Dagur - 26.10.1955, Síða 11
Miðvikudaginn 2ö. októbcr 1955
D A G U R
11
Ævisaga Tryggva Goimarssonar
(Framhald af 1. síðu).
beggja. — Þrátt fyrir firna mikinn
fróðleik um hagi lands og þjóðar
og þurrar upptalningar á stundum,
verður bókin, fyrir þetta lcrydd,
einnig skemmtileg aflestrar.
Heim af þingi.
Þetta 1. bindi ber undirtitilinn
Bóndi og timburmaður. Lýkur því,
er Tryggvi og forustumenn Þing-
eyinga koma heim af þingi harð-
indaárið 1869, og leiðir skiljast í
Ljósavatnsskarði „undir frostbitr-
um himni haustdagsins," segir dr.
Þórkell og heldur svo áfram:
„Tryggva Gunnarssyni er þungt í
skapi. Ef til vill hafði hann aldrei
daprari verið en nú. Hvar var ann-
ars karlmennskuhugurinn harði,
sem aldrei lét sér bregða og sá leið
úr hverjum vanda? Hvar var
bjartsýnin, sem eygði gull og
grsena skóga bak við hrjóstur hins
næsta leitis? Við hverju hafði
hann búizt öðru en því, sem á dag-
inn var komið? Fyrr hafði köldu
andað hér um Ljósavatnsskarð en
Snyrtivörur:
Tokalon púður og
krem.
Day-Dezu (make up)
4 litir.
Naglalak'k
Naglalakkseyðir,
...\ökvi og krem.
Svit'ameðal 3 teg.
Veet hárcyðingat-
kreni. .
V .#?
Shampðd (> teg.
Dieclo; lítfriilur (ekta)
koniiim- aftur.
IIárliðunarvökvi og
■hártakk. ~
Verzlunin DRÍFA
Shm 1521.
nú í dag Framundan beið vetur
— en líka nýtt vor. Og bóndinn á
Hallgilsstöðum gæðir reiðina
gegnum hrímgaðan skóginn. Margt
kallar að þeim, sem lengi hefur
dvalizt frá búi sínu.
Sex ströngum vikum síðar setzt
hann niður og skrifar Jóni Sig-
urðssyni bréf, eftirmæli sumarsins.
Hann veit ekki af því, að þegar
hann skrifar bréfið, er hann kom-
inn þar sinnar ævi, sem vegir
greinast við næsta leiti, og enn síð-
ur órar hann fyrir því, sem bíður
þar fyrir handan. . . . “
Að öðrum þræði okkar saga.
Með frásögn af þessu bréfi til
Jóns Sigurðssonar lýkur þessu 1.
bindi, og er þá mikil ævisaga eftir.
En þótt vænta megi, að þau bindi
verði verðugt framhald upphafs-
ins, mun mega fullyrða, að þetta
bindi mun þykja girnilegast til
fróðleiks hér um byggðir. Þetta er
að öðrum þræði okkar saga, ekki
öllum mikið kunn, en merkileg og
lærdómsrík og líkleg til skilnings-
auka á viðfangsefnum þessarar
aldar og allrar framtíðar. —
Bókaúgáfa Menningarsjóðs gefur
verkið út af smekkvísi og myndar-
skap, en sagan er rituð að tilhlut-
un Landsbanka ísl'ands.
ERLEND TÍÐINDI
(Framhald af 7. síðu).
Rússar halda á seinni Genfar-
fundinn af scimu ástæðum og þeir
fóru á þann fyrri, — vegna þcss að
þeir geta grætl meira á því cn tap-
að. Menn hafa nú séð það, að hug-
myndir, sem ýmsir höfðu um þátt-
töku Rússa í fyrri Genfarfundinum,
vcgna innri vciklcika ríkisins og ó-
samþykkis, liafa ekki við ncitt að
styðjast. Rússar fóru aðeins vegna
þess, að þeir gátu haft gagn af því.
