavistarskóli á Húsabakka í Svariaðardal, er vigður var hátíölega á sunnudaginn. Svarfdælingar hafa vígf glæsilegan heimavisfarbarnaskóla á Húsabakka Kvöddu Þórarin Kr. Eldjárn, skólastjóra sinn í 46 ár, í fjölmennu hófi og vöttuðu honum ást sína og sýndu honum margvíslegan sóma S ðastl. sunnudag var merkileg- ur hátíðis- og kveðjudagur i Svarfaðardal. Var þá vígt með hátíðlegum hætti nýtt heimavistarbarnaskóla- hús, sem Svarfaðardalshreppur hefur komið upp af miklum mynd- arskap, og jafnframt var haldið veglegt kveðjusamsæti fyrir Þór- arin Kr. Eldjárn, er gegnt hefur barnakennslu og skólastjórn í Svarfaðardal um 46 ára skeið. — Nýjum skólastjóra var heilsað við sama tækiíæri. Er hann Gunnar Markússon, úngur maður, fyrrum skólastjóri á Flúðum í Arnessýslu. Glæsilegt hús á fögrum stað. Samkoman hófst laust eftir kl. 1 á sunnudaginn í fögru veðri, og gat sjálf vígsluathöfnin því farið fram úti undir beru lofti, í sól- skini og við dýrðlegt útsýni. Hið nýja skólahús stendur á Húsa- bakka, allskammt innan við Tjörn, óg sér þaðan til um 30 jarða í dalnum. Hjörtur Eldjárn Þórarins- son, oddviti og bóndi á Tjörn, setti samkomuna með ræðu og stýrði henni. Af hálfu bygginganefndar skólans flutti skýrslu Gunnlaugur Gíslason á Sökku. Er húsið að mestu leyti fullgjört. Aðeinseftirað mála og ganga til fulls frá fáum her bergjum. Húsið er tvær hæðir, auk kjallara og riss og er gólfflötur 220 m2. I húsinu eru 3 rúmgóðar kennslustofur, íbúðir fyrir skóla- stjóra og kennara og heimavist fyrir 30 börn. Er húsið í senn veg- legt og vandað, og hefur verið mik- ið átak fyrir fámennt sveitarfélag að koma því upp, enda þótt það hafi notið til ágæts og lögákveðins framlags ríkisins — sem þó er ekki enn greitt að öllu leyti — og að- stoðar stofnana eins og Menning- arsjóðs KEA, ,er átakið þó mest heima fyrir, meðal einstaklinga, félaga og sveitarheildar. — Byrjað var að grafa fyrir grunni hússins 21. jan. 1947. Hefur byggingin því tekið langan tíma, og hefur margt valdið. En allir eru nú sammála um, að vel hafi tekist og fagna því að miklu átaki er lokið. Yfirsmiður var Jón E. Stefáns- son í Dalvík. Kostnaður mun alls nema, er lokið verður, um 1,1 roillj. króna. Vígsla skólans. Formaður skólanefndar, séra Stefán Snævarr á Völlum, flutti ræðu, og lýsti m. a. starfstilhögun skólans. Bað hann síðan Þórarin Kr. Eldjárn að draga fána að hún, og lýsti síðan yfir vigslu bygging- arinnar. Þórarinn á Tjörn dregur íána að hún við víéslu heimavistarskólans á sunnudaéirm. Magnús Jónsson alþm. flutti kveðju frá menntamálaráðherra og Stéfán Jónsson námsstjóri flutti ávarp.. Var þessi samkoma hátíð- leg og virðuleg. Sleit Hjörtur odd- viti henni. Samsæti til hciðurs Tjarnarhjónum. Bauð hann síðan, í nafni sveitar- stjórnar, til samsætis í skólahúsinu, er haldið var til heiðurs Þórarni Eldjárn og frú Sigrúnu Sigurhjart- ardóttur, konu hans. Var síðan 'setzt til borðs í mörgum síofum í húsinu, en ræðum útvarpað um gjallarhorn frá þeirri stofu, er heið- ursgestirnir, Þórarinn Qg frú Sigrún og nánustu ættingjar þeirra, sátu í. Veizlustjóri var Björn Jónsson á Olduhrygg, en ræðumenn: Séra Stefán Snærvarr, Jóhannes Har- aldsson í Laugahlíð, Hjalti Har- aldsson í Ytra-Garðshorni, Gestur Vilhjálmsson í Bakkagerði, Magn- ús Jönsson alþm., Gunnar Markús- son skólastjóri, Snorri Sigfússon námsstjóri, Bernharð Stefánsson alþm. og Kristinn Jónsson oddviti (Framhald af 8. síðu). X Kveðja frá nemanda i; !; Það var kennslustund í reikn-! ; ingi í skólastofunni á Grund.; •.[Þórarinn hafði gefið okkur |j ; | dæmi, og við sátum öll niður- > ;; sokkin í viðfangsefnið. Það var 'u . steinhljóð. Allt í einu segir ein \\ ; stúlkan stundarhátt: „Má ekki '. j ; reikna þetta svona, pabbi.