Dagur - 07.12.1955, Blaðsíða 2

Dagur - 07.12.1955, Blaðsíða 2
2 D A G U R Miðvikudaginn 7. desember 1955 Ísraelsríki í mnk sfatt Vopnasala Tékka til Egypta, sem áreiðanlega fer fram að undir- lagi Sovétrikjanna, litur þannig út í augum vestrænu stórveldanna, að nú séu kommúnistar að seilast til áhrifa og jafnvel yfirráða í löndunum fyrir botni Miðjarðar- hafs. Þau líta á þetta sem alvöru- mál að vísu, en þó ekki sömu aug- um og Israelsmenn. Fyrir þá og hið unga ríki þeirra er hér um líf og dauða að tefla. Séð frá Washington, London og París eru kommúnistar nú að veikja og grafa stoðirnar und'SíT Bagdadbandaiaginú, en í því eru Pakistan, íran, Irak og Tyrkland, auk Breta, og einnig vaxa mjög líkur fyrir, að þeir geti aukið verulega áhrif sín á Súezsvæðinu, en það kæmi Vesturveldunum illa. Séð frá Jerúsalem er voðinn á næsta leiti. Voldugasti óvinur rik- isins er að verða grár fyrir járnum. Hann kaupir hundruð af skriö- drekum ,orrustu- og sperngiflug- vélum — og jafnvel kafbáta. Hvað kafbátunum viðvíkur, þá dettur Israelsmönnum í hug, að ef til vill ætli Egyptar sér að setja hafn- bann á Haifa. Þeir hafa þegar sett bann á öll skip til og frá Israel, þar sem þeir hafa aðstöðu til, þ. e. í Súezskurðinum og á Akabaflóa. Varnarstríð? Ottinn við strið og afleiðingar þess læsir sig nú ógnþrunginn um Isralel ,en hitt, þótt kommúnista- ríkin auki áhrif sin hjá nágrönn- unum, hirða Gyðingar minna um. Stjórnmálaforingjar Israelsríkis þurfa að vega og meta mörg rök, en þeir ákveða nú, hvernig haga skuli siglingum þessarar litlu þjóð- arskútu um hættusvaeðið austur þar. Það hefur ekki farið dult, að á Israelscþingi hefur undanfarnar vikur verið allstór og sterkur flokliur manna, sem heimtað hefur varnarstríð. Þjóð, sem á beinlínis tilveru sína að þakka einbeittum baráttuvilja, mætir gjarnan ógnun við tilvist sína og framtið með því að vilja láta hart mæta hörðu, berjast strax og af öllu afli, reyna að ná sem beztum friðarsamning- um að lokum, en vera svo ætíð viðbúin að verja það, sem áunnizt hefur. Þannig hefur ýmsum ísra- elsmönnum verið innanbrjósts til að byrja með og er ekki óskiljan- legt. „Ef Egyptar verða búnir að bæta við sig 200 MIG flugvélum, 1004 skriðdrekum, miklu af fall- byssum og svo kafbátum eftir svo sem eitt ár eða minna, eftir hverju erum við þá að bíða, hví ekki taka í lurginn á þeim nú meðan tími er til?“ Þannig tala þeir, hér um bil, hinir æstustu og öfgafyllstu á Israelsþingi, en það eru helzt gamlir bardagamenn úr Stern- flokknum og hinir heittrúuðu Zí- onistar, sem ekki mega heyra nefndar nokkrar tilfærslur á nú- verandi landamærum Israels, hversu smávægilegar, sem þær væru. Ahnenningsálitið er yfirleitt á bandi þessara manna, því að til of imkils væri mælzt, ef krafist væri af almenningi nokkurrar heildar- sýnar. Hann sér aðeins og finnur hina daglegu hættu, hann finnur eyðilagt vatnsból eftir skemmdar- verkamenn óvinanna og héyrir iðulega skothvelli að nóttu til úti í eyðimörkinni. En viðhorf stjórnarinnar er ann- að og erfiðara. Hún verður að horfa lengra fram. Stjórnin verður aö hyggja að fleiru en vopnasölu til Egypta og hættum dagsins í dag. Hún verður að hugsa um tilveru ríkisins í framtíðir.ni, hún verður að reyna ao tryggja framtíðaröryggið og leita að styrkum bándariiönnum, en má ekki einblína á skemmdar- verk og landamæraskærur. En hugir manna eru svo mjög komnir úr jafnvægi út af vopna- sölu Tékka til Egypta, er engan veginn létt fyrir stjórnina að hugsa rólega og fara að öllu með gát. En það er þó víst, að mennirnir, sem vilja fara í varnarstríðið, hafa ver- ið ofurefli bornir til þessa, og stjórnin er ákveðin í því að bíða heldur og sjá hvað setur. Þegar Moshe Sharett kom frá París og Genf, eftir að hafa rætt við utanrikisráðherra fjórveld- anna, lét hann þá eindregnu