I-Ilákan, sem nú um sinn hefur
ríkt í kalda stríðinu, hefur dregið
stórlega úr ótta Evrópumanna við
stríð og hættuna að austan. En af
þessu leiðir líka, að áhyggjur Vest,-
urlandabúa af yfirráðum Rússa
vestur eftir allri álfu cða að Sax-
clfi, cru líka minni en áður. Nú
cr ekki uppi mcð sama krafti og
fyrr krafan um að Rússar færi sig
aftui: ;á fyrri slóðir við landamæri
í.
Jafnframt 'vcldur og hið aukna
traúst á friðsamlcgum tímum Örvun
viðskipta í austurveg og hraðar ó-
hjákvæmilega uppbyggingu Sovét-
þjóðanna til þcss að verða eitthvert
mesta iðnaðarvcldi veraldar. En
þegar þangað er komið, cr lilut-
verkum aftur skipt. Þá verða Rúss-
ar enn færari um það cn allar þjé>ð-
ir aðrar, að vígbúast hratt og í stór-
um stíl.
- Art Buchwald
Framhald á 7. sxðu).
„Nú, hvað er hún að giftast út-
lendingi? Eg á ekki afturkvæmt
vestur, en mig langar alltaf.“
„En ættu þau að giftast?"
„Nei, heyrðu nú. Lögreglan er
á hælunum á mér. Eg er blankur.
Eg er að reyná að slá -mér smálán.
Eg á blinda móður heima, er
sjálfur hjartveikur. Hvurn fjand-
ann varðar mig um þessa prins-
essu. En ef hún á hann, ætti hún
ekki að fara brúðkaupsferðina. til
Ítalíu.“
Og þar með var hann allur á
bak og burt. (Einkar. NY Herald
Tribune).
Falleg og ódýr
margar
gerðir
1 ,
. ' Vr1,
ít't . 4
...,
Sjötugur varð Jón Jónsson bóndi
a Skjaldarstöðum í Öxnadal s. 1.
mántidag. Lesendur þekkja hann af
sagnapi^lum þejm!,'íiCjnj hann hefúx:
sent blaðinu á undanförnum árum.
Vitna þeir um haglciksmann á mál
óg stíl og góðan fræðaþul. Jé>n
hefur búið langa hríð á Skjaldar-
stöðum. Er orðlagt hraustmenni og
drengur góður. Afmælisvisur eftir
Örn á Stcðja eru birtar annars
staðar í þessu blaði.
Ræktunarfélag Norðurlands
heldur fund fyrir ráðunauta bún-
aðarsambandanna í Norðlendinga-
fjórðungi og mæta þar einnig full-
trúar frá búnaðarsamböndunum, 1
frá hverju. Viðfangsefni fundarins
eru störf ráðunautanna og búnað-
arsambandanna. Fundurinn hefst
kl. 10 f. h. í Rotarysal KEA og
stendur í tvo daga.
Dánardægur. Vilhjálmur Jónas-
son bóndi á Hesjuvöllum í Glæsi-
bæjarhreppi andaðist að heimili
sínu 24. þ. m. Vilhjálmur vat 86
ára og hafði átt við vanheilsu að
stríða síðastliðið ár. Hann var
bóndi að Hesjuvöllum frá því um
aldamót. Hann verður jarðsunginn
frá Lögmannshlíðarkirkju 31. okt.
næstkomandi.
Til nýja spítalans. Áheit frá
Ingibjörgu Sveinsdóttur kr. 200. —
Gamalt áheit frá S. A. kr. 500. —
Aheit frá gömlum manni kr. 50. —
Aheit frá N. N. kr. 50. — Áheit frá
Frímanni Þorvaldssyni kr. 100. —
Áheit frá N. N. kr. 100. -- Áheit
frá N. N. kr. 20. — Áheit frá R.
H. kr. 30. — Áheit frá S. S. kr.
500. — Áheit frá ónefndum kr.
120. — Áheit frá B. A. S. kr. 100.
Með þökkum móttekið. G. Ka.rl
Pétursson.
I. O. O. F. 2 — 13710288Va
I. O. O. F. Rb. 2 — 105102681/2 —
II
□ Rún 595510267 — Frl.: Atg.:
Kirkjan. Messað í Akureyrar-
kirkju kl. 10.30 n.k. sunnudag. —
Sálmar: 304, 279, 111, 346, 584.