“ Við ;| ; hin litum öll upp, og stúlkan j; ;; roðnaði, en Þórarinn brosti Ijúf-• ;; manntega að vanda. Og ef til'•! ;; vill hefur hann aldrei hlotið j ;l kærkomnari laun fyrir starf sitt ! ■ I en þetta ávarp. En slík var!; ;; kennsla Þórarins, slíkur kennari \; I; var hann. Nemendurnir;; ; gleymdu því, að þeir voru í • > ; skófa. Þeim fannst sem þeir'; ;; væru heima hjá sér, umvafðir!; ; ! hlýju foreldra og heimilis. !; ! I Þegar eg kom í Menntaskól-;; I; ann á Akureyri, vat sagt við;; ;; mig: Það er ekki vanda að sjá,;! !; hvaðan þú kemur, þú hefur ver- '! \ið. hjá Þórarni á T jörn, það sé '! . eg á skriftinni. — Já, auðvitað! !! kom eg frá Þórarni. Þetta dæmi'. \ ‘.; sýnir, þótt í smáu sé, hversu •! I; hann mótaði nemendur sína.!! ;; Þeir þekktust margir á skrift- ! I ;; inni einni saman, þar sem þeir !; ;' fóru. En eg ætla, eða vona að ;; ;! minnsta kosti, að svo hafi hann ; ; mótað okkur á þeim sviðum, er; > !; skipta enn meiru, því að rík • ;! ustu þættirnir í fari Þórarins, '•! !! ætla eg að séu: tildurslaus íyr- !; !; irmennska, glaðlyndi, góðvild ',; !! og dugnaður. — Þórarinn hefur ;; !; verið sá gæfumaður, að eiga sér j ;; hugsjónir, sem honum hefur;! ;; auðnazt að sjá rætast, enda \! ;; hefur hann haft fullan vilja og ;; ;; alla burði til að bera áhugamál!! ;! sín fram til sigurs. '.! J; Kæri vinur. Frá mér og mín- Í! ,; um flyt eg þér alúðarþakkir ',! ;; fyrir langa, órofa vináttu. Frá ]; ;; nemendum þínum öllum, fyrr;; ;> og síðar, flyt eg þér og þakkir ! fyrir allt, sem þú hefur fvrir;! ! okkur gert, bæði innan skóla og •! !; utan. Þér vildum við helzt líkj- \! ; ast. !; ; Gisli Jónsson. !; 1 í DAG OG Á MORGUN --------- Eftir WALTER LIPPMANN. ----- Um að sfíga niður úr skýjunum FYRIR EITTHVAÐ mánuði ávarpaði Eisenhower lögfræðinga- sambandið á fundi í Filadelfíu- borg, og lét í ljósi nokkra eftir- þanka um Genfarfundinn. Orðum var hagað til þess að uppræta þann skilning, að Bandaríkin væru lungamjúk viðkomu og svo altekin af andrúmslofti Genfarfundarins, að þau væru þess albúin að semja af sér áhugamál sín í Þýzkalandi og Au.-Evrópu. Osannar hugleið- ingar af þessu tagi skjóta upp koll- inum þegar rætt er um utanríkis- mál í háfleygum en ónákvæmum siðferðipredikunartón fremur en með rólegu, gjörhugsuðu og ná- kvæmu orðalagi. Það var aldrei af- sakanlegt að leyfa þeirri skoðun að fá byr undir vængi, að í kjölfar Genfarfundarins mundi að sjálf- sögðu senn koma samkomulag um að leysa hin stóru ágreiningsmál kalda stríðsins. Það var heldur aldrei afsakanlegt að fá þeirri fals- von vængi, að Sovétrikin væru að því komin að framselja meginvirki sín í Evrópu, né heldur þeirri fals- hyggju, að Vesturlönd ætluðu að framselja sína aðstöðu. ÞAÐ HEYRIST OFT NÚ, að ekkert, sem mikilvægt getur kall- ast, hafa breytzt á Genfarfundin- um. En eg hygg, að segja megi að í Genf hafi upplýstst og verið skjalfest, að mjög mikil breyting hefur orðið á sl. tveimur árum í samskiptum Sovét-Rússlands og Atlantshafsríkjanna. Breytingin er fólgin í skilningi á því, sem orðin er hin raunverulega stefna, að með nýtízku vopnum og því valdajafn- vægi, sem á er komið, er ekki um að ræða neitt val í milli friðar og einhvers annars. I Genf kom fram viðurkenning á hernaðarlegu jafn- tefli. Þetta jafntefli hefur þegar haft — og á eftir að hafa — geysi- legar og langdrægar verkanir. OG HERRA DULLES, sem nú er að undirbúa utanríkisráðherra- fundinn í október, verður að horf- ast í augu við afleiðingarnar. Miklu vandamáli var brugðið á loft í Genf: Ef valdi og valdbeitingu er afneitað, hvernig er þá hægt að fá Sovétríkin til samninga, sem þau eru ekki fús að gera? Hvað gæti svo sem hindrað