skoð- un í ljós, að „varnarstríð" nú myndi aoeins verða kommúnistum til þægðar en skaða vináttu hugs- anlegra bandamanna, Bandaríkja- manna, Breta og Frakka. En utanríkisráðherrann gat þó ekki fært þjóð sinni nein ákveðin loforð um stuðning til þess að halda því styrkleikajafnvægi, sem verið hefur undanfarið í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs og nú hefur verið raskað svo mjög með vopnasölunni til Tékka, en hann fékk vilyrði fyrir vernd og aðstoð í framtíðinni, og þá aðstoð myndu öll ríki austur þar hljóta, ef þau bægðu kommúnismanum eindreg- ið frá dyrum sínum. Með þessum rökum voru „varn- arstríðs“-mennirnir kveðnir í kút- inn, í bráð a. m. k. Þeir voru full- vissaðir um, að hverri árás á land- ið yrði mætt með gagnárás, en þeim var sagt, að Israel geti vel beðið í nokkra mánuði, ef vera kynni, að hið grugguga vatn stjórn- málanna yrði eitthvað tærara og gegnsærra með tímanum, svo að sjá mætti botninn, og þar að auki væri herinn enn nægilega sterkur til þess að verja landið og fram- kvæma hverja þá refsiaðgerð, sem nauðsynleg þætti. Eftir nokkra mánuði mætti svo taka allt þetta mál til rækilegrar endurskoðunar. Fyrir skömmu fékk Ben-Gurioin forsætisróðherra ísraels bréf frá vini sínum í vestrænni höfuðborg, og í því var skýrt frá áhrifum þejm,,r.em atburðirnir í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs hefðu á almenningsálitið í landi bréfritar- Nú höfum við meira og betra úrval en nokk.ru sinni áður af alls konar vörum, sem góðar eru til jólagjafa. IJtiÖ inn, mcðan úrvalið er mesl! Blómabúð KEA Sá er glaðastur, sem jœr jólagjöfina, sem keypt cr i Blómabúð KEA Píanóstillingar og viðgerðir. — Verð aðeins í bænum fram að nýjári. Otlo Ryel. Sími 1162. Gott orgel til sölu. Nýupptekið. Hag- stætt verð. A fgr. visar á. Skemmtildúbbur Hestamannafélagsins Léttis hefur sitt síðasta spilakvökl á árinu í Alþýðuhúsinu föstu- daginn 9. des. n.k. kl. 8.30 e. . — \7erðlaun veitt fyrir þetta kviild og einnig góð aðalverð- laun fyrir öll kvöldin*DANS. — Dægurlagasöngvari með hljómsveitinni. — Miðirs'alan opnuð kl. 7,30. Skemmtinefndin. Jólaskraut Jólaseríur (bjöllur) Véla- og biisáhaldadeild Orðsending frá Iðjuklúbbnum! Iðju-klúbburinn verðnr n. k. sunnudagskvöld, kl. 8.30. Spiluð verður félagsvist, Góð verðlaun. Dansað á eftir. Ný félagsskírteini verða sekl í Alþýðulnisinu kl. 5—6 á föstudag, og á vinnustöðum Iðju, og kosta kr. 35.00, og gilda fyrir þrjú skemmtikvöld. Er öllum heimilt að gerast meðlimir klúbbsins. Komið og skennntið. ykkur — hvergi ineira fjör. STJÓRNIN. ans, og í lok bréfsins koma íáein orð ,sem því nær ná yfir stjórn- málastefr.u Israels í dag: „Þið get- i0, annaö hvort farið í stríð eða •llcjrnið í veg fynf stríð’i'eff ðf þið farið í „varnarstríð"', þá hafið þið ] ekki komið í veg fyrir stríð.“ J ólasendingin af sænska borðbúnaðinum er nýkomin! Súpuausur, Kökugafflar, Teskeiðar, Tertusett, Brauðtengur, Sykurtengur, Sykurskeiðar, Sultuskeiðar, Áleggs- r r gafflar, Avaxtaskeiðar, Avaxtahnífar Birgðir takmarkaðar! VERZLUNIN SKEIFAN Strandgötu 19 — Simi 1366 — Altureyri Falleg nælonefni ■ í smábamakjóla. — Verð frá kr. 42.50 m. Anna & Freyja Sokkabandabelti verð frá kr. 30.00. SJankbelti, kr. 135.00. Lífstykki, frá kr. 145.00. Anna & Freyja Taft með ílauelsrósum, kr. 42.00 m Nælonsokkar frá kr. 27.90, afar sterkir. Crepc-sokkar, frá 55.00. Anna & Freyja Anna&Freyja Vönduð efni í jakkakjóla, kr. 92.75 mtr. Anna & Freyja Saumaðir jólareflar verð frá kr. 21.00. Rósóttir kaffidúkar, verð frá kr. 33.50. Anna & Freyja Nælonnáttkjólar verð frá kr. 132.50. Prjónasilki-náttkjólar verð frá kr. 40.00 nt Herðasjöl hvít og sviirt, frá kr. 70.00. Anna & Freyja Anna & Freyja Gólfteppafilt Gólfdreglar V efnaðarvörudeild

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.