Dagur


Dagur - 06.10.1956, Qupperneq 1

Dagur - 06.10.1956, Qupperneq 1
Fylgist með því, sem gerist hér í kringum okkur. Kaupið Dag. — Sími 1166. Dagur DAGUR kemur næst út miðviku- daginn 10. október. XXXIX. árg. Akureyri, laugardaginn 6. október 1956 52. tbl. Grafhýsi Lenins og Stalins við Kreml Dag hvern voru langar biðraðir manna er áttu erindi inn fyrir múra Kremlar eða lögðu leið sína að grafhýsum fallinna foringja. - (Sjá grein á 5. blaðsiðu.) Nýr fiskihátur írá Skipasmíða- Annar í smíðum fyrir Ólafsvíkinga eiri nemendur í Ákureyrarskólunum en nokkru sinni lyrr Skéiirnir setiir cg Ákureyri verður skóiabær á ný „fslenzk æska lifir of ókyrru lífi “ sagði Þórarinn skólameistari við setningu Menntaskólans á þriðjudaginn var Enn hefur nýr bátur fra Skipa- smíðastöð KEA á Oddeyrartanga bætzt í flotann. Að þessu sinni lítill vélbátur, Hafþór, EA—102, 9 lestir að stærð, smíðaður fyrir Kristin Jónsson og Helga Jak- obsson í Dalvík. Báturinn hefur þegar verið af- hentur og honum siglt til Dal- víkur. Þetta er fallegur og vand- aður bátur, gerður eftir teikn- ingu Tryggva Gunnarssonar skipasmíðameistara, sem er yfir- smiður á skipasmíðastöðinni og tók við því starfi af föður sínum, Gunnari Jónssyni skipasmíða- meistara. Stór bátur á stokkunum. Nú stendur á stokkunum í skipasmíðastöðinni 55 lesta bátur, sem smíðaður er fyrir Olafsvík- inga. Á þessi bátur að verða til- búinn um næstk. áramót. Fyrr á þessu ári var lokið við að smíða 40 lesta bát fyrir Ólafsvíkinga. Á sl. vori var líka lokið við smíði Endurskoðun banka- laganna Ríkisstjórnin hefur skipað þá Friðjón Skarphéðinsson, Einar Olgeirsson og Skúla Guðmunds- son í nefnd til að endurskoða bankalöggjöf landsins og gera til- lögur þar um. Meðal annars á nefndin að athuga möguleika á áð setja seðlabankann undir sér- staka stjórn. I málefnasamningi stjórnarinnar var ákveðið að láta slíka rannsókn fara fram. 62 lesta skips, sem þeir keyptu Valtýr Þorsteinsson útgerðarmað ur á Akureyri og Svavar Sigur- jónsson frá Flatey. Skipasmíðastöð KEA á Akur- eyri var stofnuð fyrir stríð og hefur síðan smíðað fjölda báta, þar á meðal hið kunna og ágæta aflaskip Snæfell, sem er 160 lestir. Nýtur stöðin mikils álits, enda hafa ágætir fagmenn ráðizt þar til starfa og KEA hefur feng- ið stöðinni góða aðstöðu til að framkvæma nýsmíðar og við- gerðir. Viðræður um varnar- málin Emil Jónsson utanríkisráð- herra hefur nýlokið viðræðu við bandarísk yfirvöld um varnarmálin. Var opinber til- kynning gefin út um þetta í Washington á miðvikudag. — Fóru viðræður mjög vinsam- lega fram og er ákveðið að formlegar viðræður hefjist í Reykjavík um varnarsamning- inn frá 1951 um miðjan nóv- ember næstkomandi. Símasamband rofið Á miðvikud. var símasamband rofið við Suðurland. Jarðýta hafði slitið jarðstrenginn í Borg- arfirði. Símtöl voru afgreidd eft- ir því sem við varð komið um Austurlandslínuna. Dag Hammarskjöld Aðalritari Samenuðu þjóðanna síðan 1953. Menntaskólinn á Akureyri var settur sl. þriðjudag við hátíðlega athöfn. Þórarinn Björnsson, skóla- meistari, hélt að venju merka ræðu við það tækifæri. Litlar breytingar verða á