Dagur - 08.02.1956, Qupperneq 1
Fylgizt með því, sem gerist
hér í kringum okkur. —
Kaupið Dag. Sími 1166.
Dagur
BAGUR
kemur næst út mið-
vikudaginn 15. febr.
XXXIX. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 8. febrúar 1956
7. tbl.
Mynd frá 1776
Mynd þessi er af helztu mönnum nefndar þeiiTar, sem samdi
sjálfstæðisyfirlýsingu nýlendnanna 13, sem svo nefndu sig
Bandaríki Ameríku.' Frá vinstri: Tómas Jeffei'son, Roger
Sherman, Benjamín Franklín, Róbert Livingston, JónAdams.
Tímanum vel varið.
Eins og fyrri fréttir greina, hóf
Gagnfræðaskóli Akureyrar kennslu
í umferðareglum og umferðamenn-
ingu, þegar fimleikakennsla var
lögð niður í skólum, vegna mænu-
veikinnar í vetur.
Gísli Olafsson lögregluþjónn og
vaktstjóri í lögregluliði Akureyrar-
kaupstaðar annaðist kennsluna
ásamt fimleikakennurum skólans,
Þórhöllu Þorsteinsdóttur og Har-
aldi Sigurðssyni. — Skólafólkið
féklc mikinn áhuga fyrir þessari
nýju námsgrein og taldi sér kunn-
áttu í þessu efni ekki síður nauð-
synlega en önnur fræði.
Stefán Ámason, forstjóri Al-
mennra trygginga h.f., lofaði að
veita verðlaun fyrir beztu úrlausn-
ir að námskeiði loknu.
Verðlaun og ræður.
Á laugardaginn var, ávarpaði
skólastjórinn, Jóhann Frímann,
nemendur í samkomusal skólans
og þakkaði ágætt samstarf
allra aðila, fyrst og fremst Gísla
Ólafssyni, vakstjóra og leikfimi-
kennurum skólans, Stefáni Árna-
syni forstjóra Almennra trygginga
h.f. og nemendum skólans. Vonaði
hann að slíkt samstarf skóla,
tryggingafélaga og lögreglu héldist
áfram Og þessi kennsla yrði í
framtíðinni ekki aðeins í forföll-
um, heldur sem fastur liður í
skólastarfinu. Afhenti Stefán Árna-
son síðan nemendum verðlaunin,
en þau voru pappirshnífar úr stáli
með áletrun tryggingafélagsins. —
Þeir, sem fengu 1. ágætiseinkunn
vig próflausnir námskeiðsins voru
þessir nemendur: Gísli Bragi
Hjartarson, Hallfriður Magnús-
dóttir og Otto Tulinius, öll úr bók-
námsdeild 4. bekkjar.
veita
un að af-
■tSf* r
Úr landprófsdeild 3. bekkjar
hlutu María Jóhannsdóttir og
Halldóra Ágústsdóttir verðlaun og
efstu menn allra 14 bekkjadeilda
skólans. Voru öll verðlaunin sams
konar.
Við þetta tækifæri flutti Stefán
Árnason ræðu og minnti á hina ört
vaxandi umferð á þessari tækni-
og vélaöld og hversu nauðsynlegt
það væri að ökumenn og aðrir
vegfarendur kynnu full skil á um-
ferðareglum. Skorti mjög á þessa
nauðsynlegu kunnáttu og væri
ekki viðunandi lengur. Því væri
það gleðiefni að Gagnfræðaskólinn
hefði í verki sýnt málinu þennan
mikilsverða stuðning.
Samkvæmt símtali, er Jón-
as Kristjánsson átti í gær-
morgun við Per Gudmund
Knutsen dýralækni, en
hann dvelur nú að heimili
sínu í Noregi, þá mun það
afráðið að hann komi aftur
liingað til Akureyrar síðari
hluta þessa mánaðar og
muni dvelja hér um óákveð
inn tíma. Þetta mun vera
ein bezta frétt, sem blaðið
getur, að þessu sinni, flutt
eyfirzkum bændum, því að
hvort tveggja er, að Gud-
mund Knutsen reyndist
vera afburða góður dýra-
læknir og auk þess á allan
hátt vinsæll í starfi sínu, og
eins er hitt, að enginn dýra-
læknir hefur starfað í hérað-
inu síðan Gudmund Knut-
sen fór heim til Noregs um
miðjan desember síðastl.
Eigendur Dvergur hi. Olafsvík og
Valtýr Þorsteinsson íitgerðarm.
Skipasmíðastöð KEA er að ljúka srníði tveggja skipa. Mun
fyrra skipið verða sett á flot einlivern næsta dag, en hið síðara
eftir um bað bil liálfsmánaðar tíma.
F ramsóknar vistin
Þriðja umferð verður spil-
uð á föstudagskvöldið. —
Munið að taka aðgöngu-
kortin með. Það fólk, sem
hefur fasta miða, en getur
ekki mætt, er vinsamlega
beðið að láta vita í síma
1443.