Sovétríkin í að standa fast á skiptingu Þýzkalands og á viðhaldi leppríkjakerfisins í Austur-Evrópu? Herra Dulles hefur sjálfur nú gerzt talsmaður kenningarinnar um afneitun vald- beitingar. Samt mælist hann til sameiningar Þýzkalands með slík- um hætti, að hún gæti ekki orðið nema með stórfelldum undanslætti af hálfú Sovétríkjanna. Það vandamál, að koma á breyt- ingum á alþjóðlegum samskiptum, einkum er varðar umráð yfir land- svæðum, er þekkt sem vandamál hinnar friðsamlegu breytingar. En það er stærsta og erfiðasta vanda- máíið í því starfi, að skipuleggja alþjóðlegt friðarástand. Hvorki Þjóðabandalag né Sameinuðu þjóðir hafa fundið lykil að þessu vandamáli, og tala dæmin þar skýrast: Indó-Kína, Kórea, Pale- stína, Kashmír og Norður-Afríka. Með fáum undantekningum jafn- gildir viðhald friðarins varðveizlu status quo. Hvað viðkemur nú Sov- étríkjunum, vilja Vesturveldin helzt breyta status quo. Stefna Bandaríkjastjórnar, eins og Eins- enhower forseti lýsti henni i ræð- unni í Fíladelfiu, miðar að brott- kvaðningu Rauða hersins og póli- tiskrar valdaaðstöðu Rússa í Ev- rópu. En í framkvæmd þýðir sam- eining Þýzkalands samkvæmt skil- málum Adenauers kanzlara, að viðbættri frelsun leppríkjanna, hvorki meira né minna en þetta. Allt væri þetta æskilegt. En hér væri um að ræða stórbreytingu. Og hvernig á að koma henni á, þegar tillit er tekið til þess, sem staðfest var í Genf, að ekki er hægt að neyða Sovétrikin til þess að hörfa brott úr Evrópu? Alvqg vissulega ekki með því að tala digurbarkalega upp á nýtt, eða með því að gretta okkur frem- ur en brosa. Aðstaða stórveldanna er staðreyndabundin. Þau búa við hernaðarlegt þrátefli, enda bótt málin, sem aðskilja þau, risti djúpt og séu óumsamin. Þessari aðstöðu verður ekki breytt með ræðuhöld- um, með því að fara alls kyns krókaleiðir í milli uppörvandi bjartsýni Eisenhowers og svart- sýniblandinn ótta Dulles. Allt og sumt, sem hefst upp úr því, að þræða krókana, er að það verkar sem staðfestuleysi, óvissa og van- þroski í utanríkisstefnu Banrla- rikjanna. Hvað gæti stjórn þeirra því hafa gert — og getur enn gert — til að forða því að slík- ur misskilningur nái tökum? Hún gæti útskýrt fyrir fólkinu raun- verulegt innihald hins hernaðar- lega jafnteflis. En það er m. a., að Bandarikin hafa kraft til þess að fyrirbyggja að Sovétrikin auki valdasvið sitt, en hins vegar er okkur vamað af krafti Sovétríkj- anna að þrýsta þeim til baka. Við getum, til dæmis, varið Formósu og Suður-Kóreu gegn árás, en við getum ekki hrakið kommúnista úr Norður-Kóreu og frá meginiandi Kína. Við getum varið Vestur- Þýzkaland og Vestur-Berlín, en ekki neytt Sovétríkin til að hörfa frá Austur-Þýzkalandi og Austur- Berlin. En hvernig má þá breyting verða við slíkar aðstæður? Með diplomatískum samningum, eða, að þeim slepptum, með straumi tímans er ný viðhorf kunna að skapast. —o— í DIPLOMATÍSKUM samning- um er herra Dulles nú í andrúms- lofti Genfarfundarins um enga valdbeitingu, og aðaltækið til að ná árangri er því verzlunarleg samskipti. Eitthvað má gera með því að vísa til almenningsálitsins í veröldinni, en ekki mikið. Það álit er ekki líklegt til að standa sterklega að baki okkar. Heildar- niðurstaðan af Genfarfundinum er, að þar sem hernaðarlegt þrátefli ríkir, byggjast samningar á sam- komulagsvilja, og í slíkum átökum er sá vilji í rauninni bundinn því að fá eitthvað fyrir eitthvað, að báðum aðilum takist að hafa eitt- hvað upp úr samningunum. Forseti Bandaríkjanna gæti und- irbúið almenningsálitið með því að útskýra, hvað samningar hér í rauninni þýða. Þá mundi hann stíga niður úr skýjunum, þar sem Framhald á 7. síðu).

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.