Takið mikinn þátt í sálmasöngn-
um. P. S. — Fólk er beðið að at-
huga að messan er fyrir hódegi
vegna 50 ára afmælis Grundar-
kirkju.
Messan í Lögmannshlíðarkirkju
n.k. sunnudag fellur niður vegna
afmælis Grundarkirkju, og er
frestað til sunnudagsins 6. nóvem-
ber. — Sóknarprestar.
Æskulýðsfélagar!
Fundur í stúlkna-
deild á sunnudaginn
kemur í kirkjunni kl.
5 e. h. — Fundur í drengjadeild
í kapellunni á sama tíma. Allir
ungfingár á aldrinum 14 og 15
ára eru velkomnir.
Frá starfinu í kristniboðshús-
inu Zíon. Sunnudaginn 30. þ. m.
kl. 10.30 f. h. sunnudagaskóli og
kl. 8.30 e. h. fórnarsamkoma. —
Ræðumaður Olafur Olafsson
kristniboði. Allir velkomnir.
Frá Skákfélagi Akureyrar. —
Argentíski skákmeistarinn H. Pil-
nik teflir fjöltefli á sunnudaginn
kl. 1.30 e. h. í Landsbankahúsinu
uppi. Óllum heimilt að tefla við
hann. En menn þurfa að hafa með
sér töfl og mæta hálfri klukkust.
fyrr. Gera má ráð fyrir að Pilnik
mæti á fundi í Skákfélaginu á
föstudaginn og ennfremur er gert
ráð fyrir að hann tefli klukkuskák
vjð 1.0 skákmenn á mánudaginn á
f 4 i" r * f * 4 i v
sama stað.
20 ára .afmælsfagnaður Golf-
klúbbs Akureyrar, verður að Hó-
tel KEA laugardaginn 5. nóvem-
ber, og hefst með sameiginlegu
borðhaldi kl. 7 e. h. Félágar óg
aðrir þeir, sem taka ætla þátt í
fagnaði þessum,1 eru beðnir að
rita nöfn sín og gesta á lista er
liggur frammi á Ferðaskrifstoíunni
og Blaða- og sælgætissölnunni á
Ráðhústorgi 3, og eigi síðar en 3.
nóvember næstk.
Frá Karlaltór Akureyrar. Fund-
ur verður í Verkalýðshúsinu
fimmtudaginn 27. okt. n.k. kl.
20.30. Áríðandi mál til umræðu.
Verkakvennafélagið Eining
heldur hlutaveltu í Alþýðuhúsinu
n.k. sunnudag kl. 4. Nefndin.
Skemmtiklúbbur íemplara byrj-
ar sín vinsælu skemmtikvöld í
Skjaldborg föstudaginn 28. okt. kl.
8.30, eins og auglýst er annars
staðar í blaðinu í dag. — SKT.
Dánarfregn. Aðfaranótt 24. þ.
m. andaðist Hálfdán Jakobsson,
Mýrarkoti á Tjörnesi. Hann var á
níræðisaldri, sonur Jakobs Hálf-
dánarsonar, hins kunna forystu-
manns samvinnufélagsskaparins.
Akureyri
LítiII tiíiíburskúr
til kaups. Má vera
óskast
léle
ur.
Afgr. visar á.
Vcrkstjóranámskeið. Eins og
auglýst er á öðrum stað i blaðinu
í dag, hefst verkstjóranámskeið á
Akureyri 3. nóv. n.k. Forstöðu-
maður þess er Jóhann Hjörleifsson
verkstjóri frá Reykjavík. Má það
vera Norðlendingum gleðiefni að
slíkt námskeið er haldið hér
nyrðra og verður það að sjálfsögðu
til að auka aðsóknina. Aðeins eitt
verkstjóranámskeið hefur verið
haldið á Alcureyri áður.
Frá Leikskólanum. Foreldrar
sem eiga börn í Leikskóla barna-
verndarfélagsins, ,gyy,i(.be^nir að
greiöa mánaðargjalíljiyxþr.b.Qrn sín
í skrifstofu Barnaskólans næstu
daga.