Leit að jarðhita til virkjunar
Jómfrúræða Tómasar Árnasonar
Þeir Karl Kristjánsson og Tóm-
ast Árnason flytja furmvarp í efri
deild um heimild fyrir ríkisstjórn-
ina til þess að láta gera leit að
jarðhita til virkjunar. Telja flutn-
ingsmenn, að nauðsynlegt sé að
hagnýta jarðhitann til hins ýtrasta
og í honum séu fólgin meiri verð-
mæti en flestir gera sér grein fyrir.
I greinargerð er m. a. upplýst, að
einn fjórði hluti þjóðarinnar hafi
þegar hagnýtt sér jarðhitann. Talið
er, að verðmæti jarðhitans, sem nú
er notaður í stað eldsneytis sé
samtals um 28 millj. kr. á ári
hverju, ef miðaö er við olíuverð.
Nýtur því þjóðin öll þess gjald-
eyrissparnaðar. sem hagnýting
jarðhitans hefur i för með sér.
Flutningsmenn frv. álíta að rík-
ið eigi að taka að sér forgöngu í
málum þessum, annast og kosta
rannsóknir og boranir eftir heitu
vatni, þar sem trúnaðarmenn þess
telja rétt frá jarðfræðilegu og hag-
fræðilegu sjónarmiði, að þær séu
gerðar, láta síðan þá, er fyrst og
fremst njóta jarðhitans, greiða
kostnaðinum eftir því, sem árang-
urinn verður. Flutningsmenn vekja
athygli á því, að jarðhiti, sem tök
náist á til virkjunar, endist ekki
aðeins þeim einstaklingum, sem nú
lifa, heldur væntanlega svo lengi,
sem þjóðin lifir í landinu.
Tómas Árnason, sem tók sæti á
Alþingi í fjarveru Bernharðs Stef-
ánssonar, 1. þingm. Eyfirðinga,,
flutti jómfrúræðu sína í þinginu á
mánudaginn. Var það við fyrstu
umræðu um áðurnefnt frumvarp.
Skipasmíðastöð KEA tók til
starfa árið 1941 og hefur smíðað
mörg skip og báta og auk þess
annast viðgerðir. Stærsta skip, sem
smíðað hefur verið í stöðinni, er
Snæfell, 165 tonna skip. Gunnar
Jónsson skipasmíðameistari annað-
ist forstöðu stöðvarinnar mörg
fyrstu árin, en síðan sonur hans
Tryggvi, síðastliðin 3 ár. Á síðast-
liðnu ári unnu 16 manns til jafnað-
ar á stöðinni, en nú um sinn miklu
fleiri.
Auk annarra verkefna hefur um
kunnugt er öfluðu Ólafsvíkurbát-
arnir afbragðsvel á vetrarvertíð-
inni í fyrra og sækja sjóinn af
kappi. Nýtt hraðfrystihús kaupfé-
lagsins Dagsbrún, sem verið hefur
2 ár i smíðum og enn er ekki að
fullu lokið, getur tekið á móti afl-
anum og er það til ómetanlegshag-
ræðis fyrir útgerðina þar.
Feðgarnir Gunnar og Try ggvi
gerðu teikningar.
Allar teikningar hins nýja skips
gerðu þeir feðgar, Gunnar Jónsson
Hið nýja skip Skipasmíðastöðvar KEA tekið úr skýlinu. —
Verður það sjósett einhvem næsta dag og því síðan siglt til
heimahafnar í Ólafsvík.
skeið verið unnið að smíði tveggja
skipa, og er smíði þeirra að ljúka.
Góð reynsla.
Ólafsvíkingar eiga Egil, 27 tonna
bát frá Skipasmiðastöð KEA. —
Likar þessi bátur svo vel, að annar
aðaleigandi hans, Guðmundur
Jensson, og aðrir er kynni höfðu
af, kusu að leita eftir smíði skips
af sömu gerð, en 40 tonn. Verður
Guðmundur skipstjóri, en eigandi
Dvergur h.f. í Ólafsvík, og er Guð-
mundur hingað kominn með
áhöfnina og bíður skipsins. Mun
hann þegar hefja róðra, er vestur
kemur.
Vcnduð vinna.
Lýkur Guðm. lofsorði á skipið og
telur alla vinnu hina vönduðustu
og vel af hendi leysta og hyggur
gott til heimferðar og vertíðarinn-
ar, sem í vændum er. Svo sem
og Tryggvi Gunnarsson skipa-
smíðameistarar. — Niðursetningu
véla og járnsmíði, annaðist Oddi
h.f. og raflagnir Raflagningadeild
KEA. Vélin er 240 hestafla diesel-
vél, General Motor. Skipið er búið
öllum nýtízku tækjum, svo sem
dýptarmælir með Astic-útfærslu,
vökvadrifnum vindum o. fl. Blaðið
óskar Guðmundi Jenssyni og
skipshöfn fararheilla og fengsællar
vertíðar á hinu nýja og glæsilega
skipi.
65 tonna skip.
Skipasmíðastöð KEA er að
ljúka smíði annars skips. Er það
65 tonn að stærð og eigandinn
Valtýr Þorsteinsson útgerðarmað-
ur á Akureyri. Sennilega verður
skipið sjósett síðar í þessum mán-
uði. Mörg verkefni eru framundan
og meðal annars smiði 50 tonna
skips o. fl.