Dagur - 26.10.1955, Síða 7

Dagur - 26.10.1955, Síða 7
Miðvikudaginn 26. október 1955 D A G U R 7 Ákureyrðrkirkja vel iallin til lónleika halds - nýfur sín aðeins ef hún eignasf pípuorgel Sóknarprestarnir birta ávarp til al- mennings - almenn fjársöfnun til orgelkaupa að hefjast Blaðinu hefur borixt eftirfarandi „ávarp til 'Akureyrarsafnaðar" írá sóknarprestunum: Eins og bæjarbúum er e. t. v. kunnugt, er nú komin upp hreyfing innan safnaðarins til þess að vinna að því að keypt verði pípuorgel af íullkomnustu gerð í Akureyrar- kirkju. Þetta mál hefur verið all- mikið rætt og hugsað af áhuga- mönnunt safnaðarins. Þegar kirkjan var nýbyggð, gáfu þau hjónin, frú Rannveig og Vil- hjálmur Þór, nýtt orgel til kirkj- unnar af svokallaðri Hammond- gerð. Þessi gjöf hjónanna var hin glæsilegasta, og eiga þau skildar miklar þakkir fyrir rausn sína og höíðingsskap. Hvert það orgel, sem á’ eftir að hljóma hér í kirkjunni, mun vissulega varðveita minning- úna um vinarhug þeirra og fórnir til kirkjúnnar. En þær vtmir, sem menn ólu með sér í sambandi við þessa tegund hljóðfæris í kirkjuinii, hafa ekki íyllilega rætzt. Ekki er t. d. hægt að nota það* til flútníngs hinna stór- brötnari kirkjútónverka, eins og bezt kont i ljös, ér lúnn nafntogaði orgelleikari, Ameríkumaðurinn E. Potver Biggs, kom hingað og hélt tónleika hér í kirkjunni á síðast- liðnu vori. I.ét hann svo um mælt, að kirkjunni væri mikil nauðsyn á að eignast vandað og gott pípuorg- el, því að hún væri að hans áliti mjög vel fallin til slíkra tónleika, cn raunveruleg kirkjutónlist nyti sín alis ekki, nema liún væri leikin á pípuorgel. Slík voru ummæli þessa manns, sem talinn er í fremstu röð orgel- snillinga nútímans. Reynslan hefur sannað og sýnt það æ betur og bet- ur, að pípuorgel eru hin einu réttu kirkjuorgel. Af framangreindum ástæðum haía því ýmsir kirkjuunnendur hér í bæ hafizt handa urn þetta mál. Var það fyrst og Tremst rætt við gef- cndur núverandi orgels, og eru framkvæmdir þessar gerðar í sam- ráði við þá og með fullu samþykki þeirra. f flestum stærri kaupstöðum landsins eru kirkjurnar að eignast vöndúð pípuorgel. Hafa söfnuðirn- ir staðið þar vel saman, enda þurft á því að lialda, þar sem pípuolgelin eru dýr hljóðfæri. Víða hefur fjár- söfnun í þessu skyni tekið ótrúlega stuttan tíma. í Hafnarfirði, sem er minni bær en Akureyri, eru tvær kirkjur. Söfnuðir þcssara kirkna láta sér ekki nægja rninna en pípu- orgel í báðar kirkjurnar. Ekki mega Akureyringar hafa minni metnað fyrir hönd sinnar kirkju en aðrir söfnuðir, ekki sízt vegna þess, að Akureyrarkirkja er talin eitt fegursta og tilkomumesta guðshús landsins. Ofurlítið hefur þegar vérið unnið að fjársöfnun hér í bæ í orgelsjóð- inn, en treglega hefur söfnunin gengið til þessa. Af hálfu sóknar- nefndar Akureyrarkirkju hefur nú verið skipuð nefnd til að vinna að framgangi þessa rnáls. Næstu daga mun nefndin hefja almenna fjár- söfnun í þessu skyni meðal bæjar- búa. Okkur preslunum er ljúft að hvetja söfnuðinn til samtaka í þessu máli. Við væntum þess fastlega, að Akureyringar bregðist vel við. Oll framlög verða fúslega þegin, smá og stór, — og blessun mun fylgja þeim öllum. Einnig væri ánægjulegt, að félagssamtök sæju sér fært að láta eitthvað af mörkum. Þess má geta, að eitt fyrirtæki í Hafnarfirði gaf 50 þúsund krónur til kaupa á jtípu orgeli þjóðkirkjunnar þar. Hér er þýðingarmikið menning armál á ferðinni. Gjörum veg kirkjunnar okkar sem mestan. Kristján llóbertsson. Pétur Sigurgeirsson. BJARTARI HLIÐIN Á EVRÓPU Eftir ART BUCHWALD Eiga þau að hrökkva eða stökkva? Ýmis mál, er veru fil afgreiðslu í gær Oddur Ágústsson sækir urn leyfi til að selja sælgæti .o. ,þ. h, vörur, eins og seldar eru í sams konar búð- um við Ráðhústorg í húsi því, sem hann lieíur fengið bráðabirgðáleyfi til að setja niður suðaustan við Nýja Bíó. — Bæjarráð majij' njeð