Dagur - 07.12.1955, Blaðsíða 12

Dagur - 07.12.1955, Blaðsíða 12
12 Baguk Miðvikudaginn 7. desember 1955 Vélvæðing landbúnaðarins, um- ræðuefni fjölmenns bændafundar Á Bændaklúbbsfundi, sem haldinn var að Hótel KEA á mánudaginn, var vélvæðing landbúnaðarins tekin til um- ræðu. Framsögn hafði Árni Jónsson tilraunastjóri. Sagðist hann gizka á að um 20 milljónum væri nú árlega varið til vélakaupa og vélaviðhalds vegna landbúnaðarins. Færi þó vélakost- urinn ört vaxandi. Þáttur vélanna væri orðinn stór og menn yrðu að láta sig meiru skipta en verið hefði, bæði val véla og verkfærp, svo og viðhald þeirra og hagnýt- ingu til margs konar starfa. Gúmmíhjól og vökvalyftur. Stórfelldar umbætur og breyt- ingar hefðu átt sér stað í vélakosti bænda hin síðustu ár. Mestu breytinguna taldi hann gúmmí- hjólin á dráttarvélunum og vökva- lyftuna. Með vökvalyftunni opnuðust óteljandi möguleikar til hagnýt- ingar vélaaflinu og margvísleg verkfæri hefðu fylgt í kjölfarið og breytti viðhorfinu til muna í notk- un dráttarvélanna. Hin nýju tæki breyttu líka við- horfi bænda til vélastærða og gerða. Taldi hann líklegt að meira yrði í framtíðinni horfið að stærri vélum með hliðsjón af þessari þró- un. Hann gat þess, að vonir stæðu til að Verkfæranefnd ríkisins gæti nú, fremur en áður, reynt nýjar vélar og verkfæri og væri það ómetanlegt fyrir bændur landsins og þjóðina alla. Hann ræddi einn- ig um nauðsyn þess að gefnar yrðu út öruggar leiðbeiningar um véla- val og nýjungar. 4 * | * Síðasti Bændaklúbbsfundur ársins. Þegar frummælandi hafði lokið máli sínu, hófust almennar um- ræður og bar margt á góma, svo sem nærri má geta um svo viða- mikið efni og tóku þessir til máls: Ingi Garðar Sigurðsson, Olafur Jónsson, Bjarni Arason, Þór Jó- hannesson, Garðar Vilhjálmsson, Jón Bjarnason, Magnús Arnason og Aðalsteinn Guðmundsson. A fundinum, sem Jón Guðmann stjórnaði, sýndi Eyjólfur Árnason rússneskar landbúnaðarmyndir og frá gróðurfari og dýralífi við Volguósa o. fl. Fundinn sátu yfir 80 manns og fjölmenntu Svarfdælingar. Var þetta síðasti klúbbfundur- inn á þessu ári. Kynning á verkum Kiljans Næstkomandi sunnudag hefur fulltrúaráð verkalýðifélaganna á Akureyri kynningu á verkum Hall- dórs Kiljans í Samkomuhúsinu. — Ráðgert er að Gísli Jónsson menntaskólakennari flytji erindi um skáldið, flutt verði 2 atriði úr Islandsklukkunni undir stjórn Jóns Norðfjörðs, leikara, Jóhann Konráðsson syngi lög við texta eftir skáldið, leikararnir frú Sigur- jóna Jakobsdóttir og Guðmundur Gunnarsson og Jónas Jónasson, leikstjóri, lesi kafla úr sögum Kiljans, en Kristján Einarsson frá Djúpalæk úr ljóðum hans. Bókmenntakynningu þessari verður án efa vel tekið af bæjar- búum. Mikil aðsókn að sýning- um Leikfélagsins Leikfélag Akureyrar hefur nú sýnt gamanleikinn Þrír eiginmenn sex sinnum og hefur verið uppselt á allar sýningarnar og nú síðastl. sunnudagskvöld þurftu margir frá að hverfa. Skólasýning verður n.k. fimmtuddagskvöldd og almennar sýningar laugardags- og sunnu- dagskvöld, sennilega síðustu sýn- ingar fyrir jól. — Aðgöngumiða- sími 1639 milli kl. 1—2 alla daga. Ymis tíðindi úr nágrannabyggðum Mænuveikin komin í héraðið Sauðárkróki 5. desember. Mænuveikin er nú komin i hér- aðið og hefur Ingimar Jónsson á Flugumýri orðið fyrsta fórnarlamb hennar. Hann andaðist sl. sunnu- dagsnótt. Skemmtun iðnaðarmanna 1. desember, var fjölmenn. Þar söng Jóhann Konráðsson einsöng með undirleik Askels Jónssonar og var góður rómur gerður að. — Séra Lárus Arnórsson prestur i Miklabæ flutti ræðu og sýndur var sjónleikurinn Geymfararnir. Var samkoma þessi ánægjuleg. Tunamælingar á Sval- barðsströnd og Grýtu- bakkahreppi Svalbarðsströnd 5. des. Ræktunarsamband Svalbarðs- strandar- og