I fyrravetur hófust aðéeröir
til endurbóía á veginutn í
Grófargili, á alferaleið barna-
skóla- og gaénfræðaskólanem-
enda. Var unnið þar nokkuð,
meðan frost og snjóar entust, og
umferð unglinga var mikil. Með
þíðviðrinu — o£ sumatleyfi
skólanna — lagðist sú vinna
niður. Nú er vetur kominn á ný,
með frosti og snjó, oé, skóla-
starfi og umferð á þessum
gatnamótum. En þá er líka haí-
in um leið vinna þarna á ný. —
Vegir verkvísindanna eru und-
arle£ir og bugðast einkennilega
um svið framkvæmdanna á
stundum í augum leikmanna.
Hjónaefni. Nýlega opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Björg Skarp-
héðinsdóttir frá Syðri-Tungu í
Staðarsveit, Snæfellsnesi, og Ivar
Júlíusson, sjómaður, Húsavík.
Hjúskapur. Sl. laugardag voru
gefin saman í hjónaband í Alcur-
eyrarkirkju ungfrú Anna Hjalta-
dóttir Sigurðssonar húsgagnasmiðs
og Sverrir Valdemarsson, stýri-
maður, Spítalaveg 9. Heimili ungu
hjónanna verður að Hafnarstræti
85, Akureyri. — Séra Birgir Snæ-
björnsson gaf brúðhjónin saman.
Hjúskapur. Þann 19. okt. sl.
voru gefin saman í hjónaband í
Akureyrarkirkju ungfrú Þorbjörg
Jónína Friðriksdóttir hjúkrunar-
kona og Sigurður Kristófex Árna-
son stýrimaður. Heimili þeirra er
að Sniðgötu 3, Akureyri.
Rakarastofa Sigtryggs og 'Jóns
verður lokuð í dag og á morgun
vegna flutninga. Opnar aftui að
Ráðhústorgi 3 á föstudaginn, sam-
kvæmt auglýsingu annai's staðar í
blaðinu.
Vetrarstarfsemi Stúdentafél. að
hefjast. Stúdentafélagið á Akur-
eyri heldur aðalfund sinn næstk.
fimmtudag, 27. þ. m., kl. 8.30 e. h.
Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin.
Frá Bridgefélaginu. Þriðjudag-
inn 8. þ. m. hófst hin árlega tvi-
menningskeppni, 16 pör taka þátt
í keppninni. Eftir fyrstu umferð er
röð efstu paranna þessi: 1. Ár-
mann Helgason og Halldór Helga-
son 36 stig. 2. Mikael Jónsson og
Þórir Leifss. 129 stig 3. Haraldur
Halldórsson og Sveinn Þorsteins-
son 125 stig. 2. Sigurbjörn Bjarna-
son og Svavar Zópnoníasson 122V2
stig. 5. Alfreð Pálsson og Þórður
Björnsson 117(4 stig. 6. Björn Ein-
arsson og Jónas Stefánsson /17
stig. Onnur umferð var spiluð í
gærkvöldi, en þriðja ug síðasta
umferðin verður að öllum líkind-
um á föstudag.
Aðalfundiir Bridgefélags Ak-
ureyrar var nýlega haldinn. — I
stjórn vcru kosnir: Karl Friðriks-
son, formaður, Sigurbjörn Bjarna-
son, ritari, Mikael Jónsson, gjald-
keri, Alfreð Pálsson og Björn Ein-
arsson meðstjórnendur. Starfsemi
félagsins hefur nú verið flutt að
Hótel KEA og eru spilafundir eins
og áður á þriðjudögum.
St. Isafold-Fjallkonan nr. 1
hefur vetrarstarfið með fundi í
Skjaldborg mánudaginn 31. okt.
n.k. Fundarefni: Inntaka nýrra fé-
laga. — Embættismannakosning.
— Vetrarstarfið. — Félagar, fjöl-
mennið á fundinn og takið með
ykkur nýja félaga. Æðstitemplar.
Drætti í happdrætti Land-
græðslusjóðs hefur verið frestað
til 5. nóv. Miðasalan heldur því
áfrarn til mánaðamóta.
ílaus.thing Uracjlæm,iss.tjíku
Norðu(;lpndg,,„.yesðuf;„ h'ildiþ> í
Skjaldborg á Akureyri, laugardag-
inn 29. okt. n.k. og heíst kl. 5 síðd.