þyí .fyr- ir sitt leyti, að- orðið sé við beiðn- jnni. Erindi frá Kristjáni Kristjánssyni, dags. 13. ok’t. þár sem liánn sækir um að fá að setja upp til bráða- birgða benzíndælu á eignarlóð sinni sunnan við „Gamla Bíó". — Meiri hluti bæjarráðs leggur til að umbeð- ið leyfi verði veitt til bráðabirgða. Hinrik Thorarensen, f. h. Egg h.f., Sléttu, Holtshreppi, óskar með bréfi dags. 18. sept. sl., að útsvar það, er lagt er á félagið hér á yfir- standandi ári, kr. 2.200.00, verði fellt niður, þar eð íélagið hafi flutt héðan fyrir nokkrum árum. — Skatt- stjóri upplýsir, að leyfilegt sé að leggja útsvar á félag, þar sem það hefur atvinnurekstur, enda þótt það hafi skrásett lieimilisfang á öðrum stað, og sé timrætt útsvar lagt á eignir félagsins í Glerárþorpi og á- ætlaðar tekjur af þeim. Bæjarráð telur ofangreint útsvar rétt á lagt og getur ekki lagt til að það verði fellt niður. Brunabótafélag íslands tilkynnir, með bréfi dags. 14. okt. 1955, að fé- lagið samþykki að verða við skil- yrðum bæjarstjórnar Akureyrar um 1. millj. kr. lán til vatnsveitufram- kvæmda, cr veilt verði á samnings- tíma bilinu. Bæjarráð samþykkir, að veita Gagnfræðaskóla Akureyrar 3000 kr. til risnu á 25 ára afmæli skólans 1. nóvember næstk. Skógræktarfélag Akureyrar óskar að bærinn taki að sér að annast skógarreitinn í brekkunni norður af Rósinborg austan Eyrarlandsvegar, frá Sigurhæðum að girðiugu, sent liggur á milli Skjaldborgar og Rós- inborgar. — Bæjarráð leggur til að prðið sé við beiðni Skógræktarfé- lagsins og að garðyrkjuráðunaut sé falið að annast um reitinn. Guttórmur Berg sækir um, með erindi dags. 10. þ. m., að bæjar- stjórn mæli með því, að hann fái veitingaleyfi í bænum. Guttormur hyggst reka veitingasölu í veitinga- stofunni Litli Barinn. — Bæjarráð leggur til að orðið sé við beiðninni með því skilyrði, að húsnæðið upp- fylli skilyrði nefndarinnar. Níræðisafmæli átti sl. laugardag ekkjan Jóhanna Finnbogadóttir á Hjalteyri. Hún er fædd 22. okt. 1865 á Einarsstöðum í Reykjadal og voru hálfbræður hennar hinir þekktu skipstjórar Valves og Albert Finn- bogasynir, er báðir drukknuðu af hákarlaskipum nokkru eftir síð- ustu aldamót. Jóhanna var gift Þórði Þórðar- syni og áttu þau heima á Oddeyri. Mann sinn missti hún fyrir 46 ár- um. Börn hennar eru frú Valrós, ekkja Péturs Jónassonar, frarnkv,- stjóra á Hjalteyri, og Reimar, bif- reiðastjóri í Reykjavík. Jóhanna býr enn við hina beztu heilsu og nýtur nú hvíldar og sskjóls eftir starf og storma sinn- ar löngu ævi, elskuð og virt af öll- um. A afmælisdaginn heimsóttu hana fjöldi vina og nágranna, en í því hófi flutti Vald. V. Snævan skáld á Völlum, frænku sinni kvæði PARÍS í október. Spurningin um það, hvort Mar- grét prinsessa muni eiga Tcwns- end flugforingja, gnæfir hátt upp úr fréttum úr heimsbyggðinni um þessar mundir. Eiga þau að hrökkva eða stökkva? Það er spurning dagsins. Og ef þau stökkva, þá hvar og hvenær og hvérnig? Vér höfum að vísu traust sambönd við Buckinghamhöll, en þegar vér hringdum þangað í gær til þess áð vita, hvernig lægi á þeim þar, þá var oss sagt sem svo: „Vitum ekki hvað er í bígerð þama fyrir handan í Clarence House. Vitum' það raunar aldrei.“ Þarf engan speking til þess að lesa þarna i milli Hnanna, og sjá, hvað þar stendur. Jafnvel hinn almenni borgari á götunrti veit drjúgum meira en hann lætzt. I gær, er vér vorum á göngu í Champs-Elysées, að svip- ast um eftir Englendingum, rák- umst vér loks á einn, og gripum óðara tækifærið að spyrja hann, hvernig honum litist á Townsend. „Tojvnsend?" hvóði hann. „Þekkti einu sinni Townsend í Blackpool. Bezti náungi. Veit ekki hvað varð um hann. Hann var sjötíu og þriggja.“ „Nei,“ sögðum vér. „Þetta er vitlaus maður. Vér eigum við Townsend flugforingja, þann, sem orðaður er við. Margréti prins- essu.