Dagur - 14.09.1955, Side 8

Dagur - 14.09.1955, Side 8
8 Dagur Miðvikudaginn 14. sept. 1955 Ymis tíðindi úr nágrannabyggðum Kaupsýslumenn hafa fjölmennt á leiðbeiningarfundi t Ýmsar markverðar ábendingar um bætt vinnu brögð og aukna tækni hafa komið fram Slátrun hjá K. Þ. fer fram á 3 stöðum Mánudaginn 19. þ. m. hefst slátr- un sauðfjár hjá Kaupfélagi Þingey- inga. Slátrað verður 24 þús. kind- um. Vegna garnaveikivarna verður slátrað vestan Skjálfandafljóts á Ofeigsstöðum og svo úti í Flatey. Var þetta gert sl. haust og gekk þá vel. Sunnudaginn 11. þ. m. var fund- ur haldinn i Laugaskóla að tilhlut- un Kaupfél. Þingeyinga. Voru þar rædd skattamál samvinnuféiaga og önnur kaupfélagsmál. Frum- mælendur voru þeir Karl Krist- jánsson alþingismaður, Finnur Kristjánsson kaupfélagsstjóri og Páll H. Jónsson kennari á Laugum. Margt áhuga manna um samvinnu- mál mætti á fundinum. — Kvartað hefur verið um lélega berjasprettu í ár. Að undanförnu hefui þó úr rætzt með þetta og hefur berja- fólk komið heim með mikinn feng og e. t. v. meiri en nokkru sinni fyrr. En berin eru ekki á venjuleg- um slóðum og krækiber nær engin í byggð. En austur á Reykjaheiði og fjöllum uppi er gnægð kræki- berja. Vegabætur gerðar á Austurf jöllum - Minka enn vart í Mývatnssveit Reynihlíð 12. sept. Lokið er við að gera þriggja km. langan veg, upphlaðinn á Austur- fjöllum. Hefur Pétur Jónsson í Reynihlíð verið þar eystra með flokk manna. Þessi vegarkafli er hjá Nýjahrauni og var áður aðeins ruddur og tepptist því fljótt. Héraðsfundur prófastsdæmis S.- Þing. var haldinn á sunnudaginn. Mættu þar 4 prestar af fimm og margir safnaðarfulltrúar. Gengið var til kirkju og þjónaði séra Örn Friðriksson fyrir altari, en séra Sigurður Haukur Guðjónsson, sóknarprestur á Hálsi, prédikaði. Rætt var um ýmis málefni kirkj- unnar. Heyskap er lokið í Mývatnssveit og gekk vel, þótt oft væri hvasst og tafsamt við heyvinnu. Lítils háttar mun hafa fokið af heyi. Ráðgert er að fresta göngum á Austurfjöllum. Vilja Mývetiningar ógjarnan taka fé sitt þaðan fyrr en um leið og slátrað er. I þessari viku mun Suðurafréttur verða genginn og lagt af stað þann 15. og réttað að Baldursheimsrétt á sunnudaginn kemur. I Skjólbrekku er samkoma um hverja helgi og hefur aðsókn verið góð. Samkomurnar hafa farið vel fram. Karlakór Mývetninga fór í söng- ferð austur i Vopnafjörð og söng þar á sunnudaginn var við ágætar undirtektir. A heimleiðinni söng kórinn á Grímsstöðum. — Minka hefur orðið vart að undanförnu norðan við Helluvað. Skagfirzkir bændur óttast markaðstregðu fyrir hrossakjöt Hólar í Hjaltadal 12. sept. Verið er að slá hána á skólabú- inu á Hólum. Þar er heysk-apur orðinn mikill og verður 4-—5 þús. hestb. Ileyskapartið hefur verið leiðinleg, sagði Kristján Karlsson skólastjóri, og versnandi eftir því sem á liður. Hefur rignt meira og minna flesta sólarhringa að undan- förnu. Hvassviðri hafa líka valdið töfum. Gróðurinn hefur ekki látið á sjá og eru tún enn hvanngræn og gras i vexti. Göngur og réttir eru nú skammt undan og sláturtíðin að hefjast. — Búizt er við því að féð verði sæmi- lega vænt til frálags. Margir bænd- ur óttast markaðstregðu fyrir hrossakjöt. Um útflutning hrossa, sem talað var um fyrr í sumar, er enn ekkert vitað. Húnvetnskir bændur eiga mikið hey úti Blönduósi 12. sept. Slátrun hefur verið frestað á Blönduósi til 26. sept. — Göngur fara þó fram á sama tima og vant er og verður réttað 20.sept. Slátrað verður 29 þús. fjár, en ekki 20 þús. eins og áður er frá sagt. — Tíðin hefur verið mjög erfið og siðustu viku rigndi óhemjumikið. Bændur eiga enn nokkuð af heyjum úti. — Kartöfluuppskera er fremur léleg. Berjaspretta óvenju lítil. - Þórarinn Eldjárn kvaddur (Framhald af 5. síðu). í Dalvík. Valdimar