Grýtubakkahreppa samþykkti að láta fara fram túna- mælingar á sambandssvæðinu'nú í haust. Brugðu Svalbarðsströnd- ungar skjótt við og tilnefndu 6 menn til starfans. Fóru mælingar fram í vikunni sem leið og var þeim lokið fyrir helgí. Endanlegar tölur eru ekki fyrir hendi, enn sem komið er. Túnamælingar voru gerðar 1915—1916 og voru túnin þá kortlögð. Síðan hafa þau ekki ver- i« mæld, að öðru en því er bænd- ur hafa gert, hver fyrir sig, og jarðabætur eru árlega mældar af ráðunautum. En svo ótrúlegt, sem það kann að virðast, hefur komið í ljós að margir bændur hafa gert sér all- fráleitar hugmyndir um túnastærð jarða sinna. Margir hafa mun stærri tún en þeir hugðu og sumir minni. Virðist því full þörf fyrir fleiri ræktunarsambönd að fara að dæmi nefnds rælctunarsambands og láta framkvæma mælingar. Fyrir síðari timann er það hinn mesti fróðleikur og fyrir bændur er þetta töluvert hagræði nú þeg- ar. Akureyringar skemmta í Ólafsfirði Ólafsfirði 5. desember. Veðráttan er fremur köld þessa dagana og óstillt. Snjólaust er að kalla og bilfært um alla sveitina. Lítið er farið á sjó. Slysavarnadeild karla hélt skemmtisamkomu á laugardaginn. Jóhann og Jósteinn Konráðssynir skemmtu með söng með undirleik Jakobs Tryggvasonar. Húsfyllir var og söngnum forkunnarvel tek- ið. Þurftu þeir bræður að endur- taka mörg lög og syngja aukalög. Ragnar Þorsteinsson kennari flutti ferðaþátt um Evrópu. Sagði hann sérstaklega frá „Farfuglun- um“ og félagsskap þeirra í ná- grannalöndunum. Fer vel um trillurnar á íiýju höfninni Grímsey 5. des. Hér er mjög óstillt veðrátta og ekki farið á sjó svo heitið geti. Trillubátarnir liggja ennþá og fer vel um þá í nýju höfninni hvernig sem viðrar og er það mikill mun- ur frá því hafnleysi, sem áður var. Jarðlaust er hér að heita má. Snjór er þó ekki mikill, en áfreða gerði fyrir skömmu og tók fyrir beitina. Vont kvef hefur gengið og urðu margir töluvert lasnir. Búið er að setja upp 3 dieselrafstöðvar og sú fjórða væntanlega komin fyrir jól. Þær eru misstórar, en sumar bæði til ljósa, suðu og hitunar. Þessum þægindum er vel fagnaðfyrirjólin. Virðuleg útf ör Sigurðar Baldurssonar Fosshóil 6. desembcr. I dag var gerð útför Sigurðar Baldurssonar bónda í Lundar- brekku í Bárðardal. Fjölmenni mikið fylgdi honum til grafar. — Auk sveitunga hans var margt fólk úr Mývatnssveit, Reykjadal, Aðaldal, Kinn, Húsavik og Akur- eyri. Séra Stefán Lárusson jarðsöng og flutti hrífandi ræðu. Ennfremur töluðu Jón Gauti Pétursson, Gautlöndum, Páll Jónsson, Stóru- völlum, og Jón Jónsson, Fremsta- Felli. -—- Kaupfélag Þingeyinga sendi fagran blómakranz með hinztu kveðju og þökkum fyrir langt og ágætt starf. F.n Sigurður var endurskoðandi K. Þ. um nær tvo áratugi. Karlakór Mývetninga söng stjórn Jónasar Helgasonar. Gestir, er sumir voru langt að komnir, nutu ríkulegra veitinga á heimili hins látna. Fyrsta slcautasvell innanhúss. Á laugardaginn var fyrsta inn- anhússskautasvellið á Islandi vígt i Reykjavík. Hlaut það nafnið „Skátásvell". Er það í húsakynn- um skáta við Snorrabraut. Hæsfiréttur felur álögur Reykja- víkurbæjar á SÍS ólöglegar Lögtaksrétt bæjarins sy ur upp þann dóm, að skuli vera Hæstiréttur hefur úrskurð- að, að dómur sá um útsvars- mál SIS í Reykjavík, sem full- trúi borgardómara kvað upp fyrir nokkru, skuli vera órask- aður, og synjaði rétturinn kröfu Reykjavíkurbæjar um framkvæmd lögtaksgerðar á hendur SIS. Samkvæmt úr- skurði hæstaréttar getur tekju og veltuútsvar bæjarins á SIS fyrir útsvarsárið 1953 ekki orðið liærra en 327.243 kr., en bærinn liafði lagt á Sam- bandið 1.600.00 kr., en ríkis- skattanefnd lækkaði þá upp- hæð niður í 1.200.000 kr. Dómurinn i mólinu, Borgarstjór- inn í Reykjavík f. h. bæjarsjóðs gegn