kenn- araliði skólans. Steindór Stein- dórsson er fjarverandi um stund- arsakir, vestur í Ameríku í náms ferð, og kenna þeir Jóhann Þor- kelsson og Stefán Árnason fyrir hann á meðan. Sigúr'ður L. Páls- son kemur nú aftur til starfa, en hann var veikur í fyrra. Vern- harður Þorsteinsson kennir dönsku í 4. bekk, og Hákon Loftsson og Steingrímur Sigurðs- son verða stundakennarar eins og síðastliðinn vetur. Gagnfræðaskóli Akureyrar var settur með viðhöfn og að við- stöddu fjölmenni á mánudaginn var. Var fyrst sunginn sálmurinn „Faðir andanna“, en að því loknu flutti skólastjórinn, Jóhann Frí- mann, setningarræðuna, vitur- lega ræðu og skörulega. Hann gerði m. a. skólaslit og skóla- setningu að umtalsefni og einnig breytt viðhorf og aðstæður ungs fólks til skólanáms frá því sem áður var. Nú væri nokkurt nám lögboðið og opin leið til margs konar skólagöngu. Áður hefði skólamenntun verið fárra út- valdra og þótt mikið hnoss. Hann óskaði þess, að hinn stóri nemendahópur kæmi í skólann með gleði, tilhlökkun og opinn og fróðleiksfúsan hug. Hverju heil- brigðu ungmenni væri leitandi þörf í blóð borin, og innri rödd hvíslaði að í skólunum væri mikilsverða aðstoð að fá. Skó.linn vildi fyrir sitt leyti uppfylla þessa þörf, og á undan- förnum árum hefði vel tekist, svo sem m. a. námsárangrar sýndu. Nemendur verða 305 eða að- eins fleiri en í fyrra. Tæpur þriðjungur nemenda eru stúlkur, eða 96. Næstum 1/3 nemenda er héðan úr bænum, og um það bil helm- ingur nemenda eru Norðlending- ar. Að loknum þessum og fleiri upplýsingum um skólann og starfið, flutti skólameistari snjalla ræðu. Taldi hann íslenzka æsku lifa of ókyrru lífi og sofa of lítið, og næturgöltur hennar og kvöldlíf væri alvarlegt uppeldis- vandamál.. Taldi hann hávaðann, næðisleysið og svefnleysið eyði- leggja taugar unglinganna, en kvöldlífið veikja siðferðisþrekið. Myndi ekki veita af þagnar- stundum fleiri en nú gefast og meiri svefni, ef vel ætti að vera. En skólastjórinn sagði, að sönn menntun yrði þó að ná dýpra en til námsgreina og einkunna við skóla. — Hún yrði að ná til hjart ans og þroskast innan frá með hverjum manni. Skólastjórinn hvatti nemend- ur til hollra og menningarlegra umgengishátta og lífsvenja og til að njóta af beztu getu þeirrar fræðslu er þjóðfélagið veitti við opnar dyr skólanna. Að skóla- setningu lokinni sungu viðstaddir þjóðsönginn. Meðal gesta var Þorst. M. Jónsson, fyrx-v. skóla- stjóri. — (Framhald á 7. síðu.) Tónlistarskóli Ak. var settur sl. miðvikudag í Lóni. Ávarpaði skólastjórinn, Jakob Tryggvason, nemendur og gesti, og ræddi um vetrarstarfið. f skólann eru skráðir 31 nem- andi í píanó- og orgelleik, og verða kennarar hinir sömu og áður. Fiðlukennarinn Ivan Knud sen, er nú farinn héðan, en í at- hugun er að útvega annan kenn- ara í fiðluleik í hans stað. Ópera í sjónvarpi Nýlega var leikin í sjónvarp í Bandaríkjunum ný ópera eftir Roran Dello Joio, sem neínist Máisrannsóknin í Rúðuborg. Hér sést „Mærin frá Orleans“ standa frammi fyrir ákærend- um sínum. „Þjóðfélagið lieldur öllum dyrum opn uiii til skólagöngu'

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.