“ „Nú, þann Townsend, Towns- end flugforingja. Held nú ekki að kunninginn minn gamli í Black- pool hafi verið flugforingi, þótt við töluðum aldrei sérstaklega um það. Og ekki um stríðið. Vissi ebki að hann þekkti Margrétu prinsessu. Þegar eg fer að hugsa- um það, held eg hún hafi ekki ver- ið fædd í-okkar-tíð.“ „Já,: eg er viss um, að þér eigið við allt ánnan Townsend," sögðum vér. „Já, ætli' það ekki,“ svaraði hann. „Hváð gerir hann þessi vin- ur prinsessunnar?" „Er í flughernum. Einhvers konar sendiráðunáutur. Laglegur náungi, mikill riddari. Alltaf á hestbakí.“ „Gæti hreint ekki verið vinur minn frá Blackpool. Hann hafði skömm á hrossum. Og hann var alls ekki það sem kallað er að vera laglegur. Var aldrei bendlað- ur við flugherinn að heldur." „Höfum það þá heldur svona: Haldið þér að Margrét prinsessa ætti að giftast Townsend flugfor- ingja?“ „Eg get ekki séð neitt athuga- vert við það. Veit samt ekki hvort Margrét prinsessa kærir sig um að búa í Blackpool árið um kring. Það er fjandans kalt þar. Og ef þú vilt heyra mína skoðun, þá held eg að Townsenda gamli hé hreint ekkert á biðilsbuxunum.“ Vér ákváðum að ræða við franskan borgara, gripum hann á götunni. Hann stóð þar, skammt frá bílasýningunni stóru, og var að selja póstkort. Vér spurðum, hvernig honum litist á samdrátt Margrétar og Townsend? „Við Fransmenn skiptum okkur ekki af ástamálum annarra þjóða. Samdráttur þeirra er hrezkt vanda mál. Aly Khan er franskt vanda- mál.“ Til þess að heyra sem víðast af heimsbyggðinni hittum vér Banda- rxkjamann, eða réttara sagt fyrr- verandi Bandaríkjamann. Sagðist hafa verið rekinn úr landi, vera ítalskur, hafa verið 8 ár í Sing Sing og vera á ferðalagi um Ev- rópu. „Hvurn fjandann varðar mig um þetta,“ svaraði hann. „Eg þekki þetta fólk ekki neitt. Hvernig á eg þá að vita hvort þau eiga .að gifta sig eða ekki?“ „Oss fannst bara, að sérhverjum heimsborgara bæri að mynda sér skoðun á málinu. Það er dálítið erfitt að stunda samkvæmislifið’ef maður hefur enga skoðun.“ „Hvers konar prinsessa er þetta, sem þú ert að tala um?“ „Margrét, drottningarsystir í Bretlandi." „Og hvaða náungi ér þetta?“ „Townsend flugforingi, úr brezka flughernum. Eg tek það strax fram, að Townsend skildi við konuna sína.“ „Hvurn fjandann gerir það? Ætlarðu að nudda þessum náunga upp úr hjónaskilnaðarmáli fram í andlátið? Hann þjónaði sinn tíma. Láttu hann í friði. Ef hann er góð- ur Ameríkani má hann gifta sig í friði.“ Vér útskýrðum, að Townsend væri nú ekki Ameríkani. (Framhald á 11. síðu). Mjólkurskömmtun í Reykjavík - næg mjólk á Norðurlandi Er unnt að flytja mjólk suður? sem blaðið mun flytja innan eftir með bréfi, dags. 1Œ okt. 1955,^3^^^ Mjólkurskömmtun var tekin upp í Reykjavík 19. október síðastlið- inn. Er skammturinn % lítri á mann. Búizt var þó við, þegar skömmfunin hófst, að mjólk yrði seld óskömmtuð síðari hluta dags meðan hún entist. — Skömmtun þessi stafar af því að mjólkurfram- leiðslan á óþurrkasvæðinu svokall- aða hefur dregist mikið saman, bæði vegna fækkunar nautgripa og líka vegna þess að nyt mun hafa minnkað til muna í kúnum eftir að þær komu á hús. Er það ekki vanzalaust að þriðj- ungur þjóðarinnar búi við mjólk- urskort — sé hálft í hvoru í þurra- búð, eins og það var áður kallað um fólk, sem ekki átti neina kú og fékk mjólk með höppum og glöppum. Má það vera hugsandi mönnum áhyggju- og umhugsunar- efni með tiilliti til hinnar ört vax- andi höfuðborgar. En á Norðurlandi er nóg mjólk til að fullnægja þeirri mjólkurþörf Reykvikinga, sem Sunnlendinga, að þessu sinni, skortir á fram- leiðsluna. Húnvetningar, Skagfirð- ingar og Eyfirðingar hafa mikið mjólkui-magn, sem fer til vinnslu. Það er aðeins flutningaerfiðleik- arnir, sem valda því að mjólkin er ekki flutt suður í stórum stíl. Mun þó hafa verið í athugun sá ínögu- leiki og væri vissulega vel ef slíkt tækist.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.