Snævarr flutti kvæði. Að lokum talaði Þórarinn Eldjárn og þakkaði þann heiður er honum var sýndur, og ræddi af al kunnri hógværð um störf sín og svarfdælska sögu seinni ára. Langt og giftur'kt starf. Ræðumenn þökkuðu Þórarni langt og gifturíkt starf að fræðslu- málum Svarfaðardals. Báru ræður manna allar vott um ástsæld kenn- arans, og þá almennu skoðun í dalnum og annars staðar, að Þórar- inn á Tjörn hafi verið afbragðs kennari og uppalandi, og sjáist þess merki í þeim manndóms- og menningarsvip, sem sveitin ber. — Færðu Svarfdælingar Þórarni góð- ar gjafir í þakklætisskyni. Undir borðum var sungið og blandaður kór skemmti. Var þetta samsæti, sem var fjölmennt og virðulegt, öllum er að því stóðu, til sóma, og vottaði, að Þórarinn Eldjárn nýtur fágætra vinsælda í öllum sínum fjölþættu störfum, þótt þarna væri aðeins ýtarlega rakin einn þáttur þeirra. Var samkvawninu síðan slitið. En þessa sunnudags mun lengi verða minnzt í Svarfaðardal. Afli að glæðast í Ólafsfirði Ólaísfjörður 12 sept. Ólafsfirðingar hafa átt við óþurrka og gæftaleysi að striða að undanförnu. Afli er að glæðast og fengu sumar trillurnar 3—4000 pund fyrir helgina. Róið er með línu. Norðlendingur landaði 150 tonn- um af karfa og þ. h. og lagði aflann upp í hraðfrystihúsið. Kl. 3 á laugardaginn kviknaði í húsinu við Vesturgötu 11. Slökkvi- liðið kom á vettvang og slökkti eldinn. Eldurinn kom upp i þvotta- húsi, en náði ekki íbúðinni. Þó urðu þar nokkrar skemmdir af vatni. Hey eru bæði mikil og góð, en kartöfluuppskeran undir meðal- lagi. „Gamli Nói“ ósigraður Hér á Akureyri var í sumar stofnað knattspyrnufélagið Gamli Nói. Eins og nafnið bendir til, eru félagarnir af léttasta skeiði og hafa flestir lagt knattspyrnuna á hilluna fyrri 10—15 árum, þar til nú. Félag þetta hefur æft af kappi og háð 4 kappleiki. Og enn er Gaml Nói ósigraður. Fyrsta kappleikinn lék hann við sameinað lið Reykjafoss og Helga- fells. Varð jafntefli 4 : 4. Dómari var Erlingur Davíðsson. — Næst var keppt við Húsgagnaverkstæðið Valbjörk og lauk keppninni með sigri Gamla Nóa, sem vann með 3:2. Dómari var Arni Sigurðsson. — Þriðji leikurinn var við Mötu- neytið í Hafnarstræti. Og enn sigr- aði Gamli Nói með 3 : 2 mörkum. Dómari var Jakob Gíslason. — A mánudaginn var síðasti kappleik- urinn og þá leikið við POB. Leikn- um lauk með jafntefli eftir fjörug- an leik, 1:1. Dómari var Páll Stef- ánsson. í Gamla Nóa eru kennarar, bankamenn, lögreglumenn, toll- þjónar, verzlunarmenn, blaðamenn og skrifstofumenn og flestir nokk- uð við aldur. Allir eru þó gamal- vanir knattspyrnumenn og eru nú í góðri þjálfun. , Hér i bœmim hnfa verið sladdir tveir amcriskir scrfrrrðingar, sem starfa á vegum Framleiðniráðs Evrójm. Eru þeir komnir hingað að frum- kvæði verzlunarsamtakanna í land- inu og fyrir milligöngu Iðnaðar- málastofnunar Islands, sem vinnur að því að hagnýtt verði sérfræðileg aðstoð á vegum Efnahagssamvinnu- stofnunar Evrópu. Er þetta þriðja heimsóknin til Islands af þessu tagi. Sérfræðingarnir, sem hingað komu, cru herra Walter H. C.hanning og herra Jay l). Runkle, og hafa báðir mikla reynslu í ýmsum þáttum við- skiptalífsins og hafa gegnt þar margháttuðum trúnaðarstörfum. Hér hafa þeir rætt við kaupsýslu- menn, skoðað verzlunarbúðir og loks haldið tvo fundi með kaup- sýslumönnum og þar flutt lyrir- lestra. Lauk þeirn fundum í gær- kvöldi. A fundinum á mánudagskvöldið var fjölmenni saman komið í gagn- fræðaskólahúsinu. Voru það kaup- sýslumenn í bænum, kaupmenn og verzlunarstjórar, og starfsfólk verzlana. Hiýddu menn með at- hygli á ábendingar sérfræðinganna, sem voru urn margt mjög athyglis- verðar, og miða að hagnýtari vinnu- brögðum og aukinni tækni í við- skiptalífinu. Var m. a. rætt á fróðlegan liátt SPURNINGAR GALLUP (Framhald af 1. síðu). árþorpi, og nokkrum hreppum Eyjafjarðarsýslu. Hér er Kristján Aðalbjörnsson stud. oecon, um- boðsmaður stofnunarinnar og vinn- ur að framkvæmdinni. Hann skýrir blaðinu svo frá, að fólk taki um- leitun um svör yfirleitt sanngjarn- lega og vel. Fólk er valið með þeim hætti, að nöfn eru dregin út úr manntalsskýrslu, og er spurt samtímis víða á landinu. A þá að koma fram mynd af skoðun fólks- ins á ýmsum málefnum á hverj- um tíma. Liðin. Sagt er, að engin keðja sé sterk- ari en veikasti hlekkur hennar. Hið sama má segja um knatt- spyrnulið. Ekkert lið er betra en veikasti hlekkur þess. Ennþá eru veikir hlekkir í liði Akureyringa, ekki þó beint hvað einstaklinga liðsins snertir, því að yfirleitt eru leikmennirnir mjög svipaðir að styrkleika. Hins vegar er samleik- urinn ekki nógu hnitmiðaður, of mikil hlaup með knöttinn, þegar hægt er að láta hann ganga miklu fljótar með samleik, og nokkur önnur undirstöðuatriði, sem fást aðeins með mikilli og góðri æf- ingu. Af einstökum leikmönnum má nefna markmanninn Einar, sem varði oft ágætlega, en einkum voru þó útspyrnur frá athyglisverðar. I vörninni stóð Siguróli sig bezt, staðsetti sig vel, og er fljótur cg ákveðinn. Framvarðalínan er bezti hluti liðsins. Guðmundur og Hauk- ur eru mjög duglegir og sterkir í návígi, en Haukur, og sama er að segja um Arngrím, skemmdi fyrir um birgðir og dreifingu, gerð ver/.I- unarbúðá, lýsingu óg útstillingar o. m. fl., þ. ám. blaðaauglýsingar, sem þeir félagar héldu fram. að væru eliki nógu miltið né nógu vel notaðar lil fvamdráttar verzluninni hér á landi. Var skoðun þeirra á þessu efni athyglis- og lærdómsrík, og verður vikið að henni hér í blað- inu slSar. Þessi heimsókn hefur tekizt mjög vel, og örðið til þess að vekja menti til umhugsunar um ýmislegt, er betur mætti fara í verzlun og þjón- ustu. Ný ljóðabók eftir Gunnar Hafdal Komin er út ljóðabók eftir Gunn- ar S. Hafdal skáld og bónda í Sörlatungu. Heitir hún „Stundir skins og skýja" og cr gefin út a£ Leitfri h. f. í Reykjavík. Bókin er röskl. 220 b]s., og flytur fjöldamörg Ijóð, er höf. skiptir í 10 flokka. Liðin eru meira en 30 ár, síðan Gunnar Haldal kom fyrst fram á sjónarsviðið í blöðum hér á Akureyri. Og 20 ár eru liðin síðan hann gaf út ljóðasafnið Glæður. — En fjöldi kvæða hans hefur birtzt í blöðurn og tímaritum. sér með langspyrnum í tíma og ótíma. I framlínunni er Ragnar beztur, afar duglegur og með óvenjugóða knattmeðferð, en hinir eru einnig ágætir. Hermann, bróð- ir Ragnars, er fljótur og ákveðinn, og gaf oft vel fyrir. Hins vegar skortir hann betri knattmeðferð. Baldur Arnason er kunnur hér í Reykjavík siðan hann lék með Víking. Hann var of hlédrægur í þessum leik, því að hann getur vissulega meir en hann sýndi þarna. Islandsmeistaramir léku ágæt- lega i fyrri hálfleik, og upphlaup þeirra eru hættuleg hvaða vörn sem er. Hins vegar var leikur liðs- ins i síðari hálfleik síðri en oftast áður. Þórður Þórðarson var áber- andi bezti maður liðsins í þessum leik. Dómari og línuveröir í leiknum voru þeir beztu, sem völ er á hér, þeir Guðjón Einarsson, Haukur Oskarsson og Hannes Sigurðsson. Leystu þeir störf sín af hendi ó- aðfinnanlega, en það er ekki lítið atriði í leik, þvi að oft mótast leik- ur liða af dómara og línuvörðum. Ný gufubaðstofa í Mývatnssveit Þetta hús er ný guíubaðstofa, sem Mývetningar eru að ljúka við að koma upp á Hithól, i grennd við Reykjahlíð. Kemur hún í stað gam- allar timburstofu sem þar var, og fauk. Þetta er mikil endurbót, og skapast nú góð aðstaða fyrir þá, er Mývatnssveit gista, að njóta jarðhit- ans í gufubaði. Aðstaða mun og vera til leirbaða seinna meir. - Knattspymugrein Halls (Framhald af 1. síðu).

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.