Sambandi íslenzkra sam- vinnufélaga, er svohljóðandi: „Sigurður Grímsson, fulltrúi borgarfógetans í Reykjavík, hefur kveðið upp hinn áfrýjaða úrskurð. Afrýjandi, sem skotið hefur máli þessu til Hæstarættar með stefnu 13. september, þ. á., krefst þess, að hinn áfrýjaði úrskurður verði felldur úr gildi og lagt verði fyrir fógeta að framkvæma lögtak hjá stefnda til tryggingar útsvars- skuld fyrir útsvarsárið 1953, aðal- lega að fjárhæð kr. 898.300.30, til vara kr. 697.860.30, enn til vara kr. 617.453.30 og til þrautvara kr. 417.013.30 auk dráttarvaxta lög- um samkvæmt og kostnaðar af lögtakagerð. Þá krefst ófrýjandi aðallega málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti úr hendi stefnda, en til vara, að hvor aðilja beri kostnað sinn af málinu fyrir báðum dómum. Stefndi krefst staðfestingar hins áfrýjaða úrskurðar og málskostn- aðar fyjrir Hæstarétti úr henÁ áfrýjanda eftir mati dómsins. Stefndi í máli þessu er sam- vinnusamband samkvæmt VI. kafla laga um samvinnufélög nr. 46 1937. Gilda því um útsvars- skyldu hans ákvæði 2. töluliðs II 6. gr. laga um útsvör nr. 66 1945, en þar segir svo um samvinnufé- lög: „Þau greiða útsvör af arði síðasta útsvarsárs, sem leiðir af skiptum við utanfélagsmenn eftir sömu reglum og kaupmenn sama staðar." Samkvæmt 3. tölulið 4. gr. út- svarslaganna greiða kaupmenn í Reykjavik veltuvitsvar. Ákvæði 2. töluliðs II 6. gr. útsvarslaganna vísar til reglna þeirra, er gilda um útsvar á kaupmenn á staðnum. Eer því að leggja veltuútsvar á samvinnufélag í Reykjavík á skipti þess við utanfélagsmenn auk tekjuútsvars á arð af þeim viðskiptum. En útsvar má hvorki beint né óbeint leggja á eign sam- vinnufélaga né skipti þess við fé- lagsmenn. Tekju- og veltuútsvar njað. Hæstiréttur kveð- dómur borgardómara óraskaður má því alls eigi fara fram úr hreinum arði samvinnufélaga af skiptum þess við utanfélagsmenn. Samkvæmt framtali stefnda og úrskurði Ríkisskattanefndar nam arður stefnda af skiptum við utan- félagsmenn útsvarsárið 1953 kr. 527.243.69. Ríkisskattanefnd gerði stefnda hins vegar að greiða Reykjavíkurkaupstað fyrir nefnt útsvarsár kr. 1.200.000.00 í útsvar, er sundurliðast þannig: 1. Tekjur af skiptum utanfélags- manna ........ kr. 30170.00 2. Veltuútsvar af sömu viðskipt- um............ — 966382.00 3. Eignarútsvar — 200440.00 4. Hækkun .... — 2008.00 Samtals kr. 1200000.00 Með tilvísun tií þess, setn áður er rakið, hefur eignarútsvarið enga stoð í lögum, en veltuútsvar- ið hefur eigi verið ákveðið innati réttra marka. Samkvæmt þessu og þar sem stefndi hefur greitt tekju- útsvarið að fullu, svo sem greinir í úrskurði fógeta, ber að synja um framkvæmd lögtaksgerðar. Eftir þessum úrslitum er rétt, oð hvor aðiili beri kostnað sinn af málinu í héraði og fyrir dómi. DÓMSORÐ: Hinn áfrýjaði úrskurður á að vera óraskaður. Hvor aðilja beri kostnað sinn af hálfu í héraði og fyrir Hæstarétti. Bifreiðastjóranámskeið í Húsavík Námskeið bifreiðastjóra, til meira prófs, var haldið í Húsavík og er nýlokið. Er þetta í fyrsta skipti að slíkt námskeið er haldið þar. Nemendur, sem voru 30, er prófi luku, voru allir úr S.-Þing- eyjarsýslu, að einum undanskyld- um. Stjórnandi námskeiðsins var Snæbjörn Þorleifsson bifreiðaeft- irlitsmaður. Var hann einnig kenn- ari ásamt Vilhjálmi Jónssyni. Auk þeirra fluttu Ari Kristins- son, settur bæjarfógeti, nokkur er- indi. Námskeiðinu lauk með hófi. Þar fluttu ræður: Júlíus Havsteen, sýslumaður, Ari Kristinsson, Indr- iði Ulfsson, Guðmundur Hákonar- son, Kristján Benediktsson o. fl. Ýsuafli á Grenivík Grenivíkurbátar hafa aflaö nokkuð að undanförnu. Aflinn er mestmegnis ýsa og er stutt á mið- in. Ýsan er